Hoppa yfir valmynd

Nr. 276/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 21. maí 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 276/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19040010

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 2. apríl 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. mars 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.Þess er krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar, í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem lögfestur var hér á landi með lögum nr. 62/1994, og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 30. janúar 2019. Kærandi framvísaði grísku dvalarleyfisskírteini með gildistíma til 28. júní 2020 sem gaf til kynna að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi. Þá framvísaði kærandi einnig gildu grísku ferðaskilríki með gildistíma til 15. febrúar 2023. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 26. febrúar 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 29. mars 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 2. apríl 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann sama dag til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 10. apríl 2019 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnun kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og hefði dvalarleyfi þar í landi með gildistíma til 28. júní 2020. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi, í viðtali hjá Útlendingastofnun, kveðið sig vera úr minnihlutahópi [...] auk þess sem hann sé [...]. Hann hafi flúið frá heimaríki ásamt fjölskyldu sinni þegar hann hafi verið tveggja ára gamall og farið til [...]. Þar hafi kærandi búið til ársins 2016 er hann hafi farið til Grikklands í gegnum Tyrkland. Kærandi kveði sig hafa búið í rúm tvö og hálft ár í Grikklandi, þar af hafi hann dvalið fyrstu 15 mánuðina í flóttamannabúðum þar sem hann hafi sofið í tjaldi. Kæranda hafi staðið afar takmörkuð þjónusta til boða þar, hann hafi t.d. ekki átt kost á grískukennslu auk þess sem hann hafi ekki getað nýtt sér almenningssamgöngur. Kærandi hafi gert tilraunir til að finna atvinnu en án árangurs, enda sé erfitt að finna atvinnu þar sem kærandi tali ekki grísku. Kærandi kveði einnig að umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi takmarkað aðgengi að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi, auk þess sem mikið sé um glæpi og ómögulegt sé að treysta lögregluyfirvöldum. Þá kveði kærandi sig vera ljóðskáld sem skrifi pólitísk ljóð og hann sé að skrifa bók um aðstæður sínar á Grikklandi en óttist að grísk yfirvöld muni koma í veg fyrir útgáfu bókarinnar. Þá óttist kærandi að kynþáttahatarar myndu ganga frá honum. Loks kvað kærandi sig glíma við [...] og [...] í fótleggjum og þá sé hann einnig kvíðinn og hafi áhyggjur af framtíðinni.

Kærandi gerir nokkrar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar í greinargerð sinni. Í fyrsta lagi gerir kærandi athugasemd við þá staðhæfingu í hinni kærðu ákvörðun að kæranda standi til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta í Grikklandi en að kærandi hafi ekki lagt fram nein gögn til stuðnings fullyrðingu sinni um hið gagnstæða. Í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar hafi kærandi þó vísað til fjölda heimilda máli sínu til stuðnings. Því til viðbótar taki kærandi fram að víðtækur niðurskurður innan gríska heilbrigðiskerfisins hafi komið niður á heilbrigðisþjónustu á sama tíma og þörfin fyrir þjónustuna hafi aukist. Mikið skorti á fullnægjandi geðheilbrigðisþjónstu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og flóttamenn í landinu, en þessir hópar þurfi auk þess oft að ferðast langar vegalengdir til að nálgast læknisþjónustu. Þá mæti þessir hópar erfiðleikum við að viðhalda samfelldri meðferð, s.s. vegna sykursýki eða nýrnavandamála, þar sem lyf og útbúnaður séu oft ekki fáanleg, auk þess sem kostnaður þessara hópa vegna nauðsynlegra lyfjakaupa hafi aukist á síðustu árum.

Í öðru lagi mótmælir kærandi þeirri staðhæfingu í ákvörðun Útlendingastofnunar að hann hafi ekki vísað til neinna atvika sem bendi til þess að hann sé útilokaður frá þeim réttindum sem felist í dvalarleyfi hans eða þeirri félagslegu aðstoð sem hann eigi lögum samkvæmt tilkall til. Kærandi hafi lýst því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi gert tilraunir til að finna atvinnu en án árangurs, m.a. vegna tungumálaerfiðleika. Þá hafi kærandi vísað til fjölda heimilda í greinargerð til stofnunarinnar sem hafi stutt frásögn hans um takmarkanir að atvinnumarkaðnum. Það sé og geti verið erfiðleikum bundið fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og flóttafólk að útvega sér skattnúmer, sem sé skilyrði fyrir því að fá skráningu hjá yfirvöldum í Grikklandi sem hafa umsjón með skráningu atvinnuleysis. Í nýlegri skýrslu Asylum Information Database sé hið mikla atvinnuleysi, auk efnahagskreppu, tungumálaerfiðleika og ójafnri stöðu flóttafólks þegar komi að starfsnámi í Grikklandi, tilgreind sem dæmi um þá fjölmörgu erfiðleika sem gera flóttafólki nánast ómögulegt að framfleyta sér í landinu. Margir leiti því í ólöglega vinnu við slæmar aðstæður sem stundum jaðri við misnotkun eða nauðungarvinnu. Þá vísi kærandi til þess að þótt grísk lög mæli fyrir um jafnan rétt þeirra sem njóti alþjóðlegrar verndar í landinu og grískra ríkisborgara til félagslegrar aðstoðar þá sé raunin allt önnur.

Kærandi vísar þá til þess að erfitt geti reynst fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að verða sér úti um húsnæði, enda sé lítið um húsnæði handa heimilislausu fólki almennt í Grikklandi, og engin úrræði séu sérstaklega ætluð handhöfum alþjóðlegrar verndar þar í landi auk þess sem enginn fjárstuðningur sé veittur til þess hóps. Þó svo að grísk stjórnvöld hafi gripið til eða séu með aðgerðir í bígerð sé ljóst að þær dugi skammt. Auk þess hafi flóttafólk lítið fé milli handanna og eigi því í erfiðleikum með að finna sér húsnæði á almennum markaði. Telji kærandi því ljóst að hann muni ekki eiga í nein hús að venda verði hann sendur aftur til Grikklands. Kærandi gerir í fjórða lagi athugasemd við þá staðhæfingu í hinni kærðu ákvörðun að kærandi geti leitað á náðir grískra yfirvalda og fengið viðeigandi aðstoð ef hann óttist kynþáttafordóma og ofbeldi. Kærandi vísi í því sambandi til þess að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna telji að öryggi umsækjenda um alþjóðlega vernd og viðurkennds flóttafólks í Grikklandi sé ógnað vegna vaxandi kynþáttafordóma, útlendingahaturs, ofbeldis og skorts á umburðarlyndi í Grikklandi. Þótt grísk stjórnvöld hafi gripið til aðgerða til að sporna við útlendingahatri og til að greiða fyrir vinnslu mála vegna hatursglæpa hafi árásir skipulagðra hópa gegn innflytjendum, flóttafólki og aðgerðarsinnum engu að síður aukist, og hafi öfga hægri öflum í Grikklandi jafnframt vaxið ásmegin undanfarin ár. Fæst ofbeldistilvik séu tilkynnt til lögreglu og þau tilvik sem þó séu tilkynnt til stjórnvalda sé ekki sinnt nægilega vel. Telji kærandi því að Útlendingastofnun geti ekki byggt á því að hann geti leitað á náðir grískra yfirvalda og fengið viðeigandi aðstoð.

Þá gerir kærandi auk þess fyrirvara við lagastoð reglugerðar nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Kærandi vísi þá einnig til orðalags 32. gr. a umræddrar reglugerðar en þau atriði sem talin séu upp í dæmaskyni í því ákvæði geti með engum hætti komið í stað heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda í samræmi við ákvæði laga um útlendinga. Kærandi telji að færa megi rök fyrir því að aðstæður hans séu það einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Hann hafi átt afar erfitt uppdráttar í Grikklandi vegna alvarlegrar mismununar, húsnæðisskorts, takmarkaðs aðgangs að atvinnumarkaði og mikilla fordóma í hans garð, og að hann muni mæta sömu erfiðleikum verði honum gert að snúa aftur til Grikklands.

Aðalkrafa kæranda er byggð á því að hann njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga en ákvæðið árétti grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement eða bann við endursendingu fólks þangað sem líf þess eða frelsi er í hættu, sbr. einnig 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Lýsing kæranda á aðstæðum sínum í Grikklandi komi heim og saman við opinberar heimildir um aðstæður flóttafólks í Grikklandi, m.a. varðandi húsnæði, aðgang að atvinnumarkaði, heilbrigðisþjónustu og aðbúnað. Telji kærandi að aðstæður flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá telji kærandi að aðstæður flóttamanna þar í landi samræmist skilgreiningu á ofsóknum í skilningi flóttamannahugtaksins.

Krafa kæranda er einnig reist á því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka umsókn hans til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísi kærandi í þeim efnum m.a. til lögskýringargagna að baki ákvæðinu og fyrri úrskurða kærunefndar útlendingamála. Telji kærandi ljóst að hann muni eiga á hættu að verða fyrir alvarlegri mismunun í Grikklandi vegna stöðu sinnar, í ljósi frásagnar hans og þeirra heimilda sem hann hafi vísað til í greinargerð sinni. Um mat á því hvenær einstaklingur teljist eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vísi kærandi til nánar tilgreindra úrskurða kærunefndar frá því í október 2017. Frásögn kæranda sé í samræmi við opinberar og áreiðanlegar heimildir um þá mismunun sem flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd sæti í Grikklandi og hafi staða hans sem flóttamanns verið mun verri en staða almennings þar í landi. Séu því sérstakar ástæður fyrir hendi sem skyldi íslensk stjórnvöld til að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 28. júní 2020. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er kærandi [...] ára gamall einhleypur karlmaður. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi m.a. glíma við [...] í fótum. Í gögnum um heilsufar kæranda frá Göngudeild sóttvarna, dags. 18. febrúar til 6. mars 2019, kemur fram að kærandi sé almennt heilbrigður karlmaður en glími við [...].Að mati kærunefndar bera fyrirliggjandi gögn, þ. á m. heilsufarsgögn og viðtöl kæranda hjá Útlendingastofnun, ekki með sér að kærandi teljist hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins. Aðstæður í GrikklandiKærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

• 2017 Report on International Religious Freedom – Greece (United States Department of State, 29. maí 2018);

• 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);

• Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

• Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);

• Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);

• ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);

• EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

• Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);

• Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);

• Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);

• Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);

• Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

• State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);

• Stjórnarskrá Grikklands – aðgengileg á vefsíðu gríska þingsins (https://www.hellenicparliament.gr);

• UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014);

• Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og

• World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Af ofangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.Þá kemur fram í ofangreindri skýrslu Asylum Information Database að dvalarleyfi einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða viðbótarvernd í Grikklandi séu gefin út til þriggja ára í senn. Umsókn um endurnýjun dvalarleyfis þurfi að berast 30 dögum áður en að leyfið renni út en ef umsókn berist eftir þann tíma leiði það þó ekki eitt og sér til þess að umsókn sé synjað. Umsókn sé þá að jafnaði endurnýjuð. Við málsmeðferð umsókna um endurnýjun dvalarleyfis sé þó framkvæmd könnun á sakaferli sem geti leitt til þess að alþjóðleg vernd umsækjanda sé afturkölluð og honum í kjölfarið synjað um endurnýjun dvalarleyfis. Þá sé málsmeðferðartími umsókna um endurnýjun dvalarleyfis u.þ.b. tveir mánuðir en þó séu dæmi um að það tímabil geti lengst upp í sex mánuði, en á meðan umsókn sé í vinnslu fái umsækjendur sérstakt kort sem veiti þeim sömu réttindi og fylgi dvalarleyfinu útgefið til tveggja mánaða.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 fjallaði dómstóllinn um endursendingar einstaklinga til ríkja þar sem þeir hafa hlotið alþjóðlega vernd. Í ákvörðuninni kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við slíka endursendingu nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu kæranda að aðstæður hans í Grikklandi, að því leyti sem þær snúa að aðgangshindrunum að atvinnu- og húsnæðismarkaði, heilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð, séu þess eðlis að flutningur hans til Grikklands myndi fela í sér brot á grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna. Kærunefnd telur gögn málsins ekki benda til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Þrátt fyrir ýmsar aðgangshindranir hefur kærandi heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi og á rétt á félagslegri aðstoð til jafns við gríska ríkisborgara. Af gögnum um aðstæður flóttafólks í Grikklandi kemur þó fram að atvinnuleysi sé hátt þar í landi, en það eigi bæði við um flóttafólk sem og gríska ríkisborgara. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Kærandi hefur greint frá því að hann sé að vinna að því að skrifa bók um aðstæður sínar í Grikklandi. Hefur kærandi lýst því að hann telji sig ekki geta gefið bókina út í Grikklandi. Telur hann að grísk yfirvöld myndu banna honum að skrifa þessa bók og hann óttist hvernig öfgahópar myndu taka umræddri bók. Af því tilefni tekur kærunefnd fram að tjáningarfrelsi sé tryggt í 14. gr. grísku stjórnarskrárinnar, en auk þess er Grikkland aðili að mannréttindasáttmála Evrópu sem mælir meðal annars fyrir tjáningarfrelsi, sbr. 10. gr. sáttmálans. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 550/ 2017 og nr. 552/2017 frá 10. október 2017, og úrskurðum nr. 583/2017 og nr. 586/2017 frá 24. október 2017. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum vegna þess að ekki er um að ræða sömu viðtökuríki.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 26. febrúar 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 30. janúar 2019.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi nokkrar athugasemdir við trúverðugleikamat í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Þá gerir kærandi fyrirvara við lagastoð reglugerðar nr. 276/2018 auk þess sem hann vísar til þess að þau viðmið sem sett séu fram í ákvæði 32. gr. a reglugerðarinnar séu nefnd í dæmaskyni og því ekki tæmandi talin. Þau geti því ekki komið í stað heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kveðst hafa komið hingað til lands þann 29. janúar 2019. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 30. janúar 2019. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

 

Árni Helgason                                                                                   Hilmar Magnússon


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta