Mál nr. 66/2012, úrskurður 20. nóvember 2012
Mál nr. 66/2012 Eiginnafn: Anfinn
Hinn 20. nóvember 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 66/2012 en erindið barst nefndinni 6. nóvember:
Eiginnafnið Anfinn (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Anfinns, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Anfinn (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.