Hoppa yfir valmynd

Nr. 346/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 13. júní 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 346/2023

í stjórnsýslumálum nr. KNU23040040 og KNU23040041

 

Kæra [...] og

[...] á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 13. apríl 2023 kærðu [...], fd. [...], ríkisborgari Jórdaníu (hér eftir K) og [...], fd. [...], ríkisborgari Jórdaníu, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 29. mars 2023, um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Kærendur krefjast þess að hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi aðallega með vísan til 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga en til vara með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefjast kærendur þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi 14. nóvember 2022. Þar sem kærendur voru með vegabréfsáritun til Belgíu var 23. nóvember 2022 send beiðni um viðtöku kærenda og umsókna þeirra um alþjóðlega vernd til yfirvalda í Belgíu á grundvelli 2. og 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá belgískum yfirvöldum, dags. 6. desember 2022, samþykktu þau viðtöku kærenda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 16. janúar 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 29. mars 2023 að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum 31. mars 2023 og kærðu kærendur ákvarðanirnar 13. apríl 2023 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda barst 13. apríl 2023.

III.      Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að belgísk stjórnvöld beri ábyrgð á meðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknirnar yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Belgíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærendur hefðu ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi þau flutt til Belgíu.

IV.      Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð kærenda kemur fram að M sé ríkisfangslaus. Undanfarin ár hafi kærendur haldið til í Jórdaníu en K sé ríkisborgari Jórdaníu. Þá hafi þau jafnframt dvalið í Tyrklandi þar sem þau hafi verið með dvalarleyfi í eitt ár. Kærendur hafi sótt um endurnýjun á dvalarleyfi í Tyrklandi en fengið synjun af yfirvöldum þar í landi. Í Jórdaníu hafi M orðið fyrir mismunun vegna palestínsks uppruna síns af hálfu yfirvalda og samfélagsins í heild og ekki fengið sömu tækifæri til atvinnu og menntunar. Kærendur hafi ekki þorað að eignast börn saman en fyrir liggi að börn þeirra muni fæðast án ríkisfangs samkvæmt lögum í Jórdaníu. M sé haldinn krónískri beinþynningu sem lýsi sér í miklum verkjum í stoðkerfi en sjúkdómnum haldi hann í skefjum með reglulegri lyfjagjöf. Þá hafi K átt við heilsufarsvandamál að stríða, m.a. í móðurlífi sem hafi ekki verið greint fyllilega en mögulega sé um að ræða legslímuflakk. Þá glími K við exem í hársverði og tekur hún inn lyf að staðaldri. Kærendur vísa til þess að þau hafi enga tengingu við Belgíu en þau hafi aðeins dvalið þar í um 36 klukkustundir á leið sinni til Íslands. Kærendur vísa til þess að aðbúnaður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Belgíu sé afar bágborinn og löng bið sé eftir afgreiðslu umsókna en slík bið væri M ofviða vegna heilsufars hans.

Kærendur gera athugasemdir við að M hafi ekki verið metinn einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sbr. 25. gr. sömu laga. Kærendur hafna því að þau hafi ekki lagt fram gögn um heilsufar M en með greinargerð hans til Útlendingastofnunar hafi fylgt læknisvottorð á ensku sem staðfesti framangreinda sjúkdómsgreiningu hans og niðurstöður geislafræðideildar í Jórdaníu. Jafnframt hafi fylgt lyfseðill frá íslenskum lækni. Þá vísa kærendur til þess að M sé á biðlista eftir að komast í beinþéttniskanna hér á landi. Kærendur vísa til þess að langir biðlistar séu hjá sérfræðilæknum hér á landi og því sé ósanngjarnt að þeim hafi aðeins verið veittur sjö daga frestur til að afla gagna. Þá gera kærendur athugasemd við fullyrðingu Útlendingastofnunar þess efnis að þeim hafi verið unnt að sækja um og hljóta málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd í Belgíu. Kærendur vísa til þess að þeim hafi ekki tekist að sækja um alþjóðlega vernd þar í landi vegna mikils álags á móttökukerfið í Belgíu. Þá vísa kærendur til þess að veruleg töf sé á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og varðhaldi hafi verið beitt í auknum mæli frá árinu 2017.

Kærendur byggja aðallega á því að þau eigi rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi vegna grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement) sem feli í sér bann við endursendingu einstaklinga til ríkja þar sem líf þeirra og frelsi kann að vera í hættu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Þá vísa kærendur til 2. mgr. 42. gr. þar sem fram kemur að óheimilt sé að senda þau til svæðis þar sem ekki sé tryggt að þau verði ekki send til slíks svæðis sem kveðið sé á um í 1. mgr. sömu greinar. Fyrir liggi að stjórnvöld í Belgíu hafi undanfarið synjað umsóknum Palestínumanna um alþjóðlega vernd og því séu líkur á því að kærendur verði flutt þaðan til Palestínu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Þá vísa kærendur til þess að umsækjendum frá Gaza í Palestínu hafi verið veitt viðbótarvernd hér á landi vegna öryggisástands þar í landi. Þá vísa kærendur til þess að ákvörðun um endursendingu þeirra til Belgíu myndi brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 7. gr. alþjóðasamnings Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamningsins. Þá vísa kærendur til þess að frá árinu 1995 hafi yfirvöld í Jórdaníu ekki heimilað Palestínumönnum að hafa palestínskt vegabréf eða vera með tvöfalt ríkisfang.

Þá byggja kærendur til vara á því að sérstakar ástæður eigi við í málum þeirra samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga vegna heilsufars M. Vísa kærendur til meðfylgjandi heilsufarsgagna.

Kærendur byggja jafnframt á því að rannsókn Útlendingastofnunar í málum þeirra hafi verið ófullnægjandi. Vísa kærendur til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til þess að í ákvörðunum Útlendingastofnunar séu staðreyndavillur um heilsufar M og hvaða gögn hann hafi lagt fram til að sýna fram á bágborið heilsufar hans. Kærendur telja að Útlendingastofnun hafi ekki tekið eftir þeim læknisvottorðum og heilsufarsgögnum sem hafi fylgt með greinargerð þeirra til stofnunarinnar. Því hafi ekki farið fram viðhlítandi mat á heilsufari og aðstæðum M. Kærendur telja að málsmeðferð og rökstuðningur Útlendingastofnunar hafi ekki verið í samræmi við 10. og 22. gr. stjórnsýslulaga.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kærenda

Kærendur eru hjón á [...]. Kærendur hafa verið búsett í Jórdaníu en þau hafi jafnframt verið með dvalarleyfi í Tyrklandi í eitt ár en verið synjað um endurnýjun af yfirvöldum þar í landi. Kærendur greindu frá því að hafa komið til Belgíu í nóvember 2022 á grundvelli vegabréfsáritunar og dvalið þar í rúman sólarhring. Kærendur greindu einnig frá því að þekkja ekki til flóttamannakerfisins fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Belgíu. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að vera við góða andlega og líkamlega heilsu en hún væri með exem og vandamál tengd hormónum og móðurlífi. Þá tæki K inn lyf sem hefðu áhrif á maga og skap hennar. M greindi frá því að þjást af beinþynningu og að hann þyrfti að taka inn lyf til að halda sjúkdómnum niðri. Þá væri andleg heilsa hans góð en hann ætti í erfiðleikum með svefn og fengi martraðir við tilhugsunina að snúa aftur til Belgíu. Kærendur lögðu fram heilsufarsgögn vegna M frá Jórdaníu.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b-, c- og d-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Belgíu á umsóknum kærenda er byggð á 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærendur hafa fengið útgefnar vegabréfsáritanir þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja belgísk stjórnvöld um að taka við kærendum, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Belgíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Belgíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur kærunefnd farið yfir þær skýrslur sem kærendur vísa til í greinargerð sinni.

  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Belgium (United States Department of State, 20. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23 – Belgium (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Asylum Information Database, Country Report: Belgium (European Council on Refugees and Exiles, 21. apríl 2023);
  • Asylum Information Database, Country Report: Belgium (European Council on Refugees and Exiles, 5. apríl 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Belgium (Freedom House, mars 2023);
  • Upplýsingar af vefsíðu Global Detention Project (www.globaldetentionproject.org) og
  • Upplýsingar af vefsíðu belgísku Útlendingastofnunarinnar Fedasil (www.fedasil.be).

Belgía er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Belgía verið aðili að Evrópuráðinu frá 5. maí 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1955. Belgía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 25. júní 1999 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1983 og barnasáttmálann árið 1991. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 22. júlí 1953.

Í framangreindri skýrslu European Council of Refugees and Exiles (ECRE) kemur fram að einstaklingar geti sótt um alþjóðlega vernd á flugvellinum við komuna til Belgíu eða hjá belgísku útlendingastofnuninni (f. Office des étrangers) þar í landi. Stofnun sem fari með umsóknir um alþjóðlega vernd (f. Commissariat général aux réfugiés et aux apatrides (CGRA)) taki ákvarðanir um umsóknir um alþjóðlega vernd á fyrsta stjórnsýslustigi. Stofnunin taki þó ekki ákvörðun um endursendingu umsækjanda til heimaríkis heldur sé slík ákvörðun í höndum útlendingastofnunarinnar. Útlendingastofnunin geti tekið ákvörðun um endursendingu eftir að kærufrestur til stjórnsýsludómstóls (f. Conseil du contentieux des étrangers (CCE)) sé liðinn eða eftir að neikvæð ákvörðun dómstólsins liggi fyrir. Útlendingastofnunin geti þó tekið ákvörðun um endursendingu þegar neikvæð ákvörðun CGRS liggi fyrir sé um að ræða þriðju viðbótarumsókn viðkomandi eða meira. Ákvarðanir CGRA séu kæranlegar til CCE. Möguleiki sé á því að kæra ákvarðanir CCE til æðra setts stjórnsýsludómstóls. Æðri dómstóllinn taki þó ekki efnislega á málum að öðru leyti en að úrskurða um það hvort CCE hafi fylgt formkröfum. Hafi formkröfum ekki verið fylgt geti dómstóllinn ógilt úrskurð CCE og sent málið til nýrrar endurskoðunar. Fái umsækjendur endanlega synjun á umsókn sinni eigi þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn hjá útlendingastofnun. Þá geti jafnframt verið litið á umsóknir umsækjenda sem séu endursendir til Belgíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar sem viðbótarumsóknir. CGRA leggi mat á það hvort viðbótarumsókn sé tæk til meðferðar og skuli það gert innan 10 daga. Grundvallist matið m.a. á því hvort nýjar upplýsingar liggi fyrir í málinu sem auki möguleika viðkomandi umsækjanda á því að fá alþjóðlega vernd. Sé umsóknin samþykkt fari málið í flýtimeðferð og ákvörðun skuli tekin innan 15 virkra daga. Málsmeðferðin hafi þó tekið lengri tíma þegar fjöldi endurtekinna umsókna hafi aukist. Sé viðbótarumsókn samþykkt eigi umsækjandi rétt á félagslegri aðstoð, en umsækjendur eigi þó alltaf rétt á heilbrigðisþjónustu og lögfræðiaðstoð. Umsækjendur geti borið mál sitt undir belgíska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eigi umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Þá eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd í Belgíu rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds á öllum stigum málsins, þ. á m. við að leggja fram viðbótarumsókn.

Af framangreindum upplýsingum um málsmeðferð í Belgíu má ráða að þar fari fram fullnægjandi mat á því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu t.d. með því að leggja fyrir umsækjendur skimunarpróf. Þá geti læknar sem þjónusta umsækjendur þar í landi komið á framfæri tillögum að breyttri og bættri þjónustu fyrir umsækjendur í viðkvæmri stöðu. Þá séu starfandi hópar innan CGRA sem aðstoði starfsfólk við að meta einstaklingsbundnar aðstæður og þjónustustörf umsækjenda um alþjóðlega vernd sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þessir hópar séu þjálfaðir í að meta aðstæður einstaklinga í viðkvæmri stöðu m.a. með viðtölum.

Í fyrrgreindri skýrslu ECRE kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Belgíu eigi rétt á vasapeningum og húsaskjóli á vegum stjórnvalda en flestir umsækjendur dvelji í móttökumiðstöðvum eða íbúðum. Þá kemur fram í skýrslunni að síðan um miðjan október 2021 hafi Belgía staðið frammi fyrir vandamálum varðandi móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Umsækjendur, aðallega einstæðir karlmenn, hafi ekki haft aðgang að búsetuúrræðum í einhverja daga jafnvel vikur vegna skorts á plássi og fjölgunar í hópi umsækjenda. Í skýrslu ECRE frá 2022 kemur fram að í janúar 2022 hafi ríkisstjórn Belgíu sett af stað aðgerðaráætlun til að vinna á vaxandi vandamálum varðandi móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Hafi umsækjandi fengið lokasynjun á umsókn sinni, og möguleikar hans til að kæra ákvörðunina séu fullnýttir, eigi hann rétt á húsnæði á vegum yfirvalda þar til frestur hans til að yfirgefa landið hefur runnið út en slíkur frestur sé að jafnaði 0 til 30 dagar. Sé umsækjanda veitt vernd eigi hann rétt á að dvelja áfram í húsnæðisúrræði sínu í tvo mánuði á meðan hann finni sér annað húsnæði. Þá sé umsækjendum um alþjóðlega vernd tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þeim að kostnaðarlausu, á meðan mál þeirra er til meðferðar en einnig eftir að umsókn er synjað. Aðgengi umrædds hóps að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu sé tryggt með þarlendri löggjöf sem sé fylgt eftir í framkvæmd. Í sumum tilvikum geti það þó verið vandkvæðum bundið fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd að nálgast téða heilbrigðisþjónustu, t.a.m. fyrir þá umsækjendur sem búi ekki í móttökumiðstöðvum. Þá geti umsækjendur þurft að leggja út fyrir lækniskostnaði. Í framangreindum gögnum kemur fram að rekin séu úrræði, m.a. miðstöðvar á vegum stjórnvalda, vegna andlegra veikinda en þar séu gjarnan langir biðlistar sem takmarki oft á tíðum aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd að þeim.

Í skýrslu ECRE kemur fram að í einhverjum tilvikum séu umsækjendur um alþjóðlega vernd settir í varðhald við komuna til Belgíu. Þessir einstaklingar eigi möguleika á því að skjóta ákvörðun um varðhaldsvist til dómstóla og eigi þeir rétt á endurgjaldslausri lögfræðiaðstoð.

Á vefsíðu belgísku útlendingastofnunarinnar kemur fram að belgísk stjórnvöld hafi undanfarið ekki getað annað eftirspurn í móttökumiðstöðvum sem hafi leitt til þess að einstæðir karlmenn hafi ekki fengið pláss þar. Sem standi séu tæplega 3.000 manns á biðlista eftir gistirýmum en unnið sé að því að því að bjóða þessum hópi pláss í móttökumiðstöðvum. Þá hafi ríkisstjórn Belgíu samþykkt nýjar tillögur til að auka móttökugetu landsins en til standi að opna fleiri móttökumiðstöðvar auk þess sem unnið sé að því að finna frekari lausnir á vandanum. Þá kemur fram á vefsíðunni að móttökumiðstöðvar á vegum útlendingastofnunarinnar séu um hundrað talsins og anni um 75% af afkastagetu móttökukerfisins. Til viðbótar séu móttökumiðstöðvar á vegum sveitarfélaga og hjálparsamtaka

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beiti] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, eins og efnahagslegar ástæður, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærendur eru hjón á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að vera við góða andlega og líkamlega heilsu en hún væri með exem og vandamál tengd hormónum og móðurlífi. Þá tæki K inn lyf sem hefðu áhrif á maga og skap hennar. M greindi frá því þjást af beinþynningu (e. osteoporosis) og þyrfti að taka inn lyf til að halda sjúkdómnum niðri. M væri með verki í hrygg og hryggþófa ef hann tæki ekki inn lyfin. Þá greindi M frá því að andleg heilsa hans væri almennt góð en hann ætti í erfiðleikum með svefn og fengi martraðir við tilhugsunina að snú aftur til Belgíu. Kærendur lögðu fram heilsufarsgögn vegna M frá Jórdaníu þar sem m.a. kemur fram að hann hafi undirgengist rannsóknir og fengið greiningu vegna beinþynningar. Þá liggur fyrir lyfseðill fyrir M útgefinn hér á landi. Í málinu liggja fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 7. febrúar 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnarlaga.

Kærunefnd tekur fram að kærendum var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 16. janúar 2023, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærendur teldu hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls þeirra hjá Útlendingastofnun. Þá var kærendum jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 14. apríl 2023, um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari gögn um heilsufar bárust frá kærendum. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kærenda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kærenda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar þeirra geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kærenda sé með þeim hætti að þau teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Belgíu verður ráðið að kærendur geti fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar í landi, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Þá geta læknar í móttökumiðstöðvum m.a. vísað umsækjendum um alþjóðlega vernd til sérfræðinga telji þeir þörf á því. Telur kærunefnd því að aðstæður kærenda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kærenda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Kærunefnd áréttar að samkvæmt 31. og 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar skuli miðla upplýsingum um heilsufar umsækjenda um alþjóðlega vernd til yfirvalda í viðtökuríki, að uppfylltum skilyrðum ákvæðanna, þannig að flutningur viðkomandi fari fram með þeim hætti að heilsufari þeirra verði ekki stefnt í hættu.

Kærunefnd telur að gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda, beri ekki með sér að kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að þau geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að í viðtökuríkinu sé löggæslan virk og að telji kærendur sér mismunað eða óttist þau um öryggi sitt að einhverju leyti geti þau leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum. Þá áréttar kærunefnd að gögn málsins bera með sér að kærendur hafi ekki lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í viðtökuríki og því hafi þau ekki reynslu af móttökukerfinu þar í landi.

Hvað varðar umfjöllun í greinargerð kærenda um að varðhaldi hafi verið beitt í auknum mæli í Belgíu áréttar kærunefnd það sem þegar hefur komið fram um varðhald þar í landi. Umsækjendum um alþjóðlega vernd sem hlotið hafa endanlega neikvæða niðurstöðu í Belgíu getur, eftir atvikum, verið gert að sæta varðhaldi í samræmi við skilyrði belgískra laga þar um og getur það t.d. átt við þegar grunur leikur á um að þeir muni koma sér undan slíkri ákvörðun. Kærunefnd lítur til þess að Belgía hefur fullgilt og tekið upp í landslög móttökutilskipun Evrópusambandsins nr. 2013/33/EU og að umsækjendur sem sæti varðhaldi geti borið lögmæti varðhalds undir stjórnvöld og dómstóla. Þá bera framangreindar skýrslur enn fremur með sér að aðstæður í varðhaldi séu almennt viðunandi. Með hliðsjón af framangreindu telur nefndin því ljóst að sá möguleiki að umsækjendur um alþjóðlega vernd kunni að vera færðir í varðhald leiði ekki til þess að fyrir hendi séu sérstakar ástæður í máli þeirra af þeim sökum.

Við meðferð málsins hafa kærendur lagt fram myndir og myndbönd af aðstæðum flóttafólks í Belgíu. Þær bera með sér að vera af fólki sem sefur utandyra og hefst við í tjaldi í Belgíu. Kærunefnd dregur ekki í efa að aðstæður flóttafólks kunni að vera tímabundið með þessum hætti en það breytir ekki framangreindu mati nefndarinnar á möguleikum og réttindum kærenda í Belgíu.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur kváðust í viðtali hjá Útlendingastofnun 16. janúar 2023 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærendur hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærendur sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar 14. nóvember 2022.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.

Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/10, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema framangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Ennfremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.

Eins og ráða má af framangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná mjög háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kærenda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.

Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Belgíu, þ.m.t. möguleika umsækjenda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar af belgískum yfirvöldum. Belgísk yfirvöld eru bundin af sambærilegum reglum og Ísland um vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkis þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra eða frelsi ógnað (non-refoulement). Að mati kærunefndar veitir málsmeðferð belgískra yfirvalda nægilega tryggingu fyrir því að einstaklingsbundið mat sé lagt á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í því skyni að tryggja að enginn umsækjandi sé sendur þangað sem líf hans eða frelsi er í hættu. Vegna umfjöllunar í greinargerð leggur kærunefnd áherslu á að við túlkun á því hvaða skyldur hvíla á ríkjum sem senda einstaklinga til annarra ríkja þar sem þeir kunna að vera sendir áfram til þriðja ríkis (e. indirect refoulement) hefur nefndin horft á hvort ríkið, sem senda á einstaklinginn til, veiti raunhæfa vernd (e. effective guarentees) til að tryggja að einstaklingar verði ekki sendir áfram í ómannúðlegar og vanvirðandi aðstæður, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi. Kærunefnd telur gögn málsins bera með sér að í Belgíu sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem líf þess eða frelsi sé ógnað. Samkvæmt framsögðu benda öll gögn til þess að kærendur hafi raunhæf úrræði í Belgíu, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kunni að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Sambærileg aðferðarfræði er varðar mat á því hvort viðtökuríki tryggi raunhæfa vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða lífi þess eða frelsi er ógnað kemur fram í dómi Hæstaréttar í máli nr. 405/2013, dags. 24. október 2013. 

Þá tekur kærunefnd fram að þær heimildir sem nefndin hefur kynnt sér bera með sér að þær aðstæður sem hafa verið til staðar í móttökukerfinu í Belgíu undanfarið séu tímabundnar. Þá bendi umræddar heimildir ekki til annars en að belgísk stjórnvöld vinni að lausn á vandanum og muni standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar varðandi móttöku, þjónustu og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Belgíu og einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærendur eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferðar umsókna kærenda um alþjóðlega vernd og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiði því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verða mál kærenda ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kærenda við ákvarðanir Útlendingastofnunar og reglur stjórnsýsluréttar

Svo sem fram hefur komið gera kærendur athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar, þ. á m. við umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Belgíu.

Kærendur telja að M sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd áréttar að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Með vísan til 1. og 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd ljóst að það mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum og reglugerð.

Þá byggja kærendur á því til þrautavara að rannsókn Útlendingastofnunar í máli þeirra hafi verið ófullnægjandi. Vísa kærendur til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til þess að í ákvörðunum Útlendingastofnunar séu staðreyndavillur um heilsufar M og hvaða gögn hann hafi lagt fram til að sýna fram á bágborið heilsufar hans. Kærendur telja að Útlendingastofnun hafi ekki tekið eftir þeim læknisvottorðum og heilsufarsgögnum sem hafi fylgt með greinargerð þeirra til stofnunarinnar. Því hafi ekki farið fram viðhlítandi mat á heilsufari og aðstæðum M. Kærendur telja að málsmeðferð og rökstuðningur Útlendingastofnunar hafi ekki verið í samræmi við 10. og 22. gr. stjórnsýslulaga.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli M er ekki að finna umfjöllun um framangreind heilsufarsgögn sem M lagði fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun og gerir kærunefnd athugasemd við vinnubrögð Útlendingastofnunar hvað þetta varðar. Að mati kærunefndar hefði verið tilefni til að fjalla um framangreind heilsufarsgögn og leggja mat á þau. Kærunefnd hefur farið yfir gögnin og telur, með tilliti til heildarmats í máli kærenda, að annmarkinn sé minniháttar og hefur bætt úr honum á kærustigi.

Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við þær.

Vegna kröfu um veitingu dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga

Í greinargerð er gerð krafa til þrautavara um að kærendum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt orðalagi ákvæðisins kemur ekki til skoðunar að veita útlendingi dvalarleyfi á grundvelli þess nema umsókn um alþjóðlega vernd hafi verið tekin til efnismeðferðar. Eins og að framan greinir hefur Belgía samþykkt viðtöku umsókna kærenda og voru umsóknir þeirra því ekki teknar til efnismeðferðar. Kemur því ekki til skoðunar hvort kærendur uppfylli skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga.

Frávísun

Kærendur komu hingað til lands 14. nóvember 2022 og sóttu um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærendur skulu fluttir til Belgíu innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kærenda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa belgísk stjórnvöld fallist á að taka við kærendum og umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kærendur til Belgíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru því staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kærenda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

 

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                            Sandra Hlíf Ocares


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta