Mál nr. 26/2013, úrskurður 16. maí 2013
Hinn 16. maí 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 26/2013 en erindið barst nefndinni 17. apríl:
Eiginnafnið Kristý (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Kristýjar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Kristý (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.