Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 178/2017

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 28. mars 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 178/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU17020054

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 22. febrúar 2017 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 6. febrúar 2017, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Noregs.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til meginreglu laga um útlendinga nr. 80/2016 sem birtist í 1. mgr. 36. gr., sbr. einnig 3. mgr. 36. gr. og 2. mgr. 42. gr. og 2. mgr. 36. gr. sömu laga. Til vara krefst kærandi að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests sbr. sama ákvæði.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 5. janúar 2017. Við leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Noregi. Þann 9. janúar 2017 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Noregi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 10. janúar 2017 barst svar frá norskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 6. febrúar 2017 að taka ekki umsókn kæranda um hæli hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Noregs. Kærandi tók sér 15 daga frest til að ákvarða um kæru og kærði ákvörðunina þann 22. febrúar 2017 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 2. mars 2017.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Noregs. Lagt var til grundvallar að Noregur virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Noregs ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar aðstæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Noregs, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var tekið fram að kæra fresti réttaráhrifum, sbr. 1. mgr. 35. gr. sömu laga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir kröfu sína um að verða ekki sendur aftur til Noregs aðallega á því að óheimilt sé að senda hann þangað í ljósi non-refoulement reglunnar en kærandi standi frammi fyrir þeirri hættu að verða sendur áfram frá Noregi til [...].

Í greinargerð er vísað til c-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og lögskýringargagna að baki þeim. Vísað er til þess að ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kveði á um heimild til að synja um efnismeðferð en ekki skyldu og að 2. mgr. ákvæðisins geri kröfu um að mat fari fram í hverju tilviki fyrir sig varðandi hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn verði tekin til efnismeðferðar. Þá er vísað til þess að ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kveði á um að ef beiting 1. mgr. 36. gr. laganna leiði til þess að brotið sé gegn 42. gr. sömu laga skuli taka mál til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi byggi á að í máli hans séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem skyldi íslensk stjórnvöld til að taka beiðni kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Í greinargerð kæranda kemur fram að nýlega hafi orðið breytingar á stefnu Noregs í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd sem muni geta leitt til þess að stefna landsins í þeim efnum verði ein sú strangasta í Evrópu. Kærandi bendi sérstaklega á að heimildir til endursendinga á örugg svæði innan upprunalands hafi verið rýmkaðar sem og heimildir til tafarlausrar framkvæmdar ákvarðana um synjun á efnismeðferð umsókna og brottvísanir í slíkum tilvikum. Fjöldi breytinga hafi nú þegar verið samþykktar af norska þinginu sem herði reglur norska hæliskerfisins. Hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gert ítrekaðar athugasemdir við breytingarnar. Einnig hafi norsk yfirvöld m.a. tekið upp tímabundið eftirlit á landamærum landsins til að stemma stigu við gríðarlegum fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þá hafi norsk yfirvöld tekið upp á því að dreifa upplýsingum á helstu samfélagsmiðlum í því skyni að letja fólk frá því að leita alþjóðlegrar verndar í Noregi. Enn fremur séu heimildir um vaxandi andúð í garð umsækjenda um alþjóðlega vernd í Noregi og reglulega berist fréttir af íkveikjum í móttökumiðstöðvum landsins.

Kærandi fjallar í greinargerð um þvingaðar endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til [...]. Í viðtali við hann hjá Útlendingastofnun komi fram að hann sé ættaður frá höfuðborg ríkisins, [...], sem sé í [...] landsins en Flóttamannastofnun hafi gefið út afstöðu sína varðandi endursendingar til ákveðinna svæða í [...]. Kærandi rekur skýrslu Flóttamannastofnunarinnar og kveður afstöðu stofnunarinnar vera á þann veg að miðað við núverandi aðstæður hvetji hún ríki til að snúa ekki einstaklingum gegn vilja sínum til svæða í [...] sem séu undir áhrifum stríðsátaka, teljist óörugg eftir slík átök eða séu undir áhrifum óopinberra herskárra hópa. Stofnunin telji að fyrir þá sem flýi ofsóknir eða alvarlegan skaða af hálfu [...] sé vernd af hálfu ríkisins ekki möguleg í [...]. Sé því ljóst að ákvörðun norskra stjórnvalda um að synja kæranda um vernd og endursenda hann til [...] sé í trássi við grundvallarreglur þjóðarréttar um bann við endursendingu einstaklings þangað sem líf hans eða frelsi sé í hættu en reglan sé lögfest í 42. gr. laga um útlendinga. Því sé ljóst að verði kærandi endursendur til Noregs standi hann frammi fyrir raunverulegri hættu á að vera sendur til svæðis þar sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna telji einstaklinga eiga hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Kærandi vísar, máli sínu til stuðnings, einnig til 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Í greinargerð kæranda er fjallað um hugtakið kerfisbundinn galli og uppruna þess. Enn fremur kemur fram að kærandi telji íslensk stjórnvöld túlka hugtakið með ströngum hætti og erfitt hafi reynst að sýna fram á að hæliskerfi ríkja sé svo slæmt að um kerfisbundinn galla sé að ræða í móttökuríki. Ekki sé vitað til þess að Mannréttindadómstóll Evrópu geri sambærilegar kröfur um kerfisbundinn galla. Að mati kæranda sé kerfisbundinn galli ekki úrslitaatriði um endursendingu umsækjanda um alþjóðlega vernd heldur sé mikilvægast að líta til þess hvort viðkomandi eigi á hættu illa meðferð í móttökuríkinu. Kærandi vísar til dóms Hæstaréttar Bretlands frá 2014 og greinargerð innanríkisráðuneytisins frá desember 2015 máli sínu til stuðnings.

Til vara krefst kærandi að mál hans verði tekið til meðferðar að nýju. Í greinargerð kemur fram að kærandi telji rökstuðningi Útlendingastofnunar fyrir niðurstöðu sinni ábótavant. Stofnunin vísi aðeins til einnar heimildar í rökstuðningi sínum en kærandi geti bent á fjölda heimilda sem hreki í mikilvægum atriðum rökstuðning Útlendingastofnunar og sýni að nákvæmari rannsóknar sé þörf. Gera verði þá kröfu með tilliti til 10. og 22. gr. stjórnsýslulaga að stofnunin vísi ítarlega til heimilda máli sínu til stuðnings. Skortur á heimildum geti ekki talist fullnægjandi grundvöllur fyrir jafn íþyngjandi ákvörðun og um sé að ræða í máli kæranda. Því telji kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki uppfyllt skyldur sínar skv. 10. gr. stjórnsýslulaga. Brot á fyrrgreindum reglum leiði til ógildingar stjórnvaldsákvörðunar. Kærandi vísar til bréfs Umboðsmanns Alþingis til forstjóra Útlendingastofnunar, dags. 5. ágúst 2016, máli sínu til stuðnings.

Að lokum bendir kærandi á sérstakar kringumstæður málsins sem felist í því að norsk stjórnvöld hafi hótað honum lögreglufylgd aftur til [...] en Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi lagst eindregið gegn þvinguðum endursendingum til landsins. Íslensk stjórnvöld verði að axla ábyrgð og áréttar kærandi að skv. íslenskum lögum verði íslensk stjórnvöld að tryggja að kærandi verði ekki áframsendur fá Noregi til ríkis á borð við [...].

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að norsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Noregs er byggt á því að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi.

Í c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. skuli tekin til efnismeðferðar nema heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda. Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum jafnframt að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Noregi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

· Norway 2016 Human Rights Report (United States Department of State, 3. mars 2017)

· Freedom in the World 2016 – Norway (Freedom House, 12. ágúst 2016),

· Amnesty Interantional Report 2016-2017 – Norway (Amnesty International, 22. febrúar 2017),

· Information for asylum seekers in Norway (Norwegian Organisation for Asylum Seekers, 2011),

· Information Note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (European Council on Refugees and Exiles, október 2015),

· Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees: For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report – Universal Periodic Review: NORWAY (UNHCR, september 2013),

· UNHCR Observations on the proposed amendments to the Norwegian Immigration Act and Regulation: Høring – Endringer i utlendingslovgivningen (Innstramninger II) (UNHCR, 12. febrúar 2016),

· UNHCR proposals to address current and future arrivals of asylum-seekers, refugees and migrants by sea to Europe (UNHCR, mars 2015),

· Guidelines on international protection: "Internal Flight or Relocation Alternative" within the Context of Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relating to the Status of Refugees (23. júlí 2003) og

· Upplýsingar af vefsíðum landinfo (www.landinfo.no), norsku útlendingastofnunarinnar (www.udi.no), norsku kærunefndar útlendingamála (www.une.no), norskra dómstóla (www.domstol.no), norskra stjórnvalda (www.regjeringen.no), norska heilbrigðisráðuneytisins (www.legemiddelverket.no), um heilbrigðiskerfið í Noregi (www.helsenorge.no), norskra hjálparsamtaka fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd (www.noas.no og www.seif.no) og norskra laganema (www.jussbuss.no, www.jusshjelpa.no og www.jussformidlingen.no).

Útlendingastofnun Noregs (n. Utlendingsdirektoratet) tekur ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd þar í landi. Neikvæða ákvörðun útlendingastofnunar er þá hægt að kæra til sérstakrar kærunefndar útlendingamála (n. Utlendingsnemnda). Fái umsækjandi um alþjóðlega vernd í Noregi synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eða kærunefnd á hann möguleika á því að bera málið undir dómstóla eða leggja fram beiðni um endurupptöku á máli sínu hjá kærunefndinni. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli kæranda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða ef verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði endurupptöku verið uppfyllt. Þá geta umsækjendur um alþjóðlega vernd borið mál sitt undir norska dómstóla sé endurupptökubeiðni þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Noregi geta fengið ákveðinn fjölda klukkustunda í lögfræðiþjónustu ef umsókn þeirra um vernd hefur verið synjað af útlendingastofnun Noregs. Umsækjendur eiga því rétt á lögfræðiaðstoð á öllum stigum málsins hjá kærunefnd Noregs og hafa þeir nokkurt val um hvaða lögfræðingur sinni þeirra máli. Þá geta umsækjendur um alþjóðlega vernd leitað til mannúðarsamtaka og laganema sem veita lögfræðiþjónustu. Þá eiga umsækjendur rétt á ókeypis lögfræðiaðstoð varðandi umsókn þeirra um alþjóðlega vernd eða gegn banni við að vísa brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu bæði hjá útlendingastofnun Noregs og kærunefndinni ef málið telst varða grundvallarhagsmuni Noregs eða stefnu landsins í utanríkismálum.

Kærandi ber fyrir sig að norsk yfirvöld sendi[...] umsækjendur um alþjóðlega vernd aftur til heimaríkis þrátt fyrir að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hvetji ríki til að snúa ekki nokkrum einstaklingi gegn vilja sínum til svæða [...]. Kærunefnd telur að skilgreining norskra yfirvalda á tilteknum hlutum [...] sem öruggum svæðum gefi ekki ein og sér til kynna að meðferð umsókna um alþjóðlega vernd kunni að brjóta í bága við bann við endursendingu útlendinga til svæðis þar sem líf þeirra eða frelsi kunni að vera í hættu, sbr. 42. gr. laga um útlendinga. Að mati kærunefndar bera gögn málsins það með sér að í Noregi sé almennt veitt fullnægjandi vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til landa þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement), sbr. 73. gr. norskra laga um útlendinga (n. lov om utlendingers adgang til riket og deres opphold her). Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð norskra yfirvalda sé nægilega vönduð og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur sé ekki á þeim brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Ekkert bendi til þess að [...] umsækjendum sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd í Noregi eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli. Í því sambandi tekur kærunefnd jafnframt fram að gögn sem kærandi hefur lagt fram varðandi mál sitt hjá norskum stjórnvöldum benda eindregið til þess að farið hafi fram einstaklingsbundið mat á aðstæðum hans hjá norskum stjórnvöldum. Vegna athugasemda í greinargerð tekur kærunefnd sérstaklega fram að þótt öryggisástand í [...] sé viðkvæmt og alvarlegt hefur það t.d. verið mat mannréttindadómstóls Evrópu að engar vísbendingar séu um að ástandið þar sé þess eðlis að það setji alla sem staddir eru í borginni í raunverulega hættu á pyndingum, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sjá R.H gegn Svíþjóð (mál nr. 4601/14) frá 10. september 2015.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Noregi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending umsækjenda um alþjóðlega vernd til Noregs brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að umsækjendum um alþjóðlega vernd séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Noregi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Noregs á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærandi, sem er ungur karlmaður, kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 19. janúar 2017 vera við góða andlega og líkamlega heilsu utan verkja í hné. Í gögnum málsins er ekkert sem bendir til þess að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 19. janúar 2017 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 5. janúar 2017.

Vegna athugasemdar í greinargerð varðandi rannsókn málsins tekur kærunefnd fram að ekki fæst annað séð af ákvörðun Útlendingastofnunar en að stofnunin hafi byggt á nýjustu tiltæku skýrslum um aðstæður í Noregi. Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægjanlega upplýst. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Eins og að framan greinir tekur kærunefnd undir það, sem fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar, um aðstæður í Noregi, og telur ekki tilefni til að gera athugasemd við rannsókn málsins.

Í máli þessu hafa norsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Noregs með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir, varaformaður

Erna Kristín Blöndal Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta