Mál nr. 2/2015 úrskurður 19. janúar 2015
Mál nr. 2/2015 Eiginnafn: Kala
Hinn 19. janúar 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 2/2015 en erindið barst nefndinni 8. janúar:
Eiginnafnið Kala (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Kölu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Kala (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá