Hoppa yfir valmynd

Nr. 509/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 28. nóvember 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 509/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18100004

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 2. október 2018 kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. október 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu. Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 1. og 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, auk 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. sömu laga. Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 10. ágúst 2018. Kærandi mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 11. september 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 2. október 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 2. október 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann sama dag til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 11. október 2018 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun sinni komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd ekki til efnislegrar meðferðar með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í málinu lægi fyrir að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og dvalarleyfi með gildistíma til 5. apríl 2020.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var komist að þeirri niðurstöðu að 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur aftur til Grikklands. Útlendingastofnun mat aðstæður kæranda slíkar að hann væri ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Það var einnig mat stofnunarinnar að 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ætti ekki við í máli kæranda. Var umsókn kæranda um alþjóðlega vernd því synjað um efnismeðferð, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Þá kom fram að kærandi skyldi fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda vísar hann til endurrits af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun. Þar komi m.a. fram að kærandi mótmæli því að vera endursendur til Grikklands, hann hafi dvalið við bágar aðstæður annars vegar í flóttamannabúðum og hins vegar í fjölbýlishúsi þar sem flestir íbúarnir hafi verið fíkniefnaneytendur. Kærandi hafi hvorki fengið fjárhagsaðstoð né atvinnu auk þess sem hann hafi ekki haft raunverulegt aðgengi að heilbrigðisþjónustu eftir að hann fékk alþjóðlega vernd í Grikklandi. Hann hafi verið háður aðstoð hjálparsamtaka. Kærandi hafi ítrekað reynt að leita sér að atvinnu og öruggara húsnæði en ekkert hafi staðið honum til boða. Þá kveður kærandi að gamlir menn hafi komið til hans og beðið hann að sofa hjá sér gegn greiðslu.

Í greinargerð sinni gerir kærandi athugasemd við rökstuðning Útlendingastofnunar hvað varðar stöðu hans í Grikklandi. Kærandi hafi getið þess við Útlendingastofnun að staða hans í Grikklandi geri það að verkum að hann muni eiga erfitt uppdráttar þar í landi. Þá sé ljóst að án félagslegs baklands sé staða kæranda verulega síðri en staða almennings þar í landi. Þá gerir kærandi athugasemd við að í hinni kærðu ákvörðun hafi Útlendingastofnun komist að þeirri niðurstöðu að kærandi væri ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Í komunótum komi fram að hann glími við vandamál […] sem nauðsynlegt sé að meðhöndla, honum hafi ekki staðið slík meðferð til boða í Grikklandi og óvíst hvort hann muni fá slíka meðferð þar ef honum verði gert að snúa þangað aftur. Kærandi telji ljóst að löggjafinn hafi mælt fyrir um aðkomu sálfræðinga eða geðlækna þegar uppi sé grunur um andleg veikindi og að sama skapi viðeigandi sérfræðilækna, séu vandamálin líkamleg. Í slíkum tilvikum dugi ekki tilviljunarkennd ummæli almennra lækna í almennri læknisskoðun eða hjúkrunarfræðinga á Göngudeild sóttvarna. Þá verði mat sérfræðinganna að vera nógu vandað til þess að ólærðir geti greint ástand og getu umsækjenda út frá þeim. Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga, sem áréttuð sé í 23. og 25. gr. laga um útlendinga, skuli stjórnvöld sjá til þess að mál teljist nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því.

Þá gerir kærandi jafnframt athugasemd við að í hinni kærðu ákvörðun sé vísað til 32. gr. a reglugerðar nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 í tengslum við 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af úrskurðum kærunefndar sé ljóst að nefndin hafi við túlkun sína á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga gert mun minni kröfur en gerðar séu í umræddri reglugerð og hinni kærðu ákvörðun við mat á heilsufari og sérstökum ástæðum. Einnig séu skilyrði reglugerðarinnar varðandi sérstakar ástæður mun þrengri en kveðið sé á um í athugasemdum með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 80/2016 um útlendinga. Það sé hvergi að finna kröfur um hátt alvarleikastig erfiðleika, alvarlega mismunun, verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega eða líkamlega heilsu eða að meðferð sjúkdóms sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Þessar kröfur í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar hafi því enga stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni.

Kærandi byggir kröfu sína í fyrsta lagi á því að uppi séu sérstakar ástæður í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi bendi á að úrskurðir kærunefndar útlendingamála gefi með nægilega skýrum hætti til kynna að viðkvæm staða umsækjenda skuli hafa aukið vægi andspænis sjónarmiðum sem tengist m.a. skilvirkni við mneðferð umsókna og mikilvægis samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins. Þá telji kærandi að á stjórnvöldum hvíli skylda til að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður hans og þær afleiðingar sem endursending gæti haft í för með sér fyrir hann. Viðkvæm staða kæranda muni valda því að hann muni eiga erfitt uppdráttar í Grikklandi. Þá vísi kærandi til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 392/2018 frá 27. september 2018 er varði hjón og börn þeirra sem hafi hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi. Kærunefnd hafi metið það sem svo að viðkvæm staða fjölskyldunnar hafi gert það líklegt að það yrði þeim vandkvæðum bundið að sækja rétt sinn í Grikklandi. Þá hafi aðstæður þeirra, sérstaklega með tilliti til þungunar konunnar, gert það að verkum að kærunefnd hafi metið það sem svo að staða þeirra yrði verulega síðri en staða almennings í Grikklandi með vísan til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi telji að hann muni þurfa á sérhæfðri læknisþjónustu að halda og að kerfislæg mismunun þrífist gagnvart flóttafólki í Grikklandi. Hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu og muni eiga erfitt uppdráttar í Grikklandi.

Kærandi byggir kröfu sína í öðru lagi á því að endursending hans til Grikklands muni fela í sér brot gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement í skilningi 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Kærandi bendi á að stjórnvöldum beri að skoða gaumgæfilega þær aðstæður sem umsækjendur um alþjóðlega vernd standa frammi fyrir við endursendingu. Kærandi telji að aðstæður hans í Grikklandi, t.a.m. varðandi möguleika á húsnæði, framfærslu, aðgengi að menntun, heilbrigðisþjónustu og félagslegri þjónustu, séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 23. desember 2016 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 5. apríl 2020. Eru því skilyrði a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi einstakling sem nýtur alþjóðlegrar verndar aftur til ríkisins sem hefur veitt honum slíka vernd, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, þar sem kveðið er á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Verður kærunefnd því að leggja mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við ákvæði 3. gr. mannréttindasáttmálans. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar. Þá þarf að líta til stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Meta verði fyrirsjáanlegar afleiðingar af því að vísa einstaklingi til móttökuríkis í ljósi almennra aðstæðna í ríkinu og persónulegra aðstæðna viðkomandi einstaklings.

Greining á hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […], einhleypur og barnlaus karlmaður. Kemur m.a. fram að kærandi glími við óþægindi og verki […]. Auk þess kveður kærandi að ófriður í heimaríki hafi haft áhrif á sig, hann finni fyrir streitu en að öðru leyti sé hann almennt við góða andlega heilsu.

Það er mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. framlagðar komunótur, beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé svo alvarlegt að hann teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018),
  • 2017 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. apríl 2018),
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018),
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018),
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017),
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017),
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017),
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017),
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016),
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015),
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015) og
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014).

Af ofangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Þá eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd lagalegan rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegrar greiðslu. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í ofangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga.

Samkvæmt dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er bann við meðferð sem fer gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu fortakslaust en meðferð verður þó að fullnægja lágmarkskröfu um alvarleika til að teljast brot gegn 3. gr. sáttmálans. Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 fjallaði dómstóllinn um endursendingar einstaklinga til ríkja þar sem þeir hafa hlotið alþjóðlega vernd. Í ákvörðuninni kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við slíka endursendingu nái ekki alvarleikastigi 3. gr. sáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda en kærandi kveður m.a. að líf hans í Grikklandi hafi verið mjög erfitt þar sem að erfitt hafi reynst að fá atvinnu og heilbrigðis- og félagsþjónustu við hæfi. Frásögn kæranda kemur að mestu leyti heim og saman við heimildir um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi sem kærunefnd hefur kynnt sér, þ.e. hvað varðar erfitt aðgengi að vinnumarkaðnum, félagslegu húsnæði og framfærslu frá yfirvöldum.

Samkvæmt gögnum málsins glímir kærandi m.a. við óþægindi og verki […]. Í samskiptaseðli læknis frá 4. september 2018 kemur þó fram að kærandi hafi ekki þörf fyrir skjóta meðferð vegna þessa. Það er mat kærunefndar, á grundvelli gagna málsins, að veikindi kæranda teljist ekki alvarleg, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi eiga þeir sem hefur verið veitt alþjóðleg vernd rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu sem getur þó verið í sumum tilvikum vandkvæðum bundið að sækja. Þá eiga þeir einnig rétt á endurgjaldslausum lyfjum, rannsóknum á göngudeildum og aðgangi að sjúkrahúsi. Kærunefnd telur frásögn kæranda af því að hann hafi átt í erfiðleikum með að nálgast heilbrigðisþjónustu í Grikklandi ekki breyta framangreindri niðurstöðu. Telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í landinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað aðstoðar vegna heilsufarsvandamála sinna þar í landi.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur aðgang að vinnumarkaði og sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar. Í framangreindum gögnum kemur þá fram að grísk stjórnvöld hafi gripið til aðgerða til að stemma stigu við fordómum í landinu, m.a. með því að grípa til hertra aðgerða til að sporna við brotum sem byggjast á kynþáttafordómum. Af framangreindum gögnum verður ráðið að verði kærandi fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi geti hann leitað ásjár grískra yfirvalda vegna þess.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 392/2018 frá 27. september 2018. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í úrskurði nr. 392/2018 í ljósi einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda, einkum þar sem um var að ræða fjölskyldu með börn auk þess sem konan var barnshafandi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 11. september 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 10. ágúst 2018.

Reglur stjórnsýsluréttar

Í greinargerð kæranda eru gerðar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. er gerð athugasemd við að ekkert formlegt sérfræðimat hafi farið fram á heilsu kæranda. Í því sambandi bendir kærunefnd á að af gögnum málsins verði ráðið að kærandi hafi hitt lækni og hjúkrunarfræðing hjá Göngudeild sóttvarna auk þess sem hann hafi lýst líðan sinni í viðtölum hjá Útlendingastofnun. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars 2018, voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Af greinargerð kæranda verður m.a. ráðið að hann telji ákvæði reglugerðar nr. 540/2017, sbr. reglugerð nr. 276/2018, ekki eiga sér viðhlítandi stoð í lögum og ganga gegn lögmætisreglunni.

Tilvitnuð ákvæði reglugerðar nr. 276/2018 eru sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem segir að ráðherra hafi heimild til að setja reglugerð um framkvæmd 36. gr. laganna. Löggjafinn hefur því framselt ráðherra vald til að útfæra framangreind ákvæði nánar og ljóst að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg eins og að framan hefur verið lýst. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þessar athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 10. ágúst 2018 og sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Árni Helgason                                                             Erna Kristín Blöndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta