Hoppa yfir valmynd

Nr. 210/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 6. maí 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 210/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19030045

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 19. mars 2019 kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. mars 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar með vísan til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og með vísan til non-refoulement reglu þjóðaréttar, sbr., 42. gr., sbr. einnig 3. mgr. 36. gr. laganna.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi í fyrsta sinn þann 12. september 2017. Þann 8. desember 2017 tók Útlendingastofnun ákvörðun um að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og að hann skyldi endursendur til Belgíu. Þann 10. apríl 2018 staðfesti kærunefnd útlendingamála þá ákvörðun Útlendingastofnunar. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi fluttur til Belgíu þann 4 september 2018. Kærandi lagði öðru sinni fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 13. september 2018. Þann 5. nóvember 2018 tók Útlendingastofnun ákvörðun um að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og að hann skyldi endursendur til Belgíu. Þann 12. desember 2018 staðfesti kærunefnd útlendingamála þá ákvörðun. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi fluttur til Belgíu þann 14. febrúar 2019.

Kærandi lagði í þriðja sinn fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi þann 18. febrúar 2019. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 25. febrúar 2019, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Belgíu. Þann 4. mars 2019 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Belgíu, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá belgískum yfirvöldum, dags. 13. mars 2019, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 14. mars 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 19. mars 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann sama dag til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 29. mars 2019 ásamt fylgigögnum.  

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að belgísk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Belgíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Belgíu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð sinni vísar kærandi til fyrri umsókna sinna um alþjóðlega vernd hér landi varðandi lýsingu á málsatvikum og aðstæðum sínum. Þá vísar kærandi til viðtals hans hjá Útlendingastofnun, þann 25. febrúar 2019, vegna núverandi umsóknar hans um alþjóðlega vernd. Í viðtalinu hafi kærandi lýst því að hann hafi upplifað mikinn kvíða og andlegt ójafnvægi eftir endursendingu hans til Belgíu auk þess sem heilsu hans hafi hrakað við flutninginn. Þá komi fram að kærandi hafi ekki séð annan kost í stöðunni en að gista í sama almenningsgarði og hann dvaldi í eftir að hann hafi verið fluttur í fyrsta sinn frá Íslandi […]. Þá hafi kærandi verið án matar í þrjá sólarhringa og sofið úti ásamt hundruðum annarra umsækjenda um alþjóðlega vernd. Kærandi kveði að hann hafi ekki komist að hjá belgísku útlendingastofnuninni (Fedasil) sökum þess að langar raðir hafi myndast alla morgna auk þess sem að opnunartíminn hafi verið mjög stuttur. Af þessum sökum hafi hann enga aðstoð né upplýsingar fengið á meðan hann dvaldi í Belgíu.

Í greinargerð sinni gerir kærandi nokkrar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi geri m.a. athugasemd við þá staðhæfingu stofnunarinnar að hann hafi ekki treyst sér til að bíða í röð hjá belgísku útlendingastofnuninni. Hið rétt sé að hann hafi ekki komist að vegna fjöldans sem hafi beðið í röðinni sökum þess hve stuttur opnunartími stofnunarinnar sé. Kærandi kveði að við endurkomu til Belgíu nú síðast hafi honum verið gert að skrifa undir skjal á flugvellinum, sem hafi verið á hollensku, og að fulltrúar lögreglunnar hafi einungis talað hollensku. Þá kveði kærandi að hann hafi ekki haft aðgang að túlki, lögfræðingi né annarri þjónustu við komu til Belgíu og að honum hafi verið gert að yfirgefa flugvöllinn án frekari upplýsinga og aðstoðar. Kærandi kveði að misvísandi upplýsingar frá belgískum stjórnvöldum og harkalegt viðhorf belgísku lögreglunnar séu helstu orsakir þess að farandfólk forðist að óska eftir alþjóðlegri vernd í Belgíu. Þá geri kærandi athugasemd við mat kærunefndar á aðstæðum og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Belgíu sem sett hafi verið fram í úrskurði nefndarinnar nr. 549/2018, þann 12. desember 2018, þar sem fjallað var um aðra umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi. Kærandi telji að aðstæður hans í Belgíu hafi ekki verið í samræmi við mat nefndarinnar. Hæliskerfið í Belgíu sé ekki í stakk búið til að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd þá vernd sem þeir eigi tilkall til og þá beri heimildir með sér að þeim sem sendir séu til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar bíði varðhald. Þá séu fordómar í samfélaginu í garð umsækjenda um alþjóðlega vernd alvarlegt og útbreitt vandamál.

Kærandi byggir kröfu sína um efnismeðferð í fyrsta lagi á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið leggi þá skyldu á íslensk stjórnvöld að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef sérstakar ástæður mæli með því. Við mat á því hvort um sérstakar ástæður sé að ræða þurfi að líta til einstaklingsbundinna aðstæðna hverju sinni. Kærandi bendi á að Útlendingastofnun hafi komist að þeirri niðurstöðu að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þá hafi kærandi lýst því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann taki lyf við geðrænum sjúkdómum. Dvöl hans í Belgíu hafi haft afar slæm áhrif á andlega og líkamlega heilsu hans og því telji hann sérstakar ástæður fyrir hendi í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þessu til stuðnings vísi kærandi til ummæla í lögskýringargögnum og túlkunar kærunefndar á þeim ummælum.

Kærandi byggir kröfu sína um efnismeðferð í öðru lagi á 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sem mæli fyrir um grundvallarregluna um non-refoulement. Kærandi taki fram að reglan um non-refoulement sé hornsteinn í flóttamannarétti og feli í sér bann við endursendingu einstaklings til ríkis þar sem líf hans eða frelsi kunni að vera í hættu. Kærandi kveði að hann skuli njóta alþjóðlegrar verndar sé hann í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í viðtökuríki. Þannig telji kærandi að ótækt sé að senda hann til Belgíu með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga í ljósi framangreindrar umfjöllunar um aðstæður hans þar í landi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Belgíu á umsókn kæranda er byggð á b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi sé með umsókn um alþjóðlega vernd til meðferðar þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja belgísk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […] karlmaður […]. Líkt og áður hefur komið fram hefur kærandi áður sótt um alþjóðlega vernd hér á landi, sbr. úrskurði kærunefndar nr. 168/2018 og 549/2018. […]. Þá lá fyrir að kærandi hefði farið til sálfræðings hjá Göngudeild sóttvarna í fjögur skipti.

Í máli þessu hefur kærandi lagt fram vottorð frá […], dags. 25. janúar 2019, þar sem fram kemur að kærandi hafi mætt í tvö viðtöl þangað. Að öðru leyti hefur kærandi ekki lagt fram heilsufarsgögn í málinu önnur en þau sem lágu til grundvallar við fyrri umsóknir hans um alþjóðlega vernd hér á landi.

Kærandi var metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Á grundvelli heilsufarsgagna sem liggja fyrir í máli þessu, m.a. þeirra sem lágu fyrir við fyrri umsóknir kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að byggja á því mati. Kærandi sé því í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Belgíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Belgíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Asylum Information Database, Country Report: Belgium (European Council on Refugees and Exiles, 26. mars 2019),
  • Belgium 2018 Human Rights Report (United States Department of State, 13. mars 2019),
  • Amnesty International Report 2017/18 – Belgium (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Freedom in the World 2018 – Belgium (Freedom House, 1. ágúst 2018),
  • The Organisation of Reception Facilities in Belgium (European Migration Network, ágúst 2013),
  • upplýsingar af vefsíðu Global Detention Project (www.globaldetentionproject.com) og
  • upplýsingar af heimasíðu Fedasil (www.fedasil.be).

Í framangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar geta sótt um alþjóðlega vernd á flugvellinum við komu til Belgíu eða hjá útlendingastofnun (f. Office des étrangers) þar í landi. Stofnun sem fer með umsóknir um alþjóðlega vernd (f. Commissariat général aux réfugiés et aux apatrides (CGRA)) tekur ákvarðanir um umsóknir um alþjóðlega vernd á fyrsta stjórnsýslustigi. Ákvarðanir stofnunarinnar eru kæranlegar til stjórnsýsludómstóls í útlendingamálum (f. Conseil du contentieux des étrangers (CCE)). Möguleiki er á því að kæra ákvarðanir CCE til æðra setts stjórnsýsludómstóls. Æðri dómstóllinn tekur ekki efnislega á málum en úrskurðar um það hvort CCE hafi fylgt formkröfum. Hafi formkröfum ekki verið fylgt getur dómstóllinn ógilt úrskurð CCE og sent málið til nýrrar endurskoðunar. Fái umsækjendur endanlega synjun á umsókn sinni eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn hjá útlendingastofnun. Þá getur jafnframt verið litið á umsóknir umsækjenda sem eru endursendir til Belgíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar sem viðbótarumsóknir, en það fer eftir því hvar málið þeirra er varðar umsókn um alþjóðlega vernd var statt í málsmeðferð í Belgíu þegar þeir yfirgáfu Belgíu og sóttu um vernd í öðru ríki. CGRA leggur mat á það hvort viðbótarumsókn sé tæk til meðferðar og skal það gert innan 10 daga. Grundvallast matið m.a. á því hvort nýjar upplýsingar liggi fyrir í málinu sem auki möguleika viðkomandi umsækjanda á því að fá alþjóðlega vernd. Sé umsóknin samþykkt fer málið í flýtimeðferð og ákvörðun skal tekin innan 15 virkra daga. Sé viðbótarumsókn tekin til meðferðar á umsækjandi rétt á félagslegri aðstoð. Umsækjendur geta borið mál sitt undir belgíska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd í Belgíu rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds á öllum stigum málsins, þ. á m. við að leggja fram viðbótarumsókn.

Af framangreindum gögnum um málsmeðferð í Belgíu má ráða að þar fari fram fullnægjandi mat á því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu t.d. með því að leggja fyrir umsækjendur skimunarpróf. Þá geta læknar sem þjónusta umsækjendur þar í landi komið á framfæri tillögum að breyttri og bættri þjónustu fyrir umsækjendur í viðkvæmri stöðu. Þá eru starfandi hópar innan CGRA sem aðstoða starfsfólk við að meta einstaklingsbundnar aðstæður og þjónustustörf umsækjenda um alþjóðlega vernd sem eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu, […]. Þessir hópar eru þjálfaðir í að meta aðstæður einstaklinga í viðkvæmri stöðu m.a. með viðtölum.

Í fyrrgreindum skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Belgíu kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á vasapeningum og húsaskjóli á vegum stjórnvalda en flestir umsækjendur dvelja í móttökumiðstöðvum eða íbúðum. Hafi umsækjandi fengið lokasynjun á umsókn sinni, og möguleikar hans til að kæra ákvörðunina eru fullnýttir, á hann rétt á húsnæði á vegum yfirvalda þar til frestur hans til að yfirgefa landið hefur runnið út en slíkur frestur er að jafnaði 0 til 30 dagar. Sé umsækjanda veitt vernd á hann rétt á að dvelja áfram í húsnæðisúrræði sínu í tvo mánuði á meðan hann finnur sér annað húsnæði. Þá kemur fram í skýrslu European Council on Refugees and Exiles frá mars 2019 að umsækjendum um alþjóðlega vernd er tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þeim að kostnaðarlausu, á meðan mál þeirra er til meðferðar. Í sumum tilvikum getur það þó verið vandkvæðum bundið fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd að nálgast téða heilbrigðisþjónustu, t.a.m. fyrir þá umsækjendur sem búa ekki í móttökumiðstöðvum. Þá gætu umsækjendur þurft að leggja út fyrir lækniskostnaði. Í framangreindum gögnum kemur fram að rekin séu úrræði, m.a. miðstöðvar á vegum stjórnvalda, fyrir andlega veika umsækjendu um alþjóðlega vernd en þar séu gjarnan langir biðlistar sem takmarki oft á tíðum aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd að þeim.

Af framangreindum gögnum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Belgíu má jafnframt ráða að umsóknir einhverra umsækjenda sem eru endursendir til Belgíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar séu skoðaðar sem viðbótarumsóknir. Í þeim tilfellum þegar CGRA hefur ákveðið að taka viðbótarumsókn til skoðunar er umsækjendum veitt húsnæði, mataraðstoð og vasapeningar. Þeir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem settir eru í varðhald við komu til Belgíu eiga rétt á lögfræðiaðstoð án endurgjalds og eiga jafnframt rétt á því að skjóta ákvörðun um varðhaldsvist til dómstóla.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstólinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Belgíu er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Belgíu, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar. Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst. Kærunefnd telur að aðstæður hans séu ekki þess eðlis að þær teljist sérstakar í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt viðmið í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður hans að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Þá benda framangreind gögn til þess að kærandi komi til með að hafa fullnægjandi aðgang að heilbrigðisþjónustu í Belgíu.

Þá telur kærunefnd að framangreind gögn beri ekki með sér að […] sé mismunað á kerfisbundinn hátt í Belgíu […]. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda enn fremur til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 25. febrúar 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 18. febrúar 2019.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands þann 18. febrúar 2019 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Belgíu eigi síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa belgísk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Belgíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin. 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Anna Tryggvadóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta