Mál nr. 422/2020 - Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 422/2020
Miðvikudaginn 20. janúar 2021
A
gegn
Tryggingastofnun ríkisins
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Anna Rut Kristjánsdóttir lögfræðingur.
Með rafrænni kæru, móttekinni 4. september 2020, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 25. ágúst 2020 um að samþykkja umsókn barnsmóður hans um milligöngu um meðlagsgreiðslur frá 1. júlí 2020.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með rafrænni umsókn, móttekinni 10. ágúst 2020, sótti barnsmóðir kæranda um milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur með dóttur þeirra frá 1. júlí 2020. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 25. ágúst 2020, var kæranda tilkynnt um milligöngu stofnunarinnar á meðlagsgreiðslum til barnsmóður hans frá 1. júlí 2020.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 4. september 2020. Með bréfi, dags. 8. september 2020, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 22. september 2020, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. september 2020. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Af kæru verður ráðið að kærandi geri kröfu um að ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um milligöngu meðlagsgreiðslna til barnsmóður hans verði felld úr gildi.
Í kæru kemur fram að samkvæmt munnlegu samkomulagi hafi verið ákveðið að gera ekki kröfu um meðlag því að allur kostnaður hafi átt að deilast niður. Kærandi sé með barnið til jafns við barnsmóður sína, með tilheyrandi uppihaldskostnaði. Þá sé ekki hægt að laga umgengni sem komi niður á vinnu kæranda.
III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins
Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kærð sé ákvörðun stofnunarinnar um að verða við beiðni barnsmóður kæranda um að hafa milligöngu um meðlag til hennar með dóttur þeirra frá 1. júlí 2020.
Tryggingastofnun hafi tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 25. ágúst 2020, að stofnunin hefði samþykkt að hafa milligöngu um greiðslu meðlags til barnsmóður kæranda frá 1. júlí 2020 með dóttur þeirra. Tryggingastofnun hafi borist umsókn barnsmóður kæranda þann 10. ágúst 2020 um meðlag frá 1. júlí 2020, en hjá Tryggingastofnun hafi legið fyrir staðfesting á samkomulagi um forsjá, lögheimili og meðlag frá Sýslumanninum á X, dags. X 2019, þar sem komi fram að kærandi skuli greiða meðlag með dóttur sinni frá 1. október 2019 til 18 ára aldurs hennar.
Kveðið sé á um það í 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skuli gilda þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.
Í 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar komi fram að Tryggingastofnun sé heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berist stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. ekki við.
Samkvæmt 67. gr. barnalaga sé Tryggingastofnun skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.
Hlutverk Tryggingastofnunar sé að hafa milligöngu um greiðslu meðlags þegar ákvörðun hafi verið tekin með lögmætum hætti. Ef foreldri leggi fram löggilda meðlagsákvörðun beri Tryggingastofnun samkvæmt 63. gr. laga um almannatryggingar og 67. gr. barnalaga að hafa milligöngu um greiðslu meðlags, allt að 12 mánuði aftur í tímann. Lög veiti Tryggingastofnun ekki heimild til að taka önnur gögn til greina en þau sem talin séu upp í framangreindum ákvæðum við milligöngu um greiðslu meðlags.
Hjá Tryggingastofnun liggi fyrir löggild meðlagsákvörðun, þ.e. staðfesting á samkomulagi um forsjá, lögheimili og meðlag, dags. 20. september 2019, sem kveði á um meðlagsgreiðslur frá kæranda til barnsmóður hans. Þá liggi fyrir umsókn barnsmóður kæranda um meðlag.
Með vísan til ofangreinds beri Tryggingastofnun skylda til að hafa milligöngu um meðlag samkvæmt lögformlegri meðlagsákvörðun sé þess farið á leit við stofnunina, allt að 12 mánuði aftur í tímann. Tryggingastofnun hafi engar heimildir til að virða að vettugi lögbundna skyldu sína til að greiða meðlag samkvæmt hinni lögformlegu meðlagsákvörðun. Tryggingastofnun hafi því borið að hafa milligöngu um meðlag til barnsmóður kæranda frá 1. júlí 2020 eins og hún hafi óskað eftir og hafi ekki heimild til að taka til greina það sem kærandi taki fram í kæru sinni.
Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi margsinnis í úrskurðum sínum staðfest þetta hlutverk Tryggingastofnunar og að ekki sé heimilt að horfa til annarra atriða við ákvörðun um milligöngu meðlagsgreiðslna. Í því samhengi skipti ekki máli hvort barn hafi jafna búsetu hjá báðum foreldrum sínum eða hvort greiðsla meðlags hafi farið fram fyrir það tímabil sem Tryggingastofnun hafi samþykkt milligöngu meðlags. Þá hafi nefndin sagt að ekki sé heimilt að setja viðbótarskilyrði í reglugerð sem takmarki lögbundinn rétt meðlagsmóttakanda til milligöngu meðlagsgreiðslna frá stofnuninni, eins og til dæmis að gefa greiðanda kost á að sýna fram á að meðlag hafi verið greitt fyrir sama tímabil. Meðal úrskurða nefndarinnar varðandi þessi atriði megi nefna úrskurði nr. 312/2017, 333/2018, 17/2019, 215/2019, 407/2019, 408/2019 og 59/2020.
IV. Niðurstaða
Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 25. ágúst 2020 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá 1. júlí 2020.
Kveðið er á um greiðsluskyldu Tryggingastofnunar ríkisins í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þar segir að Tryggingastofnun ríkisins sé skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.
Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni, sem hann hefur á framfæri sínu, snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags og annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skuli gilda þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.
Samkvæmt framangreindu ber Tryggingastofnun ríkisins að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur, berist beiðni þar um frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar. Fyrir liggur að barnsmóðir kæranda, sem er meðlagsmóttakandi, sótti um milligöngu Tryggingastofnunar um meðlagsgreiðslur með dóttur þeirra með rafrænni umsókn þann 10. ágúst 2020 frá 1. júlí 2020 til 18 ára aldurs hennar. Stofnunin samþykkti umsóknina á grundvelli staðfestingar Sýslumannsins á X á samkomulagi foreldra um forsjá, lögheimili og meðlag, dags. 20. september 2019. Samkvæmt samkomulaginu ber kæranda að greiða barnsmóður sinni meðlag til 18 ára aldurs barnsins.
Hlutverk Tryggingastofnunar í tengslum við meðlagsgreiðslur markast af ákvæðum viðeigandi laga. Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar er stofnuninni falið að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur, sé þess farið á leit við stofnunina í þeim tilvikum þar sem lögformleg meðlagsákvörðun liggur fyrir. Í lögunum er hvergi að finna heimild Tryggingastofnunar, eða eftir atvikum úrskurðarnefndarinnar, til að líta til þess við framangreinda ákvörðun hvort barn búi til jafns hjá kæranda og barnsmóður.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 25. ágúst 2020 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá 1. júlí 2020.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 25. ágúst 2020 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður A, frá 1. júlí 2020, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Rakel Þorsteinsdóttir