Mál nr. 94/2014 úrskurður 22. desember 2014
Mál nr. 94/2014 Eiginnafn: Þyrill
Hinn 22. desember 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 94/2014 en erindið barst nefndinni sama dag:
Eiginnafnið Þyrill (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Þyrils, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Þyrill (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.