Hoppa yfir valmynd

Nr. 36/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 30. janúar 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 36/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU18120035

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 12. desember 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. nóvember 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Gerð er krafa aðallega um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á Íslandi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. sömu laga.

Til vara er gerð krafa um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 23. apríl 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann sama dag kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þann 25. apríl 2018 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 8. ágúst 2018, kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd og væri með gilt dvalarleyfi í Grikklandi. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 22. október 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 22. nóvember 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 27. nóvember 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 12. desember 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 21. desember 2018. Frekari gögn bárust frá kæranda þann 24. janúar 2019.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnun kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-liður 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 22. október sl. hafi kærandi lýst því að hann hafi hitt lækni eða sálfræðing hér á landi en sá hafi einungis ávísað kæranda lyfjum sökum veikinda hans. Kærandi hafi lýst vilja sínum til að hitta sálfræðing vegna vanlíðunar, en hann gráti mikið og sofi illa auk þess sem hann hafi misst móður sína skömmu fyrir komuna til Íslands. Þá kveði kærandi að hann hafi verið handtekinn fyrir morð í heimaríki fyrir um 10 árum síðan. Hann hafi verið í gæsluvarðhaldi og í fangelsi og [...]. Kæranda hafi hins vegar verið sleppt úr haldi þegar raunverulegur morðingi fannst. Í kjölfarið hafi hann verið settur á sterk róandi lyf í nokkra mánuði, en hann hafi búið í litlu samfélagi og hafi oft hitt á förnum vegi einstaklinginn sem hafi [...]. Kærandi mótmæli því jafnframt að vera endursendur til Grikklands. Hann hafi ekki haft neinn stað til að vera á og ekki getað unnið, auk þess sem hann hafi verið undir stöðugu áreiti af hálfu grískra þjóðernissinna. [...]. Kærandi kveði sig vera [...], hann hafi smitast af [...] hér á landi og fengið viðunandi meðferð við smitsjúkdómnum.

Í greinargerð kæranda er gerð grein fyrir aðstæðum og réttindum fólks með viðurkennda stöðu flóttamanns í Grikklandi, svo sem með vísan til nýjustu ársskýrslu Asylum Information Database og ýmissa heimilda frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Þar komi m.a. fram að vegna landfræðilegrar legu hafi Grikkland borið þungan af straumi flóttafólks frá Afríku og Mið-Austurlöndum síðastliðin ár þrátt fyrir að vera einna síst í stakk búið til þess að taka á móti slíkum fjölda fólks vegna efnahags- og stjórnmálakreppu. Umsóknum um alþjóðlega vernd hafi fjölgað mikið á síðustu árum og samkvæmt upplýsingum frá Flóttamannastofnuninni fari ástandið síst batnandi, en stofnunin hafi jafnframt lýst yfir alvarlegum áhyggjum yfir aðstæðum flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd í Grikklandi. Mikil þörf sé á að auka félagslega þjónustu við flóttafólk, ekkert félagslegt húsnæði sé í boði eða aðrar lausnir á húsnæðisvanda meðal flóttafólks. Þá sé atvinnuleysi mikið í Grikklandi sem, ásamt efnahagskreppu, tungumálaerfiðleika og ójafnri stöðu þegar komi að starfsnámi, geri það nánast ómögulegt með öllu fyrir flóttafólk að framfleyta sér í landinu. Þótt grísk lög mæli fyrir um sama rétt þeirra sem njóti alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og grískra ríkisborgara, þá sé raunin allt önnur. Þá hafi efnahagskreppan sett aðgangi flóttafólks að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu verulegar skorður. Enn fremur bendi kærandi á að Flóttamannastofnunin hafi lýst alvarlegum áhyggjum af kynþáttafordómum, útlendingahatri, ofbeldi og öðrum birtingarmyndum mismununar og skorti á umburðarlyndi í Grikklandi og sé öryggi umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks ógnað vegna þessa. Þá bendir kærandi á að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar séu ekki síður sérstaklega viðkvæmur þjóðfélagshópur. Engin ástæða sé til þess að greina milli þess hóps og umsækjenda um alþjóðlega vernd við mat á því hvort skilyrðum 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé fullnægt.

Kærandi telur að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga en hann glími við ýmsa andlega kvilla. Hann þjáist af svefnleysi auk þess sem gengið sé út frá því að hann sé með [...], ofsakvíða og glími við alvarlegar geðhæðarlotur vegna [...]. Honum hafi þó verið ávísað lyfjum til að halda þessum sjúkdómum í skefjum. Þá er því haldið fram í greinargerð kæranda að ástæðu ótta hans við að verða endursendur til Grikklands megi rekja til stöðu hans þar í landi sem [...] en hann hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að honum hafi verið [...] þar í landi, hann hafi ítrekað þurft að [...] til að geta fengið heitan mat, farið í sturtu og fengið öruggan gististað. Í þessu sambandi vísi kærandi enn fremur til þeirra alþjóðlegu skuldbindinga sem íslenska ríkið hefur gengist undir [...], s.s. [...], auk ákvæða mannréttindasáttmála Evrópu[...].

Aðalkrafa kæranda er reist á því að sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga séu fyrir hendi í máli hans. Því til stuðnings vísar kærandi m.a. til lögskýringargagna að baki ákvæðinu en í frumvarpi til laga nr. 80/2016 komi fram vilji löggjafans til að víkka verulega út gildissvið ákvæðisins og láta það ná yfir einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Kærandi vísi einnig, máli sínu til stuðnings, til eldri úrskurða kærunefndar útlendingamála í málum nr. 550/2017 og nr. 552/2017 frá 10. október 2017, og nr. 582/2017 frá 24. október 2017. Í framangreindum málum hafi kærunefnd komist að þeirri niðurstöðu að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi og leggja fyrir stofnunina að taka umsóknir kærenda til efnismeðferðar. Kærandi bendi á að hann hafi lýst hræðilegum aðstæðum hans í Grikklandi, hvar hann hafi búið á götunni án möguleika á atvinnu eða húsnæði. [...]. Þá hafi hann ekki fengið neina aðstoð við aðlögun að grísku samfélagi eftir að hann hafi hlotið vernd í landinu, auk þess sem hann hafi fundið fyrir miklum fordómum. Endursending hans til Grikklands yrði honum afar þungbær og ljóst sé að hann muni verða fyrir alvarlegri mismunun í skilningi 32. gr. a reglugerðar nr. 540/2017 um útlendinga, með síðari breytingum.

Aðalkrafa kæranda er einnig reist á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga í máli hans. Þvert á móti njóti kærandi verndar 42. gr. laga um útlendinga, sem mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Hún feli í sér bann við endursendingu fólks þangað sem líf þess eða frelsi sé í hættu, eða líkur séu á að það muni sæta pyndingum eða ómannúðlegri meðferð, sbr. einnig 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Með vísan til framangreindra upplýsinga um aðstæður flóttamanna í Grikklandi telji kærandi að þær séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Varakrafa kæranda er reist á því að með ákvörðun sinni hafi Útlendingastofnun brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, sem lögfest sé í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Útlendingastofnun hafi ekkert aðhafst til að afla frekari upplýsinga um afleiðingar veikinda kæranda eða leitað frekari aðstoðar sérfræðinga þess efnis, þótt til staðar væru vísbendingar um alvarlega bresti á andlegri heilsu kæranda. Í þessu sambandi vísi kærandi enn fremur til 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Aukinheldur gagnrýnir kærandi þau ummæli í hinni kærðu ákvörðun að staðhæfing þess efnis að kærandi glími við [...], [...] og alvarlegar [...] vegna [...] eigi ekki við rök að styðjast. Vísi kærandi til þess að honum hafi verið ávísað lyfjum sem hjálpa einstaklingum sem greinast með þessa sjúkdóma. Fái kærandi ekki séð að læknar myndu ávísa umræddum lyfjum án þess að greining heilsuvandans lægi skýrt fyrir. Þá gagnrýnir kærandi einnig þau ummæli Útlendingastofnunar að hún telji ekki tilefni til að gera athugasemd við að hjúkrunarfræðingur meti þörf á sálfræðimeðferð eða annarri læknisfræðilegri meðferð umsækjanda um alþjóðlega vernd. Kærandi bendi á að hjúkrunarfræðingar hafa ekki lækningaleyfi hér á landi en kærandi sé augljóslega í þörf fyrir lyfjagjöf og því nægi ekki viðtalstími við hjúkrunarfræðing. Loks bendir kærandi á að hvergi í hinni kærðu ákvörðun sé að finna umfjöllun um stöðu hans sem [...] og hvaða afleiðingar það hafi haft á kæranda og þá hvað taki við honum við endursendingu til Grikklands.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 15. júní 2017 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 18. júní 2020. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára gamall karlmaður sem kveðst vera [...]. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi m.a. hafa orðið fyrir ofbeldi í heimaríki, auk þess sem hann sé með [...] og finni til í gómi. Þá kvaðst hann hafa orðið fyrir [...] í fangelsi í heimaríki og einnig á meðan á dvöl hans í Grikklandi stóð. Í heilsufarsgögnum, sem kærandi hefur lagt fram við meðferð málsins, kemur m.a. fram að hann hafi greinst með smitsjúkdóm hér á landi og fengið meðferð við honum. Þá kemur fram að kærandi hafi glímt við svefnvandamál, sem hann hefur fengið ávísað lyfjum fyrir, að minni hans sé gloppótt og hann fái reiðiköst. Einnig kemur fram að hann hafi heyrt raddir á tímabili. Af gögnum málsins verður ráðið að kærandi glími við nokkra andlega erfiðleika og hafi orðið fyrir [...]. Það er þó mat kærunefndar að fyrirliggjandi gögn málsins, þ. á m. framburður kæranda og heilsufarsgögn, beri ekki með sér að heilsufar kæranda eða aðrar aðstæður hans séu með þeim hætti að hann sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2017 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. apríl 2018),
  • 2018 Trafficking in Persons Report – Greece (United States Department of State, 28. júní 2018) Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018),
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe,
  • Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018),
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015),
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017),
  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018),
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015),
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017),
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017),
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017),
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016),
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014) og
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018).

Af framangreindum gögnum má sjá að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Jafnframt eru til staðar frjáls félagasamtök sem aðstoða þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi við að kynna sér réttindi sín.

Þá eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að aðbúnaður í fangelsum og varðhaldsmiðstöðvum sé víða ekki fullnægjandi. Klefar séu yfirfullir, óþrifnaður sé mikill og aðgengi að heilbrigðisþjónustu takmarkað. Einnig kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga.

Þá kemur fram í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um [...] að flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd séu berskjaldaður hópur þegar kemur að [...]. Þar komi þó jafnframt fram að grísk lög veiti fullnægjandi vernd gegn [...]. Grísk stjórnvöld hafa unnið að því að koma í veg fyrir [...] í landinu, t.d. með því að setja á fót sérstakt embætti í því skyni. Þá veita mannréttindasamtök í Grikklandi [...] aðstoð í formi félagslegrar aðstoðar auk sálfræði- og lögfræðiaðstoðar.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu kæranda að aðstæður hans í Grikklandi, að því leyti sem þær snúa að aðgangshindrunum að atvinnu- og húsnæðismarkaði og félagslegri aðstoð auk málsástæðna sem varða ofbeldi sem kærandi kveðst hafa orðið fyrir í Grikklandi, séu þess eðlis að flutningur hans til Grikklands myndi fela í sér brot á grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Hefur kærandi m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður eigi við í máli hans þar sem hann verði fyrir alvarlegri mismunun í Grikklandi. Þá sé hann í viðkvæmri stöðu og hann hafi verið án atvinnu og húsaskjóls, auk þess sem hann hafi ekki fengið neina aðstoð við aðlögun að grísku samfélagi. Kærandi hefur þá borið fyrir sig að vera [...], en kærandi hefur gert grein fyrir því að hann hafi ítrekað þurft að [...] í viðtökuríki.

Þrátt fyrir ýmsar aðgangshindranir hefur kærandi heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi og á rétt á félagslegri aðstoð til jafns við gríska ríkisborgara. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Af framangreindum gögnum má ráða að kærandi geti leitað til grískra stjórnvalda, sem hafi yfir að ráða nauðsynlegum úrræðum til að aðstoða [...] auk þess sem hann geti leitað til yfirvalda telji hann sig vera í hættu á að verða [...]. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögreglu. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og nauðsynlegum lyfjum. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna. Því telur kærunefnd gögn málsins ekki benda til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 og nr. 552/2017 frá 10. október 2017, og nr. 582/2017 frá 24. október 2017. Í því sambandi vísar kærunefnd einkum til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda og viðtökuríkis í framangreindum úrskurðum, en aðstæðum kæranda í Grikklandi verður að mati kærunefndar ekki jafnað til aðstæðna í viðtökuríkjum í áðurnefndum úrskurðum.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 22. október 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 23. apríl 2018.

Reglur stjórnsýsluréttar

Kærandi gerir varakröfu um að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka málið til meðferðar að nýju. Kærandi byggir varakröfu sína á því að með ákvörðun sinni hafi Útlendingastofnun brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar sem lögfest sé í 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi telur m.a. að stofnuninni hafi borið að afla frekari upplýsinga um afleiðingar veikinda kæranda. Í máli kæranda liggur fyrir að honum hafi verið leiðbeint, í viðtölum hjá stofnuninni, að leggja fram læknisfræðileg gögn sem gætu haft þýðingu við ákvörðun í máli hans. Í því sambandi bendir kærunefnd á að kærandi hafi hitt sérfræðinga Göngudeildar sóttvarna auk þess sem hann hafi lýst andlegri líðan sinni í viðtölum hjá Útlendingastofnun. Er það mat kærunefndar að framangreind heilsufarsgögn gefi með nægjanlega skýrum hætti til kynna stöðu kæranda. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 22. apríl 2018. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 23. apríl s.á. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

 

Árni Helgason                                                                                       Erna Kristín Blöndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta