Hoppa yfir valmynd

Nr. 333/2018 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 26. júlí 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 333/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18050058

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 29. maí 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […],  og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. maí 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Ítalíu.

Þess er krafist að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. og 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga.

Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og málið sent til nýrrar meðferðar með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 8. desember 2015 og úrskurðaði kærunefnd útlendingamála í máli kæranda með úrskurði nr. 286/2016, dags. 30. ágúst 2016, þar sem ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. mars 2016, var staðfest. Kærandi óskaði eftir frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar þann 12. september 2016. Beiðni kæranda var synjað af kærunefnd þann 31. október 2016. Kærandi óskaði eftir endurupptöku máls síns hjá kærunefnd þann 27. apríl 2017. Beiðni kæranda var synjað þann 9. maí 2017. Kærandi óskaði á ný eftir endurupptöku máls síns hjá kærunefnd þann 23. júní 2017. Beiðni kæranda var synjað á ný þann 20. júlí 2017. Endursending kæranda til Ítalíu var framkvæmd af stoðdeild Ríkislögreglustjóra þann 12. júlí 2017.

Kærandi lagði fram í annað sinn umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 13. nóvember 2017. Kærandi mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 10. janúar 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 9. maí 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Ítalíu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 29. maí 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann sama dag til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 7. júní 2018.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun sinni komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd ekki til efnislegrar meðferðar með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í málinu lægi fyrir að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd á Ítalíu.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var komist að þeirri niðurstöðu að 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur aftur til Ítalíu. Útlendingastofnun mat aðstæður kæranda slíkar að hann væri í sérstaklega viðkvæmri stöðu skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Það var hins vegar mat stofnunarinnar, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, að sérstakar ástæður væru ekki til staðar í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Var umsókn kæranda um alþjóðlega vernd því synjað um efnismeðferð, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Þá frestaði kæra réttaráhrifum ákvörðunar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann mótmæli því að verða sendur til Ítalíu. Kærandi hafi greint frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að hann hafi ekki notið fæðis, húsaskjóls eða aðgangs að heilbrigðisþjónustu þar í landi. Hann hafi því þurft að reiða sig á aðstoð frá kirkjunni, verið allslaus á götunni og treyst á ölmusu. Kærandi hafi reynt að endurnýja dvalarleyfi sitt á Ítalíu en honum hafi verið synjað þar sem hann sé hvorki með skráð lögheimili né hafi atvinnu þar í landi. Kærandi kveðst þjást af taugaverkjum og hann fái höfuðverki sem hafi slæm áhrif á sig, m.a. hvað varði svefn. Kærandi hafi einnig greint frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að hann hafi verið í fjóra mánuði í haldi í fangelsi í Líbíu fyrir tíu árum síðan. Kæranda hafi verið misþyrmt daglega á meðan fangelsisvistinni hafi staðið og hann hafi nokkrum sinnum reynt að flýja sem hafi tekist á endanum. Kærandi kveðst fara í meðferð hjá sálfræðingi og að sú meðferð hjálpi til við að bæta líðan hans.

Í greinargerð kæranda er gerð grein fyrir ýmsum atriðum er varða aðstæður, aðbúnað og réttarstöðu þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu og er í því sambandi vísað til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka. Þar komi m.a. fram að álagið á ítalska hæliskerfið fari síst minnkandi, það haldi áfram að vera undir miklu álagi og ítölsk yfirvöld hafi gripið til harðra aðgerða á árinu 2017 til að stemma stigu við frekari komum flóttamanna til landsins, m.a. með tvíhliða samningum við Súdan, Túnis og Líbíu. Einstaklingar sem hlotið hafi alþjóðlega vernd á Ítalíu fái litla sem enga fjárhagslega eða félagslega aðstoð frá stjórnvöldum sem valdi því að margir flóttamenn séu heimilislausir. Þá hafi kynþáttahatur og mismunun á grundvelli kynþáttar farið vaxandi, og margt bendi til þess að viðhorf almennings hafi versnað til muna á síðustu árum. Af niðurstöðu nýlegra kosninga á Ítalíu sé ljóst að málflutningur gegn flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd hafi hlotið brautargengi og allar líkur séu á að sú stjórn sem taki við keflinu muni ganga harkalega fram í þeim málaflokki með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir þennan viðkvæma hóp fólks. Þá vísar kærandi til greinargerðar innanríkisráðuneytisins frá desember 2015 um endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu.

Kærandi bendir á í greinargerð sinni að einstaklingar sem hlotið hafi alþjóðlega vernd á Ítalíu séu viðkvæmur þjóðfélagshópur vegna stöðu sinnar, sérstaklega vegna aðstæðna sem nú séu uppi á Ítalíu. Löggjöf Evrópusambandsins, s.s. tilskipanir sambandsins nr. 2011/95/EB og 2013/33/EB, gildi einnig um einstaklinga með alþjóðlega vernd. Það sé því ljóst að þrátt fyrir að einstaklingur með viðurkennda stöðu njóti í orði kveðnu sambærilegra réttinda á við almenna borgara viðkomandi ríkis þá séu þeir einstaklingar í allt annarri og mun viðkvæmari stöðu, t.d. þar sem þeir tali ekki tungumálið og eigi mun erfiðara en almennir borgarar með að verða sér út um atvinnu. Þá hafi kærunefnd fallist á að staða einstaklinga sem hlotið hafi alþjóðlega vernd sé ekki í öllum tilvikum sambærileg stöðu ríkisborgara og meta verði stöðu þeirra sjálfstætt.

Kærandi byggir kröfu sína á því að taka skuli umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli þess að sérstakar ástæður standi til þess, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvæðið komi fram að einstaklingar sem séu í viðkvæmri stöðu falli undir ákvæðið. Þessi vilji löggjafans sé enn frekar staðfestur í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 81/2017, um breytingu á lögum um útlendinga, þar sem fram komi að ávallt skuli taka til efnislegrar meðferðar umsókn um alþjóðlega vernd ef umsækjandi er í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Jafnframt bendi kærandi á að reglugerð nr. 276/2018 frá 6. mars 2018 gildi ekki um mat sem rúmist innan a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og eigi því ekki við um mat á sérstökum ástæðum í máli kæranda. Þá hafi reglugerðin ekki tekið gildi þegar kærandi hafi lagt fram umsókn sína um alþjóðlega vernd. Vegna sjónarmiða um bann við afturvirkni íþyngjandi laga og reglna sé íslenskum stjórnvöldum því óheimilt að beita reglugerðinni í máli kæranda. Kærandi bendi á að óumdeilt sé að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga vegna andlegra og líkamlegra veikinda hans, en fallist hafi verið á það í ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi geri þó athugasemd við rannsókn stofnunarinnar í máli hans þar sem ekki hafi verið hlutast til um að fram fari sálfræðimat á ástandi hans í samræmi við skyldur stofnunarinnar skv. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi lagt fram læknisfræðileg gögn við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun og telji hann að íslensk stjórnvöld geti ekki, án álits sérfræðinga, afgreitt upplýsingar sem þar komi fram þannig að þær nægi ekki til að telja veikindi hans það alvarleg að þau nái því lágmarks alvarleikastigi að brotið sé gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu með endursendingu hans til Ítalíu.

Af hálfu kæranda er einnig byggt á því að ekki megi senda kæranda aftur til Ítalíu vegna non-refoulement reglu þjóðaréttar, sbr. 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Á grundvelli upplýsinga um aðstæður og aðbúnað einstaklinga sem hafi fengið vernd á Ítalíu verði að telja að aðstæður sem hann megi búast við séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í því sambandi vísar kærandi jafnframt til 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Til stuðnings varakröfu sinni vísar kærandi m.a. til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggi á því að hin kærða ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli ófullnægjandi upplýsinga.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í málinu hefur kæranda verið veitt viðbótarvernd á Ítalíu og hafði gilt dvalarleyfi þar í landi til 26. ágúst 2015. Kærandi nýtur samkvæmt framansögðu alþjóðlegrar verndar á Ítalíu og eru því skilyrði a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. 

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi einstakling sem nýtur alþjóðlegrar verndar aftur til ríkisins sem hefur veitt honum slíka vernd, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, þar sem kveðið er á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Verður kærunefnd því að leggja mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við ákvæði 3. gr. mannréttindasáttmálans. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar. Þá þarf að líta til stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Meta verði fyrirsjáanlegar afleiðingar af því að vísa einstaklingi til móttökuríkis í ljósi almennra aðstæðna í ríkinu og persónulegra aðstæðna viðkomandi einstaklings.

Greining á sérþörfum sbr. 25. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi var metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Samkvæmt gögnum málsins er kærandi einhleypur og barnlaus karlmaður á […]aldri. Í viðtölum við kæranda hjá Útlendingastofnun, dags. 10. janúar og 11. maí 2018, lýsti kærandi því að hann fengi stöðuga tauga- og höfuðverki en verkirnir væru afleiðing skotárásar sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki. Þá hafi kærandi verið í fjóra mánuði í fangelsi í Líbíu fyrir tíu árum síðan og hann hafi sætt þar miklu ofbeldi sem hafi haft í för með sér slæmar andlegar afleiðingar fyrir hann en hann glími við erfiðar endurminningar, svefntruflanir og hann tali við sjálfan sig. Kærandi hafi hitt sálfræðing í nokkur skipti, eftir að hafa komið aftur hingað til lands, sem hafi hjálpað honum. Í framlögðum komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. frá 16. desember 2015 til 25. apríl 2018, kemur m.a. fram að kærandi virðist vera með mikil þunglyndiseinkenni. Kærandi lýsi einkennum áfallastreituröskunar, að hann svæfi illa, fengi miklar martraðir og væri alltaf á verði. Jafnframt hafi kærandi lokið varnandi meðferð gegn berklaveiki í maí árið 2017 eftir að hafa greinst með leynda berklasýkingu.

Eins og áður segir var kærandi metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Í því ljósi og með vísan til gagna málsins telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að meta kæranda í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Italy 2017 Human Rights Report (United States Department of State, 20. apríl 2018);
  • Freedom in the World 2018 – Italy (Freedom House, 5. apríl 2018);
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018);
  • Amnesty International Report 2017/18 - Italy (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerance, 7. júní 2016);
  • Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, ágúst 2016);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2015 (European Asylum Support Office, 8. júlí 2016);
  • Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (Elena, European legal network on asylum, október 2015);
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights’ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014);
  • UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013);
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (http://hatecrime.osce.org/italy);

Samkvæmt ofangreindum gögnum eru dvalarleyfi einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og einstaklinga með viðbótarvernd gefin út til fimm ára en að þeim tíma liðnum geta handhafar sótt um ótímabundið dvalarleyfi á Ítalíu. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns geta öðlast ríkisborgararétt að fimm árum liðnum en einstaklingar með viðbótarvernd að tíu árum liðnum. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns fá flóttamannavegabréf (í. documenti di viaggio) með fimm ára gildistíma en handhafar viðbótarverndar geta fengið svonefnt ferðaleyfi (í. titolo di viaggio). Af framangreindum gögnum verður þó ekki séð að á Ítalíu sé munur á réttindum einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og handhafa viðbótarverndar hvað varðar aðgang að húsnæði, heilbrigðisþjónustu og atvinnuleyfi.

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt ofangreindri skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna hefur stofnunin meðal annars gagnrýnt skipulag og bolmagn ítalska hæliskerfisins til að taka við skyndilegu og verulegu flæði flóttamanna til landsins. Þá er greint frá vanköntum á aðlögun einstaklinga með alþjóðlega vernd að ítölsku samfélagi. Í framangreindum gögnum kemur einnig fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu eiga ekki rétt á þeim stuðningi sem umsækjendum um alþjóðlega vernd sé veittur enda sé gert ráð fyrir því að einstaklingar sjái fyrir sér sjálfir eftir að hafa verið veitt alþjóðleg vernd. Þegar einstaklingi með alþjóðlega vernd sé vísað aftur til Ítalíu eigi hann rétt á því að gista í svokölluðum SPRAR móttökumiðstöðvum, að því gefnu að viðkomandi hafi ekki fullnýtt heimild til dvalar þar og að laust pláss sé til staðar. Þó kemur fram að takmarkað framboð sé af gistirýmum í SPRAR móttökumiðstöðvum. Einnig bjóði sveitarfélög, frjáls félagasamtök og trúfélög í Róm og Mílanó upp á einhverja gistiaðstöðu en gistirými séu hins vegar af skornum skammti og því séu margir einstaklingar sem njóti verndar heimilislausir eða búi í yfirgefnum byggingum. Þá kemur fram í framangreindum skýrslum að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar og hafa dvalarleyfi á Ítalíu hafa sama rétt til atvinnuþátttöku og ítalskir ríkisborgarar. Hins vegar sé atvinnuleysi mikið þar í landi og eigi útlendingar oft í miklum erfiðleikum með að finna vinnu, sérstaklega ef þeir tala ekki tungumálið eða menntun þeirra eða reynsla fæst ekki metin. Þar að auki er möguleiki þeirra á því að fá félagslega aðstoð takmarkaður, enda byggir kerfið að miklu leyti á því að einstaklingar eigi þar fjölskyldu sem veitt geti þeim stuðning.

Í framangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu en þeir þurfa að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið. Sjúklingar þurfa almennt að greiða hluta þess kostnaðar sem fellur til vegna heilbrigðisþjónustu sem þeir nýta sér en frá því eru þó undantekningar, t.d. í þeim tilvikum þegar sjúklingar hafa ekki efni á því. Einstaklingar sem dvelja í SPRAR móttökumiðstöðvunum eru undanþegnir slíkri greiðsluþátttöku. Til að fá aðgang að heilbrigðisþjónustu umfram grunnþjónustu þurfa einstaklingar að vera með skráð lögheimili. Þegar einstaklingar hafa skráð lögheimili sitt eiga þeir rétt á að fá sjúkrakort frá sveitarfélögum, en sjúkrakort veitir einstaklingum til dæmis aðgang að heimilislæknum og öðrum sérfræðilæknum sem annars falla ekki undir grunnheilbrigðisþjónustu. Eðli máls samkvæmt getur lögheimilisskráning reynst vandamál, t.d. fyrir einstaklinga sem eru heimilislausir. Þó bera gögn málsins með sér að frjáls félagasamtök hafi aðstoðað einstaklinga við slíka skráningu.

Af framangreindum skýrslum verður ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna sé vandamál á Ítalíu en ítölsk yfirvöld hafi gripið til aðgerða til að sporna við kynþáttafordómum og mismunun á grundvelli kynþáttar, m.a. með lagasetningu. Í kjölfar athugasemda alþjóðlegra eftirlitsnefnda, stofnana og frjálsra félagasamtaka hafa ítölsk stjórnvöld tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum, þ. á m. með aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju (e. National Action Plan against Racism, Xenophobia and Intolerance). Þá hefur rannsóknum og ákærum fjölgað í málum er varða mismunun, hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis.

Samkvæmt dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er bann við meðferð sem fer gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu fortakslaust en meðferð verður þó að fullnægja lágmarkskröfu um alvarleika til að teljast brot gegn 3. gr. sáttmálans. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur lagt til grundvallar að þó svo að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki sáttmálans sé slíkt eitt og sér ekki fullnægjandi til að uppfylla grundvallarkröfu um þann alvarleika sem 3. gr. sáttmálans geri kröfu um, þ.e. þar sem ekki sé um að ræða sérstaklega sannfærandi mannúðaraðstæður sem mæli gegn flutningi einstaklings, sbr. ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar, þegar horft er til aðstæðna einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu og aðstæðna kæranda í heild sinni, að kærandi eigi ekki í yfirvofandi hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð á Ítalíu í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu verði hann sendur þangað. Það er því niðurstaða kærunefndar að endursending kæranda til Ítalíu feli ekki í sér brot á 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga, eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Aðstæður kæranda á Ítalíu hafa þegar verið raktar. Kemur framangreind frásögn kæranda að mestu leyti heim og saman við heimildir um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu sem kærunefnd hefur kynnt sér, þ.e. hvað varðar erfitt aðgengi að vinnumarkaðnum, félagslegu húsnæði og framfærslu frá yfirvöldum.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Af framangreindum gögnum um aðstæður á Ítalíu verður ráðið að verði kærandi fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar geti hann leitað ásjár ítalskra yfirvalda vegna þess. Þá hefur kærandi greint frá því að hann óttist um öryggi sitt á Ítalíu og hann hafi verið laminn þar í landi. Það er mat kærunefndar, m.t.t. þeirra upplýsinga sem fyrir liggja um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu, að þarlend yfirvöld séu í stakk búin til þess að veita umsækjendum fullnægjandi vernd gegn slíkum brotum og að kærandi geti leitað til lögreglunnar og annarra yfirvalda vegna þeirra.

Þá kemur fram í framangreindri skýrslu Asylum Information Database um Ítalíu að til að endurnýja dvalarleyfi þurfi að fylla út þar til gert eyðublað og senda það með bréfpósti en málsmeðferðin geti tekið allt upp í nokkra mánuði. Til að unnt sé að endurnýja dvalarleyfi sé, samkvæmt ítölskum lögum, skoðað hvort umsækjandi uppfylli enn skilyrði fyrir viðbótarvernd og hvort umsækjandi hafi framið afbrot á meðan hann hafi dvalið á Ítalíu. Í reynd séu dvalarleyfi alla jafna endurnýjuð en alvarleg afbrot geti þó komið í veg fyrir endurnýjun. Þá geti einnig komið í veg fyrir endurnýjun dvalarleyfa að umsækjandi hafi m.a. sett sig í samband við sendiráð heimaríkis síns eða farið aftur til heimaríkis, jafnvel í stuttan tíma. Gögn málsins benda ekki til annars en að kærandi njóti enn alþjóðlegrar verndar á Ítalíu þótt dvalarleyfi hans sé runnið út. Þá benda gögn málsins til þess að málsmeðferð sem sé undanfari endurnýjunar á slíku dvalarleyfi verði ekki jafnað til þess að sækja um vernd að nýju. Af gögnum málsins að dæma hefur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi njóti enn verndar á Ítalíu og hann geti fengið dvalarleyfi sitt endurnýjað við komuna til landsins.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi þolandi líkamlegs ofbeldis og glímir við andleg veikindi, þ. á m. þunglyndi, erfiðar endurminningar og svefntruflanir. Það er þó mat kærunefndar, á grundvelli gagna málsins, að aðstæður kæranda teljist ekki til mikilla og alvarlegra veikinda sem meðferð sé aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af framangreindum gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu má ráða að þeir eigi rétt á heilbrigðisþjónustu, að því gefnu að þeir skrái sig inn í heilbrigðiskerfið. Þó svo að mikið álag sé á innviðum þjónustu fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í landinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar heilbrigðisþjónustu þar í landi.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, svo og skýrslur og aðrar upplýsingar um aðstæður á Ítalíu. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 10. janúar 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 13. nóvember 2017.

Reglur stjórnsýsluréttar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi varakröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga þar sem rannsókn málsins og rökstuðningi fyrir niðurstöðu þess sé verulega áfátt, sérstaklega með vísan til umfjöllunar stofnunarinnar varðandi andlega heilsu kæranda.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og rannsókn hennar auk allra gagna málsins. Kærunefnd telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Greinargerð innanríkisráðuneytisins um endursendingar til Ítalíu

Í ljósi þess að kærandi nýtur viðbótarverndar á Ítalíu er ekki tilefni til að taka afstöðu til athugasemda kæranda er varða greinargerð innanríkisráðuneytisins um endursendingar hælisleitenda til Ítalíu, frá desember 2015, að öðru leyti en því að líkt og titill greinargerðarinnar ber með sér á hún við um umsækjendur um alþjóðlega vernd en ekki einstaklinga sem þegar njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars sl. voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Að mati kærunefndar fól gildistaka reglugerðarinnar ekki í sér íþyngjandi breytingar á réttarstöðu kæranda. Koma því sjónarmið um afturvirkni laga, að því marki sem þau kynnu að vera sambærileg varðandi setningu stjórnvaldsfyrirmæla, ekki til skoðunar í þessu máli.

Þá verður ekki litið svo á að setning reglugerðarinnar gangi gegn almennri túlkun og skýringu á lögum um útlendinga að því er varðar aukna áherslu á mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins enda sé ljóst að vilji löggjafans hafi staðið til þess að slíkt samstarf hefði vægi við beitingu 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá tekur kærunefnd ekki undir það sjónarmið kæranda að með reglugerðarbreytingunni hafi verið horfið frá þeirri þróun að gefa sérstaklega viðkvæmri stöðu einstaklinga aukið vægi við mat á sérstökum ástæðum í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 12. nóvember 2017 og sótti um alþjóðlega vernd þann 13. nóvember 2017. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson                                                                              Anna Tryggvadóttir

                                                                                             


 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta