Mál nr. 38/2016 Úrskurður 6. maí 2016
Mál nr. 38/2016 Eiginnafn: Raknar
Hinn 6. maí 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 38/2016 en erindið barst nefndinni 26. apríl:
Eiginnafnið Raknar (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Raknars, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Raknar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.