Mannanafnanefnd, úrskurður 8. maí 2009
FUNDARGERÐ
Ár 2009, föstudaginn 8. maí, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, Ágústa Þorbergsdóttir og Veturliði G. Óskarsson. Neðangreint mál var tekið fyrir:
1. Mál nr. 34/2009 Eiginnafn: Keran (kk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Keran (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Kerans, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Keran (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.