Nr. 2/2019 - Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Þann 15. janúar 2019 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 2/2019
í stjórnsýslumáli nr. KNU18120009
Kæra [...]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Þann 4. desember 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. nóvember 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.
Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn hans til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 22. júní 2018. Þar sem kærandi hafði fengið útgefna vegabréfsáritun af þýskum stjórnvöldum var þann 19. júlí 2018 beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. 4. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þar sem ekki barst svar innan tilskilins tímafrests litu íslensk stjórnvöld svo á að þýsk stjórnvöld hefðu samþykkt viðtöku, sbr. 7. mgr. 22. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, og sendi Útlendingastofnun þýskum yfirvöldum bréf þess efnis, dags. 4. október 2018. Þá barst bréf frá þýskum stjórnvöldum, dags. 13. nóvember 2018, þar sem þýsk stjórnvöld samþykktu viðtöku á kæranda og umsókn hans með vísan til 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 15. nóvember 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 20. nóvember 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 4. desember 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 13. desember 2018 ásamt fylgigögnum.
III. Ákvörðun Útlendingastofnunar
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að þýsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Þýskalands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Þýskalands.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda er rakið það sem fram hafi komið í viðtölum kæranda hjá Útlendingastofnun. Kærandi hafi m.a. greint frá því að hann sé [...] og [...] og sé því í minnihluta í heimaríki auk þess sem hann óttist um líf sitt. Aðspurður um líkamlega heilsu hafi kærandi kveðið að hann glími við nýrnavandamál og fái stundum verki. Læknir hafi tjáð honum að nýru hans starfi ekki eðlilega. Aðspurður um andlegt heilsufar hafi kærandi greint frá því að hann svitni mikið í svefni og vakni upp öskrandi á næturnar með martraðir. Andlegt heilsufar hans hafi versnað vegna aðstæðna í heimaríki.
Í greinargerð kæranda er mat Útlendingastofnunar á viðkvæmri stöðu kæranda gagnrýnt. Fram kemur að í 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sé hvergi fjallað um bráð og lífshættuleg veikindi eða aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd að heilbrigðisþjónustu. Lögin geri það þannig ekki að skilyrði að umsækjendur um alþjóðlega vernd séu haldnir bráðum og lífshættulegum veikindum til að teljast til sérstaklega viðkvæmra einstaklinga. Kærandi hafi greint frá því að hann þjáist af svefnleysi og martröðum auk þess sem hann sé nýrnaveikur. Þá hafi kærandi kveðið að hann hafi orðið fyrir hótunum í heimaríki og óttist um líf sitt. Margt bendi því til þess að kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Þá eru áréttaðar skyldur íslenskra stjórnvalda skv. rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 auk 23. og 25. gr. laga um útlendinga.
Fram kemur í greinargerð að í ákvörðun Útlendingastofnunar sé aðeins að finna almenna tilvísun til þess að ekkert bendi til þess að mál kæranda fái ekki vandaða eða efnislega málsmeðferð verði honum snúið til baka til Þýskalands enda bendi engin gögn til þess að slíkur „kerfisbundinn galli sé á aðbúnaði og meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi sem leiði til þess að umsækjandi standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð þar í landi“. Af hálfu kæranda er byggt á því að sé kerfisbundinn galli til staðar í hæliskerfi viðkomandi ríkis þá skuli hafa slíkt til hliðsjónar en það geti ekki verið úrslitaatriði um endursendingu umsækjanda. Kerfisbundinn galli sé því ekki forsenda fyrir því að umsókn sé tekin til efnismeðferðar í öðru aðildarríki og hafi það verið staðfest í dómum Mannréttindadómstóls Evrópu.
Í greinargerð kæranda kemur fram að í hinni kærðu ákvörðun sé vísað til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, í tengslum við túlkun ákvæðis 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þar komi fram tiltekin sjónarmið sem líta megi til við mat á því hvort taka megi umsókn til efnislegrar meðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna. Í hinni kærðu ákvörðun gangi Útlendingastofnun út frá því að skilyrðin þurfi að vera uppfyllt til þess að sérstakar ástæður séu uppi í málinu. Kærandi bendir á að í 32. gr. a í umræddri reglugerð komi fram að þau viðmið sem sett séu fram í greininni séu nefnd í dæmaskyni og sé því ekki um að ræða tæmandi talningu á þeim þáttum sem taka beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við. Stofnuninni hafi borið að framkvæma heildarmat á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda en ekki einungis að horfa til afmarkaðra og þröngra skilyrða reglugerðarinnar.
Kærandi byggir kröfu sína um að umsókn hans skuli tekin til efnismeðferðar hér á landi í fyrsta lagi á víðtækum heimildum íslenskra stjórnvalda til þess að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar þrátt fyrir ákvæði a-c-liða 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísast þar m.a. til 1. mgr. 32. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Kærandi telji að í ljósi álags á þýska hæliskerfið sé nærtækara að íslensk stjórnvöld taki umsókn hans til efnismeðferðar á Íslandi í stað þess að senda hann til Þýskalands en óvíst sé hvaða aðstæður bíði hans í Þýskalandi. Varðandi ítarlega umfjöllun um aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi vísar kærandi til umfjöllunar í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar, dags. 29. október 2018. Í öðru lagi er byggt á því að stjórnvöldum beri skylda til þess að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar í ljósi ákvæðis 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Að teknu tilliti til ástandsins í þýska hæliskerfinu, persónulegra aðstæðna kæranda og þess að hann telji sig ekki öruggan í Þýskalandi séu sérstakar ástæður fyrir hendi í málinu sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og beri íslenskum stjórnvöldum skylda til að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.
Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Þýskalands á umsókn kæranda er byggð á 7. mgr. 22. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið útgefna vegabréfsáritun af þýskum stjórnvöldum. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja þýsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda
Samkvæmt gögnum málsins er kærandi ungur, einhleypur karlmaður sem er almennt heilbrigður. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann glími við svefnvandamál, m.a. martraðir. Fram kemur í komunótu frá Göngudeild sóttvarna, dags. 12. júlí 2018, að kærandi hafi fengið [...] en sé verkjalaus núna. Það er mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. framlagðar komunótur og frásögn kæranda, beri ekki með sér að kærandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Í rökstuðningi ákvörðunar Útlendingastofnunar varðandi mat á viðkvæmri stöðu kæranda er m.a. vísað til þess að ekkert bendi til þess að hann „sé haldinn bráðum eða lífshættulegum sjúkdómi sem þarfnist tafarlausrar meðferðar sem ekki sé almennt aðgengileg í Þýskalandi“. Af því tilefni er áréttað að orðalag 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga vísar til þess að alvarlega veikir einstaklingar falli undir ákvæðið. Er því í ákvörðun Útlendingastofnunar ekki stuðst við réttan mælikvarða að þessu leyti.
Aðstæður í Þýskalandi
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
- 2017 Human Rights Report – Germany (United States Department of State, 20. apríl 2018),
- Amnesty International Report 2017/18 - Germany (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
- Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, 31. mars 2018),
- Freedom in the World 2018 – Germany (Freedom House, 2. febrúar 2018),
- From host country to deportation country – latest asylum reform in Germany (European Council on Refugees and Exiles (ECRE), 26. maí 2017),
- Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015),
- Upplýsingar af heimasíðu þýsku útlendingastofnunarinnar (www.bamf.de) og
- World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018).
Í framangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar skuli sækja um alþjóðlega vernd í Þýskalandi hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge). Lögum samkvæmt eiga umsækjendur rétt á gistirými í tímabundnum móttökumiðstöðvum (þ. Aufnahmeeinrichtung) í allt að sex mánuði frá því að þeir lögðu umsókn sína fram. Að þeim tíma liðnum eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á að fá úthlutað gistirými í öðrum móttökumiðstöðvum (þ. Gemeinschaftsunterkünfte). Samkvæmt bráðabirgðatölum frá þýsku útlendingastofnuninni, sem vísað er til í skýrslu Asylum Information Database, var meðalmálsmeðferðartími umsókna um alþjóðlega vernd sem bárust eftir 1. janúar 2017 rúmlega 2 mánuðir. Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eiga rétt á viðtali með aðstoð túlks, áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra hjá þýsku útlendingastofnuninni. Umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun geta kært niðurstöðuna til stjórnsýsludómstóls (þ. Verwaltungsgericht).
Þýskaland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi kemur fram að umsækjendum séu tryggð búsetuúrræði og mataraðstoð. Þó hafi þýsk yfirvöld sætt gagnrýni frjálsra félagasamtaka vegna yfirfullra móttökumiðstöðva og búsetuúrræða einkum á árunum 2014 og 2015 en vegna þess hve verulega hafi dregið úr umsóknum á árunum 2016 og 2017 hafi ástandið batnað til muna. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt dómaframkvæmd þýskra dómstóla felur orðalagið „nauðsynleg heilbrigðisþjónusta“ ekki einvörðungu í sér bráðaþjónustu. Þá geta umsækjendur um alþjóðlega vernd sem glíma við sálræn áföll fengið aðgang að þjónustu sérfræðilækna og annarra meðferðaraðila. Þó eru dæmi um að umsækjendur hafi átt í erfiðleikum með að nálgast slíka þjónustu, m.a. vegna fjarlægða milli búsetu- og meðferðarúrræða. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að glæpum gegn innflytjendum í Þýskalandi hafi fjölgað á undanförnum árum en nýlega hafi stjórnvöld gert aðgerðaráætlun til að sporna við fordómum þar í landi.
Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður talið að þýsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð til handa umsækjendum um vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þýsk yfirvöld tryggja umsækjendum ekki lögfræðiaðstoð endurgjaldslaust við meðferð máls á fyrsta stjórnsýslustigi en frjáls félagasamtök veita almennt gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð á fyrsta stigi málsmeðferðar. Á kærustigi eiga umsækjendur kost á lögfræðiráðgjöf og fyrir dómstólum geta þeir sótt um aðstoð lögmanns á kostnað þýskra yfirvalda. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá ekki endurgjaldslausa aðstoð lögfræðings við að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða við að bera synjun á viðbótarumsókn undir dómstóla.
Að mati kærunefndar bera gögn málsins það með sér að í Þýskalandi sé almennt veitt fullnægjandi vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað. Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð þýskra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur þeirra sé ekki brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að umsækjendum sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli. Þá er Þýskaland bundið að þjóðarétti til að fylgja reglunni um að einstaklingum skuli ekki vísað brott þangað sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu (non-refoulement).
Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.
Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Þýskalandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.
Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að viðmið sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga eigi við í málinu. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður hans að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Þýskalandi, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað aðstoðar vegna heilsufarsvandamála sinna þar í landi.
Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að hann óttist um öryggi sitt í Þýskalandi. Í ljósi skýrslna sem kærunefnd hefur kynnt sér er það mat nefndarinnar að þarlend yfirvöld séu í stakk búin til þess að veita umsækjendum fullnægjandi vernd gegn ofbeldi og að kærandi geti leitað til lögreglunnar og annarra yfirvalda telji hann sig vera í hættu í Þýskalandi.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 15. október 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 22. júní 2018.
Athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar
Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og beitingu 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.
Frávísun
Kærandi kom hingað til lands þann 22. júní 2018 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.
Kærandi skal fluttur til Þýskalands eigi síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.
Samantekt
Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Anna Tryggvadóttir
Árni Helgason Erna Kristín Blöndal