Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 5/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann dags. 7. janúar 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 5/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU15100015

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru , dags. […], kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. október 2015 um að synja honum um hæli ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og henni breytt á þann hátt að kærandi og börn hans fái réttarstöðu flóttamanna skv. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann hátt að kæranda og börnum hans verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 12. gr. f útlendingalaga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom hingað til lands 20. júlí 2015 og sótti um hæli tveimur dögum síðar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Kærandi mætti í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 15. september 2015 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. október 2015, um að synja kæranda um hæli, dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við landið, var birt honum þann 16. október 2015. Kærandi kærði ákvörðunina þann sama dag. Greinargerð vegna kæru barst kærunefnd útlendingamála þann 3. nóvember 2015. Þann 9. desember sl. kom kærandi fyrir kærunefndina og gerði grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b laga um útlendinga. Viðstaddir voru talsmaður kæranda og túlkur.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggði umsókn sína um hæli á því að sonur hans þurfi læknisaðstoð á Íslandi vegna [...] veikinda sinna en hann væri […]. Kærandi hafi fengið aðstoð fyrir son sinn frá færustu læknum […]. Hann sagði að læknisaðstoð væri dýr og ekki góð aðstaða fyrir sjúklinga. Auk þess sé kærandi atvinnulaus og mikið af vandamálum fylgdu því að vera frá […]. Kærandi kvaðst einnig óttast um öryggi fjölskyldu sinnar vegna hótana valdamikils stjórnmálamanns í […]að nafni […] vegna andstæðra stjórnmálaskoðana þeirra. […] Í kjölfarið hafi hann ásamt mörgum öðrum misst starf sitt. Sagði kærandi að […]. Kærandi óttist að […]hefni sín gegn andstæðingum sínum í stjórnmálum, þar á meðal honum. […] ætti auk þess frændur sem væru þekktir glæpamenn. Kærandi kvaðst hafa fengið líflátshótanir en það sé jafnframt mjög algengt í […]. Menn á vegum […] hafi einnig hótað eiginkonu hans úti á götu og kærandi taldi […] hafa valdið því að hún missti starfið. Kærandi sagðist ekki geta leitað til lögreglu, þar sem […] væri yfir lögreglumálum í […]. Auk þess gæti hann ekki flust til annarra svæða í […] þar sem […].

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að lítið benti til þess að einstaklingar væru ofsóttir af andstæðingum í stjórnmálum og að þeir sem óttuðust slíkar ofsóknir gætu leitað verndar frá yfirvöldum eða flutt innanlands til að flýja staðbundnar hótanir.

Í ákvörðun stofnunarinnar var auk þess fjallað um heilbrigðiskerfið í […]. Útlendingastofnun taldi ljóst að spilling sé til staðar í […]stjórnsýslu en að stjórnvöld vinni markvisst að því að uppræta spillingu innan stjórnsýslunnar og dómskerfisins.

Útlendingastofnun taldi frásögn kæranda af hótunum gegn sér ónákvæma og óstöðuga og að sumu leyti ekki í samræmi við frásögn eiginkonu hans, en þar sem að samræmis gætti í heildarfrásögn kæranda var það mat Útlendingastofnunar að leggja bæri frásögn kæranda að þessu leyti til grundvallar við úrlausn málsins. Var því byggt á frásögn kæranda með þeim fyrirvara að upplýsingar um heimaland kæranda beri skýrlega með sér að að hann geti leitað ásjár yfirvalda vegna aðstæðna sinna. Útlendingastofnun taldi ekkert fram komið sem benti til þess að kærandi væri í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem gæti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar segir að hótanir sem kærandi beri fyrir sig hafi staðið yfir í stuttan tíma og hafist […]. Af frásögn kæranda yrði ekki ráðið að hann eða fjölskylda hans hafi orðið fyrir atvikum sem væru svo alvarleg að þau gætu falið í sér ofsóknir í skilningi 1. mgr. 44. gr., sbr. 44. gr. a. […]. Ekkert benti til að kærandi og fjölskylda hans ættu á hættu að verða fyrir slíkum atvikum í […] og var talið að kærandi gæti leitað til yfirvalda vegna aðstæðna sinna en það hafi hann ekki gert áður en hann yfirgaf landið með fjölskyldu sinni. Þar að auki var talið að einstaklingar í sambærilegri aðstöðu og kærandi gætu flutt til annarra svæða innan […]. Þá gæti heilsufar sonar kæranda, sem meginástæða þess að hann og fjölskylda hans sóttu um hæli, ekki falið í sér ofsóknir á hendur honum eða fjölskyldu hans. Að þessu virtu var það niðurstaða Útlendingastofnunar að kærandi ætti ekki á hættu ofsóknir eða meðferð sem jafnað yrði til ofsókna í heimalandi hans.

Með vísan til framburðar kæranda, málsatvika og upplýsinga um heimaland hans var ekki talið að kærandi ætti á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu yrði hann sendur aftur til heimalands síns. Auk þess var ekki annað séð en að yfirvöld væru fær um að veita kæranda viðeigandi aðstoð. Að þessu virtu var talið að kærandi ætti ekki á hættu illa meðferð skv. 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga í heimalandi sínu. Að framangreindu virtu var það niðurstaða Útlendingastofnunar að kærandi væri ekki flóttamaður og bæri að synja honum um hæli á Íslandi sbr. ákvæði 44. gr. og 1. mgr. 46. gr. útlendingalaga.

Kærandi óskaði eftir vernd á Íslandi vegna heilbrigðisástæðna sonar síns sem er […] og því lögráða að íslenskum lögum. Kærandi hafi ekki sagt frá því að hann ætti sjálfur við heilsufarsvanda að stríða sem hann gæti ekki fengið meðferð við í heimalandi sínu. Þar með væri ekki talið að hann hefði sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum. Með vísan til frásagnar kæranda og gagna í málinu var ekkert komið fram um sérstök tengsl kæranda við Ísland. Að þessu virtu var það niðurstaða Útlendingastofnunar að synja kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f útlendingalaga.

Ekki var talið að endursending kæranda bryti gegn 1. mgr. 45. gr. útlendingalaga. Með tilliti til atvika málsins var það niðurstaða Útlendingastofnunar að kæranda skyldi vísað frá landinu í samræmi við 3. mgr. 90. gr. reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga. Með tilliti til atvika málsins var það niðurstaða Útlendingastofnunar að kæra skyldi ekki fresta réttaráhrifum með vísan til c-liðs 1. mgr. 32. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kom fram að kærandi og eiginkona hans séu […]. Stjórnmálaþátttaka hans í […] hafi haft mikil áhrif á líf fjölskyldunnar og vellíðan en hann hafi verið meðlimur í […]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi komið fram að kærandi teldi sér vera mismunað vegna stjórnmálaþátttöku sinnar og hann hafi misst vinnuna vegna þessa og átt erfitt með að fá vinnu vegna óvildar í sinn garð. Hann hafi […] og verið mjög heilsuveill á árinu 2015 sem hann teldi eiga rætur að rekja til streitu og óvissu um stöðu sína og fjölskyldu sinnar. Þá teldi hann eiginkonu sinni einnig vera mismunað vegna þessa en henni hafi einnig verið sagt upp sínu starfi. Þeim hafi borist hótanir um líflát og ofbeldi frá manni að nafni […] og hans fólki, en hann sé valdamikill maður sem sé nú við völd í […] , sem hafi mikil ítök í stjórnsýslunni og ráði að miklu leyti yfir löggæslu borgarinnar. Fjölskyldan telji sig ekki vera örugga í […] og að ástandið muni ekki skána. Þau geti ekki reitt sig á aðstoð frá yfirvöldum og telji til lítils að leita frekar til lögreglu en þau hafi nú gert, vandamálið sé stærra en svo og spillingin mikil. Þá sögðu bæði kærandi og eiginkona kæranda helstu ástæðu flóttans vera alvarleg veikindi sonar síns. […]. Ennfremur sé heilbrigðiskerfið og þá sérstaklega [...] í […] afar bágborin og dýrt að verða sér úti um nauðsynlega þjónustu. […].

Í greinargerð kemur fram að Útlendingastofnun hafi talið kærendur geta leitað til yfirvalda vegna aðstæðna sinna, þrátt fyrir að hjónin hafi ítrekað lýst því yfir að aðstoð yfirvalda væri ekki raunverulegt úrræði og stutt þá yfirlýsingu með gögnum. Talsmaður kæranda telji til lítils að ætlast að kærendur geti leitað til […] yfirvalda og hlotið þar vernd, þegar fyrir liggi að umfangsmikil spilling ríki í […] og að réttarkerfið standi höllum fæti. Það væri því ekki hægt að ganga út frá því að yfirvöld væru fær um að veita þegnum sínum fullnægjandi vernd með vísan til þess að gefnar hafi verið út leiðbeiningar til lögreglu og saksóknara. Það eitt og sér segi ekkert til um hvernig framkvæmdin sé í raun og veru. Helsta ástæða flótta kæranda frá […] sé vantraust á vilja og getu stjórnvalda til þess að veita honum vernd gagnvart þeim sem hafa ofsótt hann og að látið verði af þeirri kerfisbundnu mismunun sem hann og fjölskylda hans hafa mátt þola. Í tengslum við aðalkröfuna vegna barna kæranda, var sérstök athygli vakin á ákvæðum 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Að mati talsmanns kæranda fór ekki fram einstaklingsbundið og sjálfstætt mat á aðstæðum kæranda í málinu, heldur hafi einungis verið stuðst við almennar upplýsingar um […] og sneitt hjá staðreyndum er varða spillingu, ofsóknir og mismunun sem kærandi á hættu að verða fyrir vegna stjórnmálaþátttöku sinnar. Þá yrði að gera þá kröfu að kærunefndin meti mögulega spillingu í heimabæ kæranda og hversu líklegt sé að […] sé fær um að beita völdum sínum og áhrifum með óeðlilegum hætti svo kærendur fái ekki notið grunnmannréttinda. Mikilvægt væri að skoða hvort kærendur ættu þess raunverulega kost að leita sér aðstoðar og fá veitta vernd í heimaríki svo þau séu ekki send í óviðunandi aðstæður. […]. Í ljósi þessa þurfi að taka umsóknir […] um hæli alvarlega og kanna vandlega hvort þeir sem hingað kæmu og óskuðu eftir hæli væru í raunverulegri þörf fyrir vernd. Í þessu samhengi vakti talsmaður kæranda athygli á 3. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna sem leggur bann við að mismuna flóttamönnum eftir ættlandi. Einstaklingsbundið mat á aðstæðum hverju sinni væri kjarni flóttamannahugtaksins og nauðsynlegt til að unnt væri að virða hina svokölluðu non-refoulement reglu sem lögfest væri í 45. gr. útlendingalaga. Hælisumsóknir beri að meta sjálfstætt út frá hverjum einstaklingi, á grundvelli hlutlægra og nýjustu upplýsinga um stöðu mannréttinda í heimalandi og aðstæðum viðkomandi einstaklings frekar en á almennum upplýsingum um ríkið.

Til vara var sú krafa gerð að hin kærða ákvörðun yrði felld úr gildi og breytt á þann hátt að kæranda yrði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga. Kærandi og eiginkona hans hafi greint frá því að sonur þeirra sé […]. Kærandi hafi greint frá því að heilbrigðiskerfið í […] stæði höllum fæti auk þess að mikil spilling sé í kerfinu og vel þekkt að borgurum sé mismunað á grundvelli þjóðfélagsstöðu og fjárhags. […]. Talsmaður kæranda benti á að 12. gr. f laganna er heimildarákvæði og útiloki ekki að stjórnvöld geti veitt kæranda dvalarleyfi af mannúðarástæðum á grundvelli heilbrigðissjónarmiða.

Önnur meginástæða flótta kæranda frá […] væri vantraust á vilja og getu stjórnvalda til þess að veita þeim vernd gagnvart þeim sem ofsæktu kæranda og beittu hann kerfisbundinni mismunun sem kæmi í veg fyrir að fjölskyldan gæti lifað eðlilegu og mannsæmandi lífi. Kærandi hafi leitað til lögreglunnar en hún hafi ekki getað aðstoð hann. Af ótta um líf sitt hafi þau ekki haft annarra kosta völ en að flýja frá […]. Af þessum sökum beri að veita kæranda og fjölskyldu hans dvalarleyfi af mannúðarástæðum samkvæmt 12. gr. f laga um útlendinga, sbr. og ákvæði 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Kærandi kvaðst ekki geta flutt sig um set innan […] til að forðast ofsóknir. Það væri engin hefð fyrir því að fólk og heilu fjölskyldurnar flyttu sig um set innan […], fólk væri þar sem rætur þess væru. Þau hafi ekki ráð á því að flytjast auk þess sem kærandi hafi verið virkur í stjórnmálastarfi í sínu bæjarfélagi og væri því þekktur maður. […]. Það sé því ekki réttlætanlegt að ætlast til þess að hann og fjölskylda hans gætu flust búferlum, þar sem engin trygging væri fyrir því að ofsóknir og mismunun myndi minnka eða hætta.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hann framvísað […] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé […] ríkisborgari.

Landaupplýsingar

[…] er lýðræðisríki með um […] íbúa og eru mannréttindi almennt virt af stjórnvöldum þar í landi. […].

Kærunefnd útlendingamála hefur skoðað skýrslur og gögn um […].

Gögnin benda ekki til þess að mismunun og ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana í skilningi 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga tíðkist í landinu. Af gögnunum sést þó að grunnheilbrigðisþjónustu sé áfátt, […]. Í ofangreindum gögnum kemur þó einnig fram að […] hafi miðað áfram í málefnum er snerta réttarkerfið, frelsi og öryggi og á undanförnum árum hefur talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu í löggæslunni og dómsvaldinu.

Aðalkrafa kæranda

Kærandi óskaði eftir því að honum yrði veitt réttarstaða flóttamanns þann 22. júlí 2015, hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Kærandi byggir kröfu sína aðallega annars vegar á því að sonur hans þurfi læknisaðstoð og hins vegar að fjölskylda hans sé í hættu vegna hótana valdamikils stjórnmálamanns í […].

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimalandi. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að góðar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008)).

Kærandi hefur staðhæft að hann sé í hættu vegna hótana stjórnmálamanns og aðila tengdum honum í heimalandi sínu. Þrátt fyrir að kærunefnd útlendingamála dragi ekki í efa fullyrðingar kæranda um að kærandi og eiginkona hans hafi misst atvinnu sína vegna stjórnmálaskoðana, styðja gögn og skýrslur sem kærunefnd hefur skoðað ekki þá fullyrðingu kæranda að hann hafi „ástæðuríkan ótta við ofsóknir“ í skilningi 44. gr. útlendingalaga. Í ofangreindum skýrslum og gögnum sem kærunefndin hafði til skoðunar benti ekkert til þess að ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana í skilningi 44. gr. útlendingalaga tíðkuðust í […] en ef svo væri í tilviki kæranda sýndu gögn ekki annað en að […] stjórnvöld gætu og vildu veita fullnægjandi vernd. Er það mat kærunefndar að þó svo kærandi ætti raunverulega á hættu illa meðferð í heimalandi sínu, af hálfu þeirra aðila sem hann hefur nefnt, þá hafi hann raunhæfan möguleika á að flytja sig um set og leita sér ásjár stjórnvalda þar. Styðja heimildir ekki þá staðhæfingu kæranda að […] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda fullnægjandi vernd óski hann eftir henni við þau. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu réttarstöðu flóttamanns.

Í 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands.

Í ljósi þess sem að framan er rakið telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hans séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. og 1. mgr. 45 gr. laganna.

Varakrafa kæranda

Til vara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða sbr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við 2. gr. frumvarps þess sem varð að lögum nr. 115/2010 um breytingar á lögum um útlendinga nr. 96/2002 er fjallað ítarlegar um þau viðmið sem nefnd eru í 2. mgr. 12. gr. f og segir meðal annars að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé miðað við atriði á borð við það hvort um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm er að ræða sem meðferð er til við hér á landi en ekki í heimalandi viðkomandi. Ef um langvarandi sjúkdóm er að ræða séu ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi þegar sjúkdómur er á lokastigi. Jafnframt sé rétt að líta til þess hvort meðferð hefur hafist hér á landi og ekki er læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varða félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Sonur kæranda […] og kvað kærandi hann ekki fá fullnægjandi meðferð í heimalandi sínu. Gögn í málinu ásamt framburði kæranda og eiginkonu hans benda þó til þess að sonurinn gæti fengið fullnægjandi læknisþjónustu í […]. Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar framburður kæranda er virtur í heild sinni ásamt gögnum málsins og með vísan til úrskurðar í máli sonar kæranda er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í […] séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f útlendingalaga.

Jafnframt telur kærunefndin kæranda ekki uppfylla skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á Íslandi í tengslum við hælisumsókn sína og aðeins í skamman tíma.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar frá 14. október 2015.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The Directorate of Immigration‘s decision is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson

Pétur Dam Leifsson Vigdís Þóra Sigfúsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta