Hoppa yfir valmynd

Nr. 396/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 25. september 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 396/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18070021

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestur og kæruheimild

Með kæru, dags. 9. júlí 2018, kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir nefnd kærandi), þá ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. júní 2018, að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að henni verði veitt vegabréfsáritun til landsins.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 15. maí 2018, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands í 31 dag hjá sendiráði Íslands í Peking í Kína. Vinkona kæranda lagði einnig fram umsókn um vegabréfsáritun vegna 30 daga á sama tímabili. Í gögnum málsins kemur fram að kæranda hafi verðið boðið hingað til lands af unnusta vinkonu sinnar, sem er íslenskur ríkisborgari, og að tilgangur ferðarinnar hafi verið að ferðast um landið og heimsækja vin. Útlendingastofnun synjaði umsókn kæranda þann 20. júní 2018 og barst kæranda ákvörðunin þann 26. sama mánaðar. Kærandi kærði ákvörðun Útlendingastofnunar til kærunefndar útlendingamála þann 9. júlí 2018, en kæru fylgdu athugasemdir frá kæranda og fylgigögn. Þá bárust viðbótarathugasemdir frá kæranda þann 30. júlí sl.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Útlendingastofnun synjaði kæranda um vegabréfsáritun þar sem tilgangur dvalar hennar þótti ótrúverðugur. Kærandi hafi verið gift íslenskum ríkisborgara sem sé vinur unnusta vinkonu kæranda, sem hafi boðið þeim hingað til lands, en að kærandi og eiginmaður hennar væru skilin. Í símtali við starfsmann íslenska sendiráðsins í Peking vegna umsóknarinnar hafi kærandi sagt að fyrrverandi eiginmaður hennar myndi ferðast með þeim. Þá er vísað til símtals sem starfsmaður íslenska sendiráðsins átti við vinkonu kæranda en þar hafi hún sagt að hún hefði ekki ákveðið hvort hún myndi yfirgefa Ísland eða ekki, því ef henni líkaði dvölin myndi hún hugsanlega ganga í hjónaband hér á landi og flytjast hingað. Í ákvörðuninni kom fram að ekki hafi verið unnt að ganga úr skugga um að kærandi myndi yfirgefa Schengen-svæðið áður en vegabréfsáritun hennar rynni út. Við skoðun á umsóknum um vegabréfsáritanir væri einnig horft til tengsla umsækjanda við heimaríki við mat á því hvort umsækjandi myndi yfirgefa Schengen-svæðið, m.a. staðfestingu á atvinnu og hvort umsækjandi ætti fasteignir í heimaríki. Fram kom að kærandi væri einhleyp og án atvinnu og því væru tengsl hennar við heimaríki ekki talin sterk.

Þar sem kærandi þótti ekki uppfylla skilyrði 20. gr. laga um útlendinga og 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir nr. 1160/2010 um skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar þótti ástæða til að synja umsókn hennar.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hún hafi lagt fram umsókn um vegabréfsáritun hingað til lands á grundvelli heimboðs vinar síns, sem sé íslenskur ríkisborgari, en kærandi sé vinkona unnustu hans sem hafi einnig ætlað að koma hingað til lands. Fram kemur að kærandi hafi kynnst unnusta vinkonu sinnar í brúðkaupi hennar í október 2013, þegar hún hafi gengið í hjónaband með vini hans. Kærandi hafi verið gestgjafi unnusta vinkonu hennar og hann gist á heimili hennar. Hafi unnusti vinkonu hennar viljað endurgjalda henni gestrisnina og honum hafi þótt óhugsandi að bjóða ekki kæranda með í fyrstu heimsókn vinkonu hennar til Íslands enda séu vinabönd þeirra mikil. Byggir kærandi á því að Útlendingastofnun hafi ekki tekið neitt tillit til áreiðanleika framlagðra gagna og upplýsinga heldur byggt ákvörðun sína á rangfærslum, dylgjum og ósannindum.

Í greinargerð gerir kærandi athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnun, sem raktar eru í níu liðum. Í fyrsta lagi gerir kærandi athugasemd við að í ákvörðun Útlendingastofnunar hafi upplýsingar sem kærandi hafi veitt um tilgang ferðar ekki verið taldar áreiðanlegar. Kærandi kveður öll umbeðin gögn hafa fylgt umsókn hennar um vegabréfsáritun og að engin gögn hafi verið fölsuð eða í ósamræmi við það sem beðið hafi verið um. Í umsókninni hafi m.a. komið skýrt fram að kærandi hafi átt að gista á heimili unnusta vinkonu hennar og að hann sæi um alla fjármögnun ferðarinnar. Unnusti vinkonu kæranda hafi verið í samskiptum við sendiráð Íslands í Peking fyrir framlagningu umsóknarinnar og hafi hvorki sendiráðið né Útlendingastofnun óskað eftir frekar gögnum eða útskýringum vegna umsóknarinnar. Í öðru lagi vísar kærandi til þess sem fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar um að kærandi sé einhleyp. Kærandi kveður að hún sé enn gift vini unnusta vinkonu hennar en þau séu þó skilin að borði og sæng. Þá byggir kærandi á því að hvergi í skilyrðum umsóknarinnar né í íslenskum lögum um vegabréfsáritanir sé tekið fram að hjúskaparstaða umsækjanda skipti einhverju máli.

Í þriðja lagi vísar kærandi til umfjöllunar í ákvörðun Útlendingastofnunar um að fyrrverandi eiginmaður kæranda myndi ferðast með þeim. Fram kemur að unnusti vinkonu kæranda hafi bara keypt flugmiða fyrir hana og vinkonu hennar frá heimaríki þeirra. Kærandi segir útilokað að hún hafi sagt þetta í samtali við starfsmann sendiráðs Íslands í Peking og þá sé ekki rétt að eiginmaður hennar myndi ferðast með þeim. Eiginmaður kæranda hafi hins vegar ætlað að vera á Íslandi á sama tíma og hún, en þau hafi haldið sambandi og vinskap þrátt fyrir aðskilnaðinn. Í fjórða lagi vísar kærandi til þess sem fram kemur í hinni kærðu ákvörðun um að vinkona kæranda hafi, í símtali við starfsmann sendiráðs Íslands í Peking, sagt að hún hafi ekki ákveðið hvort hún myndi yfirgefa Ísland. Ef henni líkaði dvölin myndi hún hugsanlega ganga í hjónaband hér á landi og flytjast hingað. Gerir kærandi athugasemd við að þessi meintu orð sem séu höfð eftir vinkonu hennar hafi verið notuð til að synja kæranda um vegabréfsáritun. Þá hafi vinkona hennar þvertekið fyrir að hafa látið þessi ummæli falla og að einhver í afgreiðsluferlinu hafi skáldað upp og eignað vinkonu hennar.

Í fimmta lagi vísar kærandi til þess mats að ekki hafi verið unnt að ganga úr skugga um ætlun kæranda til að yfirgefa Schengen-svæðið áður en vegabréfsáritun hennar rynni út. Í þessu sambandi tekur kærandi fram að umsókn hennar hafi verið í samræmi við þær kröfur sem gerðar hafi verið og að öll gögn hafi verið frumrit. Þá hafi unnusti kæranda verið í stöðugum samskiptum við íslenska sendiráðið í Peking og Útlendingastofnun og margboðið að veita frekari upplýsingar ef einhver vafaatriði væru uppi í málinu. Hvorki sendiráðið né Útlendingastofnun hafi hins vegar óskað eftir frekari skýringum vegna umsóknarinnar. Í sjötta lagi vísar kærandi til umfjöllunar Útlendingastofnunar um þau atriði sem könnuð eru við mat á tengslum umsækjanda við heimaríki, t.d. varðandi atvinnu og fasteignir. Telur kærandi að í ákvörðun Útlendingastofnunar sé farið frjálslega með staðreyndir um þau skjöl og upplýsingar sem krafist sé að fylgi með umsókn um vegabréfsáritun, en t.d. sé hvergi kveðið á í lögum að það sé skilyrði að umsækjandi sé fasteignaeigandi.

Í sjöunda lagi komi fram í hinni kærðu ákvörðun að kærandi sé einhleyp og án atvinnu og því séu tengsl hennar í heimaríki ekki talin sterk. Hvað varðar að kærandi sé einhleyp segir kærandi það hrein ósannindi heldur séu hún og eiginmaður hennar skilin að borði og sæng, eins og hún hafi merkt við í umsókn um vegabréfsáritun. Í ákvörðun Útlendingastofnunar hafi þessu annars vegar verið breytt í að kærandi hafi verið skilin og hins vegar að hún sé einhleyp. Varðandi að kærandi sé án atvinnu, þá sé það alsiður meðal kínversks alþýðufólks sem vinni verkamannavinnu eða almenn verslunarstörf að það þurfi að hætta í vinnu þegar það þurfi á fríi að halda þar sem fyrirtæki gefa ekki frí og fólk hafi ekki rétt á orlofi. Að vera atvinnulaus geti því einnig þýtt frí frá vinnu, eins og eigi við í tilviki kæranda. Kærandi eigi skuldlausa íbúð og nægan pening sem myndu duga henni í framfærslu í nokkur ár. Þá sé það hvergi skilyrði að umsækjendur um vegabréfsáritun þurfi að vera í vinnu hjá þriðja aðila til að fá áritun. Myndi kærandi aldrei yfirgefa fasteign sína sem sé afrakstur lífsstarfs hennar til að gerast upp úr þurru flóttamaður í Evrópu. Byggir kærandi á því að mat Útlendingastofnunar um að hún hafi veik tengsl við heimaríki eigi ekki við rök að styðjast.

Í áttunda lagi lagi gerir kærandi athugasemd við að Útlendingastofnun hafi metið tilgang ferðar hennar ótrúverðugan. Kærandi kveður efann mega rekja til rangfærslna og ósanninda í hinni kærðu ákvörðun og að ekki hafi verið byggt á réttum upplýsingum. Þá hafi unnusti kæranda algerlega óflekkað mannorð og ábyrgst ferð kæranda að öllu leyti. Ferð kæranda hingað til lands hafi verið hugsuð sem skemmtiferð fyrir hana og vinkonu hennar en ekki skipulögð til að fá þær til að gerast flóttamenn á Schengen-svæðinu. Í níunda lagi telur kærandi, með vísan til framangreinds, að það sé fráleit niðurstaða að hún teljist „immigration risk“, eins og byggt hafi verið á í ákvörðun Útlendingastofnunar, en kærandi hafi ekki undan neinu eða neinum að flýja.

Í viðbótarathugasemdum kæranda kemur fram að hún hafi fengið endurrit á samtölum hennar við starfsmann sendiráðs Íslands í Peking vegna umsóknar hennar um vegabréfsáritun hér á landi. Í símtalinu hafi kærandi gert skýra grein fyrir því að hún og maðurinn hennar séu skilin að borði og sæng en samt í vinasambandi. Sé kjarni málsins sá að unnusti vinkonu kæranda hafi boðið þeim hingað til lands á sínum forsendum og komi samband kæranda við eiginmann sinn því boði ekkert við. Í samtalinu hafi kærandi staðfest að hún myndi koma aftur til heimaríkis 15. ágúst sl. og að hún ætti íbúð þar í landi. Þá eigi hún 15 ára gamla dóttur. Mat Útlendingastofnunar um að kærandi hafi veik tengsl við heimaríki gæti því ekki verið öfugsnúnara enda séu tengsl hennar við heimaríki mjög sterk.

V. Niðurstaða

Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016 ásamt reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 1160/2010, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er skv. fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a – h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. útlendingalaga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins þann 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen–samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúi ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið útlendingalaganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Ennfremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum, m.a. ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar eða ef rökstudd ástæða er til að draga í efa ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út. Til hliðsjónar bendir nefndin á að í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins hvað varðar túlkun á 32. gr. reglugerðar nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir sem svarar til 32. gr. reglugerðar nr. 1160/2010 um vegabréfsáritanir hefur verið talið að við mat á því hvort þar til bær yfirvöld skuli gefa út vegabréfsáritun sé ekki gerð krafa um að þau hafi fullvissu fyrir því hvort umsækjandi muni yfirgefa svæði aðildarríkis áður en áritun rennur út heldur sé hlutverk stjórnvalda fremur fólgið í að leiða í ljós hvort skynsamlegur vafi ríki í þessum efnum, sbr. til dæmis dómur í máli C-84/12 Koushkaki frá 19. desember 2013 (einkum 67.-69. mgr. dómsins).

Í B-kafla í viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir eru tilgreind skjöl sem gera m.a. kleift að meta ásetning umsækjanda um að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna. Er þar vísað til miða til heimferðar eða hringferðar eða bókun slíks miða, sönnun þess að hlutaðeigandi eigi fé í búsetulandi, sönnun um starf, reikningsyfirlit banka, sönnun þess að hlutaðeigandi eigi fasteign, sönnun þess að hlutaðeigandi hafi aðlagast búsetulandinu, ættartengsl og starfsheiti. Samkvæmt framangreindu lúta þau skjöl sem lögð eru til grundvallar við mat á ásetningi umsækjanda um vegabréfsáritun um að yfirgefa Schengen-svæðið einkum að tengslum viðkomandi við heimaríki.

Íslenska sendiráðið í Peking tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Peking, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar. Í gögnum málsins eru upplýsingar frá fulltrúa íslenska sendiráðsins í Peking þar sem fram kemur að kærandi sé frá Guangxi héraði í Kína sem sé „high-risk area“. Kærandi og vinkona hennar hafi báðar sagt störfum sínum lausum og að vinkona hennar hafi selt íbúð í hennar eigu. Þá hafi vinkona hennar tjáð fulltrúa sendiráðsins að hún myndi hugsanlega ganga í hjónaband hér á landi ef henni líkaði dvölin hér. Kærandi hafi ekki getað sýnt fram á nægileg tengsl við heimaríki og var það mat fulltrúa sendiráðsins að of áhættusamt væri að veita henni vegabréfsáritun til landsins. Lagði fulltrúinn því til að umsókn kæranda um vegabréfsáritun yrði synjað. Voru framangreind sjónarmið m.a. lögð til grundvallar í hinni kærðu ákvörðun til stuðnings því að draga í efa tilgang ferðar kæranda hingað til lands og ásetning hennar til að yfirgefa Schengen-svæðið áður en vegabréfsáritun hennar rynni út.

Í máli þessu liggur fyrir að kæranda var boðið hingað til lands af gestgjafa, þ.e. unnusta vinkonu sinnar, sem er íslenskur ríkisborgari. Kveðst kærandi hafa kynnst unnusta vinkonu sinnar í brúðkaupi sínu í heimaríki árið 2013, þegar kærandi hafi gengið í hjónaband með vini hans. Kærandi og unnusti vinkonu hennar hafi orðið góðir vinir og að hann hafi boðið kæranda hingað til lands ásamt vinkonu hennar. Gögn málsins bera með sér að unnusti vinkonu kæranda hafi ætlað að standa straum af kostnaði vegna ferðarinnar hingað til lands og sjá kæranda fyrir gistingu á heimili sínu. Hafi tilgangur ferðarinnar verið að ferðast um Ísland með vinkonu sinni og unnusta hennar. Í gögnum málsins eru flugbókanir vegna ferðar kæranda frá heimaríki hingað til lands þann 15. júlí 2018 og frá Íslandi þann 13. ágúst sl.

Svo sem rakið hefur verið gerir kærandi margvíslegar athugasemdir við að Útlendingastofnun hafi dregið í efa ásetning hennar til yfirgefa Schengen-svæðið áður en vegabréfsáritun hennar rynni út. Vísar kærandi m.a. til þess að hún sé án atvinnu þar sem fyrirtæki í heimaríki hennar gefi ekki frí og að fólk hafi engan rétt á orlofi. Hafi kærandi því þurft að hætta í vinnu til að geta ferðast hingað til lands. Þá sé ekki rétt sem komi fram í hinni kærðu ákvörðun um að hún sé skilin eða einhleyp, en hún og eiginmaður hennar séu skilin að borði og sæng og hafi haldið vinasambandi. Kærandi eigi jafnframt skuldlausa íbúð í heimaríki og 15 ára dóttur þar í landi.

Við mat því hvort ástæða sé til að draga tilgang ferðar kæranda hingað til lands í efa sem og ásetning kæranda um að yfirgefa Schengen-svæðið áður en vegabréfsáritun hennar hefði runnið út verður aðallega horft til þess sem fram kom í samskiptum hennar hennar við íslenska sendiráðið í Peking vegna umsóknar hennar um vegabréfsáritun og til þeirra atriða sem tilgreind eru í B-hluta í viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir um tengsl kæranda við heimaríki. Í gögnum málsins eru endurrit af samtölum kæranda við fulltrúa íslenska sendiráðsins Í Peking.

Kærandi telur að talsvert vanti inn í endurrit af samtali hennar við fulltrúa sendiráðsins. Þó svo að kærunefnd telji það betri stjórnsýslu að hljóðrita viðtalið eða gefa umsækjenda færi á að gera athugasemdir við endurritið áður en það er lagt til grundvallar við ákvörðun um veitingu vegabréfsáritunar telur kærunefnd að endurritið gefi, eins og hér stendur á og að teknu tilliti til athugasemda kæranda, nægilega skýra mynd af því sem fram fór á milli kæranda og sendiráðsins. Verður því við úrlausn málsins einnig byggt á því sem fram kemur í endurriti viðtalsins.

Í samtali við sendiráðið greind kærandi frá því að hún eigi fasteign í borginni Nanning í Guangxi héraði. Af ákvörðun Útlendingastofnunar verður ekki lesið að fullyrðing þessi hafi verið dregin í efa og er því byggt á því að umrædd fasteign sé í eigu kæranda. Í samtalinu greindi kærandi einnig frá því að hafa gifst íslenskum manni sem nú byggi í Tælandi, en þau væru vinir. Í samtalinu kom fram að hann myndi „koma með“ kæranda og vinkonu hennar. Þá kvaðst kærandi hafa sagt upp vinnunni sinni í febrúar og að hún framfleytti sér með eigin fé. Liggur því fyrir að kærandi er án atvinnu í heimaríki og verður ekki dregin önnur ályktun af gögnum málsins en að hún eigi ekki maka í heimaríki. Í málinu liggja jafnframt engar upplýsingar fyrir um dóttur kæranda, t.d. hvort hún búi á heimili hennar, og þá tilgreindi kærandi ekki að hún ætti dóttur á umsókn hennar um vegabréfsáritun. Liggur einnig fyrir það mat sendiráðs Íslands í Peking að áhættusamt sé að veita vegabréfsáritanir til einstaklinga sem eru búsettir í sama héraði í heimaríki og kærandi. Í ljósi alls ofangreinds verður ekki talið að tengsl kæranda við heimaríki séu sterk.

Kærunefnd telur að framangreindar upplýsingar og þær málsástæður sem kærandi byggir á nægi ekki til að hnekkja því mati Útlendingastofnunar að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa ásetning kæranda um að fara frá Schengen-svæðinu áður en vegabréfsáritun hennar rynni út, sbr. b-lið 1. mgr. 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið hætta á að kærandi myndi dveljast lengur á Schengen-svæðinu en henni hafi verið heimilt, sbr. 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta