Hoppa yfir valmynd

Nr. 382/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 8. ágúst 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 382/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19050031

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 14. maí 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. maí 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi hefur ekki sett fram kröfur í málinu en af framkominni kæru má ætla að kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi kveðst fyrst hafa komið hingað til lands í október 2016. Með bréfi Útlendingastofnunar til kæranda, dags. 22. maí 2018 og birt var honum þann sama dag, var kæranda tilkynnt um hugsanlega brottvísun og endurkomubann vegna ólögmætrar dvalar hér á landi. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. júní 2018, var kæranda vísað brott frá landinu og honum ákveðið endurkomubann til tveggja ára. Ákvörðunin var kærð til kærunefndar útlendingamála þann 21. júní 2018. Með úrskurði nr. 368/2018 frá 18. september 2018 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 27. desember 2018. Þar sem kærandi hafði verið með dvalarleyfi í Portúgal var þann 10. janúar 2019 beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Portúgal, sbr. 2. mgr. 13. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá portúgölskum yfirvöldum, dags. 20. febrúar 2019, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 10. maí 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 14. maí 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann sama dag til kærunefndar útlendingamála. Kærandi lagði ekki fram greinargerð í málinu en þann 29. maí 2019 barst kærunefnd tölvupóstur frá kæranda varðandi málsástæður hans.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að portúgölsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Portúgals ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Portúgals.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi hefur ekki lagt fram greinargerð í málinu. Kærunefnd barst hins vegar tölvupóstur frá kæranda þann 29. maí sl. þar sem hann gerir nokkrar athugasemdir varðandi umsókn sína um alþjóðlega vernd hér á landi. Þá óski kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði snúið við.Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi ekki vera við góða líkamlega eða andlega heilsu. Jafnframt sagði kærandi frá því að hann hefði [...]. Þá greindi kærandi frá aðstæðum sínum í Portúgal en þar hafi hann dvalið í rúmlega tvö ár. Hann óttist að verða handtekinn af starfsfólki sendiráðs heimalands hans í Portúgal, verði hann sendur þangað.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Portúgals á umsókn kæranda er byggð á 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi verið handhafi dvalarskjals sem hafi runnið út á síðustu tveimur árum fyrir dagsetningu umsóknar um alþjóðlega vernd, sbr. 2. mgr. 7. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en í málinu liggur fyrir dvalarleyfisskírteini kæranda með gildistíma til 5. apríl 2017. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja portúgölsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára gamall einhleypur karlmaður. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi m.a. hafa glímt við […]. Hvað líkamlega heilsu sína varðar kvað kærandi sig glíma við […]. Kærandi kvað sig hafa leitað til læknis hér á landi en engum heilsufarsgögnum er til að dreifa í máli kæranda. Þá greindi kærandi jafnframt frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi orðið fyrir [...].

Það er mat kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður í Portúgal

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Portúgal, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 Country Reports on Human Rights Practices – Portugal (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Asylum Information Database, Country Report: Portugal (European Council on Refugees and Exiles, 24. apríl 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Portugal (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • ECRI Report on Portugal (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 2. október 2018);
  • Freedom in the World 2018 – Portugal (Freedom House, 28. maí 2018);
  • Freedom in the World 2019 – Portugal (Freedom House, 4. febrúar 2019);
  • National report submitted in accordance with paragraph 5 of the annex to Human Rights Council resolution 16/21 – Portugal (United Nations General Assembly. Human Rights Council, Working Group on the Universal Periodic Review, 4. mars 2019);
  • Stjórnarskrá lýðveldisins Portúgal (aðgengileg á vefsíðu portúgalska þingsins, www.en.parlamento.pt/Parliament/index.html);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu. og
  • Upplýsingar af heimasíðu flóttamannaráðs Portúgal (p. Conselho Português para os Refugiados) (www.cpr.pt).

Í skýrslu Asylum Information Database kemur m.a. fram að portúgalska útlendingastofnunin (p. Serviço de Estrangeiros e Fronteiras) og eftir atvikum innanríkisráðuneyti Portúgals (p. Secretaria de Estado da Administração Interna) taki ákvarðanir varðandi umsóknir um alþjóðlega vernd í Portúgal. Sé umsókn synjað eiga umsækjendur þess kost að bera synjunina undir stjórnsýsludómstóla (p. Tribunal Administrativo de Círculo de Lisboa eða Tribunais Administrativos e Fiscais) og er þá hægt að áfrýja niðurstöðu þeirra til æðri stjórnsýsludómstóla (p. Tribunais Centrais Administrativos eða Supremo Tribunal Administrativo) í samræmi við gildandi reglur. Þá geta umsækjendur lagt fram viðbótarumsókn séu nýjar ástæður eða breyttar aðstæður fyrir hendi í málum þeirra. Portúgal er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir 2013/32/ESB og 2013/33/ESB vegna málsmeðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Portúgal er jafnframt aðildarríki Evrópuráðsins og hefur fullgilt mannréttindasáttmála Evrópu. Eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Sé umsókn metin tæk til meðferðar skal almennt taka ákvörðun um umsókn um alþjóðlega vernd á fyrsta stjórnsýslustigi innan sex mánaða samkvæmt portúgölskum lögum. Allir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sæta hefðbundinni málsmeðferð í Portúgal eiga rétt á viðtali á fyrsta stjórnsýslustigi á sínu móðurmáli eða öðru máli sem umsækjandinn skilur og njóta þeir túlkaþjónustu við málsmeðferðina. Samkvæmt Asylum Information Database hefur túlkaþjónusta við umsækjendur í viðtölum sætt gagnrýni, einkum þar sem oft á tíðum sé ekki um sérþjálfaða túlka að ræða auk þess sem erfitt hafi reynst að finna túlka á tilteknum sjaldgæfum tungumálum. Umsækjendur eiga jafnframt rétt á endurgjaldslausri lögfræðiaðstoð, bæði á fyrsta stjórnsýslustigi og á kærustigi. Þá bera framangreind gögn með sér að einstaklingar sem endursendir eru til Portúgals á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar hafi ekki átt í erfiðleikum með aðgang að hæliskerfi landsins á nýjan leik.

Í Portúgal eru móttökumiðstöðvar sem umsækjendur um alþjóðlega vernd geta fengið gistipláss í. Hins vegar er reyndin sú að flestir umsækjendur eru hýstir í leiguhúsnæði, á hóteli eða álíka stöðum. Umsækjendur fái þá mánaðarlegar greiðslur til þess að standa undir kaupum á nauðsynjum, s.s. vegna fatakaupa, fæðis og samgangna.

Í portúgölsku útlendingalögunum kemur fram að umsækjendum um alþjóðlega vernd þar í landi og fjölskyldum þeirra skuli tryggður fullnægjandi aðgangur að heilbrigðisþjónustu (p. Serviço Nacional de Saúde) og er það nánar útfært í reglum sem ráðherra setur. Þar kemur m.a. fram að réttur umsækjenda til heilbrigðisþjónustu gildir allt frá því að umsókn er lögð fram og þar til að lokaákvörðun hefur verið tekin í máli umsækjenda. Þá skulu umsækjendur eiga sama rétt til heilbrigðisþjónustu og portúgalskir ríkisborgarar en auk þess skal grunnheilbrigðisþjónusta, þ. á m. greiningar, lyf og önnur meðferð, vera þeim að kostnaðarlausu. Umsækjendur eiga þá jafnframt rétt á nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. Tungumálaerfiðleikar geti þó gert umsækjendum erfitt fyrir við að sækja sér viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

Í skýrslu Evrópunefndar gegn kynþáttahyggju og umburðarleysi (e. European Commission Against Racism and Intolerance) um Portúgal kemur m.a. fram að í portúgalskri löggjöf sé lagt bann við hatursglæpum og mismunun á grundvelli kynþáttar, sbr. einnig 13. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Portúgals. Á síðastliðnum árum hafa portúgölsk stjórnvöld gripið til ýmissa aðgerða, t.d. lagasetninga, í því skyni að vekja athygli á og koma í veg fyrir hvers kyns hatursorðræðu og mismunun. Í framangreindum gögnum kemur þá fram að löggæsluyfirvöld heyri undir ráðuneyti innanríkis- og dómsmála og að einstaklingar geti leitað til lögreglu óttist þeir að brotið sé á þeim. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að tilkynningar til lögreglu vegna afbrota geti verið hvort sem er munnlegar eða skriflegar. Þá eigi vitni rétt á lögfræðiaðstoð hafi þau ekki næg fjárráð og útlendingar eigi rétt á túlkaþjónustu tali þeir ekki portúgölsku. Eftir atvikum geta einstaklingar þá einnig leitað til umboðsmanns portúgalska þingsins (p. Provedor de Justiça) ef þeir telja að brotið hafi verið á þeim í samskiptum þeirra við stjórnvöld.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Portúgal er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Portúgal, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að viðmið sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga eigi við í málinu. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður hans að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Portúgal eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þar í landi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins þá ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af framangreindum gögnum verður þá jafnframt ráðið að óttist kærandi um öryggi sitt þar í landi geti hann leitað ásjár portúgalskra yfirvalda vegna þess.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 19. mars 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 27. desember 2018.

Frávísun

Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að vísa útlendingi frá landinu við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Í 5. mgr. 106. gr. laganna segir þó að heimilt sé að vísa útlendingi frá landinu eftir reglum 1. mgr. þótt sjö sólarhringa fresturinn sé liðinn, en þó verði meðferð máls að hefjast innan níu mánaða frá komu hans til landsins.

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 12. október 2016, en hann sótti um alþjóðlega vernd þann 27. desember 2018. Ljóst er því að meira en níu mánuðir hafi liðið frá því að kærandi kom til landsins og þar til að meðferð umsóknar hans um alþjóðlega vernd hófst. Verður því framangreindu ákvæði laga um útlendinga um frávísun við komu til landsins ekki beitt í tilfelli kæranda. Verður þessi þáttur ákvörðunar Útlendingastofnunar því felldur úr gildi.

Sem áður segir hefur kæranda áður verið brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára með úrskurði kærunefndar þann 18. september 2018. Þeirri ákvörðun hefur ekki verið hnekkt.

Samantekt

Í máli þessu hafa portúgölsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Portúgals með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar um frávísun er felld úr gildi. Ákvörðun stofnunarinnar um synjun á efnismeðferð er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration regarding denial of entry is vacated. The Directorate’s decision on refusal to review the appellant’s application on the merits is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

Árni Helgason                                                                      Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta