Mál nr. 92/2014 úrskurður 22. desember 2014
Mál nr. 92/2014 Eiginnafn: Símona
Hinn 22. desember 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 92/2014 en erindið barst nefndinni 20. nóvember:
Eiginnafnið Símona (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Símonu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Símona (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.