Hoppa yfir valmynd

Nr. 340/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 11. júlí 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 340/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19040092

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 15. apríl 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 1. apríl 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu. Gerð er krafa aðallega um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á Íslandi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. sömu laga. Til vara er gerð krafa um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 7. nóvember 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þann 13. nóvember 2018 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 8. janúar 2019, kemur fram að kærandi sé handhafi alþjóðlegrar verndar þar í landi og hafi gilt dvalarleyfi í Grikklandi til 7. ágúst 2020. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 28. febrúar 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 1. apríl 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 2. apríl 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 15. apríl 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 8. maí 2019 ásamt fylgigögnum. Þá bárust kærunefnd viðbótargögn þann 17. maí 2019.

III.Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV.Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur m.a. fram að hann hafi komið til Grikklands [...], og sótt um alþjóðlega vernd þar í landi [...]. Kærandi hafi lýst yfir vilja sínum til að sameinast fjölskyldu sinni í Grikklandi en það hafi ekki verið hægt. Kveði kærandi að hann hafi ekki fengið húsnæði eða félagslega aðstoð frá grískum stjórnvöldum auk þess sem enga vinnu hafi verið að fá. Hann hafi því, til að byrja með, dvalið í tjöldum, gámum og almenningsgörðum. Í greinargerð sinni greinir kærandi þá frá því að hann hafi dvalið í eitt ár hjá eldri manni sem hafi krafist endurgjalds í formi kynlífs. Greini kærandi frá því að maðurinn hafi komið illa fram við sig og beitt sig kynferðislegu, andlegu og líkamlegu ofbeldi. Þá hafi hann sagt við kæranda að illa færi fyrir honum ef hann segði einhverjum frá samskiptum þeirra. Kærandi kveði að hann hafi ekki þorað að leita aðstoðar lögreglu vegna framangreinds eða vegna ofbeldis sem hann hafi orðið fyrir af hendi nokkurra [...]. Lögreglan í Grikklandi hafi komið illa fram við sig og haldið sér, án skýringa, á lögreglustöð í nokkrar klukkustundir. Kærandi kveði þá að hann glími við háan blóðþrýsting og langvarandi hjartavandamál en hann hafi aldrei fengið fullnægjandi læknisþjónustu. Kærandi hafi á einum tímapunkti í [...]. Þá finni kærandi fyrir þunglyndi og vonleysi auk þess sem hann hafi alltaf áhyggjur.

Kærandi gerir ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans. Í fyrsta lagi telur kærandi að annmarki sé á ákvörðun Útlendingastofnunar vegna þess sem þar segir um framlögð gögn í málinu. Kærandi hafi framvísað gögnum frá Göngudeild sóttvarna en þrátt fyrir það standi í ákvörðun Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki lagt fram nein gögn til stuðnings umsókn sinni. Í öðru lagi telur kærandi að í ákvörðun Útlendingastofnunar sé að finna ófullnægjandi lýsingu á málsástæðum hans. Í þriðja lagi gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á andlegu ástandi kæranda. Telur kærandi að stofnunin hafi, með því að framkvæma ekki sálfræðimat á kæranda og bíða eftir gögnum úr tíma hans hjá sálfræðingi, brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í fjórða lagi telur kærandi að honum muni ekki standa til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta, húsnæði eða aðgangur að félagslegu kerfi í Grikklandi þrátt fyrir fullyrðingar stofnunarinnar þess efnis. Í fimmta lagi gerir kærandi athugasemd við þá ályktun stofnunarinnar að heimildir beri ekki með sér að grísk stjórnvöld skorti vilja eða getu til að taka á málum er varða kynþáttafordóma og ofbeldi gegn innflytjendum. Í sjötta lagi gerir kærandi athugasemd við umfjöllun stofnunarinnar um þær leiðir sem standi kæranda til boða innan réttarvörslukerfisins í Grikklandi vegna þess kynferðisofbeldis sem hann hafi orðið fyrir. Telur kærandi að ekki sé hægt að gera ráð fyrir því að flóttamenn í landinu geti nýtt sér þau réttarúrræði sem standi grískum ríkisborgurum til boða með fullnægjandi hætti. Í sjöunda lagi telur kærandi að skilyrði reglugerðar nr. 540/2017 um útlendinga, með síðari breytingum, varðandi sérstakar ástæður séu mun þrengri en kveðið sé á um í lögum um útlendinga, sbr. einnig athugasemdir með frumvarpi því sem varð að núgildandi lögum um útlendinga. Telji kærandi að þær kröfur sem Útlendingastofnun leggi til grundvallar eigi sér ekki stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni. Loks telur kærandi það vera ámælisvert að stofnunin hafi í ákvörðun sinni ekki lagt mat á það hvort kærandi geti verið fórnarlamb mansals. Að mati kæranda hafi stofnunin með því brotið gegn framangreindri rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar.

