Hoppa yfir valmynd

Nr. 189/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 28. maí 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 189/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20020058

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 27. febrúar 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Hvíta-Rússlands (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. febrúar 2020, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga. Þess er krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt staða flóttamanns með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 9. júní 2019. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 10. október 2019 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 13. febrúar 2020, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 27. febrúar 2020. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 12. mars 2020. Þann 20. apríl s.á. bárust kærunefnd viðbótargögn frá kæranda.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna stjórnmálskoðana sinna.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann sé fæddur og uppalinn í Minsk í Hvíta-Rússlandi. Kærandi hafi flúið heimaríki sitt þar sem hann hafi þurft að sæta ofsóknum af hendi lögreglu og stjórnvalda þar í landi þar sem hann sé meðlimur að stjórnarandstöðuflokknum Belarus National Front (BNF), sem sé illa liðinn af stjórnvöldum. Kærandi hafi tekið virkan þátt í flokknum og hlutverk hans hafi m.a. verið að miðla upplýsingum til almennra borgara á mótmælum. Umræddar ofsóknir hafi m.a. falist í hótunum sem kæranda hafi borist frá lögreglu og handtöku án ástæðu. Þá hafi verið ómögulegt fyrir kæranda að fá endurútgefið vegabréf eða önnur gögn sem séu nauðsynleg til að fá atvinnu. Í eitt skipti þegar kærandi hafi verið handtekinn og haldið í varðhaldi í tvo sólarhringa hafi lögreglumenn tjáð honum að hann myndi sæta varanlegri fangelsisvist yfirgæfi hann ekki landið. Kvaðst kærandi hafa verið handtekinn þar sem hann byggi yfir leynilegum upplýsingum um spillingu stjórnvalda. Vegna framangreinds óttist kærandi yfirvöld og lögreglu í heimaríki, um líf sitt og mögulega fangelsisvist en að sögn kæranda komi einstaklingar oftast út úr fangelsum landsins sem öryrkjar. Þá sé fjölskylda kæranda í hættu vegna málsins.

Í greinargerð kæranda er gert grein fyrir aðstæðum í heimaríki hans. Þar segir að Hvíta-Rússland sé einræðisríki þar sem aðeins einu sinni hafi verið haldnar frjálsar kosningar en það hafi verið 1994 þegar núverandi forseti hafi verið kjörinn til valda. Síðan þá hafi forsetinn fært vald sitt út til allra stofnana ríkisins og grafið undan réttarríkinu með einræðistilburðum, m.a. kosningasvikum. Kærandi kveði mannréttindabrot tíðkast í heimaríki sínu, s.s. pyndingar, gerræðislegar handtökur og varðhaldsvistanir, takmarkanir á tjáningar-, fjölmiðla- og netfrelsi ásamt glæpavæðingu ýmissa ummæla í garð opinberra starfsmanna. Enn fremur starfi stjórnvöld í skjóli refsileysis auk þess sem spilling sé alvarlegt vandamál í landinu sem birtist m.a. í mútuþægni og valdníðslu. Þá virði stjórnvöld ekki sjálfstæði dómstóla þrátt fyrir ákvæði í stjórnarskrá landsins þar um. Einstaklingar séu sakfelldir á röngum og pólitískum grundvelli ásamt því að réttur einstaklinga til réttlátrar málsmeðferðar sé oft á tíðum ekki virtur. Þó að lög landsins banni afskipti af fólki notist yfirvöld við hleranir, myndbandseftirlit og uppljóstrara sem brjóti á rétti fólks til friðhelgi einkalífs og heimilis. Enn fremur haldi yfirvöld gagnagrunn yfir einstaklinga sem megi ekki ferðast erlendis en það eigi sérstaklega við um einstaklinga sem taldir séu búa yfir vitneskju um ríkisleyndarmál. Þá gerir kærandi grein fyrir aðstæðum einstaklinga í haldi yfirvalda og fangelsum. Einstaklingar verði fyrir barsmíðum við handtöku og í haldi löggæslu- og öryggisstofnana. Jafnframt séu einstaklingar látnir sæta refsikenndri vistun á geðheilbrigðisstofnunum, m.a. til að kveða niður raddir aðgerðasinna og stjórnarandstöðumeðlima. Fyrrum fangar lifi við takmarkanir á borgaralegum og stjórnmálalegum réttindum. Aðstæður í fangelsum séu slæmar og skapi í mörgum tilvikum hættu gagnvart heilsu og lífi fanga, m.a. vegna skorts á mat, lyfjum og hreinu drykkjarvatni. Þá þrífist ýmsir smitsjúkdómar í fangelsum landsins vegna ófullnægjandi aðgangs að heilbrigðisþjónustu. Kærandi kveður pólitíska fanga ekki njóta lagalegra réttinda sinna og séu beittir óhóflegum refsingum fyrir minniháttar brot auk þess sem aðrir fangar séu í einhverjum tilvikum fengnir til að ógna fyrrnefnda hópnum og knýja fram játningu frá þeim. Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hafi einnig lýst yfir áhyggjum vegna yfirfullra fangelsa, sjálfsvíga og andláta í varðhöldum vegna skorts á fullnægjandi heilbrigðisþjónustu.

Aðalkröfu sína byggir kærandi á því að hann sé flóttamaður skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og eigi því rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi á grundvelli 1. mgr. 40. gr. sömu laga. Vísar kærandi einnig til 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga sem kveði á um að ofsóknir teljist vera athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær séu endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, s.s. réttinum til lífs og banni við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Í því sambandi fjallar kærandi um e-lið 3. mgr. 38. gr. en þar komi fram að með stjórnmálaskoðunum skv. 1. mgr. 37. gr. sé átt við skoðanir á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hafi aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Telji kærandi ljóst að þær aðgerðir sem hann hafi mátt þola af hálfu yfirvalda í heimaríki, þ. á m. ítrekaðar ofsóknir og áreiti lögreglu og yfirvalda, feli í sér ofsóknir í skilningi 1. og 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Framburður kæranda og tilvísaðar heimildir beri það með sér að kærandi hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki vegna stjórnmálaskoðana sinna og uppfylli þar með skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Þá telji kærandi flutning til annars landshluta í heimalandi sínu en hann flúði frá og þar sem hann geti fengið raunverulega vernd, sbr. 4. mgr. 37. gr. laganna, hvorki vera raunhæfan né sanngjarnan enda óttist kærandi ofsóknir af hálfu ríkisins, sbr. a-liður 4. mgr. 38. gr.

Varakröfu sína um að kæranda skuli veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga byggir kærandi á því að hann eigi yfir höfði sér fangelsisrefsingu verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Aðstæður í fangelsum landsins séu afar slæmar og oft lífshættulegar og færa megi rök fyrir því að vistun þar ein og sér feli í sér brot gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Endursending kæranda myndi einnig þýða að brotið yrði gegn meginreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Þrautavarakröfu sína byggir kærandi á því að honum skuli veitt dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, þar sem hann sé þolandi viðvarandi mannréttindabrota í heimaríki sem yfirvöld verndi hann ekki gegn. Þá vísar kærandi, líkt og að ofan er rakið, til yfirvofandi fangelsisvistar sem hann eigi yfir höfði sér og aðstæðna í fangelsum landsins. Vegna þessa muni kærandi standa frammi fyrir afar erfiðum félagslegum aðstæðum verði honum gert að snúa aftur sem uppfylli skilyrði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram neitt sem væri til þess fallið að sanna á honum deili og yrði því leyst úr auðkenni hans á grundvelli trúverðugleikamats. Það var mat Útlendingastofnunar að engin ástæða væri til að draga í efa að hann sé ríkisborgari Hvíta-Rússlands. Kærunefnd telur ekkert hafa komið fram í málinu sem gefur tilefni til að draga í efa þjóðerni kæranda og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé ríkisborgari Hvíta-Rússlands.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Hvíta-Rússlandi m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum: 

  • 2019 Country Reports on Human Rights Practises - Belarus (U.S. Department of State, 11. mars 2020);
  • 2018 Country Reports on Human Rights Practices – Belarus (U.S. Department of State, 13. mars 2019);
  • Nations in Transit 2018 – Belarus (Freedom House, 11. apríl 2018);
  • Freedom in the World 2019 – Belarus (Freedom House, 4. febrúar 2019);
  • Freedom in the World 2020 – Belarus (Freedom House, 4. mars 2020);
  • Hviterussland: Forhold for regimekritikere (Land Info, 25. apríl 2014);
  • Mänskliga rättigheter, demokrati och rättsstatens principer i Vitryssland 2015-2016 (Utrikesdepartementet, 26. apríl 2017);
  • Social Security Programs Throughout The World: Europe 2018 (Social Security. Office of Retirement and Disability Policy, sótt 21. apríl 2020);
  • The World Factbook (Central Intelligence Agency, uppfært 13. mars 2020);
  • World Report 2020 – Belarus (Human Rights Watch, 14. janúar 2020);
  • Belarus 2019 Crime and Safety Report (OSAC, 28. febrúar 2019);
  • Belarus: The treatment of members of the Belarusian Popular Front (BPF) and the availability of state protection for them (2001-2005) (Immigration and Refugee Board of Canada, 28. nóvember 2005);
  • Report of the Special Rapporteur on the situation of human rights in Belarus (UN Human Rights Council, 21. apríl 2017) og
  • Report of the Special Rapporteur on the situation of human rights in Belarus (UN Human Rights Council, 8. maí 2019).

Lýðveldið Hvíta-Rússland er ríki með um níu og hálfa milljón íbúa. Ríkið gerðist aðili að Sameinuðu þjóðunum árið 1945. Hvíta-Rússland gerðist aðili að sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna 2001, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi 1968 og samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu 1985.

Samkvæmt ofangreindum gögnum hefur Alexander Lukashenko gegnt embætti forseta Hvíta-Rússlands síðan árið 1994. Í gögnunum kemur fram að stjórnskipan landsins feli forseta völd yfir ríkisstjórn, dómskerfi og löggjafarvaldi. Þá séu forsetatilskipanir æðri lögum landsins. Löggjöf í tengslum við framkvæmd kosninga í Hvíta-Rússlandi uppfylli ekki alþjóðlegar lýðræðislegar kröfur og hafi framkvæmd kosninga margsinnis sætt gagnrýni alþjóðasamfélagsins. Talsverð spilling sé innan löggæslu- og réttarkerfisins þar sem stjórnarskrárvarin réttindi séu ekki ávallt virt í framkvæmd. Samkvæmt gögnunum starfi stjórnvöld í skjóli refsileysis og einstaklingar á vegum þeirra, sem gerist sekir um mannréttindabrot, ekki sóttir til saka vegna brotanna. Sjálfstæði dómstóla sé takmarkað og að stjórnvöld hafi oft áhrif á meðferð mála sem varða pólitíska eða efnahagslega hagsmuni. Einstaklingar hafi t.a.m. verið sakfelldir á grundvelli rangra og pólitískra sakargifta að undirlagi stjórnvalda. Tjáningarfrelsi séu settar skorður í landinu, en helstu fjölmiðlar landsins lúti stjórn yfirvalda og sjálfstæðir fjölmiðlar ritskoði fréttaefni til að forðast þrýsting frá yfirvöldum.

Af ofangreindum gögnum má ráða að yfirvöld í Hvíta-Rússlandi hindri starfsemi stjórnarandstöðuflokka og aðgerðarsinna með ýmsum hætti. Dæmi séu um að stjórnarandstöðuflokkar fái ekki lagalega stöðu í landinu þar sem stjórnvöld neiti þeim um opinbera skráningu. Þá hafi stjórnvöld reglulega komið í veg fyrir að stjórnarandstöðuflokkar nýti rétt sinn til að skipuleggja pólitísk framboð, m.a. með því að gera þeim erfitt fyrir að afla sér atkvæða og koma skoðunum sínum opinberlega á framfæri. Stjórnarandstöðuflokkurinn The Belarus Popular Front (BPF) hafi verið stofnaður árið 1988 og hafi verið einn stærsti stjórnarandstöðuflokkur landsins á tíunda áratug 19. aldar. Árið 1998 hafi flokkurinn skipst í tvær fylkingar, þ. á m. BPF sem þekkist einnig sem BNF. Heimildir beri með sér að leiðtogar og aðgerðarsinnar BPF hafi mátt þola áreiti af hálfu stjórnvalda í Hvíta-Rússlandi. Í því sambandi hafi ýmsir leiðtogar hreyfingarinnar og aðgerðarsinnar verið handteknir og dæmdir í fangelsi fyrir skipulagningu og þátttöku í mótmælum.

Framangreindar skýrslur frá bandaríska utanríkisráðuneytinu, Freedom House og Sameinuðu þjóðunum gefa til kynna að stjórnvöld hafi afskipti af fólki sem mótmæli stjórnvöldum eða gagnrýni þau. Í gögnunum kemur fram að fyrri hluta árs 2017 hafi fjöldi fólks safnast saman í höfuðborg landsins til mótmæla og að rúmlega hundrað mótmælendur hafi verið dæmdir til að sæta varðhaldi vegna þátttöku sinnar í mótmælunum. Þá hafi nær allir leiðtogar stjórnarandstöðunnar verið færðir í varðhald og sektaðir. Aðgerðir stjórnvalda til að draga úr mótmælunum hafi einkum beinst gegn mótmælendum en pólitískir aðgerðarsinnar hafi einnig verið færðir í varðhald og sektaðir. Í gögnunum segir að aðgerðarsinnar, sem séu andvígir stjórnvöldum, séu stöku sinnum færðir í langt varðhald á landamærum Hvíta-Rússlands meðan leitað sé á þeim og í eigum þeirra. Samkvæmt gögnunum hafi löggæsluyfirvöld víðtækar heimildir til að grípa til líkamlegrar valdbeitingar gegn einstaklingum sem grunaðir eru um refsiverðan verknað og að öryggissveitir landsins beiti fólk ítrekað órétti við yfirheyrslur. Framangreind gögn benda til þess að aðstæður í fangelsum landsins séu bágar og að skortur sé á mat, lyfjum og svefnplássum. Hreinlæti sé ábótavant og þá sé takmakaður aðgangur að heilbrigðisaðstoð. Þá hafi fangar sætt illri meðferð af hálfu fangelsisyfirvalda.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun og greinargerð hans fyrir kærunefnd er umsókn kæranda um alþjóðlega vernd byggð á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir stjórnvalda í heimaríki þar sem hann sé meðlimur stjórnarandstöðuflokksins BNF. Kærandi hafi gengið í flokkinn árið 2008 og starfað í þágu hans í um tíu ár. Á því tímabili hafi kærandi m.a. tekið þátt í mótmælum og miðlað upplýsingum um flokkinn til almennra borgara. Hann hafi ítrekað verið handtekinn án ástæðu í heimaríki auk þess sem húsleitir hafi verið framkvæmdar á heimili hans. Í eitt skipti þegar kærandi hafi verið handtekinn hafi hann þurft að sæta varðhaldi í tvo sólarhringa þar sem lögreglumenn hafi gert honum grein fyrir því að ef hann myndi ekki yfirgefa landið yrði honum gert að sæta varanlegri fangelsisvist. Ástæðuna kvað kærandi vera þá að hann búi yfir leynilegum upplýsingum um spillingu stjórnvalda sem yfirvöld reyni að halda leyndum.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 10. október 2019 kvað kærandi að gögn til stuðnings framburði hans væru á leiðinni til landsins með pósti. Í greinargerð kæranda, dags. 12. mars sl., segir að svo virðist sem gögnin hafi glatast á leiðinni. Við meðferð málsins hjá kærunefnd var kæranda veittur frestur til að koma að gögnum til stuðnings frásögn sinni. Lagði kærandi einungis fram ljósmyndir af umslagi fyrir kærunefnd þann 20. apríl sl. Að sögn kæranda sendi frændi hans umslagið hingað til lands 4. apríl sl. og á umslagið m.a. að geyma gögn sem sýna fram á að kærandi sé meðlimur stjórnarandstöðuflokksins BNF og ofsóknir sem hann hafi þurft að sæta af hálfu lögreglu í heimaríki. Umrædd gögn hafa ekki borist kærunefnd. Kærandi hefur engin önnur gögn lagt fram máli sínu til stuðnings þrátt fyrir leiðbeiningar Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála þar um. Í ljósi frásagnar kæranda sjálfs um að ætlaðar ofsóknir hafi hafist fyrir rúmum áratug er að mati kærunefndar ekki ósanngjarnt að gera kröfu um að kærandi leggi fram einhver gögn sem leiði að því líkur að hann eigi á hættu ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í heimaríki, s.s. gögn um aðild hans að BNF flokknum og störf í þágu hans. Í málinu liggja þannig hvorki fyrir gögn sem renna stoðum undir þá frásögn kæranda að hann hafi tekið þátt í starfi stjórnmálaflokksins BNF né gögn um að lögregla hafi haft afskipti af honum.

Þá gætir ákveðins ósamræmis í frásögn kæranda í viðtölum hans hjá Útlendingastofnun. Í viðtali þann 11. júní 2019 kvaðst kærandi hvorki hafa verið handtekinn né hafa verið hnepptur í varðhald í heimaríki. Í viðtali þann 10. október 2019 kvaðst kærandi hins vegar hafa verið handtekinn oftar en einu sinni auk þess sem hann hafi í eitt skiptið þurft að sæta varðhaldi í tvo sólarhringa þar sem hann hafi verið yfirheyrður tvisvar á dag. Þegar kærandi var spurður um ástæður flótta í viðtali við Útlendingastofnun þann 11. júní 2019 minntist kærandi ekki heldur á handtökur en vísaði þess í stað til þess að stjórnvöld hefðu tekið af honum skjöl sem honum voru nauðsynleg til að vinna löglega í heimaríki. Er það mat kærunefndar að framangreind atriði dragi úr trúverðugleika frásagnar kæranda og þýðingu hennar sem sönnunargagns í málinu.

Við rannsókn Útlendingastofnunar á umsókn kæranda kom í ljós að kærandi hefur margsinnis sótt um alþjóðlega vernd í Evrópu. Í svari danskra, norskra og sænskra yfirvalda vegna fyrirspurnar í tengslum við hugsanlega ábyrgð þeirra á umsókn kæranda á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar kom m.a. fram að kærandi væri þekktur undir fjórum mismunandi nöfnum að meðtöldu því nafni sem hann hafi gefið upp hér á landi. Sú ósamkvæmni dregur verulega úr trúverðugleika frásagnar kæranda, enda hefur kærandi ekki lagt fram trúverðug skjöl sem sýna fram á hver hann sé. Þá hefur hann gefið upp mismunandi nöfn á eiginkonu sinni og skýringar kæranda á því misræmi standast ekki innbyrðis. Kærandi bar því einnig við að misræmið mætti að einhverju leyti rekja til ónákvæmni í skráningu upplýsinga hjá norskum yfirvöldum, en hann hafi ekki lesið yfir endurrit viðtals. Samkvæmt endurritinu var honum boðið að fá viðtalið lesið yfir á rússnesku en hann taldi ekki ástæðu til þess. Kærunefnd telur að þetta misræmi, ásamt þeim svörum sem hann gaf kærunefnd um ástæður mismunandi nafna, valda því, heildstætt metið, að frásögn hans sé ótrúverðug að mestu. Kærunefnd telur þó ekki ástæðu til að draga í efa að hann hafi einhver tengsl við BNF, en telur jafnframt að þau tengsl séu óljós.

Eins og fram hefur komið kvaðst kærandi hafa gengið í BNF árið 2008. Samkvæmt gögnum frá norskum yfirvöldum hefur hann, frá því að hann kvaðst hafa gengið í flokkinn, að miklu leyti dvalið í Svíþjóð, Danmörku, Noregi og Hollandi, að viðbættu einu ári hérlendis, vegna umsókna sinna um alþjóðlega vernd. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi fengið efnislega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Samkvæmt gögnum frá norskum stjórnvöldum var hann fluttur úr landi í desember 2018 en kærandi kom hingað til lands um hálfu ári síðar.

Kærunefnd fellst á að hátt settir eða vel þekktir meðlimir BNF, þeir sem taka þátt í mótmælum á vegum flokksins og pólitískir aðgerðasinnar sem eru á móti núverandi valdhöfum hafa átt erfitt uppdráttar í Hvíta-Rússlandi og hafa sætt áreiti af hálfu stjórnvalda sem í sumum tilvikum verður jafnað til ofsókna í skilningi laga um útlendinga. Þegar litið er til mats á trúverðugleika frásagnar kæranda og skorts á trúverðugum gögnum telur kærunefnd hins vegar að kærandi hafi ekki gert nægilega líklegt að þátttaka hans í starfi flokksins hafi verið þess eðlis eða á því stigi að hann eigi á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda eða annarra í heimaríki, í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, á grundvelli stjórnmálaskoðana. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi ástæðu til að óttast ofsóknir í heimaríki af öðrum ástæðum.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í greinargerð byggir kærandi á því að hann sé þolandi viðvarandi mannréttindabrota í heimaríki sem yfirvöld verndi hann ekki gegn. Beri þannig að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. vegna erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki hans. Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi einnig til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum.. Með vísan til niðurstöðu kærunefndar að framan verður ekki talið að aðstæður kæranda séu slíkar að veita beri honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Kærunefnd hefur jafnframt litið til þeirra tímabundnu erfiðleika sem heimaríki kæranda kann að þurfa að glíma við vegna Covid-19 faraldursins. Kærunefnd telur þá erfiðleika ekki vera þess eðlis að þeir leiði til þess, einir sér eða í samhengi við önnur gögn málsins, að heimilt sé veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 9. júní 2019. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu. Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga og þegar litið er til ferðatakmarkana vegna Covid-19 faraldursins teljast 30 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Athygli kæranda er vakin á því að ef hann yfirgefur ekki landið innan frests kann að vera heimilt að brottvísa honum. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Kærunefnd bendir á að með reglugerð nr. 460/2020, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, setti ráðherra bráðabirgðaákvæði sem kveður á um að útlendingur sem dvaldi hér á landi fyrir 20. mars 2020 í samræmi við 8. gr. reglugerðarinnar og 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga, en hefur ekki komist til síns heima vegna ferðatakmarkana, sóttkvíar eða einangrunar er heimilt að dvelja hér á landi án dvalarleyfis eða vegabréfsáritunar til og með 1. júlí 2020. Í 2. mgr. ákvæðisins er þó vísað til þess að framangreint komi ekki í veg fyrir frávísun eða brottvísun þeirra sem voru í ólögmætri dvöl fyrir 20. mars 2020 eða frávísun eða brottvísun á öðrum grundvelli samkvæmt ákvæðum laga um útlendinga.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 30 days to leave the country voluntarily.

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                         Ívar Örn Ívarsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta