Mál nr. 82/2019 Úrskurður 3. október 2019
Mál nr. 82/2019 Eiginnafn: Ljóni (kk.)
Hinn 3. október 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 82/2019 en erindið barst nefndinni 5. september.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Ljóni (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ljóna, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.