Mál nr. 163/2022 Úrskurður 5. janúar 2023
Mál nr. 163/2022 Eiginnafn: Sólbráð (kvk.)
Hinn 5. janúar 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 163/2022 en erindið barst nefndinni 20. desember.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Sólbráð (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Sólbráðar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Sólbráð (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.