Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 8/2006. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 17. mars 2006

í máli nr. 8/2006:

Íslenska gámafélagið ehf.

gegn

Garðabæ

Með bréfi 1. mars 2006 kærir Íslenska gámafélagið ehf. ákvörðun Garðabæjar um að leita til Gámaþjónustunnar hf. um gerð samnings um sorphirðu fyrir sveitarfélagið eða eftir atvikum um framlengingu fyrri samnings um sorphirðu.

Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála stöðvi gerð samnings kærða við Gámaþjónustuna hf. um sorphirðu fyrir kærða eða eftir atvikum gerð samnings um framlengingu fyrri samnings aðila þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru, sbr. 1. mgr. 80. gr. laga nr. 94/2001 um opinber innkaup. Þá krefst kærandi þess að felld verði úr gildi ákvörðun kærða um að leita til Gámaþjónustunnar hf. um gerð samnings um sorphirðu fyrir kærða eða eftir atvikum um framlengingu fyrri samnings um sorphirðu, sbr. 1. mgr. 81. gr. laga nr. 94/2001. Þess er jafnframt krafist að úrskurðað verði að kærða sé óheimilt að semja við Gámaþjónustuna hf. um sorphirðu fyrir sveitarfélagið eða að framlengja samning við félagið um sorphirðu fyrir sveitarfélagið. Þá er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu kærða gagnvart kæranda vegna þeirrar ákvörðunar kærða að semja við Gámaþjónustuna hf. um sorphirðu án útboðs, sbr. 2. mgr. 81. gr. laga nr. 94/2001. Loks er þess krafist að kærða verði gert að greiða kæranda kostnað við að hafa kæruna uppi, sbr. 3. mgr. 81. gr. laga nr. 94/2001.

Kærði krefst þess að kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar verði hafnað.

Kærunefnd útboðsmála telur rétt að taka afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar þegar í stað. Úrlausn um kröfur kæranda að öðru leyti bíður hins vegar endanlegs úrskurðar.

I.

           Gámaþjónustan hf. hefur frá árinu 1998 sinnt sorphirðu fyrir kærða á grundvelli samnings sem komst á í kjölfar sameiginlegs útboðs kærða, Seltjarnarness og Mosfellsbæjar á sorphirðu. Samningur Gámaþjónustunnar hf. og kærða rennur út 30. júní 2006, líkt og samningur Seltjarnarness og Mosfellsbæjar við félagið. Farið hafa fram viðræður á milli kærða og Gámaþjónustunnar hf. um gerð nýs samnings um sorphirðu eða framlengingu fyrri samnings. Á fundi bæjarráðs kærða 7. mars 2006 var samþykkt að hætta frekari samningaviðræðum við Gámaþjónustuna hf. þar til niðurstaða könnunar á nánari réttarstöðu kærða lægi fyrir. Í bókun sem gerð var á fundinum kom jafnframt fram að rétt væri að kanna möguleikann á því að semja við aðila um sorphirðu í sveitarfélaginu til stutts tíma, eða allt að einu ári, á meðan unnið yrði að undirbúningi útboðs á sorphirðu.

II.

Kærandi vísar til þess að hann sé fyrirtæki sem sinni meðal annars sorphirðu fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög, ríkið og stofnanir sveitarfélaga og ríkis. Hafi Gámaþjónustan hf. frá árinu 1998 sinnt sorphirðu fyrir kærða samkvæmt samningi sem komist hafi á í kjölfar sameiginlegs útboðs kærða, Seltjarnarness og Mosfellsbæjar á sorphirðu. Renni samningur kærða við Gámaþjónustuna hf. út hinn 30. júní 2006, líkt og samningar Seltjarnarness og Mosfellsbæjar við félagið og hafi kærandi fengið staðfest í samtölum við forsvarsmenn sveitarfélaganna allra að nú standi yfir viðræður þeirra við Gámaþjónustuna hf. um gerð nýrra samninga um sorphirðu eða framlengingu fyrri samninga um sorphirðu. Þá hafi kærandi fengið upplýsingar um að til standi að gera samninga við sveitarfélögin á næstu dögum.

Tekið er fram að kærandi hafi ekki í höndum gögn sem staðfesti ákvörðun kærða um viðræður við Gámaþjónustuna hf. um gerð nýs samnings um sorphirðu eða um framlengingu fyrri samnings um sorphirðu. Kærandi hafi hins vegar, eins og áður sagði, verið upplýstur af forsvarsmönnum kærða um að nú standi yfir viðræður við Gámaþjónustuna hf. og hafi hann jafnframt verið upplýstur um að til standi að semja án útboðs við félagið um sorphirðu fyrir kærða. Telur kærandi ákvörðun um viðræður við Gámaþjónustuna hf. um gerð nýs samnings eða framlengingu fyrri samnings og jafnframt viðræður um gerð samnings skýlaust brjóta gegn lögum nr. 94/2001. Lögð er áhersla á að hin kærða ákvörðun og hinar kærðu viðræður byggi ekki á lögmætum sjónarmiðum og séu meðal annars í andstöðu við lög nr. 94/2001. Samkvæmt 56. gr. laga nr. 94/2001, sbr. reglugerð nr. 1012/2003, sbr. reglugerð nr. 429/2004, sé sveitarfélaginu skylt að bjóða út sorphirðu á Evrópska efnahagssvæðinu.

Kærandi telur augljóst að kærði hafi með ákvörðun um viðræður við Gámaþjónustuna hf. brotið gegn ákvæðum laga nr. 94/2001. Séu því uppfyllt skilyrði 80. gr. laga nr. 94/2001 til að stöðva gerð samnings aðila þar til endanlega hafi verið skorið úr kæru. Hafi kærandi mikla hagsmuni af því að gerð samnings verði stöðvuð, enda vænti hann þess að kærða verði gert skylt að fara að ákvæðum laga nr. 94/2001 og sorphirða í sveitarfélaginu boðin út.

Kærandi áætlar að fyrirhuguð kaup kærða á þjónustu Gámaþjónustunnar hf. nemi a.m.k. 40 milljónum króna og að fyrirhugað verk sé því útboðsskylt samkvæmt lögum nr. 94/2001. Þá er lögð áhersla á að kærði, Seltjarnarnes og Mosfellsbær séu öll í viðræðum við Gámaþjónustuna hf. um gerð nýrra samninga sem koma skuli í stað fyrri samninga sveitarfélaganna við Gámaþjónustuna hf. sem byggi á sameiginlegu útboði þeirra. Kærandi telur að við mat á útboðsskyldu beri að líta til heildarfjárhæðar samninga allra sveitarfélaganna, enda verði ekki hjá því litið að þau hafi boðið út sorphirðu sameiginlega á sínum tíma og standi nú öll í viðræðum við Gámaþjónustuna hf. um framlengingu þeirra samninga eða um gerð nýrra samninga.

III.

Kærði byggir á því að ekki sé ástæða til að verða við kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar þar sem bæjarráð kærða hafi með bókun hinn 7. mars 2006 samþykkt að hætta frekari samningaviðræðum við Gámaþjónustuna hf. Fram kemur í bókuninni að bæjarráð kærða telji rétt að fela bæjarstjóra að kanna nánar réttarstöðu kærða og hætta frekari samningaviðræðum uns niðurstaða þeirrar könnunar liggi fyrir. Sé í því sambandi einnig rétt að kanna möguleikann á því að semja við aðila um sorphirðu í sveitarfélaginu til stutts tíma, eða allt að einu ári, á meðan unnið verði að undirbúningi útboðs á sorphirðu.

Kærði tekur fram að á meðan niðurstaða kærunefndar útboðsmála liggi ekki fyrir verði ekki lagt endanlegt mat á stöðu sveitarfélagins. Eigi því að vera augljóst að kærði muni ekki ganga til samninga við Gámaþjónustuna hf. um sorphirðu á meðan málið sé til meðferðar hjá kærunefnd útboðsmála. Lögð er áhersla á að bæjarráð kærða hafi samþykkt að hefja undirbúning að útboði sorphirðu, en þar sem stutt sé í að núverandi samningur renni út kunni að vera nauðsynlegt að leita samninga til stutts tíma til að skapa ekki óvissu um jafn mikilvæga þjónustu og sorphirðu fyrir bæjarbúa.

IV.

Kærandi hefur í máli þessu krafist stöðvunar samningsgerðar kærða við Gámaþjónustuna hf. um sorphirðu í sveitarfélaginu. Samkvæmt 1. mgr. 80. gr. laga nr. 94/2001 um opinber innkaup hefur kærunefnd útboðsmála heimild til að stöðva samningsgerð þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru. Í ákvæðinu sjálfu, sbr. og athugasemdir við ákvæðið í því frumvarpi sem varð að lögum nr. 94/2001, er tekið fram að skilyrði fyrir beitingu heimildarinnar sé að verulegar líkur séu á því að brotið hafi verið gegn lögunum eða reglum settum samkvæmt þeim.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun af hálfu kærða um að ganga til samninga við Gámaþjónustuna hf. vegna sorphirðu í sveitarfélaginu. Liggur því ekki fyrir til hversu langs tíma slíkur samningur gæti orðið eða hvaða fjárhæð innkaupin gætu náð. Samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála eru innkaup sveitarfélaga aðeins útboðsskyld ef þau ná þeim viðmiðunarfjárhæðum sem tilgreindar eru í reglugerð nr. 1012/2003 um viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa á Evrópska efnahagssvæðinu og samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar um opinber innkaup, sbr. reglugerð nr. 429/2004. Fyrir liggur að kærði hefur hætt samningaviðræðum við Gámaþjónustuna hf. vegna sorphirðu í sveitarfélaginu uns niðurstaða könnunar á réttarstöðu þess liggur fyrir, sbr. bókun bæjarráðs kærða frá 7. mars 2006. Þá verður ráðið af athugasemdum kærða að ekki verði gengið til samninga við Gámaþjónustuna hf. á meðan málið sé til meðferðar hjá kærunefnd útboðsmála. Samkvæmt öllu framangreindu verður ekki talið að svo verulegar líkur liggi fyrir um brot gegn lögum nr. 94/2001 eða reglum settum samkvæmt þeim að skilyrði séu til að taka kröfu kæranda um stöðvun til greina. Með vísan til þessa verður að hafna umræddri kröfu kæranda.

 

Ákvörðunarorð:

Kröfu kæranda, Íslenska gámafélagsins ehf., um stöðvun samningsgerðar kærða, Garðabæjar, við Gámaþjónustuna hf. um sorphirðu í sveitarfélaginu er hafnað.

 

 Reykjavík, 17. mars 2006.

Páll Sigurðsson

Sigfús Jónsson

Auður Finnbogadóttir

                                                       

                                                                          

 

 

Rétt endurrit staðfestir,

Reykjavík, 17. mars 2006.

 




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta