Hoppa yfir valmynd

Nr. 332/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 8. október 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 332/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20070005

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 6. júlí 2020 kærði […], fd. […], ríkisborgari Kólumbíu og Venesúela, (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags 19. júní 2020, um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að henni verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 10. febrúar 2020. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 21. apríl 2020 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 19. júní 2020, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 6. júlí 2020. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 21. júlí 2020 ásamt fylgigögnum. Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Í ljósi frásagnar kæranda og skýrslna um heimaríki taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki sínu, Venesúela, vegna almenns ástands þar í landi. Þá sé hún jafnframt í hættu í heimaríki sínu, Kólumbíu, vegna fjárhagsaðstæðna fjölskyldu sinnar þar í landi og vegna ungs manns sem væri að áreita systur hennar.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og henni skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá því að hún væri með tvöfalt ríkisfang. Hún sé fædd og uppalin í Venesúela og hafi búið þar til ársins 2018 en þá hafi hún flúið til […] í Kólumbíu. Þar hafi hún búið í eitt ár áður en hún hafi komið hingað til lands. Kærandi hafi greint frá því að hún eigi kærasta hér á landi sem sé ríkisborgari Venesúela en hann sé með dvalarleyfi hér á landi. Kærandi hafi greint frá því að faðir hennar væri frá Venesúela og móðir hennar frá Kólumbíu. Kærandi hafi búið með móður sinni og systur í Venesúela eftir að foreldrar hennar hafi skilið árið 2014 en hún hafi flúið með þeim þaðan til Kólumbíu vegna erfiðra almennra efnahagslegra aðstæðna og skorts á öryggi í Venesúela. Aðstæður hafi ekki verið betri í Kólumbíu þar sem mikið sé um glæpa- og skæruliðahópa líkt og í Venesúela og efnahagsástandið jafnframt slæmt. Kærandi og fjölskylda hennar hafi búið við þröngan kost og erfiðar félagslegar aðstæður. Móðir kæranda hafi starfað sem nuddari í Kólumbíu en sé nú atvinnulaus. Kærandi hafi ekki átt nægan pening fyrir mat og unnusti hennar hafi þurft að senda henni og fjölskyldu hennar pening frá Íslandi til Kólumbíu. Yngri systir kæranda hafi getað stundað nám í Kólumbíu þar sem nám sé endurgjaldslaust á því skólastigi sem hún sé á en kærandi hafi hins vegar ekki getað það þar sem háskólar séu of dýrir. Hún hafi stundað nám í Venesúela fram að bakkalárgráðu en ekki fengið vinnu í Kólumbíu. Þá hafi kærandi lýst fordómum og mismunun sem einstaklingar frá Venesúela verði fyrir í Kólumbíu og að jafnvel móðir hennar, sem sé fædd í Kólumbíu, verði fyrir slíkum fordómum. Íbúar Kólumbíu líti m.a. svo á að ríkisborgarar Venesúela komi til Kólumbíu til þess að stela störfum þeirra. Kærandi hafi jafnframt greint frá því að heilbrigðiskerfið sé ekki gott í Kólumbíu.

Móður kæranda hafi borist ítrekaðar hótanir frá eiginkonu manns sem hafi aðstoðað þær mæðgur við að koma sér fyrir í Kólumbíu. Þær hafi búið í húsnæði á vegum mannsins en af ótta við eiginkonu mannsins hafi móðir kæranda ákveðið að hætta öllum samskiptum við hann. Þá hafi yngri systir kæranda orðið fyrir áreiti af hálfu stráks í Kólumbíu. Hann hafi m.a. sent henni hótanir í gegnum Messenger. Hann hafi stundum beðið tímunum saman fyrir utan hús mæðgnanna og þær hafi verið hræddar um að hann myndi gera þeim mein. Í kjölfar þessara aðstæðna í Kólumbíu hafi kærandi upplifað hjartsláttartruflanir og fengið lyf til að halda þeim í skefjum en hún sé nú laus við þær. Kærandi óttist að heilsu sinni muni hraka yrði henni gert að snúa aftur til Venesúela eða Kólumbíu þar sem hún þyrfti að snúa í sömu aðstæður og áður. Þá telji kærandi að hún geti hvergi búið við öryggi í Venesúela eða Kólumbíu en þar hafi hún óttast um líf sitt á hverjum degi. Fram kemur í greinargerð kæranda að aðstæður hennar hafi breyst frá því að Útlendingastofnun hafi tekið ákvörðun í máli hennar. Systir hennar og móðir séu nú fluttar aftur til Venesúela þar sem þær hafi búið nær allt sitt líf. Kærandi eigi því engan að í Kólumbíu nema aldraða ömmu sem búi í þorpi þar sem skæruliðar ráði ríkjum.

Í greinargerð kæranda er fjallað um aðstæður bæði í Venesúela og Kólumbíu. Síðustu ár hafi ástandið í Venesúela farið versnandi en pólitískur óstöðugleiki hafi m.a. aukist, skortur hafi verið á mat, lyfjum og öðrum nauðsynjum og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi ítrekað mælt gegn endursendingu einstaklinga til Venesúela. Þá er jafnframt fjallað um almennar aðstæður í Kólumbíu í greinargerð kæranda þar sem fram kemur að skæruliðahreyfingar, uppreisnarhópar og ólöglegir vopnaðir hópar hafi framið fjölda ódæðisverka á ári hverju og talið sé að þeir beri ábyrgð á flestum mannránum og mannréttindabrotum í landinu. Þrátt fyrir að friðarsamkomulag hafi verið undirritað árið 2016 á milli stjórnvalda og glæpahópsins FARC sé átökunum ekki lokið, ofbeldið hafi tekið á sig nýjar myndir, aðrir hópar fyllt upp í skarð FARC og alvarleg mannréttindabrot haldi áfram að eiga sér stað í landinu. Ofbeldi af hálfu andófs- og afsprengihópa FARC hafi aukist til muna síðastliðin tvö ár og fjöldi meðlima í slíkum hópum fari ört vaxandi. Þá séu konur og stúlkur sérstaklega berskjaldaðar fyrir ofbeldi af hálfu glæpahópa og skæruliða. Þá vísar kærandi til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar þar sem m.a. komi fram að meðal alvarlegustu mannréttindabrota þar í landi séu morð í skjóli refsileysis, víðtæk spilling, pyndingar, ólögmætar handtökur og ólögmæt fangelsisvist, bæði af hálfu yfirvalda sem og ólöglegra vopnaðra hópa. Til stuðnings máli sínu vísar kærandi til alþjóðlegra skýrslna.

Kærandi krefst þess aðallega að henni verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga vegna slæms öryggisástands í Venesúela og Kólumbíu og vegna félags- og efnahaglegra sjónarmiða. Kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð verði henni gert að snúa aftur til ríkjanna. Einnig eigi hún á hættu að verða fyrir skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Aðstæður í Kólumbíu séu enn mjög hættulegar vegna ágangs glæpa- og skæruliðahópa. Ungar konur séu sérstaklega berskjaldaðar fyrir ofbeldi glæpahópanna, aðgangur þeirra að heilbrigðiskerfinu og annarri aðstoð í kjölfar ofbeldis virki ekki sem skyldi og gerendur séu sjaldnast látnir gjalda fyrir gjörðir sínar. Kærandi hafi einungis búið í Kólumbíu í um eitt ár. Fjölskylda hennar, utan aldraðrar ömmu, búi í Venesúela og því eigi hún lítið bakland í Kólumbíu. Þessar aðstæður muni gera henni enn erfiðara fyrir að fóta sig í Kólumbíu þar sem ríkisborgarar Venesúela verði fyrir miklum fordómum og mismunun. Öryggisástand í Kólumbíu sé á heildina litið ótryggt og í ljósi aðstæðna kæranda yrði hún ekki örugg í Kólumbíu heldur yrði hún m.a. útsett fyrir alvarlegu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi og eigi þannig á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Í greinargerð kæranda kemur fram að móðuramma hennar búi í þorpinu [...] í Kólumbíu og þar ráði skæruliðar að mestu ríkjum að sögn kæranda. Íbúar þorpsins séu flestir aldraðir og þar sé litla sem enga þjónustu að fá. Kærandi telji a- og c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga eiga við um þá aðila sem hún óttist.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í greinargerð kæranda er áréttað að ástand mannréttindamála í Venesúela og Kólumbíu sé slæmt. Móðir kæranda hafi ekki getað séð fyrir kæranda og systur hennar. Þær hafi búið við bágar aðstæður þar sem þær hafi sofið á gólfinu. Móðir kæranda og systur hennar hafi neyðst til að snúa aftur til Venesúela þar sem þær búi nú með föðurömmu kæranda. Sem venesúelskur ríkisborgari búi kærandi jafnframt við fordóma og mismunun í Kólumbíu sem geri henni m.a. enn erfiðara um vik en ella að útvega sér vinnu. Þá geti kærandi ekki snúið aftur til Venesúela vegna ómannúðlegra aðstæðna. Meta beri aðstæður kæranda með heildstæðum hætti en hún sé ung stúlka, einungis [...] ára gömul, sem hafi flúið erfiðar aðstæður í heimaríki sínu Venesúela til Kólumbíu þar sem við hafi tekið erfiðar efnahagslegar- og félagslegar aðstæður auk almenns ótryggs ástands. Kærandi eigi engan að í Kólumbíu nema aldraða móðurömmu sem geti ekki veitt kæranda neinn stuðning. Þá sé unnusti kæranda, sem sé ríkisborgari Venesúela, með dvalarleyfi hér á landi ásamt fjölskyldu sinni.

Ráða má af greinargerð kæranda að hún geri athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar en í greinargerð hennar kemur m.a. fram að gert hafi verið ráð fyrir að kærandi ætti í foreldrahús að venda í borginni […] í Kólumbíu og að þar væru ítök glæpa- og skæruliðahópa ekki sterk án þess að það hafi verið rökstutt með vísan til heimilda. Móðir kæranda og systir hennar, sem um tíma hafi búið í […], séu nú fluttar aftur til Venesúela þar sem þær hafi búið nær allt sitt líf. Kærandi eigi því engan að í […]. Þá sé hvergi í hinni kærðu ákvörðun að finna rökstuðning fyrir því að kólumbísk yfirvöld geti almennt verndað grundvallarmannréttindi borgara sinna í […] og að kærandi geti leitað til lögregluyfirvalda þar telji hún þörf á því. Þá telur kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki uppfyllt skilyrði 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sem kveði á um rannsóknarskyldu stjórnvalda, þar sem ekki sé að finna rökstuðning fyrir því að kæranda hafi verið synjað um dvalarleyfi af mannúðarástæðum.

Kærandi telur að með endursendingu hennar til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um non-refoulement, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun muni brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað kólumbísku og venesúelsku vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé kólumbískur og venesúelskur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • A fractured peace, A Reuters Special Report (Reuters International, 26. apríl 2018);
  • Achieving Health Outcomes in Colombia. Civil Registration and Vital Statistics System, Unique Personal Identification Number, and Unified Beneficiary Registry System for Births and Death (World Bank Group, 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 - Colombia (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Annual Report 2019 – Colombia (Amnesty International, 27. febrúar 2020);
  • Challenges faced in receiving 1.4 million Venezuelan citizens at the centre of Colombia's dialogue with the Committee on Migrant Workers (Committee on the Protection of the Rights of All Migrant Workers, 4. september 2019);
  • Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2020);
  • Colombia’s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace. Latin America Report No. 63 (International Crisis Group (ICG), 19. október 2017);
  • Colombia: Compound structural vulnerabilities facing Christian women under pressure for their faith (Open Doors International / World Watch Research Unit, nóvember 2018);
  • Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post-FARC-EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
  • Colombia – Peace and Stability in the Post-Conflict Era (Center for Strategic and International Studies (CSIS), mars 2014);
  • Colombia: Whether women who head their own households, without male or family support, can obtain housing and employment in Medellin; government support services available to female-headed households in Medellin; violence against women in Medellin (Immigration and Refugee Board of Canada, 1. mars 2012);
  • Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, skoðað 21. ágúst 2020);
  • Colombia 2020 Crime and Safety Report (US Department of State, Bureau of Diplomatic Security, 13. mars 2020);
  • Foreign travel advice: Colombia (UK Foreign and Commonwealth Office, skoðað 21. ágúst 2020);
  • Freedom in the World 2020 – Colombia (Freedom House, 4. mars 2020);
  • In the Shadow of “No“: Peace after Colombia’s Plebiscite. Latin America Report No. 60 (International Crisis Group (ICG), 31. janúar 2017);
  • Localized Armed Conflicts – Report on Illegal Armed Groups in Colombia 2017-2018 (Indepaz, desember 2018);
  • Mental Health ATLAS 2017. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 2018);
  • Primary Health Care Systems (Prymasis). Case study from Colombia (World Health Organization, 2017);
  • Progress of women in Colombia 2018: Transforming the economy to guarantee rights (UN Women, 2018);
  • Recycled Violence, Abuses by FARC dissident groups in Tumaco on Colombia’s Pacific Coast (Human Rights Watch, 13. desember 2018);
  • Response to Information Request – Colombia: The National Liberation Army (Ejército de Liberación Nacional - ELN), including number of combatants and areas of operation; activities, including ability to track victims; state response and protection available to victims (2016-April 2018) (Immigration and Refugee Board of Canada, 23. apríl 2018);
  • Searching for Home: How Covid-19 Threatens Progress for Venezuelan Integration in Colombia (Refugees International, 26. maí 2020);
  • Situation of human rights in Colombia. Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights (UN Human Rights Council, 26. febrúar 2020);
  • Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 - Colombia (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation, and Statistics, mars 2020);
  • Supporting Solidarity: Why the World Must Bolster Colombia’s Response to the Venezuelan Displacement Crisis (Refugees International, 20. desember 2019);
  • The Missing Peace: Colombia’s New Government and Last Guerrillas. Latin America Report No. 68 (International Crisis Group (ICG), 12. júlí 2018);
  • The World Factbook: Colombia (CIA, skoðað 17. september 2020);
  • Travel advice and advisories for Colombia (The Government of Canada, uppfært 21. september 2020);
  • UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum- Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
  • Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com);
  • Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co);
  • Upplýsingar af vefsíðu InSight Crime (insightcrime.org);
  • Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org);
  • Venezuelans in Colombia: understanding the implications of the migrant crisis in Maicao (La Guajira) (Sayara International, 2018);
  • World Report 2018 – Events of 2017 (Human Rights Watch, 16. janúar 2018);
  • World Report 2019 – Events of 2018 (Human Rights Watch, 4. febrúar 2019);
  • World Report 2020 – Events of 2019 (Human Rights Watch, 14. janúar 2020);
  • Yes, But Not Here: Perceptions of xenophobia and discrimination towards Venezuelan migrants in Colombia, Ecuador and Peru (Oxfam Research Report, október 2019);
  • 2018 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 13. mars 2019) og
  • 2019 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 11. mars 2020).

Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með um 50 milljónir íbúa. Um 79% íbúa aðhyllast kaþólska trú. Þann 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, víðtæk spilling, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu og ofbeldi gegn LGBTI einstaklingum.

Af framangreindum heimildum má ráða að glæpa- og morðtíðni í Kólumbíu sé há og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Nariño, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionary Armed Forces of Colombia – People’s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu þar einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í ársskýrslu Human Rights Watch frá 2019 kemur fram að ofbeldi tengt vopnuðum hópum og afsprengihópum FARC hafi aukist á ný árið 2018 eftir að hafa í fyrstu dregist saman í kjölfar vopnahlés við FARC árið 2015. Í ársskýrslu samtakanna frá 2020 kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 2.300 talsins. Þá kemur fram í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 að meðlimir ELN séu um 3.000 talsins og að hópurinn hafi á árunum 2018-2020 framið ýmsa ofbeldisglæpi víða um landið. Þá hafi friðarviðræður stjórnvalda við ELN siglt í strand eftir að hópurinn lýsti yfir ábyrgð á sprengju sem sprakk í lögregluskóla í höfuðborg landsins Bógóta í janúar 2019. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 kemur fram að vopna- og fíkniefnahópar starfi enn með einhverjum tengslum við ofangreinda skæruliðahópa en slíka hópa skorti sameinaða stefnu og yfirstjórn á landsvísu og hugmyndafræði sem hafi einkennt fyrrnefnda skæruliðahópa. Í skýrslu Flóttamannastofnunar frá 2015 kemur fram að sumir glæpahópar stundi fjárkúganir og krefji ákveðna hópa fólks um greiðslur fyrir vernd (s. Vacuna).

Í framangreindum gögnum kemur fram að borgin [...] sé höfuðborg héraðsins [...] og sé í rúmlega [...] fjarlægð frá höfuðborg Kólumbíu, Bógóta. Borgin sé klofin að því leyti að norðurhluti borgarinnar sé nútímavæddari en suðurhluti borgarinnar. Fátækt sé töluverð í suðurhlutanum en í norðurhlutanum sé mikil uppbygging íbúðabygginga, verslunarmiðstöðva og hótela. Atvinnuleysi sé þó mikið en í borginni búi yfir hálf milljón manns. Samkvæmt skýrslu hugmyndabankans Indepaz um ólöglega vopnaða hópa í Kólumbíu, fyrir árið 2017-2018, hafi viðvera og ítök ýmissa glæpahópa hvorki verið sterk né mikil í [...] þrátt fyrir að ýmis konar fíkniefnastarfsemi fari þar fram. Á stafrænu korti á vefsíðu Columbia Reports frá 3. september 2020 má sjá hvar viðvera glæpahópa, þ. á m. Gulf Clan, ELN og FARC, hefur verið skráð og staðfest af hugmyndabankanum Indepaz. Afsprengihópar FARC hafi t.a.m. haldið að mestu til í suður-, suðvestur- og suðausturhluta Kólumbíu árið 2018 og 2019, sem og við landamæri Venesúela og Kólumbíu. Þá hafi ELN haldið sig til að mestu leyti í norðurhluta landsins árið 2019. Engir hópar hafi verið með skráða starfsemi í borginni [...] í [...]. Þó kemur fram að ástandið í landinu sé óstöðugt og að margir af hinum ólöglegu vopnuðu hópum séu virkir utan tilgreindra svæða, þá ýmist með leynilegum aðgerðum eða í gegnum bandalög með öðrum glæpahópum.

Á meðal þess sem fram kemur í framangreindum heimildum er að spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Þó kemur m.a. fram í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 að forseta- og þingkosningar í júní árið 2018 hafi verið taldar hafa farið fram með frjálsum og sanngjörnum hætti og þær hafi verið hinar friðsömustu í áratugi. Í skýrslu samtakanna Freedom House frá því í mars sl. kemur t.a.m. fram að spillingar gæti víða í kólumbísku stjórnkerfi. Á síðustu árum hafi komið upp á yfirborðið hneykslismál tengd ýmsum alríkisstofnunum sem hafi verið rannsökuð og sakfellt hafi verið fyrir brot, þ. á m. brot háttsettra embættismanna. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Mannréttindasamtök hafi þó gagnrýnt að á sumum svæðum virðist afsprengihópar fá að starfa því sem næst óáreittir. Lögregla (s. Policía Nacional de Colombia) heyri undir varnarmálaráðuneyti landsins og sé fagmannlegri en í nágrannaríkjum Kólumbíu en skortur sé á fullnægjandi fjármagni og mannafla. Ennfremur hafi lögreglan verið sökuð um að vinna með glæpamönnum og að vera ekki til staðar á strjálbýlli svæðum þar sem hættulegir hópar séu virkir. Lögreglan sé þó með sérstakt símanúmer, Transparencia Institucional, sem unnt sé að hringja í telji fólk sig hafa orðið fyrir áreitni eða spillingu af hálfu lögreglu. Kveðið sé á um skipan embættis ríkissaksóknara (s. La Fiscalía General de la Nación) í stjórnarskrá Kólumbíu og er unnt að leita til embættisins vegna spillingar lögreglu. Þá sé jafnframt starfandi umboðsmaður (s. Defensoría del Pueblo Colombia) þar í landi. Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 13. mars sl. kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Verulega hafi dregið úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum m.a. hafi morðtíðni árið 2017 verið sú lægsta í fjóra áratugi en hafi risið lítillega árið 2018. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Í framangreindri skýrslu sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttinda í Kólumbíu frá 8. maí sl. kemur fram að í samanburði við árin á undan hafi tíðni glæpa og ofbeldis í landinu árið 2019 verið há. Má ætla að það stafi m.a. af því að friðarviðræðum við ELN hefur verið hætt sem og aukinni starfsemi afsprengihópa FARC.

Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 að um 7,8 miljónir íbúa í Kólumbíu séu vegalausir innanlands (e. internally displaced people), flestir vegna vopnaðra átaka í landinu. Þá hafi hætta af ólöglegum vopnuðum hópum í landinu valdið fólksflutningum bæði í þéttbýli sem og í dreifbýli. Samkvæmt lögum hafi 52 opinberar stofnanir í Kólumbíu það hlutverk að veita einstaklingum sem hafi þurft að flýja heimkynni sín aðstoð. Jafnframt séu fjöldi félaga og samtaka í samstarfi með stjórnvöldum og hafi tekið að sér að veita mannúðaraðstoð til þeirra sem hafi þurft að flytjast á brott frá heimasvæði sínu. Stjórnvöld hafi þó sætt gagnrýni fyrir seinar og ófullnægjandi aðgerðir.

Í frétt á vefsíðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, dags. 4. febrúar 2020, kemur fram að yfir 1,6 milljón venesúelskra ríkisborgara dvelji í Kólumbíu. Ólíkt öðrum nágrannaþjóðum Venesúela hafi Kólumbía haldið landamærum sínum opnum fyrir venesúelskum flóttamönnum þrátt fyrir að aðgengi að vatni, heilbrigðisþjónustu, menntun og atvinnu sé takmarkað. Í framangreindri skýrslu Indepaz fyrir árið 2017-2018 kemur fram að talið sé að á bilinu 1.500 og 3.000 venesúelskir ríkisborgarar komi til Kólumbíu daglega. Þá kemur fram í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 að 95% umsækjenda um alþjóðlega vernd í Kólumbíu hafi verið venesúelskir ríkisborgarar. Þrátt fyrir að venesúelskir ríkisborgarar upplifi oft fordóma og mismunun í Kólumbíu þá sýni meirihluti íbúa Venesúelabúum skilning og telji rétt að Kólumbía taki á móti þeim. Á sama tíma telji þó margir íbúar að Kólumbía eigi að herða landamæraeftirlit þar sem þeir telji m.a. að venesúelskir borgarar muni taka störf þeirra og að ríkið hafi ekki efni á því að taka á móti þeim. Þá hafi kólumbísk stjórnvöld, í samvinnu við alþjóðlegar stofnanir, framkvæmt ýmsar aðgerðir í þeim tilgangi að draga úr mannúðarvanda sem venesúelskir ríkisborgarar upplifi, sem og að bæta félagslegar aðstæður þeirra þannig að þeir eigi auðveldara með að aðlagast kólumbíska samfélaginu. Þrátt fyrir þessar aðgerðir þá sé hópurinn félagslega- og efnahagslega jaðarsettur í landinu. Kólumbísk stjórnvöld telji að útlendingaandúð sé ekki útbreidd meðal almennings þrátt fyrir að slík orðræða geti átt sér stað. Slík orðræða hafi þá verið fordæmd af háttsettum embættismönnum í landinu. Í skýrslu samtakanna Refugees International kemur fram að heimsfaraldur Covid-19 hafi lagst sérstaklega þungt á ríkisborgara Venesúela í Kólumbíu þrátt fyrir einlægan vilja kólumbískra stjórnvalda til að tryggja þeim aðstoð og heilbrigðisþjónustu. Tugir þúsunda einstaklinga hafi neyðst til að yfirgefa Kólumbíu vegna atvinnumissis, fjárskorts, skorts á húsnæði, mat o.fl. og snúa aftur til Venesúela þrátt fyrir slæmt ástand þar í landi.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 kemur fram að lög í Kólumbíu tryggi konum sömu lagalegu réttindi og karlmönnum. Þátttaka kvenna í stjórnmálum sé ekki takmörkunum háð en samkvæmt framangreindri skýrslu Freedom House mæli kólumbísk lög fyrir um að a.m.k. 30% stjórnmálamanna verði að vera konur. Hlutfall kvenna innan ríkisstjórnarinnar þar í landi hafi verið yfir 50% árið 2019 samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins. Kólumbísk stjórnvöld hafi fullgilt alla gildandi alþjóðasamninga er snúi að mannréttindum og réttindum kvenna og ríkið hafi náð þýðingarmiklum framförum varðandi þróun löggjafar sem styðji jafnrétti kynjanna og mannréttindi kvenna. Sem dæmi um það hafi t.a.m. verið sett lög árið 2014 til að bæta aðgang þolenda kynferðisofbeldis að réttvísi. Mismunun og ofbeldi gagnvart konum og refsileysi gerenda í slíkum málum sé þó vandamál í ríkinu. Konur verði fyrir kynbundnu ofbeldi, m.a. kynferðisofbeldi, í tengslum við átök tengd glæpastarfsemi og baráttu stjórnvalda við glæpahópa í landinu. Kólumbísk lög leggi skyldu á stjórnvöld að veita þolendum heimilisofbeldis tafarlausa vernd gegn frekara ofbeldi, hvort sem það sé líkamlegt eða andlegt. Þá kveði kólumbísk lög á um tólf til fimmtíu ára fangelsisvist fyrir kynbundin morð á konum (e. femicide) sem sé talsvert þyngri refsing heldur en við morðum af öðrum ástæðum, sem varði að lágmarki 13 ára fangelsisvist. Sérstök kynferðisbrotadeild, Elite Sexual Assault Investigative Unit, sem heyri undir kólumbísk stjórnvöld, hafi það hlutverk að rannsaka kynferðisbrotamál. Umdæmisritari í málefnum kvenna í Bógóta í Kólumbíu, auk skrifstofu umboðsmanns þar í landi, veiti endurgjaldslausa lögfræðiráðgjöf fyrir þolendur kynbundins ofbeldis og bjóði upp á námskeið fyrir opinbera starfsmenn um framkomu við þolendur kynbundins ofbeldis.

Samkvæmt skýrslu samtakanna Freedom House frá mars 2020 standi konur frammi fyrir mismunun á vinnumarkaði og verði fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustöðum. Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur þó fram að kólumbísk lög leggi bann við hvers kyns áreitni á vinnustað og mæli jafnframt fyrir um eins til þriggja ára fangelsisvist fyrir slík brot. Einstæðar konur sem jafnframt búi einar séu almennt útsettari fyrir mismunun, ofbeldi og mannráni en konur sem deili heimili með karlmanni. Þá séu börn einstæðra kvenna útsettari fyrir því að vera rænt af glæpahópum og skæruliðum og þvinguð til að ganga til liðs við hópana. Einstæðar mæður sem þurfi að sjá fyrir börnum sínum standi almennt frammi fyrir mismunun vegna kyns síns, auk þess sem erfitt geti verið fyrir þær að fá vinnu með launum sem nægi þeim til framfærslu. Það geri konur m.a. útsettari fyrir kynferðislegri misnotkun. Auk framangreinds, kemur fram í skýrslu samtakanna Open Doors um Kólumbíu frá árinu 2018 að erfiðara geti verið fyrir konur, jafnvel ómögulegt, að kaupa eða selja jarðir eða sýna fram á eignarhald á jörð vegna karllægra viðhorfa og fordóma gagnvart konum. Einstæðar konur séu því líklegri til þess að enda heimilis- og vegalausar. Ýmsar stofnanir séu til í Kólumbíu sem aðstoði einstæðar og vegalausar konur en samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 skorti þær stofnanir getu á mörgum sviðum til að takast á við vandamálið og veita einstaklingum í slíkri stöðu vernd og aðstoð. Í framangreindri skýrslu samtakanna Open Doors kemur fram að alvarleiki mismununar gagnvart konum velti á ýmsum lýðfræðilegum þáttum, m.a. þjóðerni þeirra, efnahagi, menntun og búsetu, þ.e. hvort þær búi í þéttbýli eða dreifbýli. Almennt séu félagslegar aðstæður kvenna verri og líkur á að þær sæti ofbeldi meiri í strjálbýli en á þéttbýlli svæðum.

Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt fréttum á vef Colombia Reports var atvinnuleysi í landinu árið 2019 10,5% og hafi aukist verulega á árinu 2020. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) ber ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallarmannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni frá árinu 2018, „Mental Health ATLAS 2017 Member State Profile“, hefur frá árinu 2013 verið í gildi sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu, slík heilbrigðisþjónusta sé að mestu tryggð með sjúkratryggingakerfi landsins og meirihluti fólks sem eigi við andleg vandamál að stríða þurfi ekki að greiða fyrir slíka þjónustu.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna. Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Í ákvörðun Útlendingastofnunar er fjallað um aðstæður kæranda í Venesúela, auk Kólumbíu. Kærunefnd gerir ekki athugasemd við umfjöllun stofnunarinnar um Venesúela og niðurstöður stofnunarinnar um aðstæður kæranda þar í landi. Þar sem kærandi er ríkisborgari Kólumbíu telur kærunefnd, eins og aðstæðum sé háttað í þessu máli, að aðeins sé þörf á að fjalla um aðstæður kæranda þar í landi, sbr. m.a. 2. mgr. A-liðar 1. gr. flóttamannasamningsins.

Kærandi byggir á því að henni skuli vera veitt vernd vegna slæms öryggisástands og félagslegs- og efnahagslegs ástands í Kólumbíu. Hún eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Aðstæður í Kólumbíu séu hættulegar vegna ágangs glæpa- og skæruliðahópa og ungar konur séu sérstaklega berskjaldaðar fyrir ofbeldi glæpahópanna. Kærandi hafi búið við erfiðar félagslegar aðstæður í Kólumbíu auk þess að hafa búið við fordóma í Kólumbíu sem venesúelskur ríkisborgari. Kærandi sé [...] ára gömul og eigi ekkert bakland í Kólumbíu fyrir utan aldraða móðurömmu sína sem geti ekki veitt henni stuðning. Kærandi telur að bæði ákvæði a- og c-liðar 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga eigi við um þá aðila sem hún óttist.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hennar hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda. Í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 21. apríl 2020 greindi kærandi frá því að hafa búið við erfiðar aðstæður í Kólumbíu með móður sinni og systur þar sem þær hafi búið í borginni […]. Kærandi kveðst hafa mætt fordómum sem venesúelskur ríkisborgari og hafi ekki fengið vinnu. Móðir kæranda hafi á tímum ekki átt nægan pening til að sjá fyrir kæranda og systur hennar og hafi kærandi stundum þurft að biðja kærasta sinn, sem búsettur sé hér á landi, um að senda þeim peninga til Kólumbíu. Kærandi hafi ákveðið að koma hingað til lands þar sem mikið hafi verið um glæpi, morð og eiturlyf í Kólumbíu, auk bágs almenns efnahagsástands. Þá hafi móðir kæranda orðið fyrir áreiti af hálfu eiginkonu manns sem hafi aðstoðað móður kæranda að finna húsnæði, auk þess sem systir kæranda hafi borist hótanir frá skólafélaga sínum. Máli sínu til stuðnings lagði kærandi m.a. fram skjáskot af hótunum sem systur og móður kæranda bárust. Kærunefnd telur ekki ástæðu til annars en að leggja frásögn kæranda til grundvallar.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hún óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda í Kólumbíu sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu. Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd m.a. á erfiðum efnahagslegum aðstæðum. Efnahagslegar aðstæður teljast almennt ekki til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og ekkert í gögnum málsins bendir til þess að annað eigi við í máli kæranda. Þrátt fyrir að gögn um aðstæður í Kólumbíu bendi til þess að glæpahópar séu áhrifamiklir á sumum svæðum í Kólumbíu, er það mat kærunefndar að gögn sýni fram á að á öruggari svæðum geti kólumbísk yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi ríkisborgara sinna. Kærandi kveðst hafa búið í borginni […] í héraðinu […] í Kólumbíu. Heimildir benda ekki til þess að ítök og áhrif glæpa- eða skæruliðahópa séu slík í […] að ómögulegt sé fyrir kæranda að leita aðstoðar yfirvalda. Þau gögn sem kærunefnd hefur skoðað benda til þess að […] sé talsvert öruggara svæði en önnur svæði í landinu. Þá má ráða af framburði kæranda að hún hafi ekki orðið vör við skæruliðahópa í […] en í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst hún ekki hafa upplifað áreiti frá slíkum hópum þegar hún hafi búið þar. Með vísan til framangreinds er það því mat kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hún eigi á hættu ofsóknir af hálfu skæruliðahópa í […] í Kólumbíu. Er það jafnframt mat kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á að stjórnvöld í Kólumbíu geti ekki eða vilji ekki veita henni vernd, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir. Kærandi hefur því raunhæfan möguleika á því að leita sér ásjár stjórnvalda þar í landi, ef hún telur sig þurfa á aðstoð þeirra að halda.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að venesúelskir ríkisborgarar verði fyrir fordómum og mismunun í Kólumbíu. Frásögn kæranda fær vissa stoð í þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað. Líkt og fram hefur komið séu yfir 1, 6 milljón Venesúelabúa sem hafi flúið yfir til Kólumbíu á undanförnum misserum. Því fylgi ótti meðal margra íbúa Kólumbíu sem telji að stjórnvöld hafi ekki nægilegt fjármagn til að taka á móti Venesúelabúum og að þeir muni taka störf frá kólumbískum íbúum. Stjórnvöld hafi hins vegar haldið landamærum sínum opnum og sýnt einlægan vilja til að taka vel á móti Venesúelabúum og hjálpa þeim við að aðlagast samfélaginu. Þrátt fyrir að Venesúelabúar geti upplifað fordóma og mismunun í Kólumbíu er það mat kærunefndar með tilliti til framangreindra gagna að það nái ekki því alvarleikastigi sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Kærandi byggir umsókn sína m.a. á því að hún geti ekki snúið aftur til Kólumbíu vegna ótryggs ástands. Kærandi vísar til þess að aðstæður í Kólumbíu séu enn mjög hættulegar vegna ágangs glæpa- og skæruliðahópa. Ungar konur séu sérstaklega berskjaldaðar fyrir ofbeldi glæpahópanna og gerendur séu sjaldnast látnir sæta refsingu fyrir slík brot. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- eða skæruliðahópum og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að vera beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Það er mat kærunefndar að frásögn kæranda af almennu ástandi í Kólumbíu sé í meginatriðum í samræmi við fyrirliggjandi gögn og upplýsingar um heimaríki hennar. Þau gögn og heimildir sem kærunefnd hefur yfirfarið við meðferð málsins benda þó ekki til þess að aðstæður í borginni […], sem kærandi kveðst hafa búið í, séu slíkar að hún eigi á hættu meðferð sem brjóti í bága við 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Að virtum framburði kæranda, gögnum málsins og landaupplýsingum sem fjallað var um að framan er það mat kærunefndar að kærandi eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði henni gert að snúa aftur til Kólumbíu. Þá telur kærunefnd, með vísan til aðgerða yfirvalda og möguleika á vernd þar í landi, ekki raunhæfa ástæðu til að ætla að kærandi verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, verði henni gert að fara þangað.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður kæranda þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi hefur greint frá erfiðum aðstæðum í heimaríki hennar vegna starfsemi glæpahópa og að yfirvöld geti ekki veitt henni fullnægjandi vernd. Þá hefur hún jafnframt greint frá því því að félagslegar aðstæður hennar í heimaríki verði bágbornar. Kærandi sé ung stúlka og hún eigi ekki bakland í Kólumbíu fyrir utan aldraða móðurömmu sína sem geti ekki veitt henni stuðning. Öll önnur fjölskylda kæranda búi nú í Venesúela. Kærandi verði þá fyrir fordómum í Kólumbíu sem venesúelskur ríkisborgari sem jafnframt geri henni erfiðara um vik en ella að fá vinnu.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur m.a. fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í athugasemdunum kemur jafnframt fram að erfiðar almennar aðstæður geta tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við náttúruhamfarir eða langvarandi stríðsástand í heimaríki. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir þá er ljóst að þrátt fyrir að ótryggt ástand ríki á ákveðnum landsvæðum í heimaríki kæranda eigi það ekki við um […] þar sem hún kveðst hafa búið. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður í heimaríki kæranda telur kærunefnd að aðstæður hennar séu ekki slíkar að grundvöllur sé til veitingar dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Líkt og fram hefur komið bera heimildir með sér að konur geti upplifað mismunun og kynbundið ofbeldi í Kólumbíu, auk þess sem venesúelskir ríkisborgarar geti upplifað mismunun. Ekki er hægt að útiloka að kærandi kunni að verða fyrir einhverju aðkasti í heimaríki sínu vegna kyns hennar, aldurs, venesúelsks ríkisfangs og fjölskylduaðstæðna. Kærunefnd horfir hins vegar til þess að kærandi er með kólumbískt ríkisfang og hefur því öll þau sömu réttindi og kólumbískir ríkisborgarar almennt hafa. Þá velti alvarleiki mismununar gagnvart konum á ýmsum lýðfræðilegum þáttum, m.a. þjóðarbroti þeirra, efnahagi, menntun og búsetu, þ.e. hvort þær búi í þéttbýli eða dreifibýli. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa öðlast bakkalárgráðu í Venesúela og hafa búið í borginni […] í Kólumbíu sem er höfuðborg héraðsins […]. Þrátt fyrir að einstæðar konur geti átt erfitt uppdráttar í Kólumbíu horfir kærunefnd til þess að félagslegar aðstæður kvenna séu almennt betri í þéttbýli, kærandi sé líkamlega og andlega hraust, ekki með barn á framfæri og með háskólamenntun. Þá séu ýmsar stofnanir til í Kólumbíu sem aðstoði einstæðar konur þótt geta þeirra geti verið takmörkuð að einhverju leyti. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og mats á trúverðugleika hennar er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að félagslegar aðstæður sem bíða kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Kærandi hefur jafnframt lýst erfiðum efnahagslegum aðstæðum í Kólumbíu. Kærandi telur að jafnvel þótt ákvæði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga skuli að jafnaði ekki talið taka til neyðar af efnahagslegum rótum sé ekki útilokað að það taki til þessara þátta með vísan til orðalags ákvæðisins. Kærunefnd lítur til þess að í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að ákvæðið um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði að jafnaði ekki talið ná til neyðar af efnahagslegum rótum, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Þá hafa ekki komið fram gögn við meðferð málsins sem kalla á að vikið sé frá þeim meginsjónarmiðum sem þar koma fram.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni eða óbærilegum þjáningum. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Þann 8. október 2020 barst kærunefnd tölvupóstur frá kæranda þar sem fram kom m.a. að um miðjan september sl. hafi kærandi farið á bráðamóttöku Borgarspítalans þar sem hún hafi glímt við svefnleysi og hjartsláttartruflanir. Kærandi kvaðst hafa fengið róandi lyf. Þá kom jafnframt fram að kærandi hafi farið í sónar- og röntgenskoðun fyrir um mánuði síðan vegna hnúts í öðrum handlegg. Kærandi kvað lækna hafa mælt með aðgerð en að ekki væri um illkynja hnút að ræða.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa upplifað hjartsláttartruflanir þegar hún hafi búið í Kólumbíu og að hún hafi fengið læknisaðstoð og lyf sem hafi hjálpað henni. Það að kærandi sæki læknisþjónustu hér á landi leiðir ekki sjálfkrafa til þess að hún teljist hafa ríka þörf á vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða vegna heilbrigðisástæðna. Í ljósi þess sem fram hefur komið verður sú meðferð sem kærandi þarfnast hvorki talin vera svo sérhæfð að hún geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hana verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis. Líkt og fram hefur komið er öllum ríkisborgurum Kólumbíu tryggður aðgangur að heilbrigðiskerfinu í landinu. Í boði sé geðheilbrigðisþjónusta í Kólumbíu fyrir kæranda en slík heilbrigðisþjónusta sé að mestu tryggð með sjúkratryggingakerfi landsins og meirihluti fólks sem glími við andleg veikindi þurfi ekki að greiða fyrir slíka þjónustu. Þá kemur fram í ofangreindum athugasemdum við lagafrumvarpið að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni.

Kærunefnd hefur jafnframt litið til þeirra tímabundnu erfiðleika sem heimaríki kæranda kann að þurfa að glíma við vegna Covid-19 faraldursins. Kærunefnd telur þá erfiðleika ekki vera þess eðlis að þeir leiði til þess, einir og sér eða í samhengi við önnur gögn málsins, að heimilt sé að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hún teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað. Athugasemdir kæranda við málsmeðferð ÚtlendingastofnunarKærandi gerði í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hennar. Kærunefnd hefur að framan tekið afstöðu til þeirra að því leyti sem þær kunna að hafa áhrif á niðurstöðu þessa máls.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 5. febrúar 2020 og sótti um alþjóðlega vernd 10. febrúar sama ár. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hún því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hennar um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hún verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hennar hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi kveðst vera við ágæta heilsu. Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga og þegar litið er til ferðatakmarkana vegna Covid-19 faraldursins teljast 30 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Í ljósi COVID-19 faraldursins er athygli kæranda einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.  

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljug.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 30 days to leave the country voluntarily.

 

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                      Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta