Mál nr. 24/2016 úrskurður 18. apríl 2016
Mál nr. 24/2016 Eiginnafn: Olli
Hinn 18. apríl 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 24/2016 en erindið barst nefndinni 6. apríl:
Eiginnafnið Olli (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Olla, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Olli (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.