Hoppa yfir valmynd

Nr. 219/2018 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 8. maí 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 219/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18030026

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 19. mars 2018 kærði […], fd. […], ríkisborgari Írans (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. febrúar 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Ítalíu.

Þess er krafist aðallega að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga.

Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 17. september 2017. Þar sem kærandi hafði fengið útgefna vegabréfsáritun af ítölskum stjórnvöldum, með gildistíma frá 8. september til 6. október 2017, var þann 19. október 2017 beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 2. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 19. desember 2017 barst svar frá ítölskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 26. febrúar 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Ítalíu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 6. mars 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 19. mars 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda, ásamt fylgigögnum, barst kærunefnd 28. mars 2018.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Ítalíu. Flutningur kæranda til Ítalíu fæli ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Ítalíu, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæra frestaði réttaráhrifum, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi fengið vegabréfsáritun frá ítölskum stjórnvöldum, dags. 13. ágúst 2017, með gildistímann 8. september til 6. október 2017. Kærandi kveðst mótmæla endursendingu til Ítalíu. Kærandi hafi sótt um alþjóðlega vernd á Ítalíu árið 2000 og verið veitt staða flóttamanns en hann hafi þurft að snúa aftur til heimaríkis í lok árs 2008. Kærandi greinir frá því að yfirvöld í heimaríki hafi gert húsleit á heimili hans og fundið bækur sem gefi til kynna að hann hafi snúist til kristni og handtökuskipun gefin út á hendur honum í kjölfarið. Kærandi kveðst hafa tekið þátt í mótmælum í heimaríki árið 2009 og hann hafi verið beittur harkalegu ofbeldi af öryggisvörðum á svæðinu. Kærandi hafi verið handtekinn nokkrum mánuðum seinna og komið fyrir í varðhaldi í tæpan mánuð. Á meðan varðhaldinu hafi staðið hafi kæranda verið nauðgað ítrekað, hann beittur ofbeldi og honum hótað. Kærandi kveðst hafa glímt við andleg veikindi síðustu ár í kjölfar varðhaldsins.

Kærandi greinir frá því að honum hafi verið veitt alþjóðleg vernd á Ítalíu og dvalarleyfi þar í landi á þeim grundvelli árið 2000. Dvalarleyfi kæranda á Ítalíu hafi hins vegar runnið út þann 17. júní 2013 og því njóti hann ekki lengur alþjóðlegrar verndar á Ítalíu. Kærandi bendi því á að hann komi til með að þurfa að sækja um vernd að nýju í ljósi þess tíma sem liðinn sé frá því að dvalarleyfi hans hafi runnið út og þá sérstaklega með tilliti til þess að hann hafi dvalið utan Ítalíu umræddan tíma. Kærandi gerir einnig athugasemd við mat Útlendingastofnunar á stöðu hans á Ítalíu en hann telji ekki lengur vera forsendur til þess að líta svo á að hann njóti alþjóðlegrar verndar þar í landi líkt og stofnunin geri ráð fyrir í hinni kærðu ákvörðun.

Kærandi gerir grein fyrir aðstæðum og réttindum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu í greinargerð sinni, m.a. með vísan til alþjóðlegra skýrslna. Þar komi meðal annars fram að ítölsk yfirvöld hafi takmarkað rétt umsækjenda um alþjóðlega vernd til að kæra neikvæðar ákvarðanir á fyrri málsstigum. Einnig hafi aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd að heilbrigðisþjónustu verið takmarkað. Aðstæður þeirra sem fái pláss í móttökumiðstöðvum séu ekki góðar enda séu þær yfirfullar og aðgangur að aðstoð lögfræðinga mjög takmarkaður. Auk þess hafi kynþáttahatur og mismunun á grundvelli kynþáttar farið vaxandi á Ítalíu. Af niðurstöðu nýafstaðinna þingkosninga þar í landi sé ljóst að málflutningur gegn flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd hafi hlotið brautargengi meðal ítölsku þjóðarinnar. Allar líkur séu á því að sú stjórn sem taka muni við stjórnartaumum landsins muni ganga harkalega fram með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Þá vísar kærandi til greinargerðar innanríkisráðuneytisins frá desember 2015 um endursendingar hælisleitenda til Ítalíu.

Til stuðnings kröfu sinni um efnismeðferð vísar kærandi m.a. til lögskýringargagna að baki 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og túlkunar kærunefndar útlendingamála í því sambandi, en auk þess vísar kærandi til aðstæðna og réttinda umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu. Kærandi kveðst hafa glímt við andleg veikindi síðustu ár í kjölfar varðhalds. Kærandi hafi fengið lyf í heimaríki frá geðlækni og hitt sálfræðing í viðtalsmeðferð. Þunglyndið hafi varið í um eitt og hálft ár en þá hafi honum farið að líða betur og hafi hann tekið upp kristna trú. Kærandi finni þó enn fyrir andlegum erfiðleikum, hann eigi erfitt með svefn og hugsi til fjölskyldu sinnar og heitins föður síns. Framangreindu til stuðnings vísar kærandi til framlagðra komunóta frá Göngudeild sóttvarna en þar komi m.a. fram að kærandi sé haldinn kvíða og taki geðdeyfðarlyf. Þá hefur kærandi lagt fram skírnarvottorð þar sem fram komi að hann hafi verið skírður til kristni í Breiðholtskirkju þann 19. nóvember sl. Kærandi telji að þó svo að Útlendingastofnun hafi ekki metið hann sem einstakling í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga þá beri stjórnvöldum að framkvæma heildstætt mat á einstaklingsbundnum aðstæðum hans á Ítalíu og þess sem hans bíði við komuna þangað.

Þá vísar kærandi, kröfu sinni til stuðnings, til 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr., laga um útlendinga sem kveði á um bann við brottvísun eða endursendingu einstaklinga til ríkja þar sem líf þeirra eða frelsi kunni að vera í hættu. Telur kærandi ótækt með vísan til þessarar reglu að endursenda hann til Ítalíu.

Í umfjöllun um varakröfu gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á andlegri heilsu hans en hann telji að frásögn hans af grófu ofbeldi í heimaríki bendi til þess að afla hefði átt frekari upplýsinga um andlega heilsu hans og ástæða hafi verið til þess að leggja skimunarlista fyrir hann í lok viðtals hjá stofnuninni. Kærandi byggir á því að sem fórnarlamb grófs ofbeldis teljist hann einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem geri endursendingu hans til Ítalíu enn þungbærari.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að ítölsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Ítalíu er byggt á því að kærandi hafi fengið útgefna vegabréfsáritun frá ítölskum stjórnvöldum. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæður getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi var ekki metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans hjá Útlendingastofnun. Kærandi á fjölskyldu í heimaríki en er einn hér á landi. Hann kveðst hafa orðið fyrir alvarlegu ofbeldi í heimaríki árið 2009, þ.m.t . kynferðislegu ofbeldi. Andleg veikindi hafi hrjáð kæranda í kjölfar varðhaldsins og hafi hann fengið meðferð við þeim í heimaríki. Ástandið hafi varað í um eitt og hálft ár en líðan hans hafi svo að mestu leyti færst í sama far og áður. Kærandi hefur lagt fram komunótur frá Göngudeild sóttvarna, dags. frá 25. september 2017 til 21. mars 2018, þar sem kemur m.a. fram að hann hafi í tvígang hitt sálfræðing, hann sé með kvíðatengd einkenni, verk í baki, svefnvandamál og hafi fengið ávísað geðdeyfðarlyfi.

Af gögnum málsins að dæma er ljóst að kærandi er almennt heilsuhraustur en hann glímir við einkenni kvíða. Nokkuð er liðið frá því andlega og líkamlega ofbeldi sem kærandi varð fyrir í heimaríki og hefur hann fengið aðstoð og meðferð við að vinna úr afleiðingum ofbeldisins. Þrátt fyrir að kærandi glími enn við afleiðingar framangreindra atvika er hann ekki í virkri meðferð vegna þeirra. Það er mat kærunefndar að kærandi sé ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls hans hér á landi, enda fær kærunefnd ekki séð að heilsufar hans eða aðstæður hans að öðru leyti séu þess eðlis að hann hafi sérstakar þarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls hér eða að hann geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018),
  • 2017 Country Reports on Human Rights Practices – Italy (United States Department of State, 20. apríl 2018),
  • Amnesty International Report 2017/2018 – Italy (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2016 (European Asylum Support Office, 5. júlí 2017),
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, 21. mars 2018),
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017),
  • ECRI Report on Italy (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 7. júní 2016),
  • Freedom in the World 2018 – Italy (Freedom House, 11. apríl 2018),
  • Is mutual trust enough? – The situation of persons with special reception needs upon return to Italy (Danish Refugee Council, febrúar 2017),
  • OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (http://hatecrime.osce.org/italy),
  • Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, ágúst 2016),
  • Report of the Working Group of Experts on People of African Descent on its mission to Italy (United Nations Human Rights Council, 12. ágúst 2016),
  • Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (Elena, European legal network on asylum, október 2015),
  • Stjórnarskrá Ítalíu (aðgengileg á ensku á heimasíðu öldungadeildar ítalska þingsins, http://www.senato.it),
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014),
  • UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013) og
  • Vefsíða innanríkisráðuneytis Ítalíu (www.interno.gov.it).

Í framangreindum gögnum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru endursendir til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geta þeir lagt fram umsókn hjá lögreglunni (í. Questura) eða hjá landamæralögreglunni (í. Polizia di Frontiera), hafi þeir ekki áður lagt fram umsókn þar í landi.

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna meðal annars gagnrýnt skipulag og bolmagn hæliskerfisins til að taka við skyndilegu eða verulegu flæði flóttamanna til landsins. Þá hefur stofnunin einnig gert athugasemdir við brotakennd móttökuskilyrði og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna. Jafnframt hefur Flóttamannastofnun gagnrýnt að aðstoð við sérstaklega viðkvæma umsækjendur um alþjóðlega vernd sé oft ófullnægjandi vegna skorts á samhæfingu þjónustuaðila og eftirfylgni. Verður af framangreindu ráðið að ítölsk stjórnvöld hafa átt við margvíslegan vanda að etja í þessum málaflokki. Hins vegar hefur Flóttamannastofnun ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Fyrir liggur að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi sem falla undir ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar eru sendir til baka til meginlandsins með flugi. Í framangreindum gögnum kemur fram að á stærstu flugvöllum landsins, í Róm og Mílanó, eru frjáls félagasamtök til staðar sem veita umsækjendum um alþjóðlega vernd ráðgjöf og þjónustu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eiga almennt ekki rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð þegar þeir leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd en frjáls félagasamtök veita gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð í umsóknarferlinu. Þó geta umsækjendur lagt fram beiðni um gjafsókn (í. gratuito patrocinio) kjósi þeir að bera endanlega synjun á umsókn sinni undir dómstóla.

Ítalía er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þá er Ítalía jafnframt aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna (e. 1951 Convention Relating to the Status of Refugees) og mannréttindasáttmála Evrópu, en grundvallarreglan um bann við endursendingu einstaklinga til svæðis þar sem þeir hafi ástæðu til að óttast ofsóknir eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð er lögfest í þessum alþjóðasáttmálum.

Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á gistirými í móttökumiðstöðvum. Flestir fái úthlutað gistirými í CAS (í. Centro di accoglienza straordinaria) sem eru tímabundnar móttökumiðstöðvar en ella eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á gistiplássi í SPRAR (í. Sistema di protezione per richiedenti asilo e rifugiati) móttökumiðstöðvunum. Framboðið sé hins vegar takmarkað og ekki fái allir umsækjendur úthlutað gistirými í þessum stöðvum. Þá bjóða sveitarfélög, frjáls félagasamtök og trúfélög í Róm og Mílanó upp á gistiaðstöðu en þau séu einnig af skornum skammti. Ítölsk yfirvöld vinni að því í að byggja upp fleiri móttökumiðstöðvar í því skyni að mæta þessum vanda.

Á grundvelli framangreindra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér verður jafnframt ráðið að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu. Umsækjendur þurfa þó að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið en við slíka skráningu fá þeir útgefið tryggingakort (í. tessera sanitaria) sem veitir þeim m.a. rétt á meðferð sérfræðilækna.

Í framangreindum skýrslum kemur fram að ítalska lögreglan hafi fullnægjandi úrræði til þess að rannsaka þau mál sem leitað er til hennar með. Þó hafi verið gagnrýnt að saksókn mála taki í sumum tilfellum of langan tíma.

Samkvæmt dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er bann við meðferð sem fer gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu fortakslaust en meðferð verður þó að ná ákveðinni lágmarkskröfu um alvarleika til að teljast brot gegn 3. gr. sáttmálans, sem fyrr segir. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur lagt til grundvallar að sú staðreynd ein og sér að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki sáttmálans sé ekki fullnægjandi til að uppfylla grundvallarkröfu um alvarleika sem 3. gr. sáttmálans geri kröfu um, þ.e. þar sem ekki sé um að ræða sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður sem mæli gegn flutningi, sbr. ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013. Um endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar vísar kærunefnd jafnframt til dóms Hæstaréttar frá 1. október 2015 í máli nr. 114/2015.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns á Ítalíu bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Þá fær nefndin ekki séð að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá verður ekki séð af gögnum málsins að fyrir hendi sé ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a. reglugerðar um útlendinga. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu má ráða að umsækjendur eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu. Þá geti kærandi leitað sér sálfræðiaðstoðar vegna andlegrar heilsu sinnar á Ítalíu. Er það mat kærunefndar að kærandi komi til með að hafa aðgengi að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi. Þá er það mat kærunefndar að kærandi njóti raunhæfra réttarúrræða gagnvart málsmeðferð ítalskra stjórnvalda.

Fyrir liggur að kærandi á að baki alllanga dvöl á Ítalíu. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.  Vegna umfjöllunar í greinargerð kæranda um greinargerð innanríkisráðuneytisins frá í desember 2015 um endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu tekur kærunefnd fram að í greinargerðinni kemur fram sambærileg afstaða til aðstæðna á Ítalíu og hér hefur verið lýst, þ.e.a.s. að gögn málsins bendi ekki til þess að ágallar á aðbúnaði og móttökuskilyrðum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu verði ekki taldir slíkir að þeir gefi ástæðu til að ætla að synjun efnismeðferðar umsókna þeirra muni almennt vera í andstöðu við alþjóðlegar skuldbindingar íslenskra stjórnvalda. Þá liggur fyrir að kærunefnd hefur ekki metið kæranda í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Fær nefndin því ekki séð að afstaða til endursendinga til Ítalíu, sem fram kemur í umræddri greinargerð, hafi þýðingu fyrir úrlausn málsins.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 29. janúar 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 17. september 2017.

Reglur stjórnsýsluréttar

Líkt og fram hefur komið gerir kærandi athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Telur kærandi að afla hefði átt frekari upplýsinga um andlega heilsu hans og ástæða hafi verið til þess að leggja skimunarlista fyrir hann í lok viðtals hjá Útlendingastofnun. Þá gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á stöðu hans á Ítalíu.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og rannsókn hennar auk allra gagna málsins. Kærunefnd telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 17. september 2017 en ekki liggur fyrir hvenær hann kom til landsins. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Ítalíu ekki síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa ítölsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Ítalíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

 

Anna Tryggvadóttir

 

 

Ívar Örn Ívarsson                                                                                            Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta