Mál nr. 42/2016 Úrskurður 6. maí 2016
Mál nr. 42/2016 Eiginnafn: Yngveldur
Hinn 6. maí 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 42/2016 en erindið barst nefndinni 4. maí:
Eiginnafnið Yngveldur (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Yngveldar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Yngveldur (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.