Hoppa yfir valmynd

Nr. 303/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 13. júní 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 303/2019

í stjórnsýslumálum nr. KNU19040076 og KNU19040077

 

Kæra [...]

og [...]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 8. apríl 2019 kærðu [...], fd. [...], ríkisborgari Kólumbíu (hér eftir K) og [...], fd. [...], ríkisborgari Kólumbíu (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 19. mars 2019 um að synja kærendum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærendur krefjast þess aðallega að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og kærendum verði veitt staða flóttamanna með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og kærendum verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og kærendum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi þann 9. maí 2018. Kærendur komu í viðtal hjá Útlendingastofnun 30. og 31. janúar 2019 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 19. mars 2019, synjaði Útlendingastofnun kærendum um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Voru ofangreindar ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála þann 8. apríl 2019. Kærunefnd barst greinargerð kærenda þann 1. maí 2019.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að kærendur séu í hættu í heimaríki vegna hótana glæpahópa og vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi.

Niðurstaða Útlendingastofnunar var sú að kærendur séu ekki flóttamenn og þeim skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kærendum var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kærendum jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð kærenda kemur fram að M hafi starfað sem yfirmaður á plantekru í [...] og að aðdraganda flótta þeirra frá heimaríki megi rekja til þess að honum hafi farið að berast hótanir frá meðlimum glæpagengisins Clan del Golfo sem sé afsprengihópur FARC skæruliðasamtakanna. Meðlimir hópsins hafi beitt kærendur fjárkúgunum, hótunum og ofbeldi sem hafi leitt til þess að þau hafi neyðst til að flýja heimaríki sitt.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærendur lýst því að meðlimir glæpahópsins hafi fyrst komið að plantekrunni að spyrjast fyrir um M í mars 2017 en þá hafi M ekki verið við vinnu. Þremur mánuðum síðar, 18. júní s.á., hafi þeir snúið aftur, vopnaðir og einkennisklæddir með grímur fyrir andlitum og yfirheyrt M um tilhögun starfsins og launamál, hótað honum og beitt hann ofbeldi með spörkum. Í október s.á. hafi meðlimir hópsins komið í stærri hóp, skipað M að fara á hnén og beint byssu að höfði hans og krafist þess að hann greiddi þeim fimm milljónir pesóa vikulega. Þegar M hafi neitað hafi einn meðlimanna tekið hann hálstaki og undirstrikað kröfur þeirra. M hafi verið með tvær milljónir pesóa á sér, sem hann hafi átt að nota til efnakaupa fyrir plantekruna, og afhent þá upphæð. Þeir hafi reiðst og boðað komu sína viku seinna. Kærendur hafi í kjölfarið farið af heimili sínu og flakkað á milli vina og ættingja. Þau hafi ekki getað sofið af ótta.

M hafi lýst því að hann hafi fengið þær upplýsingar hjá starfsmanni sýslumanns að skýrslutökur færu fram í [...] og að biðlisti væri langur, enda væru margir í sambærilegri stöðu. M hafi ekki getað farið til [...] auk þess sem löggæsla í [...] væri ekki traust og að raunveruleg vernd yfirvalda væri ekki í boði. M hafi síðar séð fréttir frá Kólumbíu um að þrír starfsmenn hjá sýslumanninum í [...] hafi verið myrtir á hrottafenginn hátt og hafi einn hinna myrtu verið sá starfsmaður sem M hafi ráðfært sig við.

Þá hafi kærendur lýst því að 14. janúar 2018 hafi meðlimir hópsins komið að heimili þeirra þar sem K og aldraður faðir M hafi verið heima. Þeir hafi spurst fyrir um M og greint frá því að hann hafi svikið þá. Þeir hafi lagt heimilið í rúst og hótað að drepa M er þeir fyndu hann. Þá hafi þeir veist að K sem hafi verið ólétt og hótað að pynda og myrða hana og föður M. Kærendur hafi í kjölfarið farið í felur hjá frænku M en í kjölfarið ekki séð annan kost en að flýja heimaríki. Kærendur óttist umræddan glæpahóp en einnig lögregluyfirvöld sem séu spillt og vinni gjarnan með slíkum hópum. Umræddur glæpahópur hafi þegar haft í frammi hótanir gagnvart kærendum, þau viti allt um persónulegar aðstæður þeirra og séu á eftir þeim.

Kærendur fjalla í greinargerðinni um almennar aðstæður í Kólumbíu. Þar kemur m.a. fram að öryggisástand ríkisins sé mjög ótryggt og að ofbeldi tengt vopnuðum hópum og afsprengihópum FARC hafi aukist árið 2018 og sæti óbreyttir borgarar ofbeldi og kúgunum af þeirra hálfu. Kærendur vísa til alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings.

Aðalkrafa kærenda er reist á því að þau sæti ofsóknum af hálfu glæpahópsins Clan del Golfo í heimaríki sínu og að yfirgnæfandi líkur standi til þess að þau muni sæta áframhaldandi ofsóknum verði þeim gert að snúa aftur til Kólumbíu. Ofsóknirnar felist í alvarlegum hótunum, m.a. líflátshótunum, ofbeldi og fjárkúgunum. Vísað er til þess að Útlendingastofnun hafi fallist á að kærendur eigi á hættu ofsóknir í heimaríki vegna aðildar sinnar að tilteknum þjóðfélagshópi sem þolendur gengjatengdra glæpa og að þeim stafi ógn af glæpasamtökum þar. Stofnunin hafi hins vegar talið innri flótta kærenda bæði raunhæft og sanngjarnt úrræði fyrir þau. Kærendur gera kröfu um að þeim verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem ekki sé möguleiki á innri flutningi í heimaríki.

Hvað varði möguleika á flutning kærenda innanlands í heimaríki vísa kærendur til þess að við það mat skuli hafa til hliðsjónar leiðbeiningar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Í þeim komi m.a. fram að flutningur komi ekki til greina verði einstaklingurinn ennþá berskjaldaður fyrir ofsóknum á hinum nýja stað. Þá skuli skoða sögu einstaklings um þær ofsóknir sem hann hafi orðið fyrir og jafnframt hvort grundvallarmannréttindi séu virt í heimaríki. Þá skuli samkvæmt athugasemdum með 4. mgr. 37. gr. í frumvarpi sem varð að lögum um útlendinga nr. 80/2016 fara fram einstaklingsbundið mat á aðstæðum umsækjanda og þeim aðstæðum sem séu í heimaríki hans. Í þeim tilvikum þar sem stjórnvöld séu völd að ofsóknum skuli gengið út frá því að raunverulega vernd sé ekki að fá í neinum hluta landsins. Taka skuli tillit til ýmissa þátta við matið, s.s. fjölskylduaðstæðna, trúar, menningar og möguleika á vinnu og menntun. Vísa kærendur til þess að hópurinn sem ofsæki þau hafi ítök og völd um alla Kólumbíu. Ennfremur að ef komist er að þeirri niðurstöðu að yfirvöld geti ekki eða vilji ekki veita einstaklingi vernd í einum hluta landsins þá megi almennt gera ráð fyrir að það sama gildi á öðrum svæðum innan landsins. Ljóst sé að starfsemi glæpahópsins sé látin viðgangast óátalin af yfirvöldum og opinberum starfsmönnum. Vísað er til þess að í hinum kærðu ákvörðunum sé ekki fjallað um eða rökstutt hvers vegna raunhæft sé, með tilliti til hættu á ofsóknum eða alvarlegum skaða, að M flytjist til Bógota eða Medellín. Þá sé ekki tiltekið í hinni kærðu ákvörðun K hvert hún geti flutt sig innan Kólumbíu og búið við öruggar aðstæður. Þá sé ljóst að glæpahópurinn Clan del Golfo sé einn sá stærsti og valdamesti í landinu og að völd hans nái um allt land og jafnvel utan landsteinanna. Kærendur telja að þeir séu því líklegri til að elta þau uppi verði þeim gert að snúa aftur til Kólumbíu. Hópurinn hafi viðveru í borgunum Medellín og Bógota sem Útlendingastofnun hafi ætlað að M gæti sest að í. Þá sé ljóst að spilling loði við lögregluyfirvöld um alla Kólumbíu og raunhæf vernd þar sé því ekki aðgengileg. Kærendur vísa til þess að þegar ofsóknir gegn þeim megi rekja til aðgerða sem séu látnar viðgangast óátaldar af yfirvöldum eða opinberum starfsmönnum sé innri flutningur almennt ekki talinn tækur. Þá komi fram í leiðbeiningarreglum Flóttamannastofnunar að ef yfirvöld hafi komist að þeirri niðurstöðu að heimaríkið geti ekki eða vilji ekki vernda einstakling í einum hluta landsins þá megi almennt gera ráð fyrir að það sama gildi á öðrum svæðum innan landsins. Kærendur telja að þau muni ekki njóta verndar yfirvalda við ofsóknum glæpahópsins á öðrum svæðum heimaríkis síns enda hafi yfirvöld hvorki vilja né getu til að vernda þau.

Þá er í greinargerð fjallað um hvort innri flutningur geti talist sanngjarnt úrræði og bent á að sálræn áhrif fyrri ofsókna hafi áhrif og nægi jafnvel til að koma í veg fyrir að kærendum verði gert að flytja til innan landsins. Ljóst sé að kærendur hafi nú þegar sætt alvarlegum ofsóknum af hálfu ofangreinds glæpahóps og óttist þau um líf sitt. Þá upplifi K sig sérstaklega berskjaldaða sem konu. Með vísan til framangreinds telja kærendur að krafa um innri flutninga sé hvorki raunhæf né sanngjörn fyrir þau.

Að lokum er í greinargerð gerðar ýmsar athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir. Í fyrsta lagi gera kærendur athugasemd við það að Útlendingastofnun vísi til heimilda um annað land, þ.e. Úkraínu, í umfjöllun um innri flótta innan heimaríkis þeirra og komi fram í niðurstöðum Útlendingastofnunar að m.a. hafi verið horft til félags- og efnahagslegra aðstæðna á því svæði sem stofnunin leggi til sem öruggt svæði. Kærandi vísar til þess að það sé ekkert svæði innan Kólumbíu sem metið sé sem öruggt svæði og það sé til marks um óvandaða stjórnsýsluhætti ef slík niðurstaða sé byggð á upplýsingum um aðstæður í öðru landi. Með tölvupósti, dags 26. apríl 2019, hafi umrædd heimildatilvísun verið fjarlægð en vísað til leiðbeiningareglna Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um Kólumbíu. Kærendur mótmæla því hins vegar að í leiðbeiningareglunum sé að finna jafn afdráttarlausa fullyrðingu og fram komi í ákvörðunum Útlendingastofnunar þ.e. að Flóttamannastofnunin hafi ekki lagst gegn endursendingum til Kólumbíu og að innri flutningur geti verið tækt úrræði þar í landi. Kærendur telja að í leiðbeiningarreglunum sé þvert á móti fjallað um að sumir skæruliða- og glæpahópar séu starfandi um landið allt og að innri flutningur sé því oft ekki mögulegur þeim sem standi frammi fyrir ofsóknum af þeirra hálfu.

Kærendur vísa til þess að fyrir liggi að Útlendingastofnun hafi fallist á að þau hafi sætt ofsóknum í heimaríki og hafi ástæðuríkan ótta við áframhaldandi ofsóknir þar. Kærendur telja að skorti verulega á rökstuðning stofnunarinnar í niðurstöðu hennar um möguleika fyrir innri flutning kærenda í heimaríki. Kærendur telja að stofnunin hafi ekki rannsakað þennan þátt málsins nægilega vel og þá skorti á rökstuðning fyrir niðurstöðunni og sé hún því í andstöðu við 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 10 gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Kærendur telja að ljóst sé að krafa um innri flutninga sé hvorki raunhæf né sanngjörn fyrir þau. Með því að senda kærendur til Kólumbíu sé brotið gegn meginreglunni um non-refoulement, sbr. 42. gr. laga um útlendinga og að auki myndi slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 2. og 3. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu (MSE), 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. Flóttamannsamnings Sameinuðu þjóðanna. Með hliðsjón af atvikum í máli beri að viðurkenna stöðu kærenda sem flóttamenn og veita þeim alþjóðlega vernd skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað kólumbískum vegabréfum. Telur kærunefndin því ljóst að kærendur séu kólumbískir ríkisborgarar.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Colombia 2018 Human Rights Report (US Department of State, 13. mars 2019);
  • Colombia 2017 Human Rights Report (US Department of State, 20. apríl 2018);
  • Colombia 2016 Human Rights Report (US Department of State, 3. mars 2017);
  • Freedom in the World 2018 – Colombia (Freedom House, 15. mars 2018);
  • World Report 2019 – Colombia (Human Rights Watch, 18. júní 2018);
  • UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum- Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
  • Amnesty Annual Report 2017/2018 (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Colombia suspends peace talks with ELN after bomb attack (Reutes, 29. janúar 2018);
  • Paramilitary successor groups and criminal bands (bandas criminales, BACRIM), areas of operation and criminal activities, including the Clan del Golfo (also known as Urabenos or Autodefensas Gaitanistas de Colombia; states response, including reintegration of, and assistant to combatants (May 2016-March 2017) (Canada: Immigration and Refugeees Board of Canada, 24. apríl 2017);
  • Colombia: Requirements and procedures to submit a complaint to the police, the Fiscalía General de la Nación, and the Defensoría del Pueblo, including types of complaints; standardization and appearance of documents; requirements and procedures to obtain af copy of the complaint and investigative report for each organization, both from within the country and from abroad (Canada: Immigration and Refugee Board of Canada, 3. maí 2017);
  • Colombia: State protection programs for victims and witnesses of crimes; requirements to access to the programs; statistics on the number of applications for relocation that are granted and refused; duration and effectiveness of these programs I2012-March 2016) (Canada: Immigration and Refugee Board of Canada, 6. apríl 2016);
  • Colombia: The National Liberation Army (Ejército de Liberación National -ELN), including number of combatants and areas of operations; activities, including ability to track victims; state response and protection available to victims (2016-April 2018) (Canada: Immigration and Refugee Board of Canada, 17. apríl 2018);
  • Colombia: The presence and activities of Los Rastrojos, including in Buenaventura; information on their relationship with the Gaitanist Self- Defense Forces of Colombia (Autodefensara Gaitanistas de Colombia, AGC) (also known as Gulf Clan (Clan del Golfo) or Úsuga Clan (Clan Úsuga), and formerly known as Los Urabenos); state response (2017 - April 2018) (Canada: Immigration and Refugee Board of Canada, 17. apríl 2018);
  • World Report 2019 - Events of 2018 (Human Rights Watch, janúar 2019);
  • Recycled Violence, Abuses by FARC dissident groups in Tumaco on Colombia’s Pacific Coast (Human Rights Watch, 13. desember 2018);
  • Colombia: The Revolutionary Armed Forces of Colombia (Furezas Armadas Revolucionarias de Colombia, FARC), including demobilization of former combatans; information on dissident groups, including number of combatants, areas of operation, activities and state response (2016- April 2018) (Canada: Immigration and Refugee Board of Canada, 18. apríl 2018);
  • The World Factbook: Colombia (CIA, skoðað 20. maí 2019);
  • Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group (ICG), 19. október 2017);
  • Foreign travel advice: Colombia (UK Foreign and Commonwealth Office, skoðað 20. maí 2019);
  • Colombia 2018 Crime and Safety Report-Bogotá (US Department of State, Bureau of Diplomatic Security, skoðað 20. maí 2010);
  • Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, 28. júní 2018) og
  • Annual Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (UN Human Rights Council, 2. mars 2018).

Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með um 48 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllist 79 % íbúa kaþólska trú. Þann 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987.

Af ofangreindum gögnum má sjá að algengustu mannréttindabrot í landinu séu morð framin í skjóli refsileysis, pyndingar, víðtæk spilling, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu, þvingaðar fóstureyðingar og ofbeldi gegn LGBTI einstaklingum. Glæpatíðni og morðtíðni í Kólumbíu sé há og glæpahópar af ýmsum stærðum og gerðum starfi víðsvegar um landið. Þeir stærstu kallist FARC (e. Revolutionary Armed Forces of Colombia – People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið í ágúst árið 2017, og hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk þann 1. september 2017 og tekið þátt í þingkosningum í mars 2018. Skæruliðahópurinn ELN, hafi haldið áfram að fremja ofbeldisglæpi en þann 4. september 2017 hafi verið samþykkt vopnahlé sem hafi gilt frá 1. október 2017 til 9 janúar 2018. Þá hafi borist fregnir af því að ELN hafi rofið samkomulagið á árinu og friðarviðræðum við samtökin hafi verið slitið af forseta landsins um óákveðinn tíma í ágúst 2018. Í heildina hafi ofbeldisglæpum fækkað og megi rekja það m.a. til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés við ELN. Ólöglegir vopnaðir hópar og fíkniefnasöluhópar starfi þó enn í landinu með u.þ.b. 2900 meðlimi. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins, frá apríl 2018, kemur fram að skæruliðahópar, aðallega ELN, hafi borið ábyrgð á 69 hryðjuverkaárásum á árinu 2017, á tímabilinu janúar til september. Þá hafi ELN og aðrir skipulagðir glæpahópar stundað mannrán og pyndingar. Í ársskýrslu Human Rights Watch frá 2019 kemur fram að ofbeldi tengt vopnuðum hópum og afsprengihópum FARC hafi aukist árið 2018 og að stjórnvöld hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru fleiri en 1400 talsins.

Í ofangreindum heimildum kemur fram að spilling ríki meðal stjórnmálamanna og innan lögreglunnar. Í skýrslu International Crisis Group (ICG) frá árinu 2017 kemur t.a.m. fram að áskoranir sem kólumbísk stjórnvöld standi frammi fyrir í tengslum við friðarumleitanir við meðlimi skæruliða- og glæpahópa, tengist ekki einvörðungu samskiptum og samningsviðræðum við þá, heldur þurfi að byggja upp traust og laga innviði í landinu til að bæta lífsgæði almennra borgara. Ljóst sé að vantrausts gæti hjá almenningi í garð yfirvalda í Kólumbíu. Á hinn bóginn hafi yfirvöld lagt mikið í að auka vernd þeirra sem hafi orðið fyrir barðinu á glæpahópum, m.a. með auknum fjármunum til embættis ríkissaksóknara, og hafi aðgerðir gegn mannréttindabrotum verið settar í forgang. Þrátt fyrir áratugalöng innri átök við glæpa- og fíkniefnahópa og viðvarandi öryggisvandamál sé Kólumbía með sterkar lýðræðislegar stofnanir sem einkennist af friðsælum og gagnsæjum kosningum og vernd borgaralegra réttinda.

Heimildir beri með sér að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þá hafi ýmis lög verið sett í því skyni að bæta réttarstöðu þolenda afbrota. Þó séu ákveðin svæði í Kólumbíu þar sem glæpahópar hafi mikil völd eða virk átök eigi sér stað á milli aðila og á þeim svæðum sé geta yfirvalda til að vernda borgara talin mjög takmörkuð. Heimildir benda til þess að á sumum svæðum, svo sem í Tumaco í Suður Kólumbíu hafi glæpahópar mikil völd og áhrif. Ástæður þess séu m.a. að löggæsluyfirvöld komist ekki inn á þessi tilteknu svæði, þau skorti getu og úrræði auk þess sem spillingar gæti hjá yfirvöldum á ákveðnum svæðum. Refsileysi innan öryggissveita ríkisins hafi verið vandamál í landinu. Yfirvöld hafi þó á undanförnum árum handtekið, ákært og sakfellt fjölda starfsmanna hins opinbera fyrir tengsl við glæpahópa og hafi slíkum sakfellingum fjölgað töluvert.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir: Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærendur bera fyrir sig að þeir verði fyrir ofsóknum og hótunum af hálfu meðlima glæpahópsins Clan del Golfo og að þau geti ekki fengið aðstoð frá lögregluyfirvöldum, vegna spillingar og tengsla yfirvalda við glæpahópa.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum kæranda var á því byggt að kærendur hefðu sætt ofsóknum sem fólust í áreiti og fjárkúgunum af hálfu meðlima umrædds glæpahóps í heimaríki þeirra. Af hálfu kærunefndar er ekki talin ástæða til annars en að leggja það til grundvallar við úrlausn málsins. Skýrslur og gögn um heimaríki kærenda benda til þess að slíkt áreiti og fjárkúganir viðgangist víða í Kólumbíu og að ítök glæpahópa séu á mörgum svæðum sterk og löggæsla veik. Þá benda skýrslur og önnur gögn til þess að ítök Clan del Golfo glæpahópsins séu sterk í bænum [...] sem er heimabær kærenda. Að mati kærunefndar eru aðstæður á heimasvæði kærenda slíkar að ekki verður talið að þau geti snúið aftur þangað án þess að eiga á hættu meðferð af hálfu glæpahópa sem fellur undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, og að yfirvöld í Kólumbíu geti ekki veitt kærendum vernd gegn þeim ofsóknum, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. sömu laga, á því svæði.

Mat á möguleika á flutningi innanlands

Í 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga segir að ef útlendingur getur fengið raunverulega vernd í öðrum landshluta heimalands síns en hann flúði frá, viðkomandi getur ferðast þangað á öruggan og löglegan hátt og hægt er með sanngirni að ætlast til þess af viðkomandi að hann setjist að á því svæði getur verið að 1. og 2. mgr. eigi ekki við í þeim tilvikum og hann teljist ekki flóttamaður. Niðurstaða um hvort útlendingur geti fengið raunverulega vernd í öðrum hluta heimalands skuli byggð á einstaklingsbundnu mati á persónulegum aðstæðum útlendingsins og þeim aðstæðum sem séu í því landi. Við mat á því hvort hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að útlendingur setjist að á því svæði sem talið er öruggt samkvæmt ákvæði þessu skuli tekið tillit til ýmissa þátta, svo sem aldurs, kyns, heilsu, fjölskylduaðstæðna, trúar, menningar sem og möguleika viðkomandi útlendings á vinnu eða menntun. Við mat samkvæmt ákvæðinu skuli m.a. höfð hliðsjón af leiðbeiningum flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Guidelines on International Protection: „Internal Flight or Relocation Alternative“ within the Context og Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relating to the Status of Refugees, frá 23. júlí 2003).

Í leiðbeiningunum, sem varða möguleika á flutningi innanlands þegar einstaklingur hefur flúið heimaríki af ástæðuríkum ótta við ofsóknir, er lagt til grundvallar að mat á því hvort möguleiki sé á að einstaklingur geti flust búferlum til annars svæðis í heimaríki sé tvíþætt. Annars vegar verði að kanna hvort flutningur innanlands sé raunhæft úrræði. Að því er mál kærenda varðar kemur í þessu sambandi einkum til athugunar hvort það svæði sem lagt er til að hann flytjist til sé aðgengilegt á öruggan og löglegan hátt og hvort flutningur þeirra þangað skapi hættu á að kærendur verði fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða. Hins vegar beri að kanna hvort viðkomandi geti, með hliðsjón af aðstæðum í heimaríki hans, lifað tiltölulega eðlilegu lífi án þess að standa frammi fyrir óþarfa erfiðleikum. Við þann þátt matsins verður m.a. að horfa til persónulegra aðstæðna viðkomandi, t.a.m. félags- og efnahagslegra aðstæðna á því svæði sem lagt er til. Í leiðbeiningunum segir m.a. um síðastnefnt atriði að það sé ósanngjarnt að ætlast til þess að lífsviðurværi einstaklings verði lægra en það sem talist geti viðunandi eða að viðkomandi búi við eymd.

Þrátt fyrir að gögn um aðstæður í Kólumbíu bendi til þess að glæpahópar séu áhrifamiklir á sumum svæðum í Kólumbíu, m.a. í heimahéraði kærenda, er það mat kærunefndar að gögnin sýni fram á að á öruggari svæðum, s.s. Bogotá, Medellín og Cali, geti kólumbísk yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi ríkisborgara sinna. Nokkrir alþjóðlegir flugvellir eru utan átakasvæða í landinu. Kærendur eru staddir hér á landi, eru handhafar kólumbískra vegabréfa og ekki verður annað séð en að öruggari svæði í Kólumbíu séu þeim aðgengileg á öruggan og löglegan hátt. Þá verður ekki talið að flutningur á önnur svæði en heimasvæði kærenda skapi þeim hættu á að þau verði fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða.

Kærunefnd telur að þegar litið er til möguleikans á innri flutning megi m.a. líta til umfjöllunar Flóttamannastofnunar um innri flutning í Kólumbíu, þar sem rakið er að líta verði til þess hversu miklar líkur séu á að viðkomandi verði eltur uppi af glæpahóp á nýja staðinn. Eins og fram hefur komið hafi ofsóknir og fjárkúganir glæpahópsins Clan del Golfo beinst að M vegna stöðu hans sem verkstjóra á kaffiplantekru í heimahéraði kærenda. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar um aðstæður í heimaríki kærenda tíðkast slíkar fjárkúgunaraðferðir sem kærendur hafa lýst í þó nokkrum mæli í Kólumbíu ásamt annarri skipulagðri glæpastarfsemi. Eins og fram hefur komið fellst kærunefnd á að litla vernd sé að fá í heimahéraði kærenda, [...], þar sem ítök hinna ýmsu glæpahópa eru sterk, m.a. Clan del Golfo og þá gæti töluverðrar spillingar innan lögreglu í héraðinu og öryggi borgara sé því ekki nægilega tryggt. Að mati kærunefndar hafa kærendur þó ekki sýnt fram á forsendur sem gætu gefið til kynna að umræddur glæpahópur kynni að elta þau uppi, snúi þau til baka og setjist að á öðrum stað í heimaríki. Þá bendi gögn til þess að átök í Kólumbíu séu að mestu staðbundin og að verði þau fyrir áreiti af hálfu meðlima glæpahópa annars staðar en á þeim svæðum sem ítök þeirra séu mikil geti kærendur leitað til lögreglu eftir aðstoð. Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að flutningur innanlands komi til álita í máli kærenda. Að uppfylltu fyrra skilyrði við mat á möguleika á flutningi innanlands verður því næst að taka afstöðu til þess hvort unnt sé, með hliðsjón af einstaklingsbundnum aðstæðum kærenda og aðstæðum í heimaríki þeirra, að ætlast með sanngirni til þess að kærendur setjist að á öðru svæði í Kólumbíu.

Kærendur eru ung hjón. Samkvæmt gögnum málsins eru þau við ágæta heilsu. Þau aðhyllast kaþólska trú líkt og meirihluti kólumbískra ríkisborgara. Allir landsmenn hafa aðgang að almannatrygginga- og velferðarkerfi auk þess sem íbúum landsins er tryggður aðgangur að heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt gögnum málsins hefur M lokið háskólanámi í [...] og þá stundar K háskólanám í heimaríki. Kærunefnd telur líkur standa til þess að þau hafi atvinnutækifæri í heimaríki og ættu ekki að eiga í erfiðleikum með að aðlagast á nýjum stað innan landsins. Er það mat kærunefndar að ekki hafi verið gert líklegt að staða kærenda sé önnur eða verri en annarra einstaklinga í sömu stöðu.

Er það mat kærunefndar að hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að kærendur setjist að annars staðar í Kólumbíu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að skilyrði 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um flutning innanlands séu uppfyllt og teljist kærendur því ekki flóttamenn. Samkvæmt framansögðu verður ákvörðun Útlendingastofnunar um þetta atriði staðfest.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærendur eigi möguleika á flutningi innanlands eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 4. mgr. 37. gr. og 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að erfiðar almennar aðstæður geta tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við náttúruhamfarir eða langvarandi stríðsástand í heimaríki. Langvarandi ófriðartástand hafi ríkt í heimaríki kærenda og halda kærendur því fram að yfirvöld í Kólumbíu geti ekki veitt þeim þá vernd sem þau þarfnist. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir og af fyrrgreindri niðurstöðu um möguleika kærenda á innri flutning þá er ljóst að þrátt fyrir að ótryggt ástand ríki á ákveðnum landsvæðum í heimaríki kærenda þá geti kærendur með sanngirni sest að á öðru svæði í heimaríki. Þá geti yfirvöld jafnframt veitt kærendum viðeigandi vernd.

Fjallað hefur verið um aðstæður kærenda í heimaríki en þau kveðast jafnframt í viðtali hjá Útlendingastofnun vera við góða andlega og líkamlega heilsu. Þegar upplýsingar um heimaríki kærenda og gögn málsins eru virt í heild, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kærenda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við málsmeðferð Útlendingastofnunar

Í greinargerð sinni gera kærendur athugasemdir við málsmeðferð og úrlausn Útlendingastofnunar í máli þeirra. Meðal annars hafi stofnunin vísað til heimilda um rangt ríki í umfjöllun um innri flutning auk þess sem skort hafi á rökstuðning við umfjöllun um mat á innri flutningi í máli kærenda.

Kærunefnd hefur yfirfarið þau öll gögn málsins, svo og skýrslur opinberra stofnana, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Það er mat kærunefndar að ekkert hafi komið fram í málinu sem bendir til þess að skort hafi á að nauðsynlegar upplýsingar lægju fyrir um aðstæður utan heimahéraðs kærenda í heimaríki þeirra við ákvörðunartöku hjá Útlendingastofnun. Það er því mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda þangað.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærendur komu hingað til lands 18. mars 2018 og sótti um alþjóðlega vernd 9. maí 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn þeirra um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun. Kærendur eru við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Athygli kærenda er vakin á því að ef þau yfirgefa ekki landið innan frests er heimilt að brottvísa þeim. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda.Athygli er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda eru staðfestar. Lagt er fyrir kærendur að hverfa af landi brott. Kærendum er veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljug.

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellants and are affirmed. The appellants are requested to leave the country. The appellants have 15 days to leave the country voluntarily.

 

Anna Tryggvadóttir

 

Gunnar Páll Baldvinsson                                                  Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta