Hoppa yfir valmynd

Nr. 561/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 5. októberber 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 561/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23090062

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […] og barns

 

Málsatvik

Hinn 7. september 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 22. og 25. febrúar 2023, um að synja […], fd. […]; ríkisborgara El Salvador (hér eftir aðili), og barni hennar, […], fd. […], ríkisborgara El Salvador (hér eftir A), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 8. september 2023. Hinn 15. september 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 22. september 2023 barst kærunefnd greinargerð aðila.

AðilI krefjast þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hún fer með mál þeirra fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Í greinargerð aðila kemur fram að hún hyggist bera mál sitt undir dómstóla. Þá eigi aðili erfitt með tilhugsunina að þurfa að fara með barn sitt í burtu frá fjölskyldunni á Íslandi og til El Salvador þar sem fjölskyldan eigi ekki lengur neitt heimili. A sé byrjaður í leikskóla hér á landi og líði vel en í heimaríki þeirra geti hann ekki sótt skóla þar sem mikið sé um að börnum sé rænt í skólanum á því svæði þaðan sem þau komi. Eldra barn aðila hafi ekki getað gengið í skóla vegna þessa. Þá sé aðili undir miklu álagi og hafi fengið úthlutaðan sálfræðitíma. Geðheilsu hennar hafi hrakað og illa hafi gengið að fá sálfræðiviðtöl fyrir hana. Með tilliti til þess sé óskað eftir að brottvísun verði frestað svo aðili fái þá aðstoð sem hún og barn hennar þarfnist. Aðili byggir beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að verði hún og barn hennar send til heimaríkis muni það valda barni hennar óafturkræfum skaða. Hann þekki ekki til í El Salvador enda hafi hann yfirgefið landið ungur að aldri til að fylgja ömmu sinni til Íslands til dóttur sinnar. Barn hennar eigi ömmu og föðursystur hér á landi sem hann sé mjög náinn. Þá byggir aðili á því að erfitt muni reynast hana að eiga í samskiptum við talsmann sinn vegna fyrirhugaðs dómsmáls þar sem óvíst sé hvert andlegt ástand hennar verði og hvort hún muni hafa burði til að fylgja máli sínu eftir frá heimaríki.

Aðili bindi miklar vonir við að sálfræðiaðstoð sem henni hafi verið úthlutað muni hjálpa henni. Hún óski eftir að kærunefnd útlendingamála leggi heildstætt mat á umsókn hennar og A og meti það svo að fresta beri réttaráhrifum úrskurðarins. Það sé nauðsynlegt fyrir aðila að fá mat sálfræðings þar sem fram geti komið grundvöllur fyrir aðila til að sækja um endurtekna umsókn vegna breyttra aðstæðna. Þá séu hagsmunir hennar af frestun réttaráhrifa miklir fyrir mál hennar og andlega heilsu. Með visan til aðstæðna aðila og að hún eigi tíma bráðlega hjá sálfræðingi sé lögð fram beiðni á frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar. Þá verði lögð fram ný gögn frá sálfræðingi um andlega líðan aðila eftir því sem þau berist.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála, sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta verður til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfa að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu hennar að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hún og barn hennar skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hennar til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hún höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hún sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Af gögnum um heimaríki aðila er ljóst aðili geti átt samskipti við lögmann sinn hér á landi í gegnum síma og/eða samskiptaforrit. Ennfremur benda gögn málsins ekki til annars en að aðili geti nýtt rétt sinn til komu og tímabundinnar dvalar hér á landi án vegabréfsáritunar á grundvelli 20. gr. laga um útlendinga til að vera við réttarhöld sín og gefa skýrslu fyrir dómi. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hennar fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem henni eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017, frá 23. maí 2018, og E-6830/2020, frá 15. desember 2020. 

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila og barns hennar varðandi umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og komist að niðurstöðu um að synja umsóknum þeirra. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila og barns hennar að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í heimaríki séu þess eðlis að endursending aðila og barns hennar þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Í samræmi við framangreint er það jafnframt mat kærunefndar að aðili og barn hennar eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi þau aftur til heimaríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila og barns hennar. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila og barns hennar eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila og barni hennar til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Samkvæmt framansögðu er ekki ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar.

 

 

Úrskurðarorð:

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant´s request is denied.

 

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta