Hoppa yfir valmynd

Nr. 419/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 8. október 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 419/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19060021

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 11. júní 2019 kærði […], fd. […], ríkisborgari Íraks (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. maí 2019, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt staða flóttamanns með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 6. júní 2018. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 20. mars og 4. apríl 2019 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 22. maí 2019, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 11. júní 2019. Kærunefnd barst greinargerð kæranda ásamt fylgigögnum þann 26. júní 2019. Þá bárust kærunefnd frekari athugasemdir frá kæranda þann 2. ágúst 2019 og 4. september s.á.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna hótana valdamikilla manna sem séu í peningaskuld við kæranda.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá því að hann hafi fæðst og búið í bænum […] í Írak þar til hann hafi flutt ásamt fjölskyldu sinni til […]. Kærandi sé Kúrdi og tilheyri þjóðarbroti […] sem séu í miklum minnihluta. Aðspurður um hvaða atvik hafi leitt til þess að kærandi hafi flúið heimaríki kvaðst kærandi hafa átt í viðskiptum við mann að nafni [...]. Í byrjun árs 2014 hafi kærandi greitt […] 510.000 bandaríkjadollara í tengslum við viðskipti þeirra en um fjárfestingu kæranda í fyrirtæki […], […], hafi verið að ræða. […] ætti bróður, […], sem væri í stjórnmálaflokknum PUK (e. Patriotic Union of Kurdistan) og ynnu bræðurnir báðir fyrir háttsettan herforingja í PUK, […]. Kærandi og […] hafi gert með sér samning um fjárfestinguna þess efnis að að ári liðnu myndu þeir endurreikna fjárfestinguna og kærandi fengi gróðann endurgreiddan. […] hafi hins vegar ekki staðið við þann hluta samkomulagsins. Komið hafi upp rifrildi á milli þeirra og næstu mánuði hafi [...] hótað kæranda ítrekað og reynt að fá afhent ábyrgðarskírteini frá kæranda sem sannaði að kærandi hafi greitt umrædda upphæð til fyrirtækis […]. Kærandi hafi aftur á móti ekki viljað láta […] í té ábyrgðarskírteinið þar sem það hafi verið mikilvæg sönnun um viðskiptin.

Í greinargerð kæranda kemur einnig fram að kærandi hafi leitað til öryggisyfirvalda Asayish í júlí 2017 til að kæra […] fyrir hótanir. Asayish hafi ekki viljað aðstoða kæranda þar sem starfsmaðurinn sem hafi tekið við kærunni hafi þekkt […]. Starfsmaðurinn hafi tekið við kærunni en haft samband við kæranda að þremur dögum liðnum og upplýst hann að Asayish gætu ekki aðstoðað hann vegna […] heldur þyrftu kærandi og […] að leysa málið sjálfir sín á milli. Kærandi kveði margar hótanir hafa borist bæði símleiðis og í formi fjölmargra bréfa. Kærandi hafi flúið með fjölskylduna sína til Erbil þar sem þau hafi búið hjá systur kæranda til september 2017. Í nóvember 2017 hafi menn á tveimur pallbílum elt kæranda og fjölskyldu hans. Þá hafi ótilgreindir menn elt dóttur hans og spurst fyrir um persónulega hagi hennar. Kærandi hafi enn fremur greint frá því að […] vegna alls þess sem á undan hefði gengið og hafi þurft að dveljast á spítala í kjölfar […]. Lögreglan hafi komið á spítalann og tekið skýrslu af kæranda sem hafi greint frá hótunum sem hann hefði sætt en málið hefði þó ekki farið lengra hjá lögreglunni sem vildi ekki aðstoða kæranda frekar. Kærandi telji að hann geti ekki fengið vernd yfirvalda gagnvart mönnunum.

Í greinargerð kæranda er fjallað almennt um sögu Íraks, stjórnarfar og skiptingu þjóðernisbrota í landinu. Þá er umfjöllun um ástand mannréttindamála þar í landi og vísar kærandi í alþjóðlegar mannréttindaskýrslur máli sínu til stuðnings. Beri skýrslurnar með sér að í landinu tíðkist alvarleg mannréttindabrot. Þá er í greinargerð fjallað almennt um aðstæður á yfirráðasvæði Kúrda í Írak. Refsileysi viðgangist víða í Kúrdistan, m.a. gagnvart lögreglu og öryggissveitum Asayish. Þá skorti löggæslu víða á yfirráðasvæði Kúrda í Írak og séu heimildir um að það hvort yfirvöld geti veitt vernd fari eftir því hver það sé sem standi að baki ofsóknum. Aðgengi að réttarkerfinu velti á því hvaða þjóðernis- eða trúarhópa sé um að ræða, hvaða ættbálki viðkomandi tilheyri og tengslum viðkomandi.

Kærandi byggir aðalkröfu sína á því að hann uppfylli skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem ofsóknir í garð hans megi rekja til aðildar hans að tilteknum þjóðfélagshópi, þ.e. þolenda glæpagengja. Kærandi hafi þurft að þola alvarlegar hótanir um ofbeldi og líflátshótanir sem rekja megi til viðskipta á milli kæranda og […]. Í greinargerð kemur jafnframt fram að kærandi óttist yfirvöld í landinu þar sem glæpagengið hafi tengsl við yfirvöld þau. Til stuðnings aðalkröfu sinni um alþjóðlega vernd vísar kærandi í leiðbeiningar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um umsóknir um alþjóðlega vernd vegna gengjaofbeldis ásamt d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur ljóst að […] og bróðir hans myndi ásamt fleirum glæpagengi sem hann óttist. Þá vísar kærandi til ákvæða a- og c-liðar 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga um að ekki sé raunhæft að leita ásjár yfirvalda. Í greinargerð gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, m.a. varðandi mat stofnunarinnar um að ósamræmi sé á milli framburðar kæranda og gagna málsins. Þá telur kærandi einnig að annmarkar séu á þýðingu stofnunarinnar á gögnum málsins. Kærandi telur jafnframt að með því að senda hann til Íraks verði brotið gróflega gegn grundvallarreglu þjóðarréttar um non-refoulement sem lögfest sé í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Til vara gerir kærandi kröfu um viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Með hliðsjón af því sem rakið hafi verið í greinargerð kæranda í tengslum við aðalkröfu hans sé ljóst að kærandi uppfylli skilyrði fyrri hluta 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, þar sem raunhæf ástæða sé til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu við endurkomu til heimaríkis. Þá eigi síðari hluti ákvæðisins jafnframt við en í heimildum sé ástandinu í landinu lýst sem óstöðugu jafnframt sem það geti versnað snögglega.

Þrautavarakrafa kæranda byggir á því að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd bárust athugasemdir frá kæranda þann 2. ágúst 2019 þess efnis að honum hafi borist hótanir í síma frá […], syni […], þann 5. og 6. júlí 2019. […] hafi m.a. haft í frammi líflátshótanir í garð kæranda og fjölskyldu hans í heimaríki. Kærandi hafi leitað til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem hafi ekki getað aðstoðað hann þar sem hótanirnar hafi borist úr erlendu símanúmeri.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi lagt fram afrit af írökskum skilríkjum til að sanna á sér deili. Í umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hjá lögreglu kemur hins vegar fram að kærandi hafi framvísað íröksku vegabréfi. Þá liggur fyrir í gögnum málsins ljósrit af íröksku vegabréfi kæranda. Telur kærunefndin því sannað að kærandi sé írakskur ríkisborgari og verður leyst úr málinu á þeim grundvelli.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Írak m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Anställning och avslutande av tjänst i peshmergan [Irak - KRI] (Migrationsverket, 30. júní 2017);
  • Country Policy and Information Note - Iraq: Internal relocation, civil documentation and re-turns (UK Home Office, 22. janúar 2019);
  • Country Policy and Information Note Iraq: Security and humanitarian situation (UK Home Office, 16. nóvember 2018);
  • Country Report on Human Rights Practices 2018 - Iraq (U.S. Department of State, 13. mars 2019);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Iraq – Actors of Protection (European Asy-lum Support Office, 17. nóvember 2018);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Iraq – Security situation (European Asylum Support Office, 14. mars 2019);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Iraq – Targeting of Individuals (European Asylum Support Office, 7. mars 2019);
  • Freedom in the World 2019 - Iraq (Freedom House, 4. febrúar 2019);
  • International Protection Considerations with Regard to People Fleeing the Republic of Iraq (UNCHR, 3. maí 2019);
  • Irak: Basisinfo (Landinfo, 28. september 2018);
  • Irak – desertering (Migrationsverket, 12. janúar 2018);
  • Irak: Politi og rettsvesen i de tre kurdiskstyrte provinsene (KRI) (Landinfo, 27. október 2016);
  • Iraq: Relevant COI for Assessments on the Availability of an Internal Flight or Relocation Al-ternative (IFA/IRA) (UNHCR, 12. apríl 2017);
  • Kurdistan Region of Iraq (KRI) - Report on issuance of the new Iraqi ID card (Udlænding-estyrelsen, 5. nóvember 2018);
  • Northern Iraq - Security situation and the situation for internally displaced persons (IDPs) in the disputed areas, incl. possibility to enter and access the Kurdistan Region of Iraq (KRI) (Udlændingestyrelsen, 5. nóvember 2018);
  • Rättsligt ställningstagande angående situationen i Irak (Migrationsverket, 19. janúar 2018);
  • Thematic report: The Security Situation in Iraq -July 2016-November 2017 (version 4.0) (Mi-grationsverket, 18. desember 2017);
  • The Kurdistan Region of Iraq (KRI) Access, Possibility of Protection, Security and Humanitar-ian Situation (Danish Immigration Service, 1. apríl 2016);
  • The future of health care in the Kurdistan Region – Iraq – Toward and Effective, High Quality system with an emphasis on Primary Care, (Rand Health Quarterly, 2014);
  • The Kurds: History – Religion – Language – Politics (Austrian Federal Ministry of the Interior, nóvember 2015), og
  • UNHCR position on returns to Iraq (UNHCR, 14. nóvember 2016).

Samkvæmt framangreindum gögnum er Írak lýðræðisríki með tæplega 40 milljónir íbúa. Írak varð til eftir fyrri heimsstyrjöldina þegar Þjóðabandalagið ákvarðaði núverandi landamæri Íraks. Ríkið var breskt yfirráðasvæði fram til ársins 1932, þá tók við tímabil sem einkenndist af pólitískum óstöðugleika sem lauk árið 1958 þegar komið var á fót lýðveldi. Árið 1945 gerðist Írak aðili að Sameinuðu þjóðunum og fullgilti ríkið bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971. Ríkið fullgilti samning um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1986, alþjóðasamning um vernd allra gegn mannshvörfum árið 2010 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2011.

Í framangreindum gögnum kemur fram að frá árinu 1968 til 2003 hafi Írak verið alræðisríki sem hafi lotið stjórn Ba‘ath-flokksins. Stjórn flokksins hafi verið steypt af stóli í kjölfar innrásar bandaríska hersins og bandamanna þeirra í Írak árið 2003. Frá innrásinni hafi ástandið á mörgum svæðum í Írak verið óstöðugt. Hafi samtök sem kenna sig við íslamskt ríki (Daesh) hafið uppreisn árið 2014 og náð undir sig stórum landsvæðum. Frá þeim tíma hafi íröksk stjórnvöld, með aðstoð alþjóðasamfélagsins, náð miklum árangri í að ná aftur fullri stjórn yfir ríkinu þótt enn séu lítil svæði í vesturhluta landsins sem uppreisnarmenn hafi á valdi sínu. Þá hafi íröksk yfirvöld ekki fulla stjórn yfir hersveitum sínum og dæmi séu um að hersveitir á vegum yfirvalda fremji mannréttindabrot gegn almennum borgurum, þ. á m. ólögmætar aftökur og pyndingar í varðhaldi. Alvarleg mannréttindabrot og brot á mannúðarlögum hafi haft mikil áhrif á almenna borgara á þeim svæðum í Írak sem átökin hafi náð til. Af þeim sökum hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lagst gegn endursendingum Íraka frá þeim svæðum þar sem átök geisi og þar sem ástandið sé óöruggt eftir að hafa verið undir stjórn Daesh. Þá sé það mat stofnunarinnar að vegna almenns ástands í Írak, þ.m.t. vegna fjölda þeirra sem hafi þurft að flýja innanlands, sé í miklum meirihluta mála ekki grundvöllur til að líta svo á að Írakar frá þessum svæðum geti notið verndar í öðrum hlutum landsins.

Ráða má af framangreindum gögnum að spilling sé mikið vandamál í Írak, þar á meðal í stjórnmálum, löggæslu- og réttarkerfinu. Á undanförnum árum hafi talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu af hálfu embættismanna í landinu og eitthvað hafi miðað áfram í þeim málum. Á tímabilinu 2005 til 2014 hafi íröksk stjórnvöld unnið í samstarfi við Evrópusambandið að umbótum á stofnunum ríkisins svo sem lögreglu, dómstólum og fangelsum landsins. Áætlunin nefnist The European Union Integrated Rule of Law Mission for Iraq (EUJUST-LEX-Iraq) og hafi m.a. 1800 lögreglumenn og 900 dómarar undirgengist þjálfun í því skyni að koma á skilvirkri laga- og mannréttindavernd.

Þá kemur fram í framangreindum gögnum að flestir Kúrdar í Írak búi í norðurhluta landsins. Áður en ráðist hafi verið inn í Írak árið 2003 hafi héruð í norðurhluta landsins lotið stjórn pólitískra yfirvalda Kúrda. Árið 2005 hafi Kúrdum verið tryggð svæðisbundin sjálfstjórn í stjórnarskrá Íraks og sé norðausturhluti landsins skilgreindur sem sjálfsstjórnarhérað Kúrda (e. Kurdish Region of Iraq (KRI)). Löggæsla sé mun markvissari í KRI, sé það landsvæði borið saman við suður- og mið-Írak. Stofnanir eins og lögregla, saksóknari, dómstólar og fangelsi séu til staðar á svæðinu og heyri þær undir svæðisstjórn Kúrda en ekki ríkisstjórn Íraks. Fyrir utan hefðbundna lögreglu sé KRI einnig með öryggissveitir sem nefnist Asayish. Hersveitir kúrdíska hersins, Peshmerga, tryggi að sjálfsstjórnarhéruð Kúrda séu tiltölulega örugg miðað við önnur svæði í Írak. Her Kúrda og öryggissveitir þeirra hafi unnið hörðum höndum við að verja svæðið gegn uppreisnarmönnum Daesh og annarra tengdra samtaka.

Af framangreindum gögnum má ráða að á undanförnum árum og áratugum hafi verið spenna milli Kúrda og stjórnvalda í Írak. Meðal annars hafi verið deilt um stærð þess svæðis sem lúti sjálfsstjórn Kúrda. Þann 25. september 2017 hafi farið fram atkvæðagreiðsla meðal íbúa KRI að tilstuðlan forseta KRI þar sem kosið hafi verið um stofnun sjálfstæðs ríkis KRI. Íröksk stjórnvöld hafi mótmælt atkvæðagreiðslunni og hafi ekki viðurkennt niðurstöður kosninganna. Tæplega 93% kjósenda hafi kosið með sjálfstæði en fréttir hafi borist af því að minnihlutahópar á deilusvæðum hafi verið beittir miklum þrýstingi til að kjósa annaðhvort með eða á móti. Í kjölfar kosninganna hafi írakski stjórnarherinn tekið aftur stjórn yfir ytri landamærum Írak innan KRI og landsvæðum sem hafi verið undir stjórn kúrdískra yfirvalda frá árinu 2014, þ. á m. borgina Kirkuk. Þá hafi forseti KRI sagt af sér í nóvember 2017. Áratugum saman hafi tveir stjórnmálaflokkar verið ráðandi í KRI en það séu PUK flokkurinn (e. The Patriotic Union of Kurdistan) og KDP flokkurinn (e. The Kurdistan Democratic Party). Í september 2013 hafi orðið talsverðar breytingar þegar PUK flokkurinn hafi misst stöðu sína sem næststærsti flokkurinn til klofningsframboðsins Gorran (e. The Movement for Change). Í kosningum sem fram fóru þann 30. september 2018 hafi PUK flokkurinn endurheimt stöðu sína sem annar stærsti flokkurinn og KDP flokkurinn haldið stöðu sinni sem stærsti flokkurinn í KRI. Samband PUK flokksins og KDP hafi jafnan verið stirt og einkennst af vantrausti sem og vopnuðum átökum.

Samkvæmt skýrslu Landinfo frá árinu 2018 eru flestir Írakar arabar, n.t.t. 75-80%, og Kúrdar eru u.þ.b. 15-20%. Um það bil 5% tilheyri þjóðabroti Túrkmena, Assýringa og annarra hópa. Þá séu 99% af íbúum ríkisins múslimar og þar af séu flestir sjía-múslimar. Frá árinu 2003 hafi þeim fækkað mikið sem tilheyri minnihlutahópum þar sem margir hafi flúið vegna vopnaðra átaka og ótrausts ástands í ríkinu. Samkvæmt ofangreindum gögnum er Írak með ströng lög varðandi vernd gagnvart þjóðarbrotum sem heyri til minnihlutahópa. Þó segir að lögunum sé sjaldan framfylgt og að þjóðarbrotin njóti ekki öll sömu verndar. Ástandið sé þó mun betra í Kúrdistan heldur en í öðrum landshlutum Íraks en þar sé áhersla lögð á að vernda þjóðarbrot og koma í veg fyrir mismunun og deilur. Fram kemur í gögnunum að áreitni sé lítil og að ríkisstjórninni takist almennt vel að koma í veg fyrir hana. Mörg mismunandi þjóðarbrot sem heyri til minnihlutahópa séu í Kúrdistan og séu samskipti á milli þeirra almennt góð.

Í framangreindum gögnum kemur fram að styrkja þurfi innviði heilbrigðiskerfisins í Íraks, þar sem m.a. sé skortur á tækjabúnaði, menntuðu heilbrigðisstarfsfólki og rýmum fyrir sjúklinga. Heilbrigðiskerfið samanstandi af ríkisrekinni og einkarekinni heilbrigðisþjónustu. Opinber heilbrigðisþjónusta sé öllum aðgengileg gegn vægu gjaldi en hins vegar sé ekki öll þjónusta þar fyrir hendi. Heilbrigðiskerfið í KRI sé jafnframt aðgengilegt öllum, þ. á m. geðheilbrigðisþjónusta og beri heimildir með sér að hún sé almennt betri í KRI en á öðrum landsvæðum Íraks.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi hefur borið fyrir sig að hafa orðið fyrir alvarlegum hótunum um líflát og ofbeldi sem rekja megi til viðskipta á milli kæranda og […]. […] og bróðir hans myndi ásamt fleirum glæpagengi sem hann óttist. Kærandi kveður umrædda einstaklinga hafa tengsl við PUK flokkinn og að stjórnvöld vilji ekki vernda hann af þeim sökum. Kærandi kvaðst jafnframt tilheyra þjóðarbroti […] sem séu í miklum minnihluta og verði fyrir mismunun af hálfu kúrdískra stjórnvalda.

Það var mat Útlendingastofnunar að ekki væri hægt að útiloka að kærandi hafi verið í viðskiptum og átt í deilum við umrædda aðila. Hins vegar taldi stofnunin að verulegs misræmis væri að gæta í framlögðum gögnum kæranda og frásögn hans. Þá taldi Útlendingastofnun ekki nægilega sannað að kæranda hafi verið hótað í heimaríki og að valdamiklir menn væru á eftir fjölskyldu hans. Var framburður hans að því leyti almennt talinn ótrúverðugur og sá hluti frásagnarinnar því ekki lagður til grundvallar. Við málsmeðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram ýmis skjöl sem hann kveður sýna fram á að hann hafi átt í viðskiptum við fyrrgreinda aðila og að hann hafi sætt ofsóknum af hálfu þeirra. Eitt þessara skjala er samkvæmt túlkun lögregluskýrsla sem tekin var af kæranda eftir að hann gerði […]. Tvö þessara skjala eru samkvæmt túlkun lögregluskýrslur þar sem eiginkona kæranda og bróðir lögðu fram kæru vegna tveggja manna sem hafi komið á heimili kæranda og fjölskyldu hans. Samkvæmt skjali sem kærandi kveður vera frá lögreglu, dags. 6. nóvember 2017, kemur fram að málið hafi verið sent til rannsóknardómstóls til frekari meðferðar.

Með vísan til þess sem fram hefur komið í málinu telur kærunefnd rétt að leggja til grundvallar frásögn kæranda um að hann hafi átt í viðskiptum í heimaríki við mann að nafni […] og að til ágreinings hafi komið á milli þeirra. Þá telur kærunefnd ekki ástæðu til þess að draga í efa að kærandi hafi gert […].

Kærunefnd tekur undir mat Útlendingastofnunar varðandi ósamræmi á milli frásagnar kæranda og þeirra gagna sem hann lagði fram til henni til stuðnings. Þannig er frásögnin um þá pallbíla sem áttu að hafa elt fjölskyldu kæranda ekki í samræmi við lögregluskýrslu um þá atburði og þá kæru sem eiginkona kæranda lagði fram. Þá er ósamræmi á milli fullyrðinga eiginkonu kæranda um að kærandi hafi skuldað þessum mönnum fé og fullyrðingar kæranda um að hann eigi inni fé hjá þessum mönnum. Með vísan til þessa ósamræmis verður ekki komist að annarri niðurstöðu en að frásögn kæranda um eðli þess ágreinings sem hann kveðst hafa átt í við tilgreinda einstaklinga sé ótrúverðugur og að það ósamræmi sem er á milli þeirra gagna sem kærandi hefur sjálfur lagt fram og frásagnar hans af atburðum að öðru leyti dragi enn frekar úr trúverðugleika frásagnar hans. Þó svo að kærunefnd fallist á að kærandi kunni að eiga á hættu áreiti frá þeim einstaklingum sem hann kveðst eiga í deilum við telur kærunefnd að kærandi hafi ekki lagt nægan grunn að þeirri fullyrðingu sinni að hann eigi á hættu ofsóknir af því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga tekur til.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hann hafi sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda í heimaríki sínu. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu. Gögn sem kærandi lagði sjálfur fram benda ennfremur til þess að lögregla hafi tekið á móti kæru eiginkonu og bróður kæranda vegna hótana ofangreindra manna og að málið hafi verið sent áfram til til rannsóknardómstóls til frekari meðferðar. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem leggja grunn að staðhæfingum hans um að þar til bær yfirvöld í heimaríki hafi fellt niður rannsókn á kærum sem hann hafi lagt fram eða gögn sem á einhvern hátt sýna fram á að yfirvöld hafi ekki eða muni ekki aðhafast frekar í málinu.

Kærandi hefur ennfremur ekki lagt fram gögn, önnur en framburð sinn, sem styðja við staðhæfingar hans um að aðilarnir sem standi að baki ætluðum hótunum hafi tengsl við PUK flokkinn eða þeir hafi annars konar tengsl við stjórnvöld í heimaríki kæranda sem leiði til þess að aðgengi hans að viðeigandi vernd stjórnvalda sé takmarkað. Að teknu tilliti til mats á trúverðugleika frásagnar kæranda telur kærunefnd að framlögð ljósmynd af umræddum aðila sem kærandi kveður standa að baki hótunum í sinn garð, leggi ekki frekari grundvöll að frásögn kæranda þess efnis að aðgengi hans að viðeigandi vernd stjórnvalda sé takmarkað vegna tengsla fyrrgreindra manna við yfirvöld í heimaríki.

Er það því mat kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita kæranda vernd gegn þeim athöfnum sem kærandi telur að sér stafi hætta af, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi hefur því raunhæfan möguleika á að leita ásjár stjórnvalda í heimaríki sínu telji hann sig þurfa þess.

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd einnig á því að hann sé aðili að tilteknum þjóðfélagshópi í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. sömu laga þar sem hann sé þolandi ofsókna af hálfu aðila í glæpagengi. Samkvæmt leiðbeiningum Flóttamannastofnunar sem kærunefnd hefur skoðað geta þolendur glæpagengis í sumum tilvikum talist vera aðilar að þjóðfélagshópi í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. sömu laga. Þá geti hótanir um ofbeldi og líflátshótanir, jafnvel þótt umsækjandi hafi ekki enn sætt ofbeldi, jafnast á við ofsóknir þegar hótanir eru metnar trúverðugar í því samhengi sem um ræðir. Kærunefnd telur að jafnvel þó að byggt yrði á frásögn kæranda bendi hún til þess að sú hætta sem hann telur sig vera í stafi af viðskiptadeilum við tiltekna aðila. Kærunefnd telur ekkert bendi til þess að umræddir aðilar teljist tilheyra glæpagengi og ætlaðar ofsóknir þeirra gagnvart kæranda séu á grundvelli aðildar hans að tilteknum þjóðfélagshópi með vísan til leiðbeininga Flóttamannastofnunar. Þá hefur rannsókn kærunefndar ekki leitt í ljós að kærandi eigi á hættu mismunun af hálfu kúrdískra stjórnvalda á grundvelli þess að hann tilheyri þjóðarbroti […]. Ofangreind gögn benda til þess að ríkisstjórn Kúristan takist almennt vel að koma í veg fyrir mismunun og deilur á meðal þjóðarbrota. Gögn málsins, þ.m.t. framburður kæranda, benda ennfremur ekki til þess að sú hætta sem kærandi kveður sig vera í tengist þeim ástæðum sem 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga vísar til, sbr. 3. mgr. 38. gr. laganna.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1., 3. og 4. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúð legri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Eins og að framan greinir benda skýrslur og gögn sem kærunefnd hefur farið yfir eindregið til þess að svæði KRI sé talið öruggt og lögregla og öryggissveitir Kúrda öflugar og vel búnar. Að teknu tilliti til gagna málsins og heimilda bendir ekkert til þess að kærandi sé í raunverulegri hættu, á heimasvæði sínu í KRI, á að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til KRI. Þá verður ekki talið að hann eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að erfiðar almennar aðstæður geta tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við náttúruhamfarir eða langvarandi stríðsástand í heimaríki. Langvarandi stríðstástand hafi ríkt í heimaríki kæranda og heldur kærandi því fram að yfirvöld í Írak geti ekki veitt honum þá vernd sem hann þarfnist. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má draga þá ályktun að þrátt fyrir að ótryggt ástand ríki á ákveðnum landsvæðum í heimaríki kæranda þá teljist svæðið þar sem kærandi hafði búsetu öruggt svæði. KRI sé jafnframt með virkt refsivörslukerfi sem geti veitt kæranda viðeigandi vernd.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni eða óbærilegum þjáningum. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 12. júní 2018 var kærandi spurður út í líkamlega og andlega heilsu. Hann kvaðst vera hraustur yfir höfuð en greindi frá því að […] árið 2017 og hafi í kjölfarið verið lagður inn á spítala í heimaríki. Kærandi kveðst þó vera við góða andlega heilsu í dag en sé hræddur um konuna sína og börn. Þá bárust frekari gögn frá kæranda þann 4. september 2019 en í þeim gögnum kemur fram að kærandi hafi leitað til læknis þar sem hann sé haldinn miklum kvíða og eigi erfitt með að sofna og halda svefni, þá óttist hann að hann kunni að vera kominn með sykursýki. Kærandi hafi farið í blóðprufur vegna blóðþrýsting og blóðsykurs og fengið uppáskrifað lyf vegna svefnvandamála. Samkvæmt nótunum var kæranda leiðbeint um að hreyfa sig reglulega og minnka sykurríka fæðu. Í framangreindum gögnum kemur fram að allir íbúar KRI hafi rétt á heilbrigðisþjónustu, þar á meðal geðheilbrigðisþjónustu, og sé grunnþjónustan gjaldfrjáls, en hún feli m.a. í sér skoðanir, rannsóknir, bólusetningar og heilbrigðisfræðslu. Með vísan til þess sem fram hefur komið í gögnum málsins og í ofangreindum gögnum um heilbrigðisaðstæður í KRI og á grundvelli heildstæðs mats á aðstæðum kæranda verður lagt til grundvallar að kærandi hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu og lyfjum í heimaríki sem hann kunni á að halda vegna heilsufarsvandamála sinna. Þá bendir ekkert til þess að kærandi sé í meðferð hér á landi sem sé læknisfræðilega óforsvaranlegt að rjúfa.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Í greinargerð kæranda koma fram ýmsar athugasemdir við málsmeðferð Útlendingastofnunar og mat stofnunarinnar á gögnum málsins. Í greinargerð kom enn fremur fram að vegna þessa hafi kærandi fengið þýðingu á gögnum málsins frá kúrdískum sorani símatúlki sem hafi ekki verið að öllu leyti sambærileg þeirri sem Útlendingastofnun aflaði. Vegna þessara athugasemda kæranda óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun þann 23. ágúst 2019 varðandi framkvæmd þýðingar á gögnum málsins. Þær upplýsingar bárust kærunefnd þann 26. ágúst að fyrirtækið Language Line hafi þýtt gögn málsins. Fram kom að fyrirtækið notist við löggilta túlka og að allar þýðingar hjá Language Line séu jafnframt yfirlesnar af öðrum aðila áður en þýðingin sé afhent. Kærunefnd hefur jafnframt farið yfir þessar athugasemdir og telur að þó svo að ekki sé fullt samræmi á milli þeirra þýðinga sem kærandi aflaði og þeirra sem Útlendingastofnun byggði á hafi það ekki áhrif á niðurstöðu málsins.

Þá má ráða af greinargerð kæranda að hann telji að túlkun í viðtali hans hjá Útlendingastofnunar hafi verið áfátt, án þess að í greinargerð sé vísað til tiltekinna mistaka túlks eða rangfærslna í endurriti viðtalsins. Kærunefnd telur ljóst að við lok viðtals hafi kæranda verið gefinn kostur á að fara yfir endurrit viðtalsins með aðstoð túlks og gera athugasemdir við það sem þar var skráð. Af endurritinu verður ekki séð að kærandi hafi gert athugasemdir við hvernig viðtalið var skráð en af endurritinu verður ekki annað ráðið en að kærandi og talsmaður hans hafi undirritað það og sett upphafsstafi sína á hverja síðu endurritsins. Kærunefnd telur að endurritið hafi því fullnægjandi sönnunargildi um hvað þar fór fram, enda hefur kærandi ekki vísað til eða lagt fram gögn sem draga trúverðugleika endurritsins í efa. Í ljósi þessa telur kærunefnd að ekki séu forsendur til að gera athugasemdir við framkvæmd viðtalsins eða túlkun þess.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 6. júní 2018 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Athygli kæranda er vakin á því að ef hann yfirgefur ekki landið innan frests er heimilt að brottvísa honum. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 15 days to leave the country voluntarily.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                      Bjarnveig Eiríksdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta