Mál nr. 7/2015 úrskurður 19. janúar 2015
Mál nr. 7/2015 Eiginnafn: Morgunsól
Hinn 19. janúar 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 7/2015 en erindið barst nefndinni 16. janúar:
Eiginnafnið Morgunsól (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Morgunsólar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Morgunsól (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.