Mál nr. 164/2021 Úrskurður 23. nóvember 2021
Mál nr. 164/2021 Millinafn: Winter
Hinn 23. nóvember 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 164/2021 en erindið barst nefndinni 1. nóvember.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
- Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
- Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.
Millinafnið Winter er ekki dregið af íslenskum orðstofnum og uppfyllir þess vegna ekki ofangreind skilyrði um millinöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Winter er hafnað.