Mál nr. 37/2016 Úrskurður 6. maí 2016
Mál nr. 37/2016 Eiginnafn: Jóhanndína
Hinn 6. maí 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 37/2016 en erindið barst nefndinni 26. apríl:
Eiginnafnið Jóhanndína (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Jóhanndínu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Jóhanndína (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.