Hoppa yfir valmynd

Nr. 200/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 11. júní 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 200/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20030026

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 16. mars 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. mars 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar, í fyrsta lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, og í öðru lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 42. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 12. desember 2019. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 17. desember 2019, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Frakklandi og Austurríki. Þann 23. desember 2019 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Frakklandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá frönskum yfirvöldum, dags. 26. desember 2019, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 2. mars 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 3. mars 2020 og kærði kærandi ákvörðunina þann 16. mars 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 25. mars 2020 ásamt fylgigögnum. Þá bárust viðbótarathugasemdir frá kæranda þann 18. maí 2020.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að frönsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Frakklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Frakklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi í viðtölum hjá Útlendingastofnun greint frá því að hann hafi flúið heimaríki sitt vegna handahófskenndra handtaka. Kærandi kvaðst hafa verið handtekinn og setið í fangelsi í 4 mánuði þar sem hann hafi verið beittur ofbeldi og lifað í stöðugum ótta. Kærandi andmælir endursendingu til Frakklands en aðstæður hans þar hafi verið mjög slæmar. Hann hafi haft aðgang að heilbrigðiskerfinu en t.a.m. ekki haft aðgang að húsnæði og ókeypis lögfræðiþjónustu. Þá hafi hann fengið viðtal hjá frönskum stjórnvöldum eftir rúmlega eins árs dvöl í landinu og síðar fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd. Þá greindi kærandi frá því að líkamlegt heilsufar sitt væri ekki gott vegna mikilla útbrota á líkamanum. Greindi hann jafnframt frá því að hann hafi upplifað andlega þreytu eftir komuna hingað til lands, einkum vegna aðstæðna í búsetuúrræði, auk þess sem að atburðir, s.s. heimilisleysi í Frakklandi og fordómar í Austurríki, hafi haft áhrif á heilsufar hans. Andleg vandamál hans hafi þó byrjað í heimaríki þegar faðir hans lést í [...]. Þá hafi kærandi greint talsmanni frá því að hann hafi mikla þörf fyrir sálfræðiaðstoð.

Hvað varðar aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi vísar kærandi til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar þar sem þeim hafi verið gerð ítarleg skil, m.a. m.t.t. stefnu franskra stjórnvalda í málefnum útlendinga, beitingu varðhalds gagnvart umsækjendum um alþjóðlega vernd og aðgengi að húsnæði og heilbrigðis- og hæliskerfinu.

Í greinargerð kæranda eru gerðar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi gerir í fyrsta lagi athugasemd við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar. Mótmælir kærandi því mati stofnunarinnar að í Frakklandi séu ýmis húsnæðisúrræði í boði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Vísar kærandi m.a. í þeim efnum til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar þar sem húsnæðisvanda umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi hafi verið gerð ítarleg skil og til þess að aðstæður umsækjenda sem sendir séu aftur til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar séu verulega flóknar. Á Charles de Gaulle flugvellinum sé aðeins ein sjálfstæð eining, mannúðar- og neyðarmóttökumiðstöðin PAUH, sem sé á vegum Rauða krossins, sem taki á móti umsækjendum og sé hún rekin án fjárhagsstuðnings frá ríkinu. Í Lyon fái umsækjendur um alþjóðlega vernd enga móttökuþjónustu og þurfi sumir þeirra að leita sér húsaskjóls sjálfir. Í þessu samhengi vísar kærandi einnig til nýlegs dóms frá Þýskalandi þar sem komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að endursenda ekki konu og dóttur hennar til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar vegna slæmra aðstæðna þar í landi, m.a. vegna erfiðleika við að fá umsókn sína skráða auk takmarkaðs aðgengis að búsetuúrræðum.

Í öðru lagi gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á sérstaklega viðkvæmri stöðu kæranda, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi greint frá því að hafa orðið fyrir miklu ofbeldi og hlotið áverka vegna þessa. Auk þess hafi hann greint frá heilsubresti og andlegri vanlíðan. Þá áréttar kærandi að verði honum fundinn tími hjá sálfræðingi Göngudeildar sóttvarna sé tilgangur þess tíma ekki að meta stöðu hans eða greina andlega kvilla sem kunni að hrjá hann heldur sé tilgangur að veita sálrænan stuðning. Það sé ekki hlutverk heilbrigðisstarfsfólks á Göngudeild sóttvarna að leggja mat á það hvort einstaklingur teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi hvetji kærunefnd til þess að sinna lögbundinni rannsóknarskyldu sinni og skoða með ítarlegum hætti hvort kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Þá ítrekar kærandi kröfu sína um að hann undirgangist sálfræðilegt mat.

Kærandi byggir kröfu sína í fyrsta lagi á því að íslenskum stjórnvöldum beri að taka umsókn hans til efnislegrar meðferðar hér á landi þar sem sérstakar ástæður séu uppi í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í þeim efnum fjallar kærandi almennt um og gerir grein fyrir inntaki og túlkun á ákvæðinu, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum og fyrri úrskurðum kærunefndar útlendingamála. Áréttar kærandi að stjórnvöldum beri að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður umsækjanda um alþjóðlega vernd, þ. á m. hvort einstaklingur sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi telji margt benda til þess að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi ákvæðisins, m.a. vegna andlegs og líkamlegs ástands hans. Þá telji kærandi heimildir bera með sér að franska ríkið hafi átt erfitt með að taka á móti þeim fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd sem sótt hafi til landsins síðustu ár og að staða kæranda í Frakklandi verði mun verri en staða almennings þar í landi, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærunefnd beri að líta til orðalags reglugerðar um útlendinga og horfa sérstaklega til samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins og skilvirkni umsóknarferlisins. Það sé hvorki skilvirkt fyrir kerfið né fyrir kæranda sjálfan að vera sendur til Frakklands þar sem álagið sé mikið. Um mat á því hvenær einstaklingur teljist eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vísar kærandi til úrskurða kærunefndar nr. 550/2017, 552/2017, 583/2017 og 586/2017. Í ljósi þessa séu sérstakar ástæður fyrir hendi og því beri íslenskum stjórnvöldum að taka umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar.

Krafa kæranda um efnismeðferð byggir í öðru lagi á því að ótækt sé að beita heimildinni í c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem umsækjandi njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Í ákvæðinu sé mælt fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement sem feli í sér bann við beinni endursendingu einstaklings til ríkis þar sem líf hans eða frelsi kunni að vera í hættu (e. direct refoulement) og jafnframt endursendingu til þriðja ríkis ef fyrirsjáanlegt sé að það muni senda hann áfram í slíka hættu (e. indirect refoulement). Vísar kærandi til þess að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, og að hann hafi greint frá því að hann hafi flúið heimaríki sitt vegna illrar meðferðar. Ljóst sé að með endursendingu íslenskra stjórnvalda á kæranda til Frakklands muni þau greiða leið franskra stjórnvalda til að senda kæranda til heimaríkis þar sem líf hans og frelsi kunni að vera í hættu. Með vísan til þessa telji kærandi að íslenskum stjórnvöldum beri skylda til þess að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar á Íslandi með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga.

Þann 18. maí 2020 bárust kærunefnd viðbótarathugasemdir kæranda vegna Covid-19 faraldursins. Kærandi vísar til frétta og tölfræðiupplýsinga þess efnis að ástandið í Frakklandi sé verulega slæmt og að aðgerðir í tengslum við faraldurinn hafi í för með sér skertan aðgang umsækjenda um alþjóðlega vernd að heilbrigðisþjónustu. Þá bendi kærandi á að samkvæmt nýjustu skýrslu AIDA (e. Asylum Information Database) hafi nýlega verið gerðar breytingar á aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd að heilbrigðisþjónustu í Frakklandi sem hafi í för með sér enn frekari takmarkanir. Nú þurfi umsækjendur um alþjóðlega vernd að dvelja í Frakklandi í þrjá mánuði áður en þeir fái aðgang að heilbrigðisþjónustu.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Frakklands á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja frönsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Frakklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Frakklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2019 Country Reports on Human Rights Practices – France (United States Department of State, 11. mars 2020),
  • 4th quarterly activity report 2016 by Nils Muižnieks, Council of Europe Commissioner for Human Rights (1 October to 31 December 2016) (Council of Europe, 22. febrúar 2017),
  • Amnesty International Report 2017/18 – France (22. febrúar 2018),
  • Annual Report 2018 – Paris (International Committee of the Red Cross (ICRC), 19. júní 2019),
  • Applying for asylum in France (Groupe d‘information et de soutien des immigrés, http://www.gisti.org. Síðast uppfært 23. mars 2020),
  • Asylum Information Database, Country Report – France (European Council on Refugees and Exiles, 2. apríl 2020),
  • France - Country report - Non-discrimination (European Commission, 1. nóvember 2019),
  • First Steps for Demanding Asylum (Dom‘Asile, nóvember 2015),
  • Freedom in the World 2019 – France (Freedom House, 2019),
  • Guide for Asylum Seekers in France (Ministry of the Interior, General Directorate for Foreign Nationals in France, 1. nóvember 2015),
  • Stjórnarskrá Frakklands (aðgengileg á ensku á vefsíðu stjórnlagaráðs Frakklands, http://www.conseil-constitutionnel.fr/),
  • Universal Periodic Review. National report submitted in accordance with paragraph 5 of the annex to Human Rights Council resolution 16/21 – France (United Nations Human Rights Council, 13. nóvember 2017),
  • Upplýsingar af vefsíðu heilbrigðisráðuneytis Frakklands (www.solidarites-sante.gouv.fr),
  • Upplýsingar af vefsíðu utanríkisráðuneytis Frakklands (www.diplomatie.gouv.fr),
  • Vefsíða innanríkisráðuneytis Frakklands (https://www.police-nationale.interieur.gouv.fr) og
  • World Report 2020 – European Union (Human Rights Watch, 14. janúar 2020).

Í framangreindum gögnum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar fær umsókn þeirra hefðbundna meðferð í hæliskerfi landsins. Umsækjendur geta sótt um alþjóðlega vernd hjá stjórnsýslustofnun (f. Préfecture) eða þar til bærum undirstofnunum. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á viðtali hjá sérstakri stofnun (f. Office français de l’immigration et de l’intégration (OFII)) þar sem fram fer greining á því hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu eða hafi sérstakar þarfir. Samkvæmt frönsku útlendingalöggjöfinni (f. Code de l‘entreée et du séjour des étrangers et du roit d‘asile) eru tilteknir hópar nefndir í dæmaskyni sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu, þ. á m. einstæðir foreldrar með ung börn á framfæri sínu, einstaklingar sem eiga við alvarleg veikindi að stríða, einstaklingar sem orðið hafa fyrir kynferðisofbeldi og þolendur mansals. Önnur stjórnsýslustofnun, OFPRA (f. Office français de protection des réfugiés et des apatrides), tekur svo efnisákvörðun í málinu.

Umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni hjá OFPRA geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls (f. Cour nationale du droit d’asile (CNDA)). Kæra til dómstólsins frestar almennt réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar, en dómstóllinn endurskoðar bæði málsástæður og lagarök í hverju máli. Niðurstöðu CNDA er hægt að áfrýja til héraðsdómstóls (f. Conseil d’Etat) þar sem fram fer formleg endurskoðun. Þeim umsækjendum sem synjað hefur verið um alþjóðlega vernd eiga möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjenda geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Þá eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga almennt ekki rétt á lögfræðiaðstoð við að leggja fram umsókn sína. Þegar umsókn hefur verið lögð fram geta þeir þó óskað eftir gjaldfrjálsri lögfræðilegri aðstoð á grundvelli efnahags, en slíka beiðni skal leggja fram hjá þar til bærri skrifstofu hjá stjórnsýsludómstól. Umsækjendur geta einnig leitað aðstoðar hjá frjálsum félagasamtökum sem veita lögfræðilega aðstoð, þ. á m. í viðtölum umsækjenda hjá OFII og OFPRA. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd einnig rétt á lögfræðiaðstoð við áfrýjun neikvæðrar niðurstöðu þeirra til CNDA stjórnsýsludómstólsins, en slík aðstoð er í mörgum tilvikum gjaldfrjáls. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga einnig rétt á að því að hafa túlk viðstaddan málsmeðferðina.

Í skýrslu Asylum Information Database frá 2. apríl 2020 kemur fram að umsækjendur eigi möguleika á að fá húsaskjól í hefðbundnum móttökumiðstöðvum, CADA (f. Centre d‘accueil de demandeurs d‘asile) eða í tímabundnum móttökumiðstöðvum, PRADHA (f. d’accueil et d’hébergement des demandeurs d’asile) eða HUDA (f. hébergement d‘urgence dédié aux demandeurs d‘asile). Þeir sem eru endursendir til Frakklands njóta sömu réttinda til húsnæðis og þeir umsækjendur sem sæta hefðbundinni málsmeðferð. Árið 2017 var einnig komið á fót tímabundnum úrræðum, CAES (f. centres d‘accueil et d‘examen de situation administrative), þar sem einstaklingar geta verið á meðan beðið er eftir úthlutun á gistirými í hefðbundnum móttökumiðstöðvum. Sökum mikils álags á hæliskerfinu í Frakklandi hefur þó reynst nokkur bið á því að umsækjendur komist að í móttökumiðstöðvum. Umsækjendur sem fá úthlutað gistirými í þessum miðstöðvum fá gefin út vottorð um búsetu (f. attestation de domiciliation) sem gildir í eitt ár, en slíkt vottorð gerir umsækjendum m.a. kleift að stofna bankareikning og fá greiðslukort. Fái umsækjendur ekki pláss í framangreindum miðstöðvum geti umsækjendur leitað til frjálsra félagasamtaka sem bjóða m.a. upp á lögfræðiaðstoð í tengslum við umsóknir um alþjóðlega vernd, líkt og áður kemur fram.

Í fyrrgreindum skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Frakklandi kemur fram að umsækjendum um alþjóðlega vernd þar í landi er tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í frönskum lögum. Umsækjendur sem sæta hefðbundinni málsmeðferð hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu á grundvelli sjúkratryggingakerfisins þar í landi (f. Protection Universelle Maladie (PUMA)) en þeir þurfa þó að sækja um aðgang að kerfinu og að hafa dvalið í Frakklandi í þrjá mánuði. Jafnvel þótt umsækjendur séu ekki komnir með aðgang að sjúkratryggingakerfinu geti þeir engu að síður leitað til opinberra heilsugæslustöðva (f. Permanence d’accès aux soins de santé (PASS)) sem séu til staðar á öllum opinberum spítölum og fengið þar aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Þá geta umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd nýtt sér aðgang að sjúkratryggingakerfinu í ákveðinn tíma eftir synjun og í framhaldi af því hafa þeir aðgang að State Medical Aid (AME) sem gerir þeim kleift að fá ókeypis meðferð á sjúkrahúsum sem og á læknastofum. Á grundvelli PUMA eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi einnig rétt á nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu en í skýrslum kemur þó fram að dæmi séu um að læknar neiti að veita einstaklingum sem ekki tala frönsku þjónustu. Í umsóknarferlinu er skimað eftir einstaklingum sem eru í viðkvæmri stöðu m.a. vegna alvarlegra veikinda og hafa sérþarfir vegna þess.

Framangreindar skýrslur bera þá með sér að heimilt sé að setja umsækjendur um alþjóðlega vernd í varðhald í Frakklandi en einungis að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, t.d. ef þeir hafa fengið synjun á umsókn sinni og talin sé hætta á að þeir muni koma sér undan brottvísun. Þá benda framangreind gögn jafnframt til þess að löggæsluyfirvöld í Frakklandi hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð og vernd gegn einstaklingum sem þeir óttist.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Kærandi er karlmaður á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að hann hafi orðið fyrir ofbeldi í heimaríki sínu sem hafi haft áhrif á hann bæði líkamlega og andlega. Þá hafi hann verið heimilislaus í Frakklandi og orðið fyrir fordómum í Austurríki. Í framlögðum gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 31. janúar til 4. febrúar 2020, kemur fram að kærandi sé almennt heilbrigður en hann hafi útbrot á húð sem hann hafi fengið lyf við, sbr. samskiptaseðill Göngudeildar sóttvarna dags. 4. febrúar 2020. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 2. febrúar 2020, kemur fram að gamlir berklar séu ekki útlokaðir en ekki séu merki um virka berkla og frekari rannsókn og meðferð sé ekki nauðsynleg. Þá hafi kærandi leitað á Göngudeild sóttvarna vegna tannverkjar þann 31. janúar 2020.

Í greinargerð kæranda er óskað eftir því að hann verði látinn undirgangast sálfræðimat. Við meðferð málsins hefur kærandi lagt fram gögn um heilsufar sitt frá Göngudeild sóttvarna, dags. 31. janúar til 4. febrúar 2020. Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 9. janúar 2020, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvupósti kærunefndar þann 13. maí 2020 um framlagningu frekari gagna í málinu og boðið að koma viðbótarathugasemdum á framfæri vegna Covid-19 faraldursins. Þann 18. maí 2020 barst svar þess efnis að ekki lægju fyrir ný gögn varðandi heilsufar hans auk þess sem að kærandi kom á framfæri viðbótarathugasemdum vegna Covid-19 faraldursins. Það er mat kærunefndar að mál kæranda sé nægjanlega upplýst er varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendi til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu í málinu. Að teknu tilliti til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 setur fram í dæmaskyni og heildarmats á einstaklingsbundum aðstæðum kæranda telur kærunefnd jafnframt að ekki sé þörf á að afla sálfræðimats.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst en meðal annars liggur fyrir að kærandi kveðst hafi glímt við andlega vanlíðan og tiltekin líkamleg vandamál. Kærunefnd telur þó að aðstæður hans séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður hans geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Framangreind gögn um aðstæður í Frakklandi benda að auki til þess að þó svo að kærandi þurfi að bíða í þrjá mánuði eftir að öðlast full réttindi í heilbrigðikerfinu hafi hann aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í samræmi við frönsk lög.

