Mál nr. 52/2022 Úrskurður 25. apríl 2022
Mál nr. 52/2022 Eiginnafn: Eia (kvk.)
Hinn 25. apríl 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 52/2022 en erindið barst nefndinni 13. apríl.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Eia (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Eiu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Eia (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.