Hoppa yfir valmynd

Nr. 601/2021 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 9. desember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 601/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21070023

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 12. júlí 2021 kærði […], fd. […], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. júní 2021, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt staða flóttamanns hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi hinn 25. september 2020. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. hinn 1. febrúar 2021 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 25. júní 2021, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála hinn 12. júlí 2021. Kærunefnd barst greinargerð kæranda hinn 26. júlí 2021. Hinn 14. október 2021 óskaði kærunefnd eftir því að fram færi DNA rannsókn til að staðfesta tengsl kæranda við börn sín. Niðurstöður rannsóknarinnar bárust kærunefnd hinn 8. desember 2021 og staðfestu þær að kærandi væri faðir beggja barnanna. Þá eignaðist K þriðja barn þeirra hinn […]. Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Kærandi kom til viðtals hjá kærunefnd hinn 14. október 2021 ásamt talsmanni sínum.

III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi vegna hótana og árása af hálfu meðlima glæpasamtaka sem kallist […]. Jafnframt sé umsóknin byggð á því að kærandi eigi eiginkonu og barn hér á landi.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda til kærunefndar er vísað til greinargerðar hans til Útlendingastofnunar hvað varðar málavexti og upplýsingar um aðstæður í heimaríki kæranda. Þar kemur fram að kærandi hafi greint frá því að árið […], þegar hann hafi verið um 14 ára gamall, hafi hann búið við fátækt og ekki geta stundað nám eða framfleytt sér. Maður að nafni […], sem síðar hafi komið í ljós að væri meðlimur hópsins […], hafi boðist til að aðstoða kæranda. Maðurinn hafi viljað greiða kæranda fé fyrir kynlíf með honum. Þar sem kærandi hafi verið örvæntingafullur hafi hann þegið peningana og gert það sem maðurinn bað um. Kærandi hafi þá getað hafið nám en nokkru síðar hafi maðurinn haft samband við hann aftur. Hann hafi sagst vilja að kærandi gerðist meðlimur í […]. Jafnframt hafi hann sagst myndi kynna kæranda fyrir föður sínum sem væri stjórnmálamaður og gæti útvegað honum vinnu. Kærandi hafi heyrt um […] og ekki viljað ganga til liðs við hópinn. Eftir þrýsting frá manninum hafi kærandi fallist á að verða meðlimur í hópnum en ekki viljað taka þátt í neinu ólöglegu. Kærandi hafi mætt á viðburð hjá hópnum og þar hafi farið fram sérstök inntökuathöfn. Bundið hafi verið fyrir augu hans og viðstaddir meðlimir hafi kallað nafn hópsins í sífellu. Kærandi hafi verið laminn og þegar losað hafi verið frá augum hans hafi drykk verið spítt í augu hans. Kærandi hafi ekki getað séð í kjölfarið og reynt að flýja. Eftir það hafi áðurgreindur maður, […], farið með kæranda að hitta föður sinn líkt og hann hafi talað um. Faðirinn hafi viljað fela kæranda verkefni sem í ljós hafi komist að fælist í því að myrða andstæðing föðurins. Kærandi hafi þá lagt á flótta.

Kærandi hafi haldið námi sínu áfram og kynnst stúlku í skólanum árið 2006. Þau hafi átt í sambandi og hún orðið þunguð eftir kæranda. Í ljós hafi komið að stúlkan væri systir […]. Þegar […] og faðir þeirra hafi komist að sannleikanum um samband kæranda og stúlkunnar hafi […] haft samband við kæranda og haft í hótunum við hann. Í janúar 2007 hafi […] aftur haft samband við kæranda og þá fengið hann til að hitta sig undir því yfirskini að verið væri að halda upp á afmæli stúlkunnar. Kærandi hafi verið sóttur af fjórum mönnum sem hafi ekið honum í burtu í afskekkta byggingu þar sem hann hafi verið laminn og skorinn. Í átökunum hafi kærandi hoppað ofan af annarri hæð byggingarinnar og fótbrotnað. Þar sem hann hafi legið hafi hann verið laminn með barefli í höfuðið. Mennirnir hafi sagt að árásin væri refsing fyrir að hafa gert stúlkuna ófríska og fyrir að vilja ekki ganga til liðs við […]. Síðar hafi kærandi heyrt af því að stúlkan hafi tekið lyf og látist. […] hópurinn hafi kennt kæranda um andlát stúlkunnar og hafi lögreglan leitað kæranda vegna gruns um aðild að málinu. Kærandi greindi frá því að […] hópurinn hafi ætlað að myrða sig en hafi í staðinn skotið frænda hans sem væri líkur sér í útliti. Eftir þessa atburði hafi kærandi ákveðið að flýja heimaríki sitt. […] hafi sagt kæranda að hann yrði að endurgreiða allt féð sem kærandi hafi fengið frá honum en alls hafi það verið um 500.000 nærur.

Eftir flóttann frá Nígeríu hafi kærandi dvalið á Ítalíu. Þar hafi hann kynnst eiginkonu sinni […], en þau hafi kvænst á Ítalíu. Saman eigi þau dóttur sem sé fædd árið […]. Eiginkonu og dóttur kæranda hafi verið veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Farið hafi fram efnismeðferðarviðtal við eiginkonu kæranda hinn 29. október 2019 þar sem hún hafi greint frá því að eiginmaður hennar hafi verið ofsóttur af […] í Nígeríu. Þá hafi meðlimir hópsins einnig haft afskipti af þeim á Ítalíu og haft í hótunum við hana. Framburður […] styðji því við framburð kæranda.

Kærandi vísar til umfjöllunar í greinargerð hans til Útlendingastofnunar um aðstæður í Nígeríu. Þar kemur m.a. fram að samkvæmt EASO sé […] meðal þekktustu bræðralaga í Nígeríu. Starf bræðralaga líkt og […] einkennist m.a. af ofbeldi, glæpastarfsemi, morðum, sölu fíkniefna, mansali og smygli. Þeir sem yfirgefi bræðralag eigi á hættu að vera drepnir. Samkvæmt UNODC starfi […] í mismunandi löndum í Afríku, Miðausturlöndum og Vestur-Evrópu. Vegna leyndar sé erfitt að nálgast upplýsingar og tölfræði varðandi starfsemi hópsins. Starfsemi margra bræðralaga hafi verið bönnuð með lögum árið 2004 í Nígeríu og dæmi séu um að meðlimir séu handteknir en málin falli stundum niður. Samkvæmt skýrslu OSAC bregðist lögregla oft hægt við, auk þess sem beiðni um lögregluaðstoð kunni að enda með því að þolandinn sé krafinn um mútugreiðslur. Spilling viðgangist á öllum stigum stjórnsýslunnar og refsileysi vegna misbeitingar valds og brota í opinberu starfi sé algengt.

Í greinargerð kæranda til kærunefndar koma fram ýmsar athugasemdir við ákvörðun og málsmeðferð Útlendingastofnunar, m.a. varðandi umfjöllun stofnunarinnar um glæpasamtökin […] og þær heimildir sem stofnunin studdist við við mat sitt. Stofnunin hafi vísað til heimilda frá árinu 2018 og 2014 en ekki til nýjustu heimilda frá árinu 2019 um þetta efni líkt og kærandi hafi gert í greinargerð sinni til stofnunarinnar. Í ljósi þessa hafi stofnunin dregið rangar ályktanir af fyrirliggjandi heimildum að mati kæranda og sé það í andstöðu við rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Jafnframt gerir kærandi athugasemdir við trúverðugleikamat stofnunarinnar.

Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi, samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Hann eigi á hættu ofsóknir vegna aðildar hans að tilteknum þjóðfélagshópi sem einstaklingur sem hefur yfirgefið bræðralag. Kærandi hafi greint frá því að hafa verið meðlimur í […] en eftir að hópurinn hafi tekið að ofsækja hann hafi hann ákveðið að yfirgefa hópinn og leggja á flótta. Kærandi hafi m.a orðið fyrir líkamsárásum þegar hann hafi reynt að yfirgefa hópinn og hafi meðlimir hópsins reynt að drepa hann. Kærandi óttist að snúi hann aftur til Nígeríu muni hann verða fyrir sams konar meðferð af hálfu meðlima […]. Einnig eigi kærandi ekki möguleika á fullnægjandi vernd yfirvalda í heimaríki sínu.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi eigi á hættu að sæta pyndingum eða annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis.

Kærandi telur að með endursendingu hans til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálalega réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

Til þrautavara krefst kærandi þess að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu slíks dvalarleyfis þegar útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Kærandi vísar m.a. til athugasemda við ákvæðið í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga. Þar komi fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé m.a. vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og tekið sem dæmi viðvarandi mannréttindabrot og sú aðstaða að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi búið við mikla fátækt í heimaríki sínu áður en meðlimir […] hafi haft afskipti af honum. Kæranda stafi nú ógn af þeim einstaklingum og staða hans því afar viðkvæm. Kærandi beri enn áverka eftir árásina af hálfu meðlima […]. Þá þarfnist kærandi lyfja vegna blóðþrýstings, auk þess sem hann hafi upplifað andlega erfiðleika. Kærandi kunni að vera í hópi þeirra sem verði fyrir hvað verstum áhrifum vegna Covid-19 faraldursins í Nígeríu og því rétt að litið verði til þess hvaða áhrif veiran og það ástand sem hún hafi skapað hafi á stöðu kæranda þar í landi.

Þá eigi kærandi eiginkonu og dóttur sem veitt hafi verið dvalarleyfi hér á landi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Með vísan til meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar telur kærandi að hann eigi einnig rétt á dvalarleyfi. Dvalarleyfi eiginkonu kæranda og barns hans hafi hins vegar verið afturkallað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. júní 2021. Ákvörðunin hafi verið kærð og réttaráhrifum hennar frestað. Að mati kæranda sé því ótímabært að taka ákvörðun í máli kæranda á þeim grundvelli að vernd og dvalarleyfi eiginkonu hans og barns væri fallið niður.

Máli sínu til stuðnings vísar kærandi m.a. til úrskurða kærunefndar frá 22. september 2017 í málum nr. 522/2017 og 523/2017. Þar hafi foreldrum barns, sem að mati nefndarinnar hafi sýnt ríka þörf fyrir vernd í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, verið veitt sams konar vernd með vísan til meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar. Jafnframt vísar kærandi til sömu sjónarmiða sem fram komi í athugasemdum með frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 81/2017, sem kveði á um veitingu dvalarleyfis til handa börnum á grundvelli mannúðarsjónarmiða fari meðferð á máli þeirra yfir tilgreind tímamörk. Í athugasemdunum segi m.a. að eðlilegt væri að veita foreldrum, sem fari með forsjá barnsins, dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga til að tryggja einingu fjölskyldunnar.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað nígerísku vegabréfi. Telur kærunefnd því ljóst að kærandi sé nígerískur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Amnesty International Report 2020/21 – Nigeria (Amnesty International, 7. apríl 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, október 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Medical and Healthcare issues (U.K. Home Office, janúar 2020);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);
  • DFAT Country Information Report – Nigeria (Australian Department of Foreign Affairs and Trade, 3. desember 2020);
  • EASO COI Meeting Report – Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 – Rome (European Asylum Support Office, 1. ágúst 2017);
  • EASO Country Guidance – Nigeria – Guidance note and common analysis (European Asylum Support Office, október 2021);
  • EASO Country of Origin Information Report – Nigeria – Actors of Protection (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • EASO Country of Origin Information Report – Nigeria – Country Focus (European Asylum Support Office, júní 2017);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Security Situation (European Asylum Support Office, júní 2021);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Targeting of individuals (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • Freedom in the World 2020 – Nigeria (Freedom House, 4. mars 2020);
  • Guidelines on International Protection No. 8 (UNHCR, 22. september 2009);
  • Nigeria 2020 Human Rights Report (U.S. Department of State, 30. mars 2021);
  • Nigeria 2019 International Religious Freedom Report (U.S. Department of State, 10. júní 2020);
  • Responses to Information Requests (Immigration and Refugee Board of Canada, 20. nóvember 2019);
  • 2016 Strategic Conflict Assessment of Nigeria (Institute for Peace and Conflict Resolution, 2017);
  • Stjórnarskrá Nígeríu (Constitution of the Federal Republic of Nigeria 1999, https://www.wipo.int/edocs/lexdocs/laws/en/ng/ng014en.pdf);
  • The World factbook (CIA, uppfært 9. ágúst 2021);
  • World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Nigeria (Minority rights group International, maí 2018) og
  • World Report 2021 – Nigeria (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Nígería er sambandslýðveldi með rúmlega 219 milljónir íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um trúfrelsi frá árinu 2020 er talið að um helmingur íbúa landsins séu múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar svæða í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslimar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta, m.a. vegna takmarkana á réttindum þeirra til tjáningar og samkomu og einnig við að fá atvinnu hjá ríkinu.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslum EASO frá 2017 og 2018 séu nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá hafi mannréttindasamtök greint frá því að u.þ.b. 100.000 lögregluþjónar hafi veitt efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu, auk þess sem þjálfun lögreglumanna sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar en þó tíðkist í miklum mæli að leysa slík mál á óformlegan hátt. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Mútuþægni sé víðfeðmur vandi í ríkinu en samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2018 hafi stofnanir sem annist kvörtunarmál í ríkinu greint frá uppsögnum lægra settra lögreglumanna vegna kvartana almennings um fjárkúganir af hálfu lögreglu. Þó hafi fá mál verið rannsökuð eða farið fyrir dómstóla.

Fram kemur í framangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020, að töluverð spilling sé innan dómskerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2019 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu standi þeim sem óttist einstaklinga sem starfi ekki fyrir ríkið almennt til boða vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu og þrátt fyrir að störf umboðsmannsins verði að einhverju leyti fyrir áhrifum vegna afskipta stjórnvalda þá sé um að ræða virkt úrræði fyrir borgara Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Commission (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmannsins í Nígeríu ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigerian Police Council) og framkvæmdastjórn lögreglunnar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar.

Samkvæmt skýrslu EASO frá júní 2021 er öryggisástand landsins hvað verst í norðurhluta Nígeríu þar sem hryðjuverkahópurinn Boko Haram ber ábyrgð á morðum mörg þúsund íbúa. Öryggisástand í norðurhluta og norðausturhluta Nígeríu hafi farið versnandi á árunum 2019 og 2020 og yfirvöld á viðkomandi svæðum geti einungis veitt takmarkaða vernd. Átök og árásir af hálfu hryðjuverkahópa hafi jafnframt farið að gera vart við sig í norðvesturhluta Nígeríu frá árinu 2019. Helstu átök í suðurhluta Nígeríu megi rekja til ágreinings í tengslum við olíuauðlindir á svæðinu. Samkvæmt skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá október 2021 hafa öryggissveitir Nígeríu sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki tekist að útrýma hættunni sem stafi af Boko Haram, en talið sé að til þess þurfi öryggissveitir landsins meiri mannafla, vopn, þjálfun og fjármagn. Yfirvöld hafi þó gripið til ýmissa aðgerða í þeim tilgangi að útrýma hryðjuverkahópum, þ. á m. Boko Haram, en með takmökuðum árangri.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi fyrir árið 2019 kemur fram að átök hafi verið viðvarandi árið 2019 milli Fulani herdsmen, sem séu að mestu múslimar, og bænda, sem séu að mestu kristnir, í Norður og Mið-Nígeríu. Átökin hafi þó farið minnkandi frá árunum 2017/2018 vegna inngripa stjórnvalda og viðleitni íbúanna til að leysa deilurnar. Tala látinna almennra borgara hafi farið úr yfir 1.500 árið 2018 í u.þ.b. 350 árið 2019. Alþjóða- og félagssamtök hafi gagnrýnt stjórnvöld í Nígeríu fyrir getuleysi til að koma í veg fyrir eða draga úr ofbeldi milli kristinna og múslimskra samfélaga. Í skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá janúar 2020 og skýrslu International Crisis Group frá september 2017 kemur fram að þessi átök snúist fyrst og fremst um baráttu þessara tveggja hópa um landsvæði, þar sem að þurrkar hafi leitt til skorts á beitilandi í norðri og vaxandi landbúnaður hafi leitt til aukinnar þarfar á ræktarlandi í svokölluðu miðjubelti Nígeríu.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í janúar 2020 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan- og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé starfrækt á vegum sveitarfélaga, annað stigið sé starfrækt á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið sé starfrækt á vegum alríkisins. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins feli í sér almenna heilbrigðisþjónustu, m.a. mæðra- og ungbarnavernd, fyrir borgara Nígeríu og fái jafnframt minnsta fjármagnið af stigunum þremur. Því sé almenn heilbrigðisþjónusta almennt illa skipulögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum en aðgengi sé þó betra á þéttbýlli svæðum landsins. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess.

Í skýrslu flóttamannaráðs Kanada frá 2016 kemur fram að í Nígeríu sé starfræktur hópur sem nefnist […] sem sé eins konar leynilegt bræðralag eða söfnuður. Mun opinbert markmið hópsins vera að viðhalda afrískri menningu, efla þjóðarvitund Nígeríumanna og brjótast undan nýlenduyfirráðum. Fíkniefna- og glæpaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna hafi hins vegar lýst hópnum sem glæpasamtökum. Skrifstofan telji að nokkur hundruð manns tilheyri hópnum og að meirihluti þeirra séu unglingar og ungmenni. Nýir meðlimir séu teknir inn í samtökin með ákveðnum vígsluathöfnum sem fari fram í leyni. Nýir meðlimir þurfi oft að taka þátt í glæpum til að fá inngöngu í samtökin t.d. nauðgunum á konum tengdum meðlimum í öðrum gengjum, vopnuðum ránum og líkamsárásum. Starfsemi hópsins fari einkum fram í háskólum í Nígeríu og að liðsmenn hans þar beiti nemendur og starfsfólk ofbeldi. Þá hafi hópurinn verið bendlaður við fjölmörg afbrot í Nígeríu, svo sem skemmdaverk, rán, íkveikjur og vörslu fíkniefna. Fram kemur að með lagasetningu árið 2004 hafi verið lagt bann við starfsemi hópa af þessu tagi, m.a. [..]. Þá kemur fram að á árunum 2015 og 2016 hafi lögregla handtekið um 50 manns vegna meintra tengsla við […]. Jafnframt hafi meðlimir hópa á borð við […] verið handteknir eða vikið úr skóla vegna ofbeldisbrota, en að í sumum tilvikum hafi spilling innan lögreglu eða hótanir gegn vitnum leitt til þess að málin hafi verið látin niður falla. Gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér sýna að meðlimir […] hafa í nokkrum tilvikum verið dæmdir til fangelsisvistar vegna aðildar að hópnum og fyrir afbrot. Þrátt fyrir að fram komi í skýrslu EASO frá 2021 að einstaka heimildir bendi til þess að erfitt geti verið fyrir meðlimi að yfirgefa slíka hópa, og að fyrrum meðlimir séu jafnvel myrtir til að koma í veg fyrir að þeir uppljóstri leyndarmálum hópsins, eru engar nýlegar eða áreiðanlegar heimildir sem staðfesta það. Sú heimild sem vísað er til í framangreindri skýrslu EASO hvað þetta varðar er að því er virðist grein frá árinu 2013 á bloggsvæði og er hvorki höfundar né heimilda getið. Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2019 kemur fram að Evrópusambandið og alþjóða fólksflutningastofnunin (IOM) starfi saman í sérstöku átaksverkefni er lúti að endursendingu fólks til Nígeríu. Fólksflutningastofnunin í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir, svo sem innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og ETAHT (e. Edo State Taskforce against Human Trafficking) veiti ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtímahúsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína á því að hann eigi á hættu ofsóknir í heimaríki sínu vegna aðildar hans að tilteknum þjóðfélagshópi vegna hótana og árása af hálfu meðlima glæpasamtaka sem kallist […]. Jafnframt byggir kærandi á því að kærandi eigi eiginkonu og börn hér á landi.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, viðtali hjá kærunefnd hinn 14. október 2021, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.

Kærandi mætti í viðtal hjá kærunefnd hinn 14. október 2021, ásamt talsmanni sínum. Þar var kærandi m.a. spurður út í ástæðu flótta hans frá heimaríki, aðstæður á Ítalíu og samband hans við K og börn sín. Kærandi greindi frá því að hafa alist upp í fátækt og m.a. verði sendur á heimili fólks sem hafi beitt hann ofbeldi. Kærandi hafi hitt mann að nafni […] sem hafi boðist til að greiða skólagjöld fyrir hann gegn því að kærandi stundaði kynlíf með honum. Kvað kærandi […] hafa greitt sér 200.000 nærur. Kærandi kvað […] hafa verið meðlim í glæpasamtökunum […] og að hann hafi beðið kæranda um að gerast meðlimur líka. Kærandi hafi hins vegar neitað því. Þá kvaðst kærandi hafa kynnst stúlku að nafni […] í skólanum og að hún hafi orðið þunguð eftir kæranda. Kærandi hafi ekki vitað á þeim tímapunkti að hún væri systir […]. Kærandi kvað stúlkuna hafa tekið inn lyf og látist af þeim sökum. […] hafi reiðst kæranda, bæði vegna þess að hann hafi neitað því að ganga til liðs við samtökin og vegna þungunar og andláts systur sinnar. Kærandi lýsti innsetningarathöfn sem hann hafi verið látinn taka þátt í en hann hafi m.a. átt að myrða mann sem hann hafi ekki viljað gera. Meðlimir samtakanna hafi farið með kæranda í tóma byggingu þar sem hann hafi verið barinn og stunginn með hníf. Kærandi kvaðst hafa stokkið niður af annarri hæð byggingarinnar en við það hafi hann fótbrotið sig. Kærandi hafi í kjölfarið verið bjargað af grasalækni sem hafi hlúð að honum í þrjá daga.

Þá var kærandi beðinn um að lýsa þeim atburðum sem leiddu til þess að hann fór frá Ítalíu og til Íslands. Kærandi kvaðst hafa verið í vandræðum á Ítalíu þar sem bæði lögregluyfirvöld og glæpagengið […] hafi verið að leita hans. Meðlimir […] hafi mætt heim til kæranda og K og ógnað þeim, en hann kvað aðilana hafa þekkt sig af mynd sem þeir hafi átt af honum frá því í Nígeríu. Þeir hafi vitað að kærandi tengdist […], systur […], sem hafi orðið þunguð eftir kæranda og látist. Þá kvaðst kærandi jafnframt hafa fengið fjögurra ára fangelsisdóm fyrir vörslu fíkniefna. Vinur kæranda hafi komið með fíkniefnin á heimili kæranda. Vinur kæranda hafi hringt í hann einn daginn og beðið hann um að mæta á lestarstöðina með bakpoka sem hafði að geyma fíkniefnin. Þar hafi lögreglan stoppað kæranda og fundið fíkninefnin í bakpokanum og handtekið hann. Kærandi kvaðst hafa útskýrt fyrir lögreglunni að vinur hans ætti fíkniefnin en þar sem hann hafi ekki fundist hafi kærandi verið látinn taka á sig sökina. Kæranda hafi verið sleppt úr fangelsi að einu ári liðnu gegn því skilyrði að vinur hans myndi finnast. Kærandi hafi leitað að vini sínum en ekki fundið hann og hafi kærandi því átt að fara aftur í fangelsi. Hann hafi ekki viljað það og því flúið til Frakklands. Kærandi lýsti því að hann hafi flúið frá lögreglunni á Ítalíu og m.a. stokkið fram af brú og fótbrotið sig. Í kjölfarið hafi hann þurft að fá málmplötu ígrædda í hægri fótlegg.

Framburður kæranda hjá kærunefnd er að einhverju leyti í ósamræmi við framburð hans hjá Útlendingastofnun, m.a. varðandi flótta hans frá heimaríki og aðdraganda komu hans til Íslands. Kærandi var tvísaga um þá fjárhæð sem hann kvað […] hafa greitt sér gegn kynlífsgreiða en í viðtali hjá Útlendingastofnun kvað kærandi […] hafa greitt sér 100.000 nígerískar nærur en í viðtali hjá kærunefnd kvað hann upphæðina hafa verið 200.000 nærur. Kærandi var jafnframt tvísaga um það hvernig hann hafi fótbrotnað. Líkt og áður greinir kvaðst hann í viðtali hjá kærunefnd hafa fótbrotnað er hann hafi verið á flótta undan lögreglu á Ítalíu og af þeim sökum hafi hann fengið ígrædda málmplötu í hægri fótlegg. Kæranda var í viðtali hjá kærunefnd bent á að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi hann sagst hafa fótbrotnað er hann hafi verið á flótta undan […] og öðrum meðlimum […] í Nígeríu og að hann hafi jafnframt þurft á málmígræðslu að halda vegna fótbrotsins. Kærandi gaf þá kærunefnd þá skýringu að hann hafi fótbrotnað tvisvar. Fyrir liggur framburður kæranda í viðtali hjá Útlendingastofnun þar sem hann kveðst hafa fengið ígrædda málmplötu í fótlegginn vegna slagsmála í Nígeríu. Þá greindi hann jafnframt frá því í öðru viðtali hjá Útlendingastofnun, eftir að hafa lýst flótta sínum undan […], að hafa þurft á málmígræðslu að halda vegna fótbrotsins en að mati kærunefndar er ljóst að kærandi hafi í því samhengi átt við það brot sem hann kveður hafa átt sér stað vegna flótta hans undan […], enda minntist hann ekki á að hafa fótbrotnað öðru sinni í því viðtali.

Þá kvað kærandi lögregluyfirvöld í Nígeríu leita sín vegna andláts stúlku að nafni […]. Í viðtölum greindi kærandi frá því að hafa kynnst henni í skólanum sínum. Kærandi kvað þau hafa átt í sambandi og að hún hafi orðið þunguð eftir hann. Í viðtölum kvaðst hann þó ekki hafa vitað eftirnafn hennar. Jafnframt hafi hann ekki vitað að stúlkan væri systir […]. Þá kvaðst kærandi ekki hafa vitað eftirnafn […]. Að mati kærunefndar er ótrúverðugt að kærandi hafi ekki vitað eftirnafn stúlku sem hann kveðst hafa átt í sambandi við um nokkurt skeið og m.a. átt von á barni með. Jafnframt telur kærunefnd ótrúverðugt að kærandi hafi ekki vitað eftirnafn manns sem kærandi kveður hafa greitt skólagjöld sín gegn því að hann stundaði kynlíf með honum. Jafnframt telur kærunefnd ólíklegt að kærandi hafi ekki vitað að […] og […] væru systkini. Þá kvað kærandi föður þeirra vera stjórnmálamann en að hann vissi ekki hvað hann héti heldur. Kærandi hefur að öðru leyti ekki nafngreint aðra meðlimi […] sem hann kveður vera ofsóknaraðila sína.

Að mati kærunefndar dregur framangreindur framburður kæranda úr trúverðugleika frásagnar hans. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem að mati kærunefndar sýna fram á að hann eigi í hættu á að sæta ofsóknum í heimaríki af hálfu manns að nafni […] eða annarra meðlima […] samtakanna. Þá hefur kærandi ekki lagt fram önnur gögn sem styðja framburð hans um að yfirvöld í Nígeríu leiti hans vegna andláts stúlku að nafni […]. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að frásögn kæranda af flótta hans frá heimaríki sé að mestu leyti ótrúverðug og verður því ekki lagt til grundvallar að kærandi eigi á hættu ofsóknir af hálfu meðlima […] samtakanna eða annarra aðila í Nígeríu. Þrátt fyrir ofangreint telur kærunefnd ekki ástæðu til þess að útiloka að kærandi hafi á einhverjum tímapunkti verið meðlimur samtakanna.

Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki sætt ofsóknum eða hafi ástæður til að óttast ofsóknir af hálfu yfirvalda í heimaríki sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar kemur fram að borgurum landsins standi almennt vernd yfirvalda til boða þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem leiða líkur að því að hann geti ekki notið verndar lögreglu telji hann sig þurfa á henni að halda eða sýnt fram á það með öðrum hætti. Er það því mat kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita kæranda vernd gegn þeim athöfnum sem kærandi telji að sér stafi hætta af, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi byggir á því að hann hafi búið við mikla fátækt í heimaríki sínu. Þá eigi kærandi eiginkonu og dóttur sem veitt hafi verið dvalarleyfi hér á landi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Með vísan til meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar telur kærandi að hann eigi einnig rétt á dvalarleyfi. Dvalarleyfi eiginkonu kæranda og barns þeirra hafi hins vegar verið afturkallað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. júní 2021. Ákvörðunin hafi verið kærð og réttaráhrifum hennar frestað. Að mati kæranda sé því ótímabært að taka ákvörðun í máli kæranda á þeim grundvelli að vernd og dvalarleyfi eiginkonu hans og barns væri fallið niður.

Í ljósi þess að kærandi kom ekki hingað til lands í för með þáverandi eiginkonu sinni og barni þá taldi kærunefnd ástæðu til að óska eftir því að kærandi undirgengist DNA rannsókn til að staðfesta tengsl hans við barn sitt sem kom í fylgd K hingað til lands (A) og það barn sem fæddist hér á landi (B). Kærandi kvaðst vera reiðubúinn til að gangast undir slíka rannsókn. Kærunefnd bárust niðurstöður úr rannsókninni hinn 8. desember 2021 og staðfestu þær að kærandi væri faðir beggja barnanna. Þá hafa kærandi og K eignast sitt þriðja barn en það fæddist hér á landi hinn […].

Úrskurður kærunefndar í máli K og barnanna var unninn samhliða úrskurði kæranda. Með úrskurði kærunefndar, nr. 602/2021, í máli K var ákvörðun Útlendingastofnunar, um að forsendur fyrir dvalarleyfi K og barna hennar á grundvelli mannúðarsjónarmiða væru brostnar, staðfest. Að mati kærunefndar eru því ekki forsendur fyrir því að fjalla um það hvort skilyrði meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar séu uppfyllt í máli þessu. Með vísan til þess sem fram hefur komið um aðstæður í heimaríki kæranda er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd vegna erfiðra félagslegra aðstæðna eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki hans.

Þá benda gögn málsins ekki til annars en að kærandi sé við góða líkamlega og andlega heilsu. Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd hefur jafnframt litið til þeirra tímabundnu erfiðleika sem heimaríki kæranda kann að þurfa að glíma við vegna Covid-19 faraldursins. Kærunefnd telur þá erfiðleika ekki vera þess eðlis að þeir leiði til þess, einir og sér eða í samhengi við önnur gögn málsins, að heimilt sé að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Athugasemdir kæranda við málsmeðferð Útlendingastofnunar

Kærandi gerði í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans. Kærunefnd hefur að framan tekið afstöðu til þeirra að því leyti sem þær kunna að hafa áhrif á niðurstöðu þessa máls. Í ljósi þess að meginreglan um einingu fjölskyldunnar kemur ekki til álita í máli þessu, þar sem dvalarleyfi K og barna hans hafa verið afturkölluð, verður ekki fjallað um vísan hans til úrskurða kærunefndar í málum nr. 522/2017 og 523/2017 frá 22. september 2017.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands hinn 25. september 2020 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga og þegar litið er til ferðatakmarkana vegna Covid-19 faraldursins teljast 30 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Í ljósi Covid-19 faraldursins er athygli kærenda vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu. 

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 30 days to leave the country voluntarily.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

Sindri M. Stephensen                                                                     Þorbjörg I. Jónsdóttir

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta