Hoppa yfir valmynd

Nr. 216/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 1. mars 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 216/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23060001

 

Kæra […]

og barna

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 31. maí 2023 kærði […], fd. […], ríkisborgari Venesúela (hér eftir nefnd kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 25. maí 2023, um að synja kæranda og börnum, […], fd. […], ríkisborgara Venesúela (hér eftir A) og […], fd. […], ríkisborgara Venesúela og Chile (hér eftir B), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru fer því fram sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða sbr. 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 2. nóvember 2022 fyrir sig og börn sín. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 14. desember 2022 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 25. maí 2023, synjaði Útlendingastofnun kæranda og börnum hennar um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kæranda og börnum hennar var jafnframt brottvísað frá landinu og henni ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Voru ofangreindar ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála 31. maí 2023. Kærunefnd barst greinargerð kæranda 13. júní 2023. Viðbótargögn og upplýsingar bárust kærunefnd 19. júní 2023.

IV.    Málsástæður og rök kæranda

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Í ljósi niðurstöðu nefndarinnar verður greinargerð kæranda ekki reifuð hér.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Lög um útlendinga og reglur stjórnsýsluréttar

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra gagna og upplýsinga. Þá mælir 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga fyrir um að Útlendingastofnun skuli afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga við meðferð mála. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Kröfur til rannsóknar í hverju máli ráðast af lagagrundvelli málsins og einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda, þ.m.t. þeim málsástæðum sem hann ber fyrir sig.

Í viðtali greindi kærandi frá því að hafa sætt heimilisofbeldi af hálfu barnsföður síns. Lýsti kærandi kynferðislegu, fjárhagslegu, andlegu og líkamlegu ofbeldi af hálfu hans. Kvað hún ofbeldið hafa átt sér stað bæði í Venesúela og eftir að hún hafi ásamt barni þeirra, A, flutt til hans í Chile árið 2019. Kvað hún fjölskyldu barnsföður síns jafnframt hafa beitt sig ofbeldi í Venesúela. Kærandi lýsti því í viðtali að hún hafi lagt fram kæru í Venesúela vegna ofbeldisins af hálfu barnsföður síns en lögreglan hafi ekki aðhafst.

Í viðtali lýsti kærandi grófum kynferðisbrotum af hálfu barnsföður síns. Þá greindi kærandi frá atviki sem hafi átt sér stað í Chile þar sem hún hafi reynt að fara frá barnsföður sínum og hann brugðist við með þeim hætti að ráðast á hana. Kvaðst hún hafa haldið að hún myndi deyja þar sem hann hafi tekið hana hálstaki með þeim afleiðingum að hún hafi næstum því misst meðvitund. Þetta atvik hafi átt sér stað fyrir framan börn þeirra og á meðan kærandi hafi haldið á yngra barninu, B. Kærandi kvaðst hafa tekist að vekja athygli nágranna síns með öskrum sem hafi komið henni og börnunum til hjálpar. Kærandi kvaðst hafa farið ásamt börnum sínum á spítala í Chile og fengið áverkavottorð á meðan lögreglan hafi mætt á heimili þeirra og handtekið barnsföður hennar. Kærandi hafi jafnframt fengið samþykkt nálgunarbann á hendur honum sem hafi þó ekki komið í veg fyrir að hann hafi beitt hana ofbeldi. Útlendingastofnun fjallaði ekki um framangreind atvik og tók enga afstöðu til þeirra við úrlausn málsins.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram ljósmyndir af dómskjölum, m.a. nálgunarbanni gagnvart barnsföður sínum þar sem fram kemur að honum sé bannað að koma innan við 100 metra frá kæranda. Í skjalinu kemur fram að barnsfaðir kæranda sé hinn ákærði og að kærandi sé brotaþoli. Þá lagði kærandi fram ljósmyndir af brotinni fartölvu sem hún kvað barnsföður sinn hafa brotið og eyðilagt ásamt öðrum eigum hennar. Ekki verður séð af ákvörðun Útlendingastofnunar að framangreind dómskjöl hafi verið þýdd eða könnuð sérstaklega. Þá tók Útlendingastofnun enga afstöðu til gagnanna eða vægi þeirra við úrlausn málsins. Kemur einungis fram í ákvörðuninni að kærandi hafi lagt fram gögn sem styðji við frásögn hennar um heimilisofbeldi af hálfu barnsföður.

Varðandi frásögn kæranda þá vísaði Útlendingastofnun einungis til trúverðugleikamats og komst að þeirri niðurstöðu að hún ætti ekki á hættu ómannúðlega meðferð. Horfði stofnunin til þess að kærandi hefði síðast sætt ofbeldi af hálfu fjölskyldu barnsföður síns árið 2019 og að barnsfaðir hennar væri nú búsettur í Chile. Barnsfaðir hennar kom hingað til lands í desember 2022 og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd. Þá er í ákvörðuninni hvergi fjallað um möguleika kæranda á vernd gegn frekara ofbeldi barnsföður við komu hennar til Venesúela. Var fullyrðing kæranda um að hún hafi leitað aðstoðar lögreglu í Venesúela vegna ofbeldisins, án árangurs, ekki könnuð frekar af hálfu Útlendingastofnunar.

Af lestri ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda verður ekki ráðið að meginmálsástæða kæranda, að hún eigi á hættu bæði líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi af hálfu barnsföður síns, hafi fengið fullnægjandi skoðun. Er í ákvörðuninni ekki fjallað um almenna stöðu kvenna í Venesúela, ofbeldi gegn konum eða möguleika þeirra á vernd gegn ofbeldi. Þá verður heldur ekki ráðið af ákvörðuninni að lagt hafi verið einstaklingsbundið mat á aðstæður kæranda, að því er vörðuðu það ofbeldi sem lagt var til grundvallar að hún hefði orðið fyrir, með hliðsjón af upplýsingum um aðstæður í heimaríki. Þá tók stofnunin ekki afstöðu til þess hvernig aðstæður kæranda horfðu við hugsanlegum rétti hennar til dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að ákvæðið geri beinlínis ráð fyrir því að konur sem sætt hafi kynferðislegu ofbeldi, sem kærandi kvaðst hafa sætt af hálfu barnsföður síns, geti átt rétt til slíks dvalarleyfis. Er í ákvörðun Útlendingastofnunar varðandi þetta atriði aðeins vísað til mats á trúverðugleika, þar sem fallist var á að kærandi hefði sætt kynferðislegu og líkamlegu ofbeldi af hálfu barnsföður síns, en svo vísað til almennra aðstæðna og annarra málsástæðna kæranda.

Þá er óumdeilt að börn geti átt sjálfstæðan rétt til alþjóðlegrar verndar. Þegar um er að ræða börn í fylgd með foreldri hefur Útlendingastofnun afgreitt mál hvers einstaklings í sérstakri ákvörðun en í rökstuðningi í málum barna er um ákveðin atriði vísað til rökstuðnings með ákvörðun foreldris. Þegar þessi leið er farin verða ákvarðanir fjölskyldunnar í heild sinni þó ávallt að uppfylla reglur stjórnsýslulaga um rökstuðning og vera að öðru leyti settar fram á þann hátt að af lestri þeirra megi ráða að í reynd hafi farið fram skyldubundið mat á hagsmunum barnanna á viðhlítandi grundvelli.

Kærandi greindi frá því í viðtali að barnsfaðir hennar hafi ráðist á sig fyrir framan börn þeirra tvö, m.a. á meðan hún hafi haldið á yngra barni þeirra. Var því fullt tilefni í ljósi frásagnar kæranda og ungs aldurs barnanna að spyrja kæranda í viðtali nánar út í aðstæður barna sinna, t.d. hvort börnunum stafaði ógn af föður sínum eða hvort hann hefði beitt þau ofbeldi. Þá verður hvorki af lestri ákvörðunar kæranda né barna hennar ráðið að fram hafi farið einstaklingsbundið mat á aðstæðum barnanna með hliðsjón af þeirri málsástæðu að faðir barnanna hafi beitt kæranda ofbeldi.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Framangreindar ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barna hennar bera með sér að ekki hafi farið fram viðhlítandi mat á aðstæðum þeirra. Annmarkar voru á rannsókn stofnunarinnar þar sem aðstæður kæranda og barna hennar voru ekki skoðaðar með einstaklingsbundnum hætti með hliðsjón af aðstæðum í Venesúela, m.a. möguleika þeirra á vernd þarlendra yfirvalda. Málsmeðferð Útlendingastofnunar og rökstuðningur ákvarðana í málum kæranda og barna hennar, með vísan til framangreinds, er ennfremur ekki í samræmi við reglur stjórnsýsluréttar, m.a. 10. og 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Framangreindir annmarkar á málsmeðferð Útlendingastofnunar eru verulegir og er ekki unnt að bæta úr þeim á kærustigi og því rétt að mál kæranda og barna hennar hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun.

Með vísan til framangreinds eru hinar kærðu ákvarðanir felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd til nýrrar meðferðar. Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barna hennar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda og barna hennar til meðferðar á ný.

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellant and her children are vacated. The Directorate is instructed to re-examine the cases.

 

F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta