Mál nr. 89/2014 úrskurður 5. desember 2014
Mál nr. 89/2014 Millinafn: Hrafnfjörð
Hinn 5. desember 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 89/2014 en erindið barst nefndinni 2. desember:
Millinafnið Hrafnfjörð er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Hrafnfjörð uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Hrafnfjörð er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.