Mál nr. 24/2013, úrskurður 16. maí 2013
Mál nr. 24/2013 Eiginnafn: Þollý
Hinn 16. maí 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 24/2013 en erindið barst nefndinni 17. apríl:
Eiginnafnið Þollý (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Þollýjar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Þollý (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.