Mál nr. 29/2013, úrskurður 16. maí 2013
Mál nr. 29/2013 Eiginnafn: Myrk
Hinn 16. maí 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 29/2013 en erindið barst nefndinni 26. apríl:
Eiginnafnið Myrk (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Myrkvar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Myrk (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.