Mannanafnanefnd, úrskurður 27. ágúst 2010
Mál nr. 70/2010 Eiginnafn: Roxanna
Hinn 27. ágúst 2010 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 70/2010 en erindið barst nefndinni 17. ágúst sl.:
Eiginnafnið Roxanna (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Roxönnu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Roxanna (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.