Í greinargerð kæranda gerir hann ítarlega grein fyrir aðstæðum, aðbúnaði og réttarstöðu þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og vísar í því sambandi til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka. Þar komi m.a. fram að vegna landfræðilegrar legu hafi Grikkland þurft að bera þungann af straumi flóttafólks frá Afríku og Mið-Austurlöndum síðastliðin ár, þrátt fyrir að vera það Evrópuríki sem hafi ef til vill verið einna síst í stakk búið til að taka á móti slíkum fjölda fólks vegna efnahags- og stjórnmálakreppu sem hafi haft mikil áhrif á landið. Athygli hafi m.a. verið vakin á því að mikil þörf sé á að auka við félagslega þjónustu við flóttafólk en vegna takmarkaðrar þjónustu sé aðlögun þeirra að grísku samfélagi erfið. Flóttafólk verði þá fyrir mismunun á almennum húsnæðismarkaði, m.a. vegna tungumálaerfiðleika. Auk þess séu engin húsnæðisúrræði í boði sérstaklega ætluð þeim sem njóti alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og jafnframt sé enginn fjárstuðningur veittur þeim einstaklingum. Þá sé atvinnuleysi í Grikklandi það hæsta í Evrópu og erfitt sé fyrir flóttafólk að finna sér atvinnu þar í landi. Hafi þetta leitt til þess að margir einstaklingar með stöðu flóttamanna í Grikklandi séu heimilislausir.

Kærandi vísar þá til þess að engin lögfræðiaðstoð sé veitt í tengslum við endurnýjun á dvalarleyfum en umsókn um slíkt geti einnig tekið langan tíma sem geti haft þau áhrif að einstaklingar eigi í erfiðleikum með að fá aðgang að þjónustu, t.d. á vegum félagsmálayfirvalda, meðan umsókn þeirra sé til meðferðar. Þá séu ströng skilyrði sett fyrir útgáfu langtímadvalarleyfa í Grikklandi. Kærandi vísi einnig til þess að víðtækur niðurskurður innan heilbrigðiskerfisins hafi komið niður á heilbrigðisþjónustu á sama tíma og þörfin fyrir þjónustuna hafi aukist. Mikið skorti t.d. á fullnægjandi geðheilbrigðisþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og flóttafólk í Grikklandi. Þá bendir kærandi á að önnur Evrópuríki hafi stöðvað endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar og hafi það einnig verið stefna íslenskra stjórnvalda frá árinu 2010. Loks telji Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna öryggi umsækjenda um alþjóðlega vernd og viðurkennds flóttafólks í landinu vera ógnað vegna vaxandi kynþáttafordóma, útlendingahaturs, ofbeldis og skorts á umburðarlyndi í Grikklandi.

Aðalkrafa kæranda er í fyrsta lagi byggð á því að hann njóti verndar 42. gr. laga um útlendinga, sem mælir fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement eða bann við endursendingu fólks þangað sem líf þess eða frelsi sé í hættu, eða líkur séu á að það muni sæta pyndingum eða ómannúðlegri meðferð, sbr. einnig 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Kærandi hafi lýst aðstæðum sínum á Grikklandi og komi sú lýsing heim og saman við þær heimildir sem vísað sé til í greinargerð kæranda um aðstæður þar í landi. Telji kærandi að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem og skilgreiningu á ofsóknum í skilningi flóttamannahugtaksins. Endursending kæranda til Grikklands myndi því vera brot gegn 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða brot gegn reglunni um non-refoulement.

Þá er aðalkrafa kæranda jafnframt reist á því að taka skuli umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi þar sem sérstakar ástæður mæli með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Með vísan til þess alvarlega ofbeldis sem hann hafi orðið fyrir, að hann hafi hugsanlega verið fórnarlamb mansals, ungs aldurs síns og sjúkrasögu, telur kærandi að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Til stuðnings kröfu sinni vísar kærandi m.a. til lögskýringargagna að baki 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og laga nr. 81/2017 sem breyttu lögum um útlendinga. Þá vísar kærandi til tiltekinna fyrri úrskurða kærunefndar útlendingamála og telur að þeir gefi til kynna að stjórnvöld þurfi, við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi, að kanna hvort kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki, annað hvort vegna einstaklingsbundinna aðstæðna eða vegna almennra aðstæðna í viðtökuríki. Með vísan til lögskýringargagna bendir kærandi þá á að sú staðreynd að kærandi megi eiga von á því að vera mismunað í viðtökuríki, vegna kynþáttar eða kyns, geti gert það að verkum að fyrir hendi séu sérstakar ástæður. Kærandi vísar til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, sbr. breytingarreglugerð nr. 276/2018, og bendir á að mismunun í viðtökuríki geti m.a. falið í sér að viðkomandi sé útilokaður frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu og atvinnuþátttöku á grundvelli kynþáttar eða kyns sem geri það að verkum að staða hans yrði verulega síðri en staða almennings. Í því samhengi vísar kærandi til úrskurða kærunefndar nr. 393/2018 og 110/2019, þar sem kærunefnd hafi fellt úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar og lagt fyrir stofnunina að taka til efnismeðferðar umsóknir fjölskyldna með alþjóðlega vernd í Grikklandi, sem metnar höfðu verið í sérstaklega viðkvæmri stöðu, m.a. á þeim grundvelli að aðstæður sem biðu þeirra í Grikklandi yrðu verulega síðri en staða almennings þar í landi, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi telur að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í Grikklandi þar sem hann eigi í engin hús að venda og líkur séu á því að hann muni ekki fá þá sérhæfðu aðstoð sem hann þurfi á að halda vegna þess ofbeldis sem hann hafi orðið fyrir.

Varakrafa kæranda er byggð á því að Útlendingastofnun hafi brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Vísi kærandi í því samhengi til umfjöllunar í greinargerð sinni um athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar.

V.Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 17. júlí 2017 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 7. ágúst 2020. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] einstæður og barnlaus karlmaður. Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun m.a. glíma við hjartavandamál og háan blóðþrýsting. Þá kvaðst hann finna fyrir þunglyndi og vonleysi. Í gögnum um heilsufar kæranda kemur m.a. fram að líkur séu á því að hann hafi tímabundið [...] í líkamanum fyrir um þremur árum síðan. Hann hafi ekki enn náð fullum styrk og þurfi hann af þeim sökum að hreyfa sig reglulega. Þá hafi hann mælst með vægt hækkaðan blóðþrýsting.

Það er mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. viðtöl við kæranda hjá Útlendingastofnun og framlögð heilsufarsgögn, beri ekki með sér að kærandi hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • 2019 Trafficking in Persons Report – Greece (United States Department of State, 20. júní 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Af ofangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Í

framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji. Í áðurnefndri skýrslu Asylum Information Database kemur fram að óheimilt sé samkvæmt grískum lögum að setja umsækjendur um alþjóðlega vernd í varðhald nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, t.d. í því skyni að að staðfesta auðkenni viðkomandi flóttamanns eða í þágu almannaöryggis og allsherjarreglu. Þá kemur fram í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins að fangelsisrými séu af skornum skammti í Grikklandi og því séu þau yfirfull með tilheyrandi vandamálum, t.d. sé öryggi í yfirfullum fangelsum ófullnægjandi auk þess sem þau glíma við skort á hreinlæti og heilbrigðisþjónustu.

Í framangreindri skýrslu Asylum Information Database kemur fram að dvalarleyfi einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða viðbótarvernd í Grikklandi séu gefin út til þriggja ára í senn. Umsókn um endurnýjun dvalarleyfis þurfi að berast 30 dögum áður en að leyfið renni út en ef umsókn berist eftir þann tíma leiði það þó ekki eitt og sér til þess að umsókn sé synjað. Umsókn sé þá að jafnaði endurnýjuð. Við málsmeðferð umsókna um endurnýjun dvalarleyfis sé þó framkvæmd könnun á sakaferli sem geti leitt til þess að alþjóðleg vernd umsækjanda sé afturkölluð og honum í kjölfarið synjað um endurnýjun dvalarleyfis. Þá sé málsmeðferðartími umsókna um endurnýjun dvalarleyfis u.þ.b. tveir mánuðir en þó séu dæmi um að það tímabil geti lengst upp í sex mánuði, en á meðan umsókn sé í vinnslu fái umsækjendur sérstakt kort sem veiti þeim sömu réttindi og fylgi dvalarleyfinu útgefið til tveggja mánaða.

Þá kemur fram í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mansal að flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd séu berskjaldaður hópur þegar kemur að mansali. Þar komi jafnframt fram að grísk lög veiti fullnægjandi vernd gegn kynbundnu ofbeldi, þrátt fyrir að dæmi séu um erfiðleika við sönnun slíkra brota og viljaleysi þolenda við að leggja fram kæru. Grísk stjórnvöld hafa markvisst unnið að því að koma í veg fyrir mansal í landinu, t.d. með því að setja á fót sérstakt embætti í því skyni. Þá veita mannréttindasamtök í Grikklandi þolendum mansals og kynferðislegs ofbeldis aðstoð í formi félagslegrar aðstoðar auk sálfræði- og lögfræðiaðstoðar.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá kemur fram í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu kæranda að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá greinir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst. Hefur kærandi m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður eigi við í máli hans þar sem hann hafi, ungur að aldri, þurft að þola alvarlegt ofbeldi, hugsanlega verið fórnarlamb mansals og upplifað áföll. Þá sé hann í viðkvæmri stöðu og skortur sé á viðhlítandi heilbrigðisþjónustu, og annarri félagsþjónustu, honum til handa í Grikklandi. Kærandi hefur borið því fyrir sig að hafa orðið fyrir kynþáttafordómum í Grikklandi og geta ekki leitað ásjár lögreglu þar í landi. Þá hefur kærandi lýst því yfir að hann muni eiga í erfiðleikum með að endurnýja dvalarleyfi sitt í Grikklandi, sem renni út árið 2020.

Þrátt fyrir ýmsar aðgangshindranir hefur kærandi heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi og á rétt á félagslegri aðstoð til jafns við gríska ríkisborgara. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Kærunefnd áréttar að framangreindar skýrslur um aðstæður í Grikklandi benda eindregið til þess að kærandi eigi möguleika á að fá endurnýjun á dvalarleyfi sínu enda nýtur hann alþjóðlegrar verndar í Grikklandi. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og nauðsynlegum lyfjum. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna. Því telur kærunefnd gögn málsins ekki benda til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 393/2018 og 110/2019. Kærunefnd telur augljóst að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum, einkum þar sem um var að ræða fjölskyldur með börn og barnshafandi konur.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 28. febrúar 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 7. nóvember 2018.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Kærandi gerir athugasemd við að Útlendingastofnun hafi ekki aflað fullnægjandi heilsufarsgagna og framkvæmt sálfræðimat á kæranda á meðan mál hans var til meðferðar. Af gögnum málsins má sjá að kæranda var leiðbeint um möguleika á að ræða við sálfræðing og leggja fram heilsufargögn til stuðnings máli sínu. Kærunefnd telur að í ljósi þess og þeirra heilsufarsgagna sem liggja fyrir í málinu að sá þáttur hafi verið nægjanlega upplýstur, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og að því sé ekki ástæða til að gera athugasemd við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun að þessu leyti.

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. mati á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda, auk þess sem gerð er athugasemd við lagastoð 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Gögn málsins bera það með sér að kærandi hafi komið hingað til lands þann 7. nóvember 2018 og sótt um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

Árni Helgason                                                                                                         Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta