Hoppa yfir valmynd

Nr. 322/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 9. ágúst 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 322/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18050056

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 29. maí 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. maí 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Þýskalands.

Kærandi gerir kröfu um að umsókn hans um alþjóðlega vernd verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi á grundvelli 1.-3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 7. desember 2017. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann sama dag kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Þýskalandi. Þann 5. janúar 2018 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 10. janúar 2018 barst svar frá þýskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 7. maí 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Þýskalands. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 15. maí 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 29. maí 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 7. júní 2018 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Þýskalands. Flutningur kæranda til Þýskalands fæli ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Þýskalands, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæra frestaði réttaráhrifum, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi orðið fyrir miklu og tíðu ofbeldi sem áhrif hafi á líkamlega og andlega heilsu hans. Ofbeldið megi m.a. rekja til þátttöku hans í [...] en hann hafi verið barinn af einstaklingum í andstæðum stjórnmálaflokki og lögreglunni í heimaríki. Kærandi kveði sig m.a. hafa orðið fyrir áverkum á hrygg vegna barsmíðanna. Kærandi hafi jafnframt verið frelsissviptur í heimaríki. Kærandi hafi flúið til [...] en þar hafi hann einnig verið frelsissviptur í tíu daga og beittur ofbeldi, auk þess sem hann og fjölskylda hans hafi verið krafin um lausnargjald.

Kærandi gerir athugasemd við að verða sendur aftur til Þýskalands. Hann hafi fengið synjun þar á umsókn sinni um alþjóðlega vernd og hafi átt í ýmsum erfiðleikum þar. Við meðferð máls hans þar í landi hafi túlkur hans sýnt endurtekna hlutdrægni og túlkun í viðtali við hann verið alröng. Þá hafi kærandi verið í vinnu í 24 daga í Þýskalandi en þegar hann hafi farið fram á greiðslu fyrir vinnuna hafi honum verið hótað.

Í greinargerð kæranda er fjallað um aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd og málsmeðferð í Þýskalandi og í því sambandi vísar kærandi til fjölda skýrslna og gagna, þ. á m. skýrslu Asylum Information Database (AIDA) um Þýskaland og skýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International, sem báðar voru gefnar út í mars 2018. Þar komi m.a. fram að gríðarlegt álag hafi verið á hæliskerfinu í Þýskalandi. Til að flýta meðferð umsókna hafi þýsk stjórnvöld komið á fót sérstakri flýtimeðferð sem gagnrýnd hafi verið fyrir að tryggja ekki nægjanlega réttláta málsmeðferð umsókna. Þá njóti umsækjendur um alþjóðlega vernd takmarkaðrar lögfræðiaðstoðar meðan á umsóknarferli þeirra standi. Nýlegar lagabreytingar hafi víkkað heimildir þýskra stjórnvalda til að láta umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem fengið hafi synjun, sæta varðhaldsvist, auk þess sem þýsk stjórnvöld hafi fengið auknar eftirlitsheimildir með umsækjendum sem fengið hafi synjun, t.d. með rafrænu eftirliti.

Í greinargerð vísar kærandi til þess að taka skuli umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar á grundvelli þess að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málinu, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af lögskýringargögnum að baki ákvæðinu verði ráðið að vilji löggjafans hafi staðið til þess að víkka verulega út gildissvið ákvæðisins frá eldri lögum og sé það í samræmi við meginreglu laga um útlendinga að allar umsóknir um alþjóðlega vernd skuli teknar til efnismeðferðar. Af úrskurðum kærunefndar útlendingamála leiði jafnframt að ef umsækjandi um alþjóðlega vernd muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki, annað hvort vegna einstaklingsbundinna aðstæðna sinna eða vegna almennra aðstæðna í viðtökuríki, beri stjórnvöldum að líta svo á að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málinu og það skuli því almennt taka til efnismeðferðar. Enn fremur bendir kærandi á að verulega skorti á að reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð nr. 540/2017, eigi sér lagastoð og því beri að líta framhjá ákvæðum hennar er varði mat á sérstökum ástæðum í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá geri kærandi alvarlega athugasemd við að hjúkrunarfræðingur á Göngudeild sóttvarna komi í veg fyrir að Útlendingastofnun uppfylli lagalega skyldu sína samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga þess efnis að stofnunin skuli tryggja, eins fljótt og kostur sé, að fram fari einstaklingsbundin greining á því hvort kærandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna komi fram að hjúkrunarfræðingur sjái ekki ástæðu til þess að senda kæranda til sálfræðings að svo stöddu. Í því ljósi hafi talsmaður kæranda óskað eftir því að kæranda yrði útvegaður tími hjá sálfræðingi og hafi sá tími farið fram þann 23. mars sl. Í komunótum úr þeim tíma komi fram að kærandi hafi orðið fyrir pyndingum og illri meðferð í heimaríki og í [...], og sé þjáður af bakverkjum sem rekja megi til þess. Kærandi geri athugasemd við að Útlendingastofnun hafi ekki metið kæranda í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Við mat á sérstaklega viðkvæmri stöðu kæranda sé mikilvægt að taka til greina frásagnir hans af þeim pyndingum og illri meðferð sem hann hafi verið beittur og þeim líkamlegu vandkvæðum sem hann hafi hlotið og hafi áhrif á heilsufar hans í dag. Kærandi geri athugasemd við að frásögn hans hafi ekki verið lögð til grundvallar við matið. Í ákvörðun Útlendingastofnunar sé þess látið ógetið að kærandi hafi leitað til sálfræðings þar sem hann hafi rætt andleg vandkvæði sín og fyrri reynslu.

Með vísan til andlegrar og líkamlegrar vanheilsu kæranda, bágborins aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi og fordæmalauss fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi telji kærandi að fyrir hendi séu slíkar sérstakar ástæður sem leggi skyldu á íslensk stjórnvöld að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Krafa kæranda sé jafnframt reist á því að ekki megi senda hann til Þýskalands vegna non-refoulement reglu þjóðaréttar, sem mælt sé fyrir um í 42. gr. laga um útlendinga. Fyrir liggi að kærandi hafi fengið lokasynjun í Þýskalandi og standi frammi fyrir flutningi til heimaríkis verði hann endursendur til Þýskalands, en hann eigi á hættu að verða fyrir frekari ofsóknum og ofbeldi af hálfu stjórnvalda í heimaríki.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að þýsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Þýskalands er byggt á því að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæður getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi var ekki metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans hjá Útlendingastofnun. Kærandi er einhleypur og barnlaus karlmaður á [...]. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun, dags. 27. febrúar og 2. mars 2018, kvaðst kærandi hafa orðið fyrir ítrekuðu ofbeldi í heimaríki og glími við afleiðingar þess, þ. á m. áverka á baki auk þess sem hann finni fyrir mikilli óttatilfinningu. Hann sé við góða andlega heilsu en hann fái höfuðverki og bakverki. Þá hafi hann glímt við útbrot á fæti og [...] sem hafi þó batnað með lyfjagjöf. Í gögnum sem kærandi hefur lagt fram við meðferð málsins kemur m.a. fram að kærandi hafi hitt sálfræðing í tvígang. Í samskiptaseðli sálfræðings, dags. 6. júní 2018, kemur m.a. fram að kærandi virðist ekki vera móttækilegur fyrir meðferð við kvíða að svo stöddu en skoða mætti möguleika á lyfjameðferð. Þá hafi kærandi glímt við ofnæmi og þursabit í Þýskalandi en hafi fengið lyf við því.

Af gögnum málsins, þ. á m. komunótum frá Göngudeild sóttvarna, verður ráðið að kærandi sé fórnarlamb ofbeldis og að hann glími við afleiðingar þess. Þá hafi hann glímt við útbrot og [...] sem hafi lagast með lyfjagjöf. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls hans hér á landi, enda fær kærunefnd ekki séð að aðstæður hans séu þess eðlis að hann hafi sérstakar þarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls hér eða að hann geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2017 Human Rights Report – Germany (United States Department of State, 20. apríl 2018),
  • Amnesty International Report 2017/18 – Germany (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, 31. mars 2018),
  • ECRI Report on Germany (European Commission against Racism and Intolerance, 25. febrúar 2014),
  • Freedom in the World 2018 – Germany (Freedom House, 2. febrúar 2018),
  • From host country to deportation country – latest asylum reform in Germany (European Council on Refugees and Exiles (ECRE), 26. maí 2017),
  • Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015),
  • Upplýsingar af heimasíðu þýsku útlendingastofnunarinnar (www.bamf.de) og
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018).

Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge) geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls. Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eða stjórnsýsludómstól eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd hjá útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Umsækjendur geta borið mál sitt undir þýska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður talið að þýsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð til handa umsækjendum um vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þýsk yfirvöld tryggja umsækjendum ekki lögfræðiaðstoð endurgjaldslaust við meðferð máls á fyrsta stjórnsýslustigi en frjáls félagasamtök veita almennt gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð á fyrsta stigi málsmeðferðar. Á kærustigi eiga umsækjendur kost á lögfræðiráðgjöf og fyrir dómstólum geta þeir sótt um aðstoð lögmanns á kostnað þýskra yfirvalda. Umsóknir eru metnar og þær samþykktar séu þær ekki álitnar bersýnilega tilhæfulausar. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá ekki endurgjaldslausa aðstoð lögfræðings við að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða við að bera synjun á viðbótarumsókn undir dómstóla. Þá benda gögnin til þess að úr málum umsækjenda um alþjóðlega vernd sé leyst á einstaklingsgrundvelli. Samkvæmt þýskum lögum eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á túlkaþjónustu í viðtali hjá þýsku útlendingastofnuninni og sér stofnunin um að útvega þá. Í ofangreindri skýrslu Asylum Information Database kemur fram að gagnrýnt hafi verið að sumir túlkarnir séu ekki nógu góðir og jafnvel þekkist dæmi þess að einhverjir túlkar hagræði sögum umsækjenda um alþjóðlega vernd. Á síðasta ári hafi þýska útlendingastofnunin hins vegar gert breytingar á þjálfun og menntun túlka auk þess sem sérstöku kvörtunarferli vegna túlkaþjónustunnar hafi verið komið á fót.

Þýskaland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi kemur fram að umsækjendum séu tryggð búsetuúrræði og mataraðstoð. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. lyfjum og geðheilbrigðisþjónustu.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins það með sér að í Þýskalandi sé almennt veitt fullnægjandi vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað. Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð þýskra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur þeirra sé ekki brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að umsækjendum sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli. Þá er Þýskaland bundið að þjóðarétti til að fylgja reglunni um að einstaklingum skuli ekki vísað brott þangað sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu (non-refoulement).

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Þýskalandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Þýskalands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Þá fær kærunefnd ekki séð að hann glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá verður ekki séð af gögnum málsins að fyrir hendi sé ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi má ráða að umsækjendur eigi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu fram að brottflutningi þeirra frá landinu. Telur kærunefnd því ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í landinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi hafi aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu þar í landi. Þá eru þýsk stjórnvöld bundin af tilskipunum Evrópusambandsins um móttöku og málsmeðferð umsækjanda um alþjóðlega vernd og benda gögn málsins eindregið til þess að meðferð máls kæranda verði og hafi verið í samræmi við lög. Þá hefur kærandi greint frá því að hann óttist aðila í Þýskalandi sem hafi hótað honum. Það er mat kærunefndar, m.t.t. þeirra upplýsinga sem fyrir liggja um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi, að þarlend yfirvöld séu í stakk búin til þess að veita umsækjendum fullnægjandi vernd gegn slíkum hótunum og að kærandi geti leitað til lögreglunnar og annarra yfirvalda vegna þeirra.

Kærunefnd hefur yfirfarið þau gögn sem kærandi lagði fram með kæru sinni, svo og skýrslur og upplýsingar um aðstæður í Þýskalandi. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 27. febrúar 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 7. desember 2017.

Í greinargerð kæranda er til stuðnings kröfu hans m.a. vísað til úrskurða kærunefndar nr. 550/2017 og 552/2017 frá 10. október 2017 og úrskurða nr. 583/2017 og 586/2017 frá 24. október sl., þar sem fallist var á kröfu kærenda, sem áður höfðu hlotið alþjóðlega vernd í Búlgaríu og Ungverjalandi, um að taka umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd byggði þá niðurstöðu sína á heildstæðu mati á aðstæðum þeirra og fyrirliggjandi gögnum um stöðu einstaklinga sem hlotið höfðu alþjóðlega vernd í Búlgaríu og Ungverjalandi. Kærandi bendir á að þó ekki sé hægt að jafna mál hans við ofangreinda úrskurði þá sé lögð áhersla á í úrskurðunum að framkvæmt sé ítarlegt einstaklingsbundið mat á því hvort viðkvæm staða kæranda leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki. Kærandi telji hins vegar að af lestri ákvörðunar í máli hans sé ekki að sjá að slíkt mat hafi verið framkvæmt af hálfu Útlendingastofnunar. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og rannsókn hennar auk allra gagna málsins. Kærunefnd telur hvorki tilefni til þess að gera athugasemdir við rannsókn málsins né rökstuðning ákvörðunar, sem ber að mati nefndarinnar með sér að Útlendingastofnun hafi með fullnægjandi hætti aflað upplýsinga um aðstæður í Þýskalandi og einstaklingsbundnar aðstæður kæranda.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars 2018 voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Sem fyrr segir telur kærandi breytingarreglugerðina skorta lagastoð þar sem ákvæði hennar gangi gegn markmiði laga um útlendinga, sbr. einkum 4. mgr. 2. gr. laganna, og vísar kærandi jafnframt til sjónarmiða um rétthæð réttarheimilda. Þá kveður kærandi að kærunefnd hafi gert vægari kröfur um alvarleika við mat á því hvort heilsufar teljist til sérstakra ástæðna, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, og vísar í því sambandi til úrskurðar kærunefndar í máli nr. 410/2017 frá 11. júlí 2017.

Í 4. mgr. 2. gr. laga um útlendinga kemur fram að markmið laganna sé að tryggja mannúðlega og skilvirka meðferð stjórnvalda í málefnum útlendinga hér á landi. Að mati kærunefndar verður ekki talið að ákvæði breytingarreglugerðarinnar gangi gegn framangreindum markmiðum. Þá er það mat kærunefndar að gildistaka reglugerðarinnar hafi ekki falið í sér íþyngjandi breytingar á réttarstöðu kæranda.

Athugasemd kæranda við málsmeðferð Útlendingastofnunar

Í greinargerð sinni gerir kærandi athugasemd við að Útlendingastofnun hafi ekki metið sig í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Bendir kærandi á að beiðni hans um sálfræðitíma virðist ekki hafa skilað sér því í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 4. janúar 2018, komi fram sú afstaða hjúkrunarfræðings að ekki sé ástæða til að senda kæranda til sálfræðings að svo stöddu. Gerir kærandi alvarlega athugasemd við að hjúkrunarfræðingur komi í veg fyrir að Útlendingastofnun uppfylli lagalega skyldu sína samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, sem kveði á um að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli stofnunin tryggja, eins fljótt og kostur sé, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort kærandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laganna.

Kærunefnd tekur fram að í ákvæði 25. gr. laga um útlendinga felst skylda til að framkvæma einstaklingsbundið mat á umsækjendum um alþjóðlega vernd með það að markmiði að kanna hvort viðkomandi umsækjandi hafi persónulega eiginleika eða sérþarfir sem taka þarf tillit til við meðferð málsins eða vegna umræddra eiginleika eða sérþarfa geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga. Mat samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga er einstaklingsbundið og er miðað við þarfir viðkomandi. Þannig leiðir ekki af ákvæðinu að stjórnvöldum beri skylda til að gera nákvæma sálfræðilega greiningu á öllum umsækjendum um alþjóðlega vernd heldur verður slík greining að taka mið af þörf í hverju máli. Kærunefnd telur því ekki tilefni til að gera athugasemd við að hjúkrunarfræðingur, sem telja verður að sé sérfræðingur í skilningi 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, meti þörf á sálfræðimeðferð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Þá liggur jafnframt fyrir að kærandi hitti sálfræðing þann 23. mars sl., áður en Útlendingastofnun tók ákvörðun í málinu, og lágu þau gögn fyrir við meðferð málsins hjá stofnuninni. Þá var kærandi einnig spurður í viðtali hjá Útlendingastofnun frekar um ofbeldið sem kærandi kveðst hafa orðið fyrir í heimaríki og [...] og hvort það hefði haft afleiðingar á líkamlega eða andlega heilsu hans. Einnig var svokallað kvarðapróf lagt fyrir kæranda og í kjölfarið var kæranda bent á að hann gæti hitt sálfræðing og var kæranda jafnframt leiðbeint um mikilvægi þess að leggja fram upplýsingar um heilsufar hans til stofnunarinnar ef hann teldi að slíkar upplýsingar hefðu þýðingu í málinu. Þá hafi frásögn kæranda í megindráttum verið metin trúverðug hjá Útlendingastofnun.

Að mati kærunefndar gáfu fyrirliggjandi málsgögn ekki tilefni til að ætla að andlegt eða líkamlegt ástand kæranda væri slíkt að stofnuninni hafi borið að leiðbeina kæranda um framlagningu frekari gagna þar um við mat á hvort sérstakar ástæður væru fyrir hendi í máli kæranda, sbr. 2 mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Þá hefur kærunefnd endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands 7. desember 2017 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Þýskalands ekki síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Árni Helgason Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta