Mál nr. 24/2005
Þriðjudaginn, 11. október 2005
A
gegn
Tryggingastofnun ríkisins
Úrskurður
Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.
Þann 8. júlí 2005 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dagsett 7. júlí 2005.
Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 6. maí 2005 um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem foreldri utan vinnumarkaðar.
Í rökstuðningi með kæru segir meðal annars:
„Eiginmaður A hefur búið og starfað hér á Íslandi sl. 6 ár. Þau giftu sig 23. janúar 2004. Er óskað eftir að umsókn um fæðingarstyrk verði endurmetin m.t.t. langrar búsetu eiginmanns hér á landi.“
Með bréfi, dagsettu 2. ágúst 2005, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins.
Greinargerð lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins er dagsett 15. ágúst 2005. Í greinargerðinni segir:
„Kærð er synjun á fæðingarstyrk til foreldris utan vinnumarkaðar skv. 18. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof, sbr. 8. gr. laga nr. 90/2004.
Með ódags. umsókn, sem móttekin var 9. mars 2005, sótti kærandi um fæðingarstyrk sem foreldri utan vinnumarkaðar í sex mánuði frá áætluðum fæðingardegi barns, 14. maí 2005. Umsókn hennar var vegna barns, sem fætt er 4. maí 2005.
Með umsókn kæranda fylgdi vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 2. mars 2005. Þá lágu einnig fyrir við afgreiðslu umsóknar kæranda upplýsingar úr þjóðskrá Hagstofu Íslands.
Með bréfi lífeyristryggingasviðs, dags. 6. maí 2005, var umsókn kæranda um fæðingarstyrk synjað á þeim grundvelli að hún uppfyllti ekki skilyrði um lögheimili á Íslandi síðustu 12 mánuði fyrir fæðingardag barns hennar.
Í 18. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof, sbr. 8. gr. laga nr. 90/2004, er kveðið á um fæðingarstyrk til foreldris utan vinnumarkaðar. Þar er í 2. málslið 2. mgr. sett það skilyrði fyrir fæðingarstyrk til foreldris utan vinnumarkaðar að foreldri skuli eiga lögheimili hér á landi við fæðingu barns og hafa átt lögheimili hér á landi síðustu 12 mánuði fyrir þann tíma.
Í 14. gr. reglugerðar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks nr. 1056/2004 er framangreint lögheimilisskilyrði áréttað í 1. mgr. Í 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar segir síðan að til þess að heimilt sé að taka til greina búsetu í öðrum ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins á þeim tíma sem tilgreindur er í 1. mgr. skuli foreldri afhenda Tryggingastofnun ríkisins staðfesta yfirlýsingu (E-104) sem sýni tryggingatímabil er foreldri hefur lokið samkvæmt þeirri löggjöf sem það heyrði undir. Þá segir í 3. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar að hafi verið gerður samningur við annað ríki sem nái til greiðslna vegna fæðingar barns skuli meta búsetu foreldris í því ríki samkvæmt ákvæðum samningsins.
Barn kæranda fæddist, eins og að framan greinir, þann 4. maí 2005. Samkvæmt upplýsingum úr þjóðskrá Hagstofu Íslands skráði kærandi sig með lögheimili hér á landi frá 10. júní 2004 vegna flutnings til Íslands frá B. Kærandi uppfyllir af þeim sökum ekki framangreint skilyrði um að hafa átt lögheimili hér á landi síðustu 12 mánuði fyrir fæðingardag barns hennar. Heimildir 2. og 3. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 eiga ekki við í tilviki kæranda þar sem hún fluttist til Íslands frá B. Þá telur lífeyristryggingasvið enga lagaheimild vera fyrir því að veita kæranda undanþágu frá skilyrðum fæðingar- og foreldraorlofslaga um lögheimili hér á landi á síðustu 12 mánuðunum fyrir fæðingu barns hennar, á þeim grundvelli að hún hafi á umræddu 12 mánaða tímabili verið gift manni sem hafði lögheimili á Íslandi.
Með vísan til framangreinds telur Tryggingastofnun ríkisins að rétt hafi verið að synja umsókn kæranda um fæðingarstyrk sem foreldri utan vinnumarkaðar samkvæmt 18. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, sbr. 8. gr. laga nr. 90/2004.“
Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dagsettu 17. ágúst 2005, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki.
Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:
Kæra varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem foreldri utan vinnumarkaðar.
Samkvæmt 1. mgr. 18. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) öðlast foreldri utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfi sjálfstæðan rétt til fæðingarstyrks í allt að þrjá mánuði hvort um sig vegna fæðingar. Auk þess eiga foreldrar sameiginlegan rétt til fæðingarstyrks í þrjá mánuði til viðbótar. Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. laga nr. 95/2000 sbr. 8. gr. laga nr. 90/2004 skal foreldri eiga lögheimili hér á landi við fæðingu barns og hafa átt lögheimili hér á landi síðustu 12 mánuði fyrir fæðingardag, sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks nr. 1056/2004.
Í 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 er kveðið á um undanþágu frá lögheimilisskilyrðinu, þar sem heimilt er að taka til greina búsetu í öðrum ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins. Þá segir í 3. mgr. 14. gr. að hafi verið gerður samningur við annað ríki sem nær til greiðslna vegna fæðingar barns, ættleiðingar eða töku barns í varanlegt fóstur skuli meta búsetu foreldris í því ríki samkvæmt ákvæðum samningsins.
Kærandi ól barn 4. maí 2005. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands er kærandi skráð með lögheimili hér á landi frá 10. júní 2004 vegna flutnings frá B. Með hliðsjón af því uppfyllir kærandi ekki það skilyrði 2. mgr. 18. gr. laga nr. 95/2000 sbr. 8. gr. laga nr. 90/2004 og 1. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar að hafa átt lögheimili á Íslandi síðustu 12 mánuði fyrir fæðingu barns. Framangreindar undanþágur frá skilyrðinu um lögheimili eiga ekki við í máli þessu.
Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem foreldri utan vinnumarkaðar er staðfest.
ÚRSKURÐARORÐ:
Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja A, um greiðslu fæðingarstyrks sem foreldri utan vinnumarkaðar er staðfest.
Guðný Björnsdóttir
Heiða Gestsdóttir
Gunnlaugur Sigurjónsson