Mál nr. 154/2022 Úrskurður 10. desember 2022
Mál nr. 154/2022 Eiginnafn: Borghild (kvk.)
Hinn 10. desember 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 150/2022 en erindið barst nefndinni 4. nóvember.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Með úrskurði uppkveðnum 2. apríl 2012 í mál nr. 16/2012 hafnaði mannanafnanefnd beiðni um eiginnafnið Borghild á þeim grunni að nafnið stríði gegn hefð nafnsins Borghildur. Með úrskurði í máli nr. 90/2022 var beiðni um eiginnafnið Hild aftur á móti samþykkt án sérstakrar umfjöllunar um hvort það nafn stríði gegn hefð nafnsins Hildur. Til athugunar er hér einnig hvort hefð sé fyrir nafninu Borghild.
Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:
- Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.
- Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
- Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
- Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði nafns sem þegar er á mannanafnaskrá. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z. Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera tvær konur nafnið Borghild í þjóðskrá sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra. Sú eldri er fædd árið 1943. Þá kemur nafnið fyrir í þremur manntölum frá 1703 til 1920. Telst því hefð fyrir nafninu á grundvelli 1. gr. vinnulagsreglnanna og það samþykkt með vísan til alls framanritaðs.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Borghild (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.