Mál nr. 36/2016 Úrskurður 6. maí 2016
Mál nr. 36/2016 Eiginnafn: Jötunn
Hinn 6. maí 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 36/2016 en erindið barst nefndinni 26. apríl:
Eiginnafnið Jötunn (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Jötuns, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanaöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Jötunn (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.