Mál nr. 88/2019 Úrskurður 3. október 2019
Mál nr. 88/2019 Aðlögun kenninafns: Alexandersdóttir
Hinn 3. október 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 88/2019.
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 30. september 2019, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XXX um að eiginnafn föður, Alexandr, verði lagað að íslensku máli og að föðurkenning verði Alexandersdóttir.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Alexandersdóttir.