Þá hefur kærandi greint frá því að hann telji að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar og að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í Frakklandi, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Vísar kærandi m.a. til þess að franska ríkið hafi átt erfitt með að taka á móti þeim fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd sem hafi sótt til landsins og nefnir kærandi t.a.m. skort á húsnæði og erfiðleika við að fá aðgang að heilbrigðisþjónustu í því tilliti. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Frakklandi kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd þar í landi eigi möguleika á að fá húsaskjól í hefðbundnum móttökumiðstöðvum eða í tímabundnum miðstöðvum þó að bið geti orðið þar á vegna álags á hæliskerfinu. Fái umsækjendur ekki pláss í framangreindum miðstöðvum geti umsækjendur leitað til frjálsra félagasamtaka. Að mati kærunefndar bera heimildir um aðstæður í Frakklandi og gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem nú eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Felast aðgerðir m.a. í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins lokað tímabundið fyrir endursendingar einstaklinga á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar og liggur ekki fyrir hvenær endursendingar muni hefjast að nýju. Á þetta við um Ísland og ríkir því ákveðin óvissa hér á landi um það hvenær framkvæmd á endursendingum hefjist að nýju. Yfirvöld í Frakklandi hafa jafnframt gripið til aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar, t.a.m. með ferðabanni til og frá landinu auk þess sem takmarkanir á samkomum eru við lýði, veitingastöðum var lokað og skólahald lagðist af. Hlé var gert á móttöku og afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd í Frakklandi auk þess sem að móttökumiðstöðvar fengu fyrirmæli þess efnis að ekki megi vísa neinum úr úrræðinu, þ. á m. þeim sem hafi fengið synjun á umsókn sinni. Kærunefnd hefur ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem við líði eru vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar, þrátt fyrir að faraldurinn hafi lagst nokkuð þungt á Frakkland. Aflétting takmarkana er þegar hafin í Frakklandi og hafa stjórnvöld kynnt þriggja skrefa áætlun sína að því marki. Fyrsta skrefið í afléttingu takmarkana var tekið 11. maí sl. og næsta skref í áætlun stjórnvalda varðandi afléttingar hófst 2. júní sl. en fyrirhugað var að þá myndu t.a.m. veitingastaðir og skólar opna aftur og ferðabanni til landsins frá öðrum Evrópuríkjum yrði aflétt. Fyrirhugað er að lokaskrefið í áætlun stjórnvalda hefjist 22. júní 2020.

Af skýrslum er ljóst að viðtökuríkið býr við stöðuga stjórnarhætti og sterka innviði. Að mati kærunefndar er því ekkert sem bendir til þess að það tímabundna ástand sem nú ríki komi til með að hafa teljandi áhrif á getu eða vilja viðtökuríkisins til að taka á móti og afgreiða mál kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt og veita honum nauðsynlegan stuðning og viðeigandi aðbúnað á meðan mál hans er þar til meðferðar.

Í því sambandi er rétt að árétta að Dyflinnarreglugerðin gerir ráð fyrir því að samstarfsríkin hafi almennt sex mánuði frá því að lokaákvörðun var tekin um kæru umsækjanda um alþjóðlega vernd til að flytja umsækjanda til viðtökuríkis, sbr. 1. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar. Kærunefnd hefur ekki forsendur til að álykta að endursendingar til viðtökuríkisins verði ekki hafnar áður en umræddur frestur rennur út.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að skv. 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti ekki, eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi hefur kærunefnd sérstaklega litið til sterkra innviða viðtökuríkisins og þess frests sem aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins hafa til að endursenda umsækjendur til viðtökuríkis og fjallað var um hér að framan.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna tilvísunar í greinargerð kæranda til úrskurða kærunefndar í málum nr. 550/2017, 552/2017, 583/2017 og 586/2017 tekur kærunefnd fram að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda í þessu máli við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum enda ekki um að ræða sömu viðtökuríki og aðstæður þeirra einnig ólíkar að öðru leyti.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 9. janúar 2020 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 12. desember 2019.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í Frakklandi sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð franskra stjórnvalda á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Frakklandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kæranda verði synjað um efnismeðferð.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun, m.a. við mat Útlendingastofnunar á aðstæðum í viðtökuríki og viðkvæmri stöðu hans.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð Útlendingastofnunar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemd við hana. Hefur kærunefnd skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands þann 12. desember 2019 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Frakklands eins fljótt og unnt er, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa frönsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Frakklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og vera alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðun með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                       Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta