Hoppa yfir valmynd

Nr. 232/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 29. maí 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 232/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18040020

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 9. apríl 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi), þá ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. mars 2018, að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Slóveníu.

Þess er krafist að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Til vara er gerð krafa um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 3. janúar 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Slóveníu og Grikklandi. Þann 29. janúar 2018 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Slóveníu, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 6. febrúar 2018 barst svar frá slóvenskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 20. mars 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Slóveníu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 27. mars 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 9. apríl 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 25. apríl 2018 ásamt fylgigögnum. Þann 7. maí 2018 bárust kærunefnd frekari gögn frá talsmanni kæranda.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Slóveníu. Flutningur kæranda til Slóveníu fæli ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Slóveníu, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæra frestaði réttaráhrifum, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.  Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi flúið […] vegna stríðsins þar í landi. Í […] hafi bygging hrunið á hann og hann hafi hlotið áverka á höfði og baki. Síðan þá hafi kærandi þjáðst af bakverkjum og höfuðverk auk þess sem hann glími við minnisleysi. Þá fái hann hitaköst á kvöldin og eigi erfitt með svefn.

Fram kemur í greinargerð kæranda að hann vilji ekki fara aftur til Slóveníu. Þar sé mikið af […] og hann hafi fengið hótanir frá […] sem séu hluti af hryðjuverkasamtökum. Þeir hafi tekið vegabréfið hans og sagt honum að fara aftur til […] til að berjast. Hótanirnar hafi verið munnlegar og í formi ofbeldis. Kærandi kveður að hann hafi komið tvisvar sinnum til Slóveníu. Í fyrra skiptið árið 2013 í viku og síðan árið 2016 en þá hafi hann dvalið í 15 daga. Í fyrra skiptið hafi hann verið sendur af […] í Slóveníu til […] þar sem hann hafi dvalið á árunum 2013-2016. Í síðara skiptið hafi hann óttast um líf sitt og flúið frá Slóveníu. Kærandi kveður að hann hafi orðið fyrir fordómum í Slóveníu frá starfsfólki útlendingayfirvalda og almenningi.

Til stuðnings aðalkröfu kæranda um efnislega meðferð umsóknar hans vísar hann m.a. til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, vegna andlegrar og líkamlegrar vanheilsu hans, þeirra voveiflegu atburða sem hafi hent hann, þeirra hótana sem hann hafi orðið fyrir af hendi hryðjuverkamanna í Slóveníu auk heimilda um erfiðar aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Þá vísar kærandi til lögskýringargagna að baki ákvæðinu, máli sínu til stuðnings. Fram kemur í greinargerð kæranda að framburður hans beri með sér að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Gerð er athugasemd við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar í greinargerð kæranda og vísað til þess að það standist ekki þær kröfur sem gerðar séu til slíks mats í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um trúverðugleikamat og handbók Flóttamannastofnunar um réttarstöðu flóttamanna. Þá er gerð athugasemd við mat Útlendingastofnunar á viðkvæmri stöðu kæranda og byggt á því að það sé ekki í samræmi við úrskurðaframkvæmd kærunefndar útlendingamála, stjórnsýslulög eða lög um útlendinga en margt bendi til þess að stofnunin hafi litið framhjá atriðum sem kærandi hafi greint frá í viðtali og fram komi í gögnum málsins.

Þá eru, í greinargerð kæranda, gerðar athugasemdir varðandi gildistöku reglugerðar nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Koma m.a. fram sjónarmið um lagaskil, afturvirkni laga og andmælarétt.Til stuðnings varakröfu sinni vísar kærandi til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að slóvensk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Slóveníu er byggt á því að kærandi sé með umsókn um alþjóðlega vernd til meðferðar þar í landi. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæður getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi er […] ára gamall einstæður, barnlaus karlmaður og kveðst vera […] ríkisborgari. Í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun dags. 19. febrúar 2018 greindi kærandi frá því að […] og hann þjáist af bakverkjum og höfuðverk sökum þess auk þess sem hann glími við minnisleysi. Þá eigi hann erfitt með svefn og fái hitaköst á kvöldin. Af gögnum um heilsufar kæranda sem hann hefur lagt fram við meðferð málsins má sjá að kærandi hefur fengið uppáskrifuð svefnlyf og verkjalyf vegna höfuð- og bakverkja sinna, sbr. m.a. samskiptaseðla frá Göngudeild sóttvarna dags. 9. mars 2018 og 3. apríl 2018. Þá hefur hann fengið ráðgjöf um hvernig hann geti linað verki sína. Þann 27. febrúar 2018 fyllti kærandi út skimunarlista fyrir áfallastreituröskun og af samskiptaseðlum má ráða að hann hafi skorað fremur hátt. Af samskiptaseðli frá 9. mars 2018 má ráða að kærandi hefur verið greindur með þunglyndi og hefur hann hitt sálfræðing sbr. samskiptaseðill frá 25. apríl 2018.

Að mati kærunefndar benda gögn málsins ekki til þess að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls hans hér á landi, enda fær kærunefnd ekki séð að aðstæður hans séu þess eðlis að hann hafi sérstakar þarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls hér eða að hann geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð í Slóveníu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Slóveníu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Amnesty International Report 2017/18 – Slovenia (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Asylum Information Database, Country Report – Slovenia (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018),
  • Report to the Slovenian Government on the visit to Slovenia carried out by the European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment (CPT) from 28 March to 4 April 2017 (Council of Europe: Committee for the Prevention of Torture, 20. september 2017),
  • Freedom in the World 2017 – Slovenia (Freedom House, 1. september 2017),
  • Unidentified and Unattended: The Response of Eastern EU Member States to the Special Needs of Torture Survivor and Traumatised Asylum Seekers (Hungarian Helsinki Committee, maí 2017),
  • 2016 Country Reports on Human Rights Practices - Slovenia (United States Department of State, 3. mars 2017)
  • 2017 Country Reports on Human Rights Practices - Slovenia (United States Department of State, 20. apríl 2018) og
  • Regional Refugee and Migrant Response Plan for Europe – Eastern Mediterranean and Western Balkans Route, January-December 2016 (UN High Commissioner for Refugees (UNHCR), janúar 2016).

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Slóveníu má ráða að einstaklingar geta lýst því yfir við hvaða opinberu stofnun sem er að þeir hyggist sækja um alþjóðlega vernd. Frá þeim tímapunkti er óheimilt að brottvísa viðkomandi frá landinu. Í kjölfarið er umsóknarferli hafið hjá lögregluyfirvöldum en tekin er stutt skýrsla af umsækjanda, hann spurður út í ferðaleið og beðinn um að sanna á sér deili. Því næst er umsækjandi fluttur í móttökumiðstöð þar sem hann fer í læknisskoðun og hittir lögfræðing áður en hann leggur fram formlega umsókn um vernd. Samkvæmt slóvenskum lögum um útlendinga fer fram mat á því hvort umsækjandi teljist vera einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í framangreindri læknisskoðun. Þá getur viðkvæm staða einnig verið greind við framlagningu umsóknar um vernd eða síðar við meðferð málsins. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér má ráða að umsækjendur um alþjóðlega vernd fara í viðtal áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra. Þá eiga umsækjendur rétt á aðstoð túlks við málsmeðferð sína. Af alþjóðlegum skýrslum má ráða að upp hafa komið tilvik þar sem túlkun er ábótavant eða ekki er hægt að túlka ákveðin tungumál. Samkvæmt slóvenskum lögum ber yfirvöldum að afgreiða umsóknir um vernd innan sex mánaða en tafir á afgreiðslu mála eru hins vegar nokkuð algengar.

Samkvæmt slóvenskum lögum um útlendinga er umsækjendum um alþjóðlega vernd ekki tryggð lögfræðiaðstoð þeim að kostnaðarlausu á fyrsta stigi málsmeðferðar. Umsækjendur eiga hins vegar kost á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð frá frjálsum félagasamtökum. Lögfræðingar samtakanna veita ráðgjöf áður en umsókn um vernd er lögð fram, í umsóknarferlinu og við málsmeðferðina. Gjaldfrjáls lögfræðiaðstoð á kærustigi er tryggð í slóvenskum lögum. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér er ljóst að slóvensk stjórnvöld uppfylla skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar.

Umsækjendur eiga þess kost að skjóta niðurstöðu máls síns til stjórnsýsludómstóls með því að leggja fram kæru gegn innanríkisráðuneytinu. Þá geta umsækjendur lagt fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Í fyrrgreindum skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Slóveníu kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Slóveníu eiga rétt á húsaskjóli í móttökumiðstöðvum á vegum stjórnvalda. Í móttökumiðstöðvum fá þeir m.a. þrjár máltíðir á dag, hreinlætisvörur og vasapeninga. Þá er umsækjendum tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu samkvæmt slóvenskum lögum. Í stærstu móttökumiðstöð Slóveníu sem er staðsett í Ljublana starfa félagsráðgjafar og hjúkrunarfræðingur auk þess sem sálfræðingur kemur þangað einu sinni í viku. Í minni móttökumiðstöðvum landsins starfa einnig félagsráðgjafar og íbúar eiga þess kost að fá tíma hjá sálfræðingi. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að sækja sér nauðsynlega heilbrigðisþjónustu í gegnum heilbrigðiskerfi landsins, s.s. á heilsugæslustöðvum og spítölum. Eigi þeir í vandræðum með að nálgast þjónustuna geta þeir leitað aðstoðar hjá félagsráðgjöfum móttökumiðstöðvanna.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér má ráða að íbúar landsins geta leitað aðstoðar yfirvalda óttist þeir tiltekna einstaklinga eða telji brotið á réttindum sínum. Umboðsmaður mannréttindamála sinnir eftirliti með mannréttindabrotum og hægt er að tilkynna mannréttindabrot til embættisins. Árið 2016 var sett á laggirnar nýtt embætti, umboðsmaður jafnréttismála, en hann hefur það hlutverk að sinna vitundarvakningu um jafnréttismál og koma í veg fyrir mismunun. Þá geta íbúar landsins leitað til lögreglunnar sem hefur fullnægjandi úrræði til að rannsaka þau mál sem leitað er til hennar með.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Slóveníu hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Slóveníu bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Slóveníu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Af framagreindum gögnum verður ekki annað ráðið en að verði kærandi fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar geti hann leitað ásjár slóvenskra yfirvalda vegna þess.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins bendi ekki til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá verður ekki séð af gögnum málsins að fyrir hendi sé ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað um heilbrigðiskerfið í Slóveníu er það mat nefndarinnar að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar í málinu að kæranda bíði fullnægjandi og aðgengileg heilbrigðisþjónusta í Slóveníu en umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu þar í landi.

Kærandi hefur greint frá því að aðilar tengdir […] hryðjuverkasamtökum hafi hótað honum og beitt hann ofbeldi í Slóveníu. Það er mat kærunefndar, m.t.t. þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Slóveníu, að þarlend yfirvöld séu í stakk búin til þess að veita umsækjendum fullnægjandi vernd gegn slíkum hótunum og að kærandi geti leitað til lögreglunnar og annarra yfirvalda vegna þeirra.

Kærunefnd hefur yfirfarið þau gögn sem kærandi lagði fram með kæru sinni. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtölum hjá Útlendingastofnun dagana 9. janúar og 19. febrúar 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 3. janúar 2018.

Reglur stjórnsýsluréttar

Í greinargerð kæranda er gerð athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að rannsókn, trúverðugleikamat og rökstuðningur Útlendingastofnunar hafi verið ófullnægjandi. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars sl. voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Að mati kærunefndar fól gildistaka reglugerðarinnar ekki í sér íþyngjandi breytingar á réttarstöðu kæranda. Koma því sjónarmið um afturvirkni laga, að því marki sem þau kynnu að vera sambærileg varðandi setningu stjórnvaldsfyrirmæla, ekki til skoðunar í þessu máli.

Þá verður ekki litið svo á að setning reglugerðarinnar gangi gegn almennri túlkun og skýringu á lögum um útlendinga að því er varðar aukna áherslu á mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins enda sé ljóst að vilji löggjafans hafi staðið til þess að slíkt samstarf hefði vægi við beitingu 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Frávísun

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd þann 3. janúar 2018 og hann kveðst hafa komið til landsins nokkrum dögum fyrr. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Slóveníu eigi síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa slóvensk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Slóveníu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

 

Erna Kristín Blöndal                                                                                   Pétur Dam Leifsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta