Mál nr. 70/2012 úrskurður 28. nóvember 2012
Mál nr. 70/2012 Eiginnafn: Lárent
Hinn 28. nóvember 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 70/2012 en erindið barst nefndinni sama dag:
Eiginnafnið Lárent (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Lárents, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.</</p>
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Lárent (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.