Mál nr. 90/2014 úrskurður 5. desember 2014
Mál nr. 90/2014 Eiginnafn: Heida
Hinn 5. desember 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 90/2014 en erindið barst nefndinni 1. desember:
Eiginnafnið Heida (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Heidu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Heida (